Morgunblaðið - 10.12.2006, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2006 51
UMRÆÐAN
FÁIR hafa á undanförnum árum
veizt eins að samningnum um Evr-
ópska efnahagssvæðið og íslenzkir
Evrópusambandssinnar sem sjá
samninginn nú fyrir
sér sem hindrun í
vegi þess að koma Ís-
landi inn í Evrópu-
sambandið ólíkt því
sem áður var þegar
honum var ætlað að
koma okkur inn í
sambandið bakdyra-
megin. Það er því
broslegt að sjá Andr-
és Pétursson, for-
mann Evrópusamtak-
anna, saka þá, sem
ekki vilja að Ísland
verði hreppur í þessu
fyrirhugaða evrópska
stórríki, um að finna samningnum
flest til foráttu í grein í Morg-
unblaðinu 3. desember sl.
Andrés hafnar því alfarið að aðr-
ir möguleikar kunni að standa Ís-
landi til boða í samskiptum við
Evrópusambandið en annaðhvort
EES-samningurinn eða aðild að
sambandinu. Tvíhliða samningar
við sambandið, líkt og Sviss hefur
gert með góðum árangri, standa
ekki Íslandi til boða að hans sögn.
Þó er staðreyndin sú að þetta hef-
ur nánast ekkert verið kannað og
Andrés því ekki í aðstöðu til að
fullyrða neitt um það frekar en
aðrir. Eðlilega vill hann þó alls
ekki að möguleikum Íslands fjölgi í
stöðunni og væri væntanlega fegn-
astur ef aðeins ein leið stæði Ís-
landi til boða, þ.e. aðild að Evrópu-
sambandinu.
Þeir sem hins vegar hafa það að
markmiði að tryggja hagsmuni Ís-
lands og íslenzku þjóðarinnar sem
bezt hverju sinni, hvort sem það er
í samskiptum við Evrópusam-
bandið eða aðra, vilja eðlilega að
sem flestar leiðir séu skoðaðar í
þeim efnum en ekki einblínt á eina
leið eins og t.d. Evrópusambands-
sinnar gera. Markmiðið hlýtur
ávallt að vera að tryggja hagsmuni
Íslands sem bezt hverju sinni, en
ekki leiðirnar sem farnar eru í því
skyni. En áróður Evrópusam-
bandssinna er þvert á móti sá að
Evrópusambandsaðild sé aðeins
tímaspursmál. Skilaboðin eru
m.ö.o. þau að íslenzka þjóðin muni
ekkert hafa um málið að segja
þegar upp er staðið.
Henni sé nauðugur
einn kostur og því sé
allt eins gott að láta
af öllum mótþróa
strax.
Það er nauðsynlegt
að kannað sé með ít-
arlegum og upplýstum
hætti hvort sú leið,
sem Svisslendingar
hafa farið til að
tryggja hagsmuni sína
gagnvart Evrópusam-
bandinu, geti hentað
okkur Íslendingum
betur en EES-
samningurinn. Reynsla Svisslend-
inga af tvíhliða samningum við
sambandið er jákvæð og samning-
arnir njóta stuðnings öruggs
meirihluta svissneskra kjósenda.
Það hafa ítrekaðar þjóðaratkvæða-
greiðslur um þá sýnt og sannað
svo vitnað sé í Christu Markwal-
der Bär, formann svissnesku Evr-
ópusamtakanna, sem kom hingað
til lands sl. haust og flutti erindi á
fundi á vegum íslenzku Evrópu-
samtakanna.
Ummæli Markwalder Bär eru
einmitt sérstaklega athyglisverð í
ljósi stöðu hennar sem formanns
þeirra samtaka sem hafa það
markmið eitt að koma Sviss inn í
Evrópusambandið. Hún hefur því
nákvæmlega enga ástæðu til að
segja nokkuð jákvætt um tvíhliða
samningana við sambandið. En
ekki einu sinni hún getur þó annað
en gengizt við þeirri góðu reynslu
sem Svisslendingar hafa af haft af
þeim. Það segir meira en flest ann-
að og ætti eitt og sér að vera nægt
tilefni til að veita þeirri leið sem
Sviss hefur farið meiri athygli en
verið hefur hér á landi.
Evrópusamtökin og
haagsmunir Íslands
Hjörtur J. Guðmundsson gerir
athugasemd við grein Andrésar
Péturssonar um Evrópumál
»Reynsla Svisslend-inga af tvíhliða
samningum við sam-
bandið er jákvæð og
samningarnir njóta
stuðnings öruggs meiri-
hluta svissneskra kjós-
enda.
Hjörtur J.
Guðmundsson
Höfundur er stjórnarmaður í Heims-
sýn, hreyfingu sjálfstæðissinna í Evr-
ópumálum.
