Morgunblaðið - 10.12.2006, Page 50
50 SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
GIMLI
BIRKIMÖRK 7 HVERAGERÐI
Ath. möguleiki er á 90% láni.
Dæmi:
Greitt við undirskrift 1.500,000.
Frá lánastofnun 17.000.000.
Viðbótarlán 3.430.000.
Lokagreiðsla við afsal 770.000.
HVERAGERÐI
• 892 9330
Allar upplýsingar um eignir í Hveragerði veitir Kristinn, lögg. fasteignasali
sími 483 5900, GSM 892 9330
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
Mjög snoturt og vel frágengið 107 fm
steinsteypt endaraðhús. Húsið er full-
búið og tilbúið til afhendingar við
kaupsamning. Húsið er steinað að ut-
an með marmarasalla. Allur frágangur
að innan er vandaður, parket og flísar
á gólfum, harðviðarinnréttingar.
Timburverönd og lóð fullfrágengin.
Pantaðu skoðun og Kristinn sýnir húsið þegar þér hentar.
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-16
KLEIFARSEL EINBÝLI
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Fallegt og mikið endurnýjað 171 fm einbýlishús á tveimur hæðum auk 33 fm bílskúrs
(samtals 204 fm). Á neðri hæð er anddyri, stór og björt stofa með útg. á stóra timbur-
verönd (suðvestur), stórt eldhús, gesta wc. og þvottahús. Á efri hæð er stórt fjölsk.
rými með útg. á svalir, baðherbergi og þrjú stór herbergi. Bílskúr fullbúinn.
GÓÐ EIGN Á GÓÐUM STAÐ. Verð 45 millj. Verið velkomin í dag frá kl.14–16.
Sigurður og Valgerður taka á móti gestum.
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali
SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG
Ca 139 fm glæsilegt
skrifstofuhúsnæði á
3. hæð við Ingólfs-
stræti 3. Fimm skrif-
stofurherbergi, fundar-
herbergi, kaffiaðstaða
og snyrting. Sala eða
leigusamningur.
V. 31,5 m.
MIÐBORGIN - SALA - LEIGA
Falleg 130 fm íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi. Íbúðinni fylgir stæði í lokaðri
bílageymslu. 4 svefnherbergi, stofa, eldhús, þvottah. innan íb. og svalir í
suður. Góð aðkoma. Húsið er steinað að utan. V. 29,4 m. 6323
EIGNIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG (SUNNUDAG) FRÁ KL. 13-15.
Sigurður á bjöllu.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
OPIÐ HÚS - Andrésbrunnur 9 3.h.v.
ÞRÓUN varnarmála Íslendinga á
þessu ári hefur verið athyglisverð.
Töluverðar umræður hafa verið um
hvernig eigi að haga varnarmálum
landsins þegar menn renndu grun í
að Bandaríkjamenn færu með her-
lið sitt af landinu hvort sem Íslend-
ingum líkaði betur eða verr. Menn
hafa átt í erfiðleikum með að takast
á við nýjan raunveruleika í þessum
málum og viljað halda
í pilsfald einhvers sér
til stuðnings og í raun
ekki viljað hugsa málið
upp á nýtt.
Nýjasta nýtt í mál-
inu er að nú viljum við
skríða í skjól Norð-
manna, sem eru
bandamenn okkar en
um leið andstæðingar
okkar á mörgum svið-
um. Þeir eiga að
nokkru leyti annarra
hagsmuna að gæta,
t.d. í fiskveiðimálum.
Það er spurning hvort það sé skyn-
samlegt í stöðunni, sérstaklega þeg-
ar við þurfum sjálfir líklega að
borga fyrir hernaðarumsvif þeirra.
Við stóðum í sömu sporum í
seinni heimsstyrjöldinni þegar
ákveðið var að stofna herlaust lýð-
veldi á Íslandi sem er mjög óvenju-
leg ákvörðun. Hvers vegna var sú
ákvörðun tekin? Aðstæður voru þá
mjög sérstakar hér á landi, það
voru stríðstímar og hér var erlend-
ur her. Okkur var ljóst að Banda-
ríkjamenn áttu hagsmuna að gæta
og vildu aðstöðu hér á landi. Þar
með vissu íslenskir ráðamenn að
þeir gátu komist af án íslensks hers
(og sparað sér umtalsverða fjár-
muni um leið) og stofnuðu lýðveldi
án hers. Í lok heimsstyrjaldarinnar
var ljóst að ekkert hlutleysi dugði
lengur og hér hafði myndast valda-
tómarúm sem yrði að fylla upp í
með einhverjum hætti.
