Morgunblaðið - 10.12.2006, Qupperneq 69
E
ins og menn sáu á tónleikum
Sufjan Stevens í Fríkirkjunni í
síðasta mánuði felur hann í sér
tvo listamenn ólíka; annar ró-
lyndan lágstemmdan mann með
gítar/banjó sem syngur hjartnæma hljóðláta
texta og svo er það hinn sem stýrir fjöl-
mennri rokksveit með blásarahóp og tilheyr-
andi. Þessa sér og stað í textunum, sumir
hjartnæmir í einfaldleika sínum en aðrir fara
um víðan völl upp fullir með lyklum og tákn-
um, dæmi- eða reynslusögur.
Eins og Sufjan rekur söguna ætlaði hann
sér aldrei að verða tónlistarmaður og fluttist
til að mynda til New York sem ungur maður
beinlínis til þess að verða rithöfundur og hafa
sem aukastarf að kenna fólkið að skrifa skáld-
skap. Allt fór þó að annan veg, tónlistin hafi
haft betur í togstreitunni við bókmenntirnar,
en Stevens bendir þó á að texti og tónlist hafi
verið náin í gegnum aldirnar og á dögum
söngvaskáldana, trúbardúranna, hafi lög að-
allega verið samið til þess að þjóna textanum,
en ekki öfugt.
Sufjan segir sögur
Það er og eitt af einkennum laga Sufjans
Stevens að textinn er gríðarlega mikilvægur,
alla jafna er hann fyrst og fremst að segja
sögur, hvort sem það er af því þegar næstum
kviknaði í heimili hans eða af brjóstumkenn-
anlegum fjöldamorðingja. Þetta skýrir líka að
einhverju leyti þá tilhneigingu hans að tengja
allt saman, hver plata sé hugmyndafræðileg
heild, sá að segja samhangandi sögu, lýsa
raunveruleikanum. Þetta á vel við um plöt-
urnar um Michigan og Illinois og líka reyndar
vel um nýjasta uppátæki hans.
Síðustu ár hefur Sufjan Stevens tekið upp
stuttskífu með jólalögum fyrir ættingja og
vini. Þetta segir hann til komið vegna þess að
hann var orðinn leiður á að kaupa jólagjafir
og ákvað því að reyna að gleðja sína nánustu
á annan hátt.
Það er þó ekki eina skýringin sem hann
hefur gefið heldur segist hann líka verið að
leit að jólaandanum í sjálfum sér, komast yfir
jól æskunnar þar sem allt snerist um gjafir
og hávaða. Engum sögum fer af því hvort
hann náði að fanga anda jólanna á þennan
hátt, en hann náði þó að uppgötva að jóla-
tónlist var ekki svo slæm að því hann segir
sjálfur, sérstaklega þegar hann áttaði sig á
því að ofgnótt vestrænna jóla og ótal klisjur
eru skemmtilegar út af fyrir sig.
Jólalög fyrir ömmu
Alla jafna fór þetta þannig fram að Stevens
settust niður heima með góðum vinum með
jólasöngbók og síðan var tekið upp. Eina
reglan var sú að verið væri að taka upp jóla-
lög fyrir ömmu Stevens, en hljóðfærin komu
úr ýmsum áttum, gítar, banjó (auðvitað), pí-
anó, orgel, blokkflauta, óbó, sleðabjöllur og
svo má telja, en einnig var leikið á sitthvað
sem ekki er hægt að telja hljóðfæri, klappað
og stappað.
Allt var sem sé tekið upp og frágengið
heima í stofu og þegar plöturnar komu úr
framleiðslu voru umslög sett saman í eldhús-
inu, plötunum pakkað inn og þær sendar út í
heim. Þeir sem fengu slíka jólapakka leyfðu
svo öðrum að heyra og smám saman spurðist
þetta framtak út, fólk fór að spyrjast fyrir um
jólalögin hjá Útgáfu Sufjans og eins tóku lög
að rata inn á Netið.
Tveir tímar af tónlist
Fyrsta smáskífuna tók hann upp 2001 og
síðan á hverju ári upp frá því, en reyndar
sleppti hann árinu 2004 fyrir einhverjar sakir.
Plöturnar eru því fimm saman í pakka, 42 lög
alls, um tveir tímar af tónlist en fimmtán lag-
anna eru eftir Sufjan sjálfan. Ýmislegt annað
hnossgæti er að finna í pakkanum, jólalím-
miða, ítarlega frásögn af upptökuferlinu öllu
og smásögu eftir Stevens, söngbók með text-
um og hljómum og ritgerð um jólin eftir rit-
höfundinn Rick Moody, aukinheldur sem þar
er að finna veggmynd af Sufjan og fjölskyld-
unni sem gerð var heldur jólalegri af málara.
