Morgunblaðið - 10.12.2006, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2006 73
dægradvöl
1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 e5 4. Rf3 Rbd7
5. Bc4 Be7 6. O-O O-O 7. He1 c6 8. a4
a5 9. Ba2 Db6 10. h3 exd4 11. Dxd4
Db4 12. De3 Re5 13. Rxe5 dxe5 14.
Dg3 Rd7 15. Bd2 Db6 16. Rd1 Dd8 17.
Bc3 Bb4 18. Bxb4 axb4 19. Re3 Df6 20.
a5 Df4 21. Rc4 Dxg3 22. fxg3 g6 23.
He3 b5 24. axb6 Ba6 25. Rd6 Rxb6 26.
Bb3 Kg7 27. c3 c5 28. cxb4 cxb4 29.
Hc1 Rc8 30. Rc4 Bxc4 31. Hxc4 Hb8
32. Hd3 Hb6 33. Hc5 Rd6 34. Hxe5
He8
Staðan kom upp á spænska meist-
aramótinu sem lauk fyrir skömmu í
Léon. Stórmeistarinn Salvador Del
Rio Angelis (2492) hafði hvítt gegn
Pablo Castro (2390). 35. Hxd6! og
svartur gafst upp enda er hann að tapa
manni. Salvador þessi tefldi úr-
slitaeinvígi um meistaratitilinn við of-
urstórmeistarann Francisco Vallejo
Pons (2674) og tapaði því 1½ –½.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Stíflulosun.
Norður
♠1087
♥G10763
♦62
♣DG3
Vestur Austur
♠963 ♠2
♥82 ♥954
♦KG85 ♦1073
♣K1065 ♣Á98742
Suður
♠ÁKDG54
♥ÁKD
♦ÁD94
♣--
Suður spilar 6♠ og fær út tromp.
Þessi sterka slemma fer niður ef
sagnhafi svínar strax í tígli. Vestur
mun trompa aftur út og þá er ekki
hægt að stinga nema einn tígul og stífl-
an í hjarta kemur í veg fyrir að hægt sé
að nýta litinn. Betri byrjun er að taka
annað tromp og spila svo ÁKD í hjarta.
Slemman er þá í húsi ef enginn tromp-
ar, en annars verður að svína í tígli.
Hvorugt gengur hér. Spilið er gömul
perla eftir Terence Reese og hann
bendir á bestu leiðina – að spila laufi úr
borði í öðrum slag og henda hjarta
heima! Væntanlega fær austur slaginn
og spilar tígli, sem suður drepur með
ás, tekur annað tromp og svo tvisvar
hjarta. Síðan er trompi spilað á tíuna
og þremur tíglum hent í G10x í hjarta.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
Krossgáta
Lárétt | 1 augljós, 8 grút-
arlampinn, 9 ysta brún,
10 flana, 11 fíflið, 13
híma, 15 hörunds, 18
bangin, 21 glöð, 22 tæla,
23 reiður, 24 margoft.
Lóðrétt | 2 lítil flugvél, 3
út, 4 starfið, 5 svardagi, 6
skortur, 7 þrjóska, 12
ferskur, 14 snák, 15
tuddi, 16 æskir, 17 kven-
vargur, 18 stíf, 19 styrkti,
20 vindur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 valda, 4 fossa, 7 gyðja, 8 sólin, 9 rós, 11 rönd, 13
frúr, 14 ungar, 15 röng, 17 álag, 20 hné, 22 sægur, 23
tunna, 24 senda, 25 runna.
Lóðrétt: 1 vegur, 2 liðin, 3 anar, 4 foss, 5 selur, 6 arnar,
10 ólgan, 12 dug, 13 frá, 15 rasps, 16 nægan, 18 linan, 19
grafa, 20 hráa, 21 étur.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
1 Eftirlit með einkareknum lækna-stofum hafa verið til umræðu og
landlæknir m.a. tjáð sig um málið.
Hvað heitir hann?
2 Frumvarpið um RÚV hefur veriðfyrirferðamikið á þingi. Hver er
talsmaður Samfylkingarinnar í mál-
inu?
