Morgunblaðið - 10.12.2006, Qupperneq 70
70 SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
menning
Domus Vox, Laugavegi 116, 105 Rvk.
S. 511 3737 - Gsm. 863 4404
www.domusvox.is
AVE MARIA Johann Sebastian Bach
AGNUS DEI Christoph Willibald Gluck
LAUDATE DOMINUM Wolfgang Amadeus Mozart
AVE MARIA Franz Schubert
MILLE CHERUBINI IN CORO Franz Schubert
DAS GROSSE HALLELUJAH Franz Schubert
LAUDATE PUERI DOMINUM Felix Mendelssohn-Bartholdy
VENI DOMINE Felix Mendelssohn-Bartholdy
LYFTU ÞÍNUM AUGUM UPP Felix Mendelssohn-Bartholdy
PANIS ANGELICUS César Franck
KYRIE op. 187 Josef Gabriel Rheinberger
AVE MARÍA Sigvaldi S. Kaldalóns
SALVE REGINA Gerhard Deutschmann
TE DEUM Þorkell Sigurbjörnsson
DONA NOBIS PACEM Mary Lynn Lightfoot
vox feminae
stjórnandi
MARGRÉT J. PÁLMADÓTTIR
AVEMARIA
EINSÖNGUR
HANNA BJÖRK GUÐJÓNSDÓTTIR
ORGEL
ANTONÍA HEVESI
ÓBÓ
EYDÍS FRANZDÓTTIR
NÝR GEISLADISKUR FRÁ VOX FEMINAE
ÚTGÁFUHÁTÍÐ Í
ÞJÓÐMENNINGARHÚSINU
V/HVERFISGÖTU
Í DAG, SUNNUDAG, KL. 16
F
A
B
R
IK
A
N
Kalvin & Hobbes
VEISTU HVAÐ ÞETTA
ORÐ ÞÝÐIR?
HVAÐA
ORÐ?
ÞETTA LANGA
HÉRNA
HEF
EKKI
HUGMYND
ÞÚ VEIST
ÞAÐ VÍST!
MAMMA!
HVAR ER
ORÐABÓKIN?
Kalvin & Hobbes
MAMMA, MÁ ÉG HORFA Á
MORÐKISUNA FRÁ MARS?
NEI
MAMMA, VERÐ ÉG AÐ BORÐA
ÞENNAN ÓGEÐSLEGA
SPERGIL?
JÁ
MAMMA, MÁ ÉG
VAKA TIL MIÐNÆTTIS?
NEI
AF HVERJU
GETUR EKKI VERIÐ
MEIRA SAMRÆMI
Á MILLI ÞESS SEM
ER HOLLT OG ÞESS
SEM ER SKEMMTILEGT?
Kalvin & Hobbes
EIGUM VIÐ AÐ PRÓFA AÐ
POPPA ÁN ÞESS AÐ SETJA
LOKIÐ Á POTTINN?
ÞETTA VAR MEIRA AÐ SEGJA
SKEMMTILEGRA EN AÐ
SPRENGJA KARTÖFLU Í
ÖRBYLGJUOFNINUM
POPPUM
MEIRA!
Risaeðlugrín
framhald ...
TRASHOPTERIS ER ÁN EFA
EINN AF ÓGEÐSLEGUSTU
FUGLUM OKKAR TÍMAR
HANN ER JAFN LJÓTUR OG
HEMIPTERUS APTERUS OG VIRÐIST HAFA
ALLA GALLA VERALDAR
...HANN
LYKTAR
LÍKA ILLA
HANN ER GRIMMUR OG BLÓÐÞYRSTUR.
HANN HRÆÐIR ALLA SEM Á VEGI HANS VERÐA
HANN ER ILLA UPP ALINN OG SKAÐR FÓRNARLÖMB SÍN
MEÐ VILLIMANSLEGUM MUNNSÖFNUÐI SÍNUM SEM VIÐ
KJÓSUM AÐ FARA EKKI NÁNAR ÚT Í.
TRASHOPTERIS ER SEM SAGT
ALGJÖRT ÚRÞVÆTTI
?
HEYRÐU,
ÞÚ ÞARNA
UPPI!
LJÓTI FUGL!!
HJÁLP!
RITSKOÐA
Ð
© DARGAUD
Jólaandinn svífur yfir vötnum íMývatnssveit, en þar er hald-in sérstök viðburðadagskrá íaðdraganda jóla undir yf-
irskriftinni Velkomin í Mývatnssveit;
töfraland jólanna.