TENGLAR
..............................................
www.heimssyn.is
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
LAMBASEL - FOKHELT
Nýtt einbýlishús í Lambaseli.
Húsið er að verða fokhelt. Húsið
er pallahús sem skiptist á þrjá
palla. Bílskúr fylgir húsinu og er
húsið í functional stíl. Húsið er
skv. FMR 240,0 fm með bílskúrn-
um sem er 37,2 fm. Gert er ráð
fyrir að húsið verði fokhelt f. ára-
mótin 2006-7. 6326
ÁSVALLAGATA - STANDSETNING/BYGG-
INGARRÉTTUR
OPIÐ HÚS - LÆKJARFIT 12 - 1. H. - EINB.
Glæsilegt 400,5 fm einbýlishús
með innbyggðum 45,4 fm bílskúr
á frábærum stað. Húsið hefur allt
verið endurbyggt, stækkað og
byggt við það. Skipulag hússins
hefur einnig verið endurskipulagt
og nánast allt endurnýjað, s.s.
gólfefni, skápar, innréttingar, bað-
herbergi, eldhús, lóð o.fl. Lóðin er
öll nýstandsett, hellulögð með
lýsingu, timburveröndum til suð-
urs o.fl. 6333
BYGGINGARLÓÐ VIÐ FURUGERÐI
Glæsilegt 230 fm einbýlishús á einni hæð sem skiptist í anddyri, 3 svefnh., baðher-
bergi, tvær stofur, eldhús, bílskúr og möguleika á aukaíbúð í rými við hlið bílskúrs.
Stór lóð er með húsinu sem gefur möguleika á að byggja um 280 fm hús á lóðinni
sem væri sérbygging. Nánari upplýsingar og teikningar á skrifstofu.
EIGNIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG, SUNNUDAG, FRÁ KL. 13-15. V. 59,0 m.
6265
ANDRÉSBRUNNUR 9 - 3. H. V.
SÚLUHÓLAR - ÚTSÝNI
3ja herb. 79 fm falleg íbúð á
1. hæð með fallegu útsýni yfir
Elliðaárdalinn. Húsið er í mjög
barnvænu hverfi rétt við einstaka
útivistarparadís. Ákv. sala.
V. 16,9 m. 6328
KRÍUHÓLAR
Falleg 45 fm 2ja herbergja íbúð á
6. hæð með yfirbyggðum svölum
og fallegu útsýni. Eignin skiptist í
hol, baðherbergi, stofu/eldhús
og herbergi. Yfirbyggðar svalir út
af herberginu. V. 10,9 m. 6332
Höfum fengið í sölu 3.700 fm lóð
við Furugerði í Reykjavík. Lóðin,
sem er leigulóð af hálfu Reykja-
víkuborgar, er um 3.700 fm. Ekki
liggur fyrir hversu mikið magn
má byggja á lóðinni. Á lóðinni
stendur í dag einbýlishús auk
tveggja gróðurhúsa. Staðsetning
lóðarinnar er afar miðsvæðis og
býður upp á ýmsa möguleika.
Tilvalið tækifæri fyrir bygginga-
verktaka. Nánari upplýsingar
veitir Óskar R. Harðarson. 6309
Falleg 130 fm íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi. Íbúðinni fylgir stæði í lokaðri bílgeymslu.
4 svefnh., stofa, eldhús, þvottah. innan íb. og svalir í suður. Góð aðkoma. Húsið er
steinað að utan. EIGNIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG, SUNNUDAG, FRÁ KL. 13-
15. Sigurður á bjöllu. V. 29,4 m. 6323
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Til sölu/leigu við sjávarsíðuna, glæsil. nýtt 1012 fm. atvinnuh. Húsnæðið skiptist þannig: Salur ca 500
fm. Lofthæð allt að 8 m, nokkrar góðar innkeyrsludyr. Verkstæði/lager ca 250 fm. með 3 m lofthæð.
Efri hæð: skrifstofur, starfsmannaaðstaða, glæsil. útsýni, ca. 250 fm. Rúmgóð athafnalóð, hellulögð,
góð aðkoma. Vönduð eign. Húsnæðið er til afhendingar mjög fljótlega.
Allar nánari uppl gefa Hilmar og Helgi Jón á skrifstofu Hraunhamars. s.520 7500.
Vesturvör - Kóp. - Atvinnuhúsnæði
36 hektara land, beitarland til sölu, í Vestur-Landeyjahreppi í 120 km fjar-
lægð frá Reykjavík. Öll grasigróin og steinlaus. Landið er afstúkað með
skurðum og rennandi vatni. Á landinu stendur vatnið Kuggavatn sem er
u.þ.b. 1/2 hektari. Ótæmandi ræktunarmöguleikar. Lítið hefur verið beitt á
landinu í gegnum tíðina .Verð 12,5 millj. 3106
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
BEITARLAND TIL SÖLU