3 HB Grandi hefur ákveðið aðleggja togaranum Brettingi.
Hvaðan hefur hann verið gerður út?
4 Breski rithöfundurinn Ian McEw-an hefur verið sakaður um rit-
stuld í einni bóka sinna. Hvað bók er
það?
Svör við spurningum gærdagsins:
1. Forseti Íslands hefur verið á ráðstefnu
um hreina orku í San Fransisco í Banda-
ríkjunum ásamt fyrrverrandi forseta-
frambjóðanda þar í landi. Hver er hann?
Svar: Al Gore. 2. Fjárfestingafélagið Nor-
vest hefur verið að auka hlut sinn í Kaup-
þing banka. Hver er aðaleigandi Norvest?
Svar: Jón Helgi Guðmundsson í Byko. 3.
Hvað heitir eiturefnið sem varð Alexander
Lítvínenko að bana? Svar: Pólon-210. 4.
Hver er nýr forstöðumaður Íslensku frið-
argæslunnar? Svar: Anna Jóhannsdóttir.
Spurt er …
ritstjorn@mbl.is
Lögin eru
mörg og mis-
jöfn, sum eru
ljúf og falleg en
önnur eru mel-
ódískari og
kraftmeiri. Þær
eru báðar ágætis söngkonur og
þótt Hansa sé kannski með öllu
fjölbreyttara raddsvið fara raddir
þeirra ágætlega saman. Samt
finnst mér þær stundum hljóma
eins og þær séu að syngja söng-
leikjalög en ekki frumsamda tón-
list. Þetta er helsti löstur plöt-
unnar, hún nær aldrei að hljóma
eins og heildstætt verk, hún verð-
ur alltaf farartæki söngkvenna
sem langaði til þess að gera eitt-
hvað sniðugt. Því miður er það
með þessa plötu eins og svo marg-
ar aðrar að hún hefði verið afleit
ef upptökustjórnin hefði ekki ver-
ið í góðum höndum
Útsetningarnar eru nefnilega
oftast mjög góðar þótt mér hafi að
sjálfsögðu litist betur á sum lög en
önnur. Þægilega útsett blást-
urshljóðfæri má finna víða sem
gera það að verkum að hljómur
ÞÆR Selma og Hansa eru hér á
ferð með aðra plötu sína saman,
Sögur af konum. Áður sendu þær
frá sér Sögur af sviðinu árið 2002.
Á Sögur af konum syngja þær
stöllur eingöngu lög eftir íslensk-
ar konur og þar á meðal þær sjálf-
ar.
plötunnar verður skemmtilega
þýður. Eitt laganna á plötunni
skarar fram úr. Það er lag Ragn-
hildar Gísladóttur við texta And-
reu Gylfadóttur, Haltu utan um
mig. Það er skemmtilegur taktur í
því, fyrir utan hvað það er ótrú-
lega vel útsett. Það gleymist alltof
oft hve góður lagasmiður Ragn-
hildur er og það á hún ekki skilið.
Þær Andrea og Ragnhildur eiga
annað lag á plötunni, Píanókonan,
það er ágætislag en það er ekki
laust við að söngur Hönsu í því
minni svolítið á Ragnhildi sjálfa.
Mér finnst leiðinlegt að segja
það en stundum finnst mér eins og
stefnuleysið í söng Selmu og
Hönsu bitni svolítið á efniviðnum.
Þær eru hvorug með sérstaklega
karaktermikinn stíl, þær eru mjög
alhliða og það hefur sína kosti og
galla. Kosturinn er sá að þær geta
sungið nánast hvað sem er en gall-
inn er hins vegar sá að erfitt er að
finna fyrir persónuleika þeirra í
gegnum tónlistina. Engu að síður
er þetta afskaplega falleg plata.
Falleg en með öllu sálarlaus.
Ljúflega útsett sálarleysi
TÓNLIST
Geisladiskur
Lög og textar eftir ýmsar íslenskar kon-
ur. Söngur: Jóhanna Vigdís Arnardóttir
og Selma Björnsdóttir. Hljómsveit: Ein-
ar V. Scheving, trommur og slagverk.