Jóna Matthíasdóttir er verkefn-
isstjóri hjá Snow Magic-verkefninu
sem hefur umsjón með jóla-
dagskránni í Mývatnssveit: „Snow
Magic-verkefnið er norrænt sam-
starfsverkefni sem hefur það að
markmiði að efla ferðaþjónustu að
vetrarlagi,“ útskýrir Jóna. „At-
vinnuþróunarfélag Þingeyinga tekur
þátt í verkefninu og leggur sérstaka
áherslu á Mývatnssveit, sem er mikið
töfraland allt árið um kring. Jóla-
sveinar hafa líka löngum verið á kreiki
í Dimmuborgum og því kjörið að
vekja athygli á þeim einstaka jólaanda
sem upplifa má á svæðinu.“
Að því er heimamenn halda fram
eru fyrir því allgóðar heimildir að jóla-
sveinarnir búi allir þrettán í Dimmu-
borgum: „Hægt er að finna þá þar á
hverjum degi fram að jólum, og mest-
ar líkur á að rekast á þá milli kl. 13 og
15,“ segir Jóna. „Um helgar færist
enn meira líf og fjör í sveitina, en þá
lengja þjónustuaðilar á svæðinu af-
greiðslutíma og jólasveinarnir ferðast
á milli staða með sprell og kátínu. Þeir
heimsækja meðal annars Handverks-
húsið og fara í Vogafjós þar sem rekin
er kaffistofa tengd fjósinu þar sem
hægt er að fylgjast með mjöltum og
fara í fjósið til að gefa kúnum eða
gæða sér á afurðum úr sveitinni.“
Á Selhóteli hefur risið Jólaland og
er hægt að finna þar ýmsar jólavörur:
„Það sem færri vita er að pósthús
jólasveinanna er í Jólalandinu í Mý-
vatnssveit,“ segir Jóna. „Þangað berst
allur póstur sem sendur er til jóla-
sveinanna, hvaðanæva úr heiminum,
og sjá aðstoðarmenn sveinanna um að
svara öllum bréfum sem berast.“
Á Selhóteli er einnig boðið upp á
sérstakt fjölskylduhlaðborð á sunnu-
dögum þar sem jólasveinarnir koma
og dansa með börnunum og boðið er
upp á dýrindis jólamat: „Þegar hafa
jólasveinarnir brugðið á leik með
lúðraþyt og kertaljósum í Dimmu-
borgum, og síðustu helgi brugðu
bræðurnir sér í jarðböðin í sitt árlega
jólabað,“ segir Jóna. „Ekki voru allir
jafnhrifnir af því að baða sig, en fjöldi
fólks fylgdist með fjörinu og þegar
upp var staðið voru jólasveinarnir allir
glerfínir og hreinir.“
Þessa helgi og næstu verður dag-
skrá í Hótel Reykjahlíð. Þar munu
handverkskonur veita tilsögn í laufa-
brauðsgerð og verður Kertasníkir
þeim til aðstoðar. Jólasveinarnir eru á
ferð um héraðið og heimsóttu meðal
annars börnin á Húsavík þegar kveikt
var á jólatré bæjarins og munu taka
þátt í Laufásdeginum á safninu Lauf-
ási í Eyjafirði.
Heimamenn í Mývatnssveit bjóða
gesti velkomna í héraðið. Boðið er upp
á fjölskyldutilboð á ýmsum gisti-
stöðum sem finna má í sveitinni:
„Þetta er kjörið tækifæri fyrir fjöl-
skylduna að losna úr amstri hvers-
dagsins og njóta huggulegheitanna í
Mývatnssveit. Hægt er að finna
margt til afþreyingar, en meðal ann-
ars eru jarðböðin opin alla daga frá
hádegi til 22 á kvöldin,“ segir Jóna að
lokum.
Dagskráin er á snowmagic.is.
Afþreying | Margt í boði í Mývatnssveit fyrir
alla aldurshópa í aðdraganda jólanna
Töfrajól í
Mývatnssveit
Jóna Matthías-
dóttir fæddist á
Húsavík 1965.
Hún lauk versl-
unarprófi frá VÍ
1983. Jóna starf-
aði um langt
skeið sem banka-
starfsmaður en
síðustu ár hefur
hún starfað við verkefni tengd ný-
sköpun og þróun í ferða- og upplýs-
ingaþjónustu. Jóna er nú verkefn-
isstjóri Snow Magic-verkefnisins.
Eiginmaður Jónu er Guðlaugur
Árnason verslunarstjóri og eiga
þau tvo syni