Hugmyndir voru um að stofna
norrænt varnarbandalag og er at-
hyglisvert að skoða hvernig fór fyr-
ir þeim hugmyndum. Öll Norð-
urlöndin töldu að þeim stafaði
hætta af þessu nýja ástandi og sér-
staklega af hendi Sovétríkjanna en
þau stóðu uppi sem einn af sig-
urvegurunum í stríðslok. Hug-
myndin um skandinavískt varn-
arbandalag var
andvana fædd. Ástæð-
an fyrir því var að
Norðmenn og Svíar
gátu ekki komið sér
saman um eðli slíks
bandalags, það er
hvort það ætti að vera
sjálfstætt eða tengt
vestrænu hern-
aðarbandalagi. Svo
virðist sem Danir
hefðu sætt sig við
hvaða niðurstöðu sem
væri. Þannig að sagan
sýnir fram á að Íslend-
ingar geta ekki eingöngu treyst á
norrænar vinaþjóðir til að tryggja
varnir sínar. Hvað var þá hægt að
gera í stöðunni? Að ganga í fyr-
irhugað varnarbandalag vestrænna
ríkja og kasta hlutleysisgrímunni
endanlega af sér? Sú ákvörðun var
tekin og Íslendingar gengu í Nató.
Með aðildinni að Nató, töldu ís-
lensk stjórnvöld að öryggisþörf Ís-
lands væri að mestu fullnægt. Vest-
ræn ríki kæmu þjóðinni til aðstoðar,
ef til ófriðar drægi. Engan her
þyrfti á landinu á friðartímum. Her-
foringjar Atlantshafsbandalagsins
voru á annarri skoðun en þeir vildu
að herlið yrði á Íslandi á frið-
artímum til varnar Keflavík-
urflugvelli.
Breyting varð á stefnu íslenskra
stjórnvalda í varnarmálum á ár-
unum 1950–1951 vegna Kóreustyrj-
aldarinnar á sama hátt og eftir
valdarán kommúnista í Tékkóslóv-
akíu 1948. Þeir höfðu frumkvæðið
að því að leita til Atlantshafs-
bandalagsins til að styrkja varnir
landsins. Felld var niður stefnan
um herleysi á friðartímum og gerð-
ur var varnarsamningur við Banda-
ríkjamenn vorið 1951. Bandarísku
setuliði var skipað á land í annað
sinn.
Með þessu var varnarstefna Ís-
lands endanlega mörkuð næstu ára-
tugi. Íslendingum var orðið ljóst að
landfræðileg staðsetning Íslands
var ekki lengur vörn og þar af leið-
andi ekki lengur hægt að halda uppi
sannfærandi hlutleysisstefnu.
Nú eru Bandaríkjamenn farnir
en eins og í lok seinni heimsstyrj-
aldar með annan fótinn hér (svona
til öryggis ef Rússar færu aftur á
stjá með valdabrölti í norður-
höfum). Segja má að við séum í eins
konar millibilsástandi, eins og eftir
seinni heimsstyrjöld. Íslendingar
töldu ástandið ekki ásættanleg þá,
líkt og nú. Hvað erum við lengi að
komast að ásættanlegri niðurstöðu í
málinu? Nokkur ár eins og eftir
seinni heimsstyrjöldina? Getum við
treyst á Bandaríkjamenn? Ekki
kennir sagan okkur það. Hvað er þá
til ráða? Er ekki tími til kominn að
við hugsum hugsunina til enda og
tökum endanlega af skarið og stofn-
um hér íslenskan her, örygg-
issveitir eða þær leiðir sem henta
okkur?