Friðrik Sturluson, bassi. Guðmundur
Pétursson, gítar. Guðm. Kristinn Jóns-
son, stjórn ýmiskonar hljóðbreytitækja.
Kjartan Valdemarsson, píanó í Píanó-
konunni. Mikael Svensson, píanó og til-
fallandi hljómborð. Sigurður Guðmunds-
son, Hammond- og mótorpumpuorgel,
hljóðgervlar, forritun, stöku bassi og
slagverk, sem og bakraddir. Hornsveit
Nashvilleborgar: Jim Hoke, Steve Pat-
rick og John Hinchey. Ingibjörg Þor-
bergs syngur í Reykjavíkurmynd. Um
upptökur, upptökustjórn og hljóðblönd-
un sáu Guðm. Kristinn Jónsson og Sig-
urður Guðmundsson. Sena gefur út.
Selma og Hansa – Sögur af konum
Helga Þórey Jónsdóttir
ÍVAR Bjarklind er að stíga sín fyrstu skref
í tónlist með þessum diski en ekki sam-
starfsmaður hans, Orri Harðarson, sem er
Ívari hér sem hægri hönd. Orri er líklega
sá íslenski tónlistarmaður sem kemst næst
því að leggja stund á gáfumannapopp, og
er það meint í allra besta skilningi. Orri
hefur slípaðan stíl og leggur mikið upp úr
fallegum skreytingum í formi lítils gít-
arstefs hér eða sakleysislegs píanókafla
þar. Þetta eru allt hlutir sem hægt er að
ganga að sem vísu þegar Orri er við stjórn-
völinn og kemur í sjálfu sér ekki á óvart.
Það gera þroskaðar lagasmíðar Ívars
Bjarklind hins vegar, sem og dýptin í text-
um hans. Ívar gefur innsýn í hugsanir sín-
ar og líf, og það hljómar mjög einlægt og
heiðarlegt, nokkuð sem er
frekar sjaldgæft í poppi
dagsins í dag, þar sem allt
of margir beita marg-
tuggnum klisjum í texta-
gerð. Diskurinn verður
því einhvers virði fyrir vikið, og að hlustun
lokinni finnst manni eins og maður hafi
þokast nær hugarheimi höfundar.
Útsetningar Orra og hljómur allur skapa
notalega stemningu, og verka eins og ull-
arteppi sem vefst um mann, og maður fær
á tilfinninguna að allt sé nákvæmlega eins
og það á að vera. Trommur Birgis eru míní-
malískar og ótrúlega vel við hæfi, strengir
fagrir og gítarar hafa í sér skemmtilegan
„80’s“-hljóm, sem minnir stundum á fyrsta
efnið með hljómsveitinni U2.
Það er helst út á diskinn að setja að öðru
hverju eru smáhnökrar á söng, sem líklega
eru þó bara byrjunarörðugleikar Ívars. Í
sumum lögum, eins og í besta lagi disksins
„Yfir hafið“, er brothætt röddin ekkert til
trafala en í titillaginu, til að mynda, getur
maður ekki annað en hugsað að Ívar hefði
átt að reyna oftar að ná betri upptöku af
rödd. Fyrir vikið er diskurinn ekki fullkom-
inn, en næstum því samt. Þetta er svo sann-
arlega ótrúlega góð byrjun.
Næstum fullkomið …
TÓNLIST
Geisladiskur
Upptökustjórn, útsetningar, hljóðritun, blöndun
og jöfnun: Orri Harðarson. Hljóðritað haustið
2006 í Reykjavík, Munaðarnesi, Akranesi og
Danmörku. Ívar Bjarklind söng, Orri Harðarson
lék á gítara, bassa og píanó, Birgir Baldursson
lék á trommur, Henrik Bruun Nielsen lék á selló
og Camilla Korgaard lék á fiðlu. Sögur útgáfa
gefur út.
Ívar Bjarklind – Blóm eru smá
Ragnheiður Eiríksdóttir