Morgunblaðið - 10.12.2006, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2006 49
MIKIL umræða hefur verið
undanfarið vegna fjölmiðla og að-
komu ríkis og fyrirtækja að þeim.
Hefur mér fundist
umræðan nokkuð ein-
strengingsleg og
þröng og trú á rík-
isvaldið til að leysa
alla hluti of mikil.
Ég er á þeirri skoð-
un að ríkið eigi ekki
að hafa afskipti af
fjölmiðlum eða menn-
ingu á nokkurn hátt.
Menn hafa stundað
þetta í austantjalds-
löndum og einræð-
isríkjum að stjórna og
matreiða gott efni of-
an í borgarana og því miður við-
gengst þetta enn í stórum hluta
Evrópu þótt eitthvað vægara sé.
Við kjósum venjulegt fólk á þing
til að setja lög og reglur um sam-
skipti manna. Er einhver ástæða
til að ætla að þetta fólk sé eitthvað
gáfaðra eða hærra þenkjandi en
annað fólk, án þess að móðga
nokkurn þá tel ég ekki svo vera.
Við, fólkið í landinu, greiðum
okkar atkvæði þegar við tökum
okkur til og förum í leikhús, í bíó,
á tónleika eða boltaleik. Þá greið-
um við þeirri „menningu“ atkvæði.
Vitanlega njóta sumir atburðir
meira fylgis en aðrir, sumir kosta
meira og við erum fá. Ég er samt
ekki hlynntur að nýta ríkið og
skattpeninga okkar í að nið-
urgreiða einhverja menningu.
Hvað ber þá að gera?
Hér koma góðar hug-
myndir að lausn
RÚV
Lítið hænuskref á
nú að stíga með
breytingu Rík-
isútvarpsins í ohf. og
löngu tímabæru af-
námi afnotagjalda.
Réttara væri að stíga
skrefið heldur lengra
og breyta alfarið yfir í
hf. Þá mætti gefa
helminginn af hluta-
fénu þeim sem eru réttmætir eig-
endur RÚV, þ.e. þeim sem hafa í
gegnum árin greitt skylduáskrift-
ina án þess að segja múkk. Hinn
helminginn mætti selja á frjálsum
markaði. Í kjölfarið væri loks hægt
að tala um útvarp og sjónvarp
þjóðarinnar í stað útvarp ríkisins
(ríkisstjórnar).
Aðrar menningarstofnanir
Eins og Þjóðleikhúsið, Sinfón-
íuhljómsveitin o.fl. þar eiga fyr-
irtæki að koma að með mynd-
arlegum hætti og styrkja þessa
starfsemi með auglýsingum. Þá
væri t.d. hægt að bjóða Strauss-
tónleika sinfóníuhljómsveitarinnar
í boði Glitnis, Kardimommubærinn
í boði Baugs eða Ronja ræn-
ingjadóttir í boði Actavis. Það eina
sem er óhugsað hjá mér er hús-
næðið, eins og t.d. Þjóðleikhúsið,
hvort rétt sé að hafa það í eigu
ríkisins og það sé þá aðstaða sem
ríkið útvegar eða leigir leikhópum
eins og vegirnir.
Það má auðvitað ekki gleyma því
að við þennan minnkandi rík-
isrekstur væri auðvitað hægt að
lækka skatta í kjölfarið og því
hefði fólk meiri peninga milli
handa til að njóta þess sem í boði
er og ásókn myndi því væntanlega
aukast.
Ríkisafskipti
Kristján Hreinsson skrifar um
afskipti ríkisins af fjölmiðlum
og menningarstarfi
»Ég er á þeirri skoðunað ríkið eigi ekki að
hafa afskipti af fjöl-
miðlum eða menningu á
nokkurn hátt.
Kristján Hreinsson
Höfundur er kerfisfræðingur.
www.valholl.is
www.nybyggingar.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.00.
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.Sími 588 4477
Óskum eftir fyrir
traustan kaupanda
Leitum að 140-200 fm íbúð eða hæð á svæðum 101-105 og 107
fyrir traustan kaupanda sem þegar hefur selt sína eign. Bílskúr eng-
inn skilyrði.
Allar upplýsingar veitir Bárður H. Tryggvason sölustjóri í
síma 896 5221 eða sendu upplýsingar á bardur@valholl.is
Fr
u
m
Nú er tækifæri til þess að eignast nýtt og eigið atvinnuhúsnæði
– Allt að 80% fjármögnun
Besta fermetraverð á sambærilegu atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu*il i i i
Suðurhella 6 - 221 Hfj
Frábær fjárfestingakostur*
– 109 fm iðnaðarbil með 7,5 m lofthæð, möguleiki á 109 fm millilofti þannig að heildarfermetrafjöldi verður 218 fm. Verð aðeins 16.900.000
– 218 fm iðnaðarbil með 7,5 m lofthæð, möguleiki á 218 fm millilofti þannig að heildarfermetrafjöldi verður 436 fm. Verð aðeins 27.900.000
Húsið er steypt og afhendist fullbúið að utan með malbikuðu plani og tilbúið til innréttinga að innan. Stórar innkeyrsludyr.
Afhending í júní 2007. Traustur byggingaaðili. Nánari upplýsingar veitir Þórarinn í síma 824-6704 eða á skrifstofu Draumahúsa 530-1811
*(Fermetraverð 87.000 kr pr. fm miðað við að kaupandi setji sjálfur milliloft.)
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Mjög falleg 107 fm efri hæð í tvíbýlishúsi ásamt 5,6 fm geymslu á þessum eftirsótta
stað. Eignin er mikið endurnýjuð m.a. gólfefni, sem eru parket og flísar, innrétting í
eldhúsi, innihurðir, rafmagnslagnir, tafla o.fl. Rúmgóð og björt parketlögð stofa,
borðstofa og eldhús í stóru alrými, rúmgott hol, þrjú svefnherbergi og baðherbergi,
flísalagt í gólf og veggi. Vestursvalir út af stofu. Verð 26,5 millj.
Eignin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16
Verið velkomin.
Njörvasund 14.
Mikið endurnýjuð efri hæð í tvíbýlishúsi
Opið hús í dag frá kl. 14-16
Sængurfataverslun, Glæsibæ • Sími 552 0978 • www.damask.is • Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16.
Engin gerviefni
í rúmfötunum
frá okkur
Fréttir
í tölvupósti