Til þess að stíga slíkt skref, verð-
um við að endurskilgreina alla okk-
ar hugsun í þessu máli, skoða sög-
una (sjá t.d. bók mína
Hernaðarsaga Íslands 1170–1581),
hvað við höfum nú þegar í hönd-
unum og hvernig við getum nýtt
það til framtíðar. Hvað þurfum við
að hafa til að geta byrjað? Öryggis-
málastofnun sem sinnir rann-
sóknum á öryggis- og varn-
armálum? Stofnun nýs ráðuneytis,
varnarmálaráðuneyti? Og færa
stofnanir og einingar eins og Land-
helgisgæsluna, Friðargæsluna,
varnarmálaskrifstofu og sérsveit
ríkislögreglustjóra undir hatt slíks
ráðuneytis? Hvernig getum við til
dæmis nýtt okkur Atlantshafs-
bandalagið? Fengið það til að hjálpa
okkur að koma slíku ráðuneyti á fót
og jafnvel kostað þessa uppbygg-
ingu hers að mestu leyti? Fullur
vilji er fyrir hendi hjá bandalaginu
að hjálpa okkur, svo fremi sem við
viljum hjálpa okkur sjálf. Þetta er
lykilatriði í þessu máli, við verðum
sjálf að hafa frumkvæði.
Íslenskur her
Birgir Loftsson fjallar um varn-
armál
» Segja má að viðséum í eins konar
millibilsástandi, eins og
eftir seinni heimsstyrj-
öld. Íslendingar töldu
ástandið ekki ásætt-
anlegt þá, líkt og nú.
Birgir Loftsson
Höfundur er sagnfræðingur.
„KONAN er hverful sem fjöður í
vindi“ er sungið í óperunni Rigoletto
eftir Verdi. Og ætli karlinn sé nokk-
uð síður hverfull? Mig
minnir að hafa heyrt
sungið um hverfulleika
hans í óperum líka.
En fleira er hverfult
í heimi hér en ástir
kvenna og karla.
Hverfull er kvótinn
sem fjöður í vindsveip-
um efnahagslífsins.
Hann er auðfluttur
milli byggðarlaga.
Skip sömuleiðis. Sjó-
eldiskvíar eru auðfær-
anlegar. Hátæknifyr-
irtæki flytjast
auðveldlega, jafnvel
milli landa, ef vindar
markaðarins blása
þannig. Her-
bækistöðvar eru
dregnar saman, eða
lagðar niður, þegar
stjórnmálaástandið í heiminum
breytist. Ferðaþjónustufyrirtæki
eru líka auðfæranleg. Slíkt fyrirtæki
þarf ekki að vera á Húsavík til að
gera út á náttúru Þingeyjarsýslna
eða á Sauðárkróki til að bjóða upp á
flúðasiglingar á Jökulsá eystri.
Álver sem einu sinni hefur verið
byggt á einhverjum stað hverfur
hinsvegar ekki svo auðveldlega á
braut einn góðan veðurdag næstu
áratugina. Raforkukaupasamningar
eru gerðir til áratuga. Það er erfitt
að hugsa sér kring-
umstæður þar sem eig-
andi þess kýs að leggja
það niður og verða að
greiða fyrir rafmagnið
áfram, a.m.k. að hluta
til, og skilja stofnfé
versins að stórum hluta
eftir óarðbært, fremur
en að reka það áfram.
Umtalsverður hluti
kostnaðarins við ál-
vinnslu er fastur.
Flestar konur og
flestir karlar leita
fastra sambanda.
Byggðarlög sækjast
eftir festu í atvinnu-
málum. Byggðarlög,
sem hafa horft á eftir
kvóta, skipum og fólki á
brott og orðið fyrir von-
brigðum með mis-
heppnaðar tilraunir til atvinnusköp-
unar. Getur verið að hér sé komin
skýringin á eftirsókn margra þeirra
eftir álveri?
Hvers vegna
sækjast byggðar-
lög eftir álveri?
Jakob Björnsson
fjallar um álver
Jakob Björnsson
» Byggðarlögsækjast eftir
festu í atvinnu-
málum.
Höfundur er fyrrverandi orku-
málastjóri.
ÞAKRENNUKERFI
á öll hús – allsstaðar
Smiðjuvegi 74
Sími 515 8700
BLIKKÁS –
Fréttir á SMS