Morgunblaðið - 10.12.2006, Síða 54
54 SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Mikið endurnýjuð íbúð í góðu lyftu-
húsi sem stendur vestast í Engi-
hjallanum með fallegu útsýni. Eld-
húsið er glæsilegt og nýstandsett
með vandaðri innr. og graníteldhús-
borði. Borðkr. er við glugga með
góðu útsýni til Esjunnar. Baðh. var
endurn. fyrir nokkrum árum, flísa-
lagt í hólf og gólf, með handklæða-
ofni og rúmgóðri innr. Gólfefni íbúðar er eikarparket. Ásett verð 17,4 millj.
Engihjalli 25, íb. 3c, Kópavogi
Tekið er á móti gestum í dag frá kl. 14-15.
Uppl. í síma 697-7714 Elín.
LINDARBYGGÐ 7
OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 15:00 OG 16:00
Í dag frá kl. 15-16 verður opið hús í Lindarbyggð 7 í Mosfellsbæ. 182 fm parhús við
eina fallegustu götu Mosfellsbæjar. Húsið er hannað af Ingimundi Sveinssyni arki-
tekt. Vönduð gólfefni og innréttingar. Mikil lofthæð. Sólskáli og
fallegur garður. Hellulagnir með snjóbræðslu. Topp eign. Getur
losnað fljótlega. V. 42 m. 5574
Berg fasteignasala, Háaleitisbraut 58
Sími 588 5530 • Netfang: berg@berg.is
Pétur Pétursson lögg. fasteignasali
ÆGISÍÐA
Vel staðsett 261,4 fm einbýlishús við Ægisíðu. Íbúðarrými er skráð
231,5 fm og bílskúr 29,9 fm. Húsið stendur á 797 fm glæsilegri horn-
lóð á eftirsóttum útsýnisstað. Arkitekt er Aðalsteinn Richter. Á aðal-
hæð hússins eru 2 glæsilegar stofur sem gengið er í niður af palli,
borðstofa, eldhús, snyrting, rúmgott hol og forstofa. Gengið er út í
garð úr stofu og borðstofu. Á efri hæð eru 3-4 herb., baðh. og hol.
Rúmgóðar svalir útaf hjónah. Í kjallara eru herbergi, baðh., þvotta-
hús, búr og hol. Mikil lofthæð er í húsinu. Húsinu hefur verið mjög
vel viðhaldið. Húsið er laust til afh. fljótlega. Verð 95 millj. #6005
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
HINN 6. desember sl. skrifar „kjós-
andi“ greinarstúf um Vinstri græna
í Suðurkjördæmi og spyr hvernig
staðið hafi verið að vali á framboðs-
lista hreyfingarinnar í kjördæminu.
Þá telur hann Vestmannaeyinga
hafa verið hunsaða í vali á listann
og að á honum sé enginn úr röðum
okkar Eyjamanna. Að lokum hefur
„kjósandi“ efasemdir um jafnrétti
kynjanna á listanum.
Þar sem mér er málið skylt lang-
ar mig að upplýsa „kjósanda“ um
hvernig staðið var að uppröðun á
listann. Það var gert með þeim
hætti að almennur kjördæmisráðs-
fundur í Suðurkjördæmi öllu (þar
sitja að sjálfsögðu fulltrúar Vest-
mannaeyja) skipaði uppstilling-
arnefnd til að gera tillögu um fram-
boðslista. Uppstillingarnefndin
leitaði til félaga Vinstri grænna úr
öllu kjördæminu og bað um ábend-
ingar frá þeim. Þær ábendingar létu
ekki á sér standa og í framhaldi af
því lagði uppstillingarnefndin til
þann lista sem var samþykktur
samróma á almennum kjördæm-
isráðsfundi 2. des. síðastliðinn.