Á tónleikunum í Fríkirkjunni var sviðið
skreytt uppblásnum jólasveinum sem enduðu
síðan úti í sal að seinni tónleikum loknum.
Hafi viðstaddir velt fyrir sér tilganginum er
hann kominn í ljós – það var forsmekkur að
jólapakkanum góða.
Jólasveinninn Sufjan Stevens
TÓNLIST Á SUNNUDEGI
Árni Matthíasson
Sufjan Stevens er svo afkasta-
mikill að undrum sætir, eftir
hann liggja sex breiðskífur á
sex árum, en einnig hefur
hann unnið að fjölmörgum
verkefnum með öðrum tónlist-
armönnum og lagt land undir
fót til tónleikahalds. Fyrir
stuttu kom svo enn skammtur
af tónlist frá honum og það
sannkallaður jólapakki.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Jólasveinn Það var jólalegt um að litast á sviðinu hjá Sufjan í Fríkirkjunni.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2006 69
menning
Listaháskóli Íslands auglýsir eftir umsóknum um starf háskólakennara í þrívíðri myndlist við
myndlistardeild. Undir stöðuheitið háskólakennari flokkast fastráðnir akademískir starfsmenn
skólans: lektorar, dósentar og prófessorar. Umsækjendur skulu vera starfandi myndlistarmenn á
sviði þrívíðrar myndlistar, s.s. skúlptúrs og innsetninga. Þeir skulu hafa meistaragráðu eða
sambærilega háskólagráðu á sínu sviði eða jafngilda þekkingu og reynslu. Þeir skulu jafnframt
hafa kennt myndlist á háskólastigi og hafa góða þekkingu á starfsemi háskóla.
Umsókn skal fylgja greinargóð skýrsla um námsferil umsækjanda, listræn störf hans, s.s.
sýningarhald og fyrirlestra, útgefið efni um eigin verk, afrit af ritsmíðum um listsköpun og
rannsóknir sem hann hefur birt, og aðrar þær upplýsingar sem tengjast starfi hans sem
myndlistarmanns. Umsækjandi skal gera skýra grein fyrir kennslustörfum sínum og jafnframt
veita upplýsingar um önnur störf sem hann hefur gegnt, þ.m.t. félags- og stjórnunarstörf og
almenn störf á vettvangi lista og menningar. Loks er til þess ætlast að umsækjandi láti fylgja með
afrit af prófskírteinum og gefi upp nöfn þeirra sem leita má til með umsagnir.
Hlutverk háskólakennara við myndlistardeild er auk almennrar kennslu að hafa umsjón með
námi nemenda, veita þeim ráðgjöf og gagnrýna verk þeirra. Hann er tengiliður við verkstæði
skólans og í samráði við deildarforseta stýrir hann ýmsum verkefnum sem lúta að skólastarfinu.
Háskólakennari vinnur að eigin listsköpun og rannsóknum og skal vera virkur þátttakandi í því
samfélagi listanna sem skólinn leggur rækt við. Þegar svo ber undir getur hann þurft að taka þátt
í almennri umræðu um myndlist, jafnt innan skólans sem utan. Hluti af starfinu er að vinna að
uppbyggingu deildarinnar undir stjórn deildarforseta og taka þátt í mótun akademískrar stefnu
fyrir skólann. Við ráðningu í stöðuna verður m.a. tekið tillit til hvaða hæfileika ætla má að
umsækjandinn hafi til samstarfs við aðra og hvernig eiginleikar hans geti nýst til forystustarfa
innan skólans.
Starf háskólakennara í myndlist skiptist í kennslu, listsköpun/rannsóknir og stjórnun. Um hlutfall
þessara þátta fer eftir nánara samkomulagi. Rektor ræður í starfið í samráði við deildarforseta
myndlistardeildar að undangengnu mati dómnefndar sem dæmir um hæfi umsækjenda í
samræmi við sérstakar reglur um veitingu akademískra starfa við Listaháskóla Íslands. Ráðningin
er til þriggja ára. Um endurráðningar er kveðið á um í reglum um veitingu akademískra starfa.
Gert er ráð fyrir að kennarinn hefji störf 1. ágúst 2007, en komi strax í vor að undirbúningi
kennslu á næsta skólaári.
Umsóknir skulu stílaðar á rektor og skal skila þeim ásamt með fylgigögnum til Listaháskóla
Íslands, aðalskrifstofu Skipholti 1, 105 Reykjavík, eigi síðar en þriðjudaginn 9. janúar n.k. Farið
verður með umsóknir sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum
tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.
Sjá nánar um reglur um veitingu akademískra starfa við Listaháskólann á heimasíðunni www.lhi.is
Listaháskóli Íslands auglýsir eftir umsóknum um starf háskólakennara í leiklistarfræðum/dramatúrgíu við
leiklistardeild. Undir stöðuheitið háskólakennari flokkast fastráðnir akademískir starfsmenn skólans:
lektorar, dósentar og prófessorar. Umsækjendur skulu vera leiklistarfræðingar/dramatúrgar og hafa
meistaragráðu eða sambærilega gráðu á sínu sviði. Þeir skulu jafnframt hafa kennt leiklist á háskólastigi
og hafa góða þekkingu á starfsemi háskóla. Lögð er áhersla á að umsækjendur hafi yfirgripsmikla
þekkingu á straumum og stefnum í samtímaleiklist og séu að sama skapi í nánum tengslum við lista- og
fræðimenn sem starfa að leiklist á alþjóðavettvangi.
Umsókn skal fylgja greinargóð skýrsla um námsferil umsækjanda, störf hans við leikhús, rannsóknir og
ritsmíðar. Ennfremur er óskað eftir upplýsingum um þær rannsóknir og leiklistarverkefni sem umsækjandi
vinnur að og hyggst vinna að í starfi sínu. Umsækjandi skal gera skýra grein fyrir kennslustörfum sínum
og jafnframt veita upplýsingar um önnur störf sem hann hefur gegnt, þ.m.t félags- og stjórnunarstörf og
störf á vettvangi listsköpunar og/eða listflutnings. Loks er til þess ætlast að umsækjandi láti fylgja með
afrit af prófskírteinum og gefi upp nöfn þeirra sem leita má til með umsagnir.
Auk kennslu í fræðigreinum hefur háskólakennari í leiklistarfræðum/dramatúrgíu umsjón með námi í
Fræði og framkvæmd, sem er námsbraut innan leiklistardeildar, og hann stýrir ýmsum verkefnum sem
lúta að skólastarfinu, m.a sem dramatúrg í leiklistarverkefnum nemenda. Hann vinnur að eigin rann-
sóknum og skal vera virkur þátttakandi í því fræðasamfélagi sem skólinn byggir upp. Kennarinn vinnur
að uppbyggingu deildarinnar undir stjórn deildarforseta og tekur þátt í mótun akademískrar stefnu fyrir
skólann. Auk þess vinnur hann með forstöðumanni bókasafns að uppbyggingu leiklistarbókasafns. Við
ráðningu í stöðuna verður m.a annars tekið tillit til hvaða hæfileika ætla má að umsækjandinn hafi til
samstarfs við aðra og hvernig eiginleikar hans geti nýst til forystustarfa innan skólans.
Starf háskólakennara í leiklistarfræðum/dramatúrgíu skiptist í kennslu, rannsóknir og stjórnun. Um
hlutfall þessara þátta fer eftir nánara samkomulagi. Rektor ræður í starfið í samráði við deildarforseta
leiklistardeildar að undangengnu mati dómnefndar sem dæmir um hæfi umsækjenda í samræmi við
sérstakar reglur um veitingu akademískra starfa við Listaháskóla Íslands. Ráðningin er til þriggja ára.
Um endurráðningar er kveðið á um í reglum um veitingu akademískra starfa. Gert er ráð fyrir að kenn-
arinn hefji störf 1. ágúst 2007 en komi strax í vor að undirbúningi kennslu á næsta skólaári.
Umsóknir skulu stílaðar á rektor og skal skila þeim ásamt með fylgigögnum til Listaháskóla Íslands,
aðalskrifstofu Skipholti 1, 105 Reykjavík, eigi síðar en þriðjudaginn 9. janúar n.k. Farið verður með
umsóknir sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun
starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.
Sjá nánar um reglur um veitingu akademískra starfa við Listaháskólann á heimasíðu www.lhi.is
starf háskólakennara í þrívíðri myndlist starf háskólakennara í leiklistarfræðum/dramatúrgíu
Listaháskóli Íslands auglýsir eftir umsóknum um: