Morgunblaðið - 10.12.2006, Qupperneq 64
|sunnudagur|10. 12. 2006| mbl.is
Rappsveitin Forgotten Lo-res sendi nýverið frá sérsína aðra plötu, Fráheimsenda. Þrjú ár eru
síðan fyrsta plata sveitarinnar kom
út, en hún heitir Týndi hlekkurinn
og fékk góða dóma gagnrýnenda á
sínum tíma. Birkir B. Halldórsson,
einn af röppurum sveitarinnar, vill
þó meina að nýja platan sé enn
betri. „Okkur finnst það og þeir sem
hafa heyrt hana eru sammála því,“
segir Birkir. „Við vönduðum okkur
mikið við gerð þessarar plötu en við
gerðum hana samt ofboðslega hratt.
Við tókum meirihlutann af henni
upp í Danmörku á þremur vikum í
sumar. Hún er tæknilega betri en
Týndi hlekkurinn, og við erum bara
mjög ánægðir með hana,“ segir
Birkir, sem skipar sveitina ásamt
þeim Benedikt Frey Jónssyni,
Kristni Helga Sævarssyni, Baldvini
Þór Magnússyni og Ársæli Þór
Ingvasyni.
Ástkæra ylhýra
Aðspurður segir Birkir þá félaga
hafa þroskast töluvert á þeim þrem-
ur árum sem liðin eru frá síðustu
plötu. „Svo hugsa ég að það skipti
máli að við erum ekki feimnir við að
gera það sem við viljum. Við göng-
um óhikað til verks við það sem við
viljum gera og ætli það sé ekki part-
ur af þroskanum,“ segir hann, og
bætir því við að góð og gild ástæða
sé fyrir því að þrjú ár hafi liðið á
milli platnanna. „Við höfum verið á
flakki um Evrópu síðustu ár og ekki
verið mikið saman síðan 2003. En
við gáfum okkur loksins tíma í sum-
ar til þess að gera þetta, og gerðum
það vel.“
Allar rímurnar á nýju plötunni
eru á íslensku og segir Birkir að
þeir félagar hafi snemma tekið
ákvörðun um að rappa á móðurmál-
inu. „Á sínum tíma vorum við hvatt-
ir til að rappa á íslensku því málið
væri að rappa á okkar tungumáli
fyrir Íslendinga ef við fyndum leið-
ina til þess að gera það vel. Við tók-
um þeirri áskorun og okkur fórst
það vel úr hendi þannig að við
ákváðum að halda því áfram,“ segir
Birkir. „En við höfum líka gert lög á
ensku, við gerðum það þegar við
stofnuðum hljómsveitina enda heitir
hún ensku nafni.“ Hvað innihald
textanna varðar segir Birkir að hug-
myndirnar komi víða að. „Við
ákváðum að rappa bara um allt frá
daglegu amstri yfir í helgardjamm-
ið, og svo út í túlkun okkar á raun-
veruleikanum,“ segir hann, en neit-
ar því hins vegar að hljómsveitin sé
pólitísk. „Ekki á þessari plötu, alla-
vega ekki mjög. En við leyfum einni
og einni setningu að laumast inn.
Svo er þarna eitt lag, Áttu heimili,
það er kannski ekki beint pólitískt
en það hvetur mann til þess að horfa
í kringum sig og sjá hvað maður
hefur það gott miðað við meirihlut-
ann af heimsbyggðinni.“ Birkir seg-
ir einfalda skýringu á tilkomu nafns-
ins Frá heimsenda. „Þetta er eina
tillagan sem kom um nafn á plötuna,
við vorum búnir að vera lengi að
hugsa um nafn og vorum fyrst ekk-
ert á því að nota þetta því okkur
fannst það of þungt. En því lengur
sem við hugsuðum um það, því bet-
ur líkaði okkur við það,“ segir hann.
„Þetta á að þýða að við komum frá
heimsenda og dúndrum á ykkur
góðu hipphoppi. Svo er líka umræða
í gangi um heimsenda, að hann sé að
nálgast, og pólitíkin úti í heimi mið-
ast mikið við að hann sé í nánd.
Þannig að okkur fannst þetta vera
flottur titill, auk þess sem þetta er
auðvitað vetrarplata.“
Rímur og bakstur
Hver sá sem hlustar á nýju plöt-
una heyrir fljótlega að þeir félagar
eru engir nýgræðingar í rappinu því
þeir hafa mjög gott vald á rímunum.
Birkir segir ekkert sérstaklega erf-
itt að ná tökum á þeirri list. „Nei,
ekki þegar maður er kominn inn í
það. Þetta er eins og með allt annað,
maður finnur sér eitthvað að gera
og gerir það í svolítinn tíma og til-
einkar sér það. Þetta er bara eins og
bakari sem þarf að vera í eldhúsinu í
nokkur ár áður en hann getur farið í
bakaríið og selt.“
Útgáfutónleikar verða haldnir í
Þjóðleikhúskjallaranum hinn 29.
desember og er miðasala þegar haf-
in á midi.is og í verslunum Skíf-
unnar. Birkir segir að tónleikagestir
megi eiga von á góðu. „Við lofum
mikilli stemningu og gleði.“
Tónlist | Rappsveitin Forgotten Lores sendir frá sér nýja plötu sem nefnist Frá heimsenda
Heimsendarímur og rapp
Þroskaðir „Við göngum óhikað til verks við það sem við viljum gera og ætli það sé ekki partur af þroskanum.“
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
www.myspace.com/for-
gottenlores
staðurstund
Birtur er kafli úr bókinni Óvin-
um ríkisins sem tilnefnd er til
Íslensku bókmenntaverð-
launanna. » 66
bækur
Heather Mills hefur ákveðið að
flytja hluta máls síns sjálf fyrir
dómi en hún er að skilja við Paul
McCartney. » 77
fólk
Árni Matthíasson skrifar um
hinn afkastamikla Sufjan Ste-
vens sem hélt nýlega tónleika í
Fríkirkjunni. » 69
tónlist
Óttar Sveinsson skrifaði bókina
Útkall, Leifur Eiríksson brot-
lendir þar sem fjallað er um
flugslysið á Sri Lanka. » 66
bækur
Blóm eru smá, frumraun Ívars
Bjarklind á tónlistarsviðinu, fær
fjórar stjörnur af fimm mögu-
legum hjá gagnrýnanda. » 73
dómur
NÆSTKOMANDI þriðjudag hefst
upplestrarröðin Jólahrollur í há-
deginu þar sem lesið verður upp úr
nýjum íslenskum skáldsögum
klukkan 12.15 á hverjum degi til og
með Þorláksmessu.
Riðið er á vaðið með Konungsbók
Arnaldar Indriðasonar, en Ingvar
E. Sigurðsson les.
Meðal þeirra sem lesa úr verkum
sínum fram að jólum eru Ævar Örn
Jósefsson, Stefán Máni, Bragi
Ólafsson, Steinar Bragi og Yrsa
Sigurðardóttir en Stella Blómkvist
sendir leikkonuna Ólafíu Hrönn til
að lesa upp fyrir sig.
Sérstök athygli er vakin á því að
Konungsbók sú sem bók Arnaldar
Indriðasonar er nefnd eftir er Kon-
ungsbók Eddukvæða, en handrit
hennar, frá um 1270, er til sýnis í
Þjóðmenningarhúsinu.
Þjóðmenningarhúsið Jólahrollur
fram að jólum.
Jólahrollur í Þjóðmenningarhúsinu