Á framboðslistanum eru tveir
Vestmannaeyingar, tvær ungar,
dugandi og glæsilegar konur, þær
Jórunn Einarsdóttir og Aldís Gunn-
arsdóttir. Ég tel þær vera mjög
verðuga fulltrúa Vestmannaeyja
enda njóta þær tvímælalaust
trausts félaga sinna úr Suður-
kjördæmi öllu. Vera þeirra á listan-
um er auðvitað eitt dæmið um vand-
aða og ígrundaða vinnu
uppstillingarnefndarinnar þar sem
áhersla var m.a. lögð á jafnvægi
milli byggðarlaga í hinu stóra kjör-
dæmi.
Ein forsenda uppröðunar á lista
Vinstri grænna á Suðurlandi var sú
að gætt skyldi jafnræðis milli kynja.
Ekki mætti vera yfir 60% hlutfall
annars kynsins á listanum. Þessa
var gætt þegar listinn var ákveðinn.
Raunar er það þannig að konur
skipa 60% en karlar 40%. Slík staða
er vissulega óvenjuleg en e.t.v. und-
irstrikar hún best að Vinstri grænir
eru í raun jafnréttisflokkur og af
því getum við verið stolt.
Ég vil þakka þér „kjósandi“ fyrir
áhuga á málefnum Vinstri grænna í
Suðurkjördæmi en ég taldi nauð-
synlegt að leiðrétta það sem þú
sagðir um hlut Vestmannaeyinga á
listanum og skýra að öðru leyti at-
riðin um hvernig raðað var á listann
og hvernig reglan um hlutfall karla
og kvenna speglast á honum.
RAGNAR ÓSKARSSON,
fulltrúi Vestmannaeyja í uppstill-
ingarnefnd Vinstri grænna í Suður-
kjördæmi.
Vinstri grænir í Suðurkjördæmi og
Vestmannaeyjum
Frá Ragnari Óskarssyni:
EFTIR að Árni Johnsen náði öðru
sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokks-
ins í Suður-
kjördæmi hafa
ungir sjálfstæð-
ismenn og fé-
lagar sjálfstæð-
iskvenna í
Reykjavík lýst
því yfir að þau
séu hrædd um
að árangur Árna
Johnsen í próf-
kjöri og vænt-
anleg endurkoma hans á Alþingi í
vor hafi neikvæð áhrif á fylgi
flokksins og flokkurinn tapi at-
kvæðum á landsvísu. Þau eru að
leita að blóraböggli vegna hræðslu
um tap í kosningunum í vor og
ekki að ástæðulausu. Það er ekki
endurkoma Árna Johnsen sem
mun orsaka mikið tap flokksins í
vor, heldur þeir sem hafa stjórnað
þessu landi undanfarin ár og farið
illa með eldri borgara þessa lands.
Yfir þrjátíu þúsund eldri borgarar
þessa lands eru á kjörskrá í vor
og haldið þið, sjálfstæðismenn og
-konur, að eldri borgari sem hef-
ur, litlar, eitt hundrað þúsund
krónur í lífeyri og þarf að borga
36% skatt af þessum nauma lífeyri
hugsi sig ekki um tvisvar um áður
en hann kýs Sjálfstæðisflokkinn
aftur? Sama er að segja um fólkið
sem tók út séreignarsparnaðinn,
seldi hlutabréfið sitt og fékk lítinn
hluta af þeim peningum í vasann,
vegna þess að ríkið hafði hirt
meginhluta þess í formi tekju-
skatts og niðurfellingar á tekju-
tengdri lífeyrisgreiðslu. Eldri
borgarar sem sjá aukna skattbyrði
á sínar litlu tekjur, þrátt fyrir hól
og sjálfumgleði ráðamanna þjóð-
arinnar um skattalækkanir, haldið
þið að þau greiði flokknum aftur
atkvæði? Ég er ekki hissa þótt
ungir sjálfstæðismenn og konur
séu hrædd um fylgishrun á lands-
vísu í kosningunum í vor, en það
er ekki vegna þess að dugnaðar-
forkurinn Árni Johnsen er vænt-
anlegur á þing, heldur vegna þess
hvernig þið eruð búin að fara með
eldri borgara þessa lands. Þið
skulið leita að blóraböggli í eigin
ranni en ekki í einum einstaklingi
sem við höfum veitt stuðning í
Suðurkjördæmi.
GÍSLI JÓNASSON,
verslunarmaður og
fyrrverandi skipstjóri,
Áshamri 3f , Vestmannaeyjum.
Sjálfstæðisflokkur í leit að blóraböggli
Frá Gísla Jónassyni:
Gísli Jónasson
AÐ UNDANFÖRNU höfum við
orðið vitni að býsna sérkennilegri
umræðu um stuðningsúrræði sem
nokkrir skólar hafa verið aðnjótandi
um mislangt skeið. Þessi stoðþjón-
usta hefur gengið undir nafninu
„Vinaleið“. Í Varmárskóla í Mos-
fellsbæ hófst þessi starfsemi árið
1999 og hefur staðið óslitið síðan við
mikla ánægju nemenda, foreldra og
starfsfólks skólans og hefur for-
eldrafélagið veitt forvígismanni
Vinaleiðarinnar, Þórdísi Ásgeirs-
dóttur sérstaka viðurkenningu fyrir
þetta verkefni. Hún hefur breiðan
faglegan grunn sem menntaður leik-
skólakennari, grunnskólakennari og
er einnig menntuð sem djákni. Þór-
dís er ráðin sem starfsmaður skól-
ans og þiggur laun frá sveitarfé-
laginu. Vinaleiðin felst í því að veita
stuðning þeim sem þangað leita og
eiga við margvísleg vandamál að
etja en af þeim er meira en nóg í
okkar fjölskrúðuga samfélagi. Að
leiða nemendur í gengum sorgarferli
t.d. vegna veikinda eða andláts ná-
inna ættingja, skilnaða eða annarra
tilfinningalegra truflana er kjarninn
í þessari þjónustu. Vissulega er
kristið siðgæði haft að leiðarljósi
enda játa allflestir kristna trú og
kennsla í kristnum fræðum er lög-
boðin í grunnskólum. Einnig segir í
2. grein grunnskólalaga að starf
grunnskólans skuli mótast af kristi-
legu siðgæði. Með Vinaleiðinni er
ekki vegið að neinum trúarskoð-
unum enda grundvallaratriði í öllu
uppeldis- og skólastarfi að virða trú-
frelsi einstaklinga og fræða um
helstu trúarbrögð heims. Það hlut-
verk teljum við okkur rækja af kost-
gæfni. Mér finnst sú umræða sem
átt hefur sér stað og hefur teygt sig
upp í æðsta stjórnkerfi landsins með
ólíkindum. Einhvers staðar sá ég að
því var fundið til foráttu að „boð-
orðin tíu“ væri að finna í viðtals-
herbergi sem Vinaleiðin hefur til
umráða. Sem leikmaður hef ég litið
svo á að ef 1.boðorðið er undanskilið
þá séu þau kjarninn í ríkjandi þjóð-
skipulagi bæði í siðferðislegu og
réttarfarslegu tilliti. Ágætu les-
endur. Það er dýrmætt að eiga hug-
sjónir, einkum ef þær snúast um að
bæta mannlífið. Vinaleiðin hefur
hjálpað mörgum. Það sannast á því
að fjölmargir einstaklingar finna þar
huggun og þeir koma þangað aftur
og aftur, hver á sínum forsendum.
Öll siðmennt hlýtur að byggja á því
að rækta einstaklinginn, veita hon-
um stuðning og leiða hann til aukins
þroska og mannkærleika. Það hlut-
verk rækir Vinaleiðin.
VIKTOR A. GUÐLAUGSSON
skólastjóri Varmárskóla.
Vinaleiðin
Frá Viktori A. Guðlaugssyni:
Fréttir á SMS
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn