Morgunblaðið - 10.12.2006, Blaðsíða 74
74 SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
staðurstund
Margt er um að vera í Þjóðminja-safni Íslands og desember er
einn viðburðaríkasti mánuður árs-
ins. Hin fjörlega og afar þjóðlega
jóladagskrá Þjóðminjasafnsins hef-
ur unnið sér hefð og með árunum
eignast allmarga aðdáendur í hópi
yngra fólksins. Jóladagskráin hefst í
dag, sunnudag, kl. 14 með opnun
lítillar jólasýningar á Torginu sem nefnist Sérkenni sveinanna og fá börnin
þar tækifæri til að kynnast jólasveinunum með ýmsum hætti.
Klukkan 14 er líka von á ýmsum góðum gestum. Hin ástsæla Magga
Stína syngur jólalög við orgelleik hins snjalla Harðar Bragasonar. Þau
leiða fjöldasöng barna og fara vafalaust alveg á kostum eins og þeirra er
vandi. Grýla og Leppalúði koma í heimsókn og hafa sjálfan jólaköttinn með
sér! Í boði eru spennandi ratleikir og aðalleikurinn snýst um að finna litla
jólaketti sem faldir eru hér og þar í Þjóðminjasafninu! Jóladagskrá Þjóð-
minjasafnsins er sérlega fjölskylduvæn. Ókeypis er inn á dagskrána á 1.
hæð og í Kaffitári eru tilboð fyrir börn.
Söfn
Jóladagskrá og fjölskylduleikir
í Þjóðminjasafni Íslands
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Tónlist
Bústaðakirkja | Aðventuhátíð Kórs Átt-
hagafélags Strandamanna kl. 16.30. Stjórn-
andi kórsins er Krisztina Szklenár. Ein-
söngvari Magnús Guðmundsson.
Undirleikari Judith Þorbergsson. Barnakór-
inn flytur nokkur lög. Hugvekja: Gunnsteinn
Gíslason. Kaffihlaðborð. Miðaverð er 2.000
kr. fyrir fullorðna, frítt fyrir 14 ára og yngri.
Dómkirkjan | Jólatónleikar Tónlistarskól-
ans í Reykjavík þriðjudag 12. des. kl. 20.
Hljómsveitir og kammerhópar skólans leika
verk eftir Mozart, Paisiello, Corelli og fleiri.
Dómkirkjan | Erlendur Þór Elvarsson tenór,
Jóna Fanney Svavarsdóttir sópran, Sólveig
Samúelsdóttir messósópran og Bjarni Þór
Jónatansson, píanó- og orgelleikari, halda
jólatónleika í Dómkirkjunni fimmtudag 14.
des. kl. 21. Hátíðleg jólalög og helgar aríur.
Miðaverð: 1500/1000 kr. Eldri borgarar og
öryrkjar fá 2 fyrir 1.
Grafarvogskirkja | Jólatónleikar kl. 16. Kór-
ar Grafarvogskirkju syngja aðventu- og
jólalög. Einsöngvarar: Árni Þór Lárusson,
Magga Stína og Ragnar Bjarnason. Stjórn-
endur: Hörður Bragason, Svava Kr. Ingólfs-
dóttir og Gróa Hreinsdóttir.
Grafarvogskirkja | Kammerkórinn Vox aca-
demica flytur þætti úr Messías e. Handel og
Magnificat e. Bach föstudaginn 15. desem-
ber kl. 20. Ásamt kórnum koma fram 5 ein-
söngvarar og hljómsveitin Jón Leifs came-
rata. Stjórnandi er Hákon Leifsson.
Miðaverð 3.000/2.500 í forsölu. Sími
899 7579/ 864 5658.
Grensáskirkja | Kirkjukór Grensáskirkju
ásamt strengjasveit heldur tónleika kl. 17. Á
efnisskránni er Missa Brevis í B dúr eftir
Joseph Haydn ásamt fleiri verkum. Einsöng
og tvísöng syngja Ingibjörg Ólafsdóttir og
Hellen Helgadóttir. Stjórnandi er Árni Arin-
bjarnarson.
Hallgrímskirkja | Jólatónlistarhátíð Hall-
grímskirkju heldur áfram í dag kl. 17 með
tónleikum kammerkórsins Schola cantor-
um og Björns Steinars Sólbergssonar
orgelleikara sem flytja aðventu- og jóla-
sálma og sálmaforleiki eftir Johann
Sebastian Bach. Stjórnandi: Hörður Áskels-
son. Miðaverð: 1.500 kr.
Hjallakirkja | Árlegir aðventutónleikar Kórs
Hjallakirkju kl. 20. Fjölbreytt efnisskrá. Ein-
söngvarar eru Magnea Tómasdóttir og
Kristín R. Sigurðardóttir. Organisti Lenka
Máteová. Söngstjóri Jón Ólafur Sigurðs-
son. Aðgangur ókeypis. Sjá nánar á
www.hjallakirkja.is.
Langholtskirkja | Söngsveitin Fílharmónía
heldur aðventutónleika kl. 20. Flutt verða
verk tileinkuð Maríu mey auk jólalaga frá
ýmsum löndum. Einnig verður frumflutt
nýtt verk eftir stjórnanda kórsins, Magnús
Ragnarsson. Einsöngvari er Hulda Björk
Garðarsdóttir og organisti er Kári Þormar.
Neskirkja | Aðventutónleikar Amnesty
International kl. 20. Margir frábærir lista-
menn koma fram. Nánari lýsingu má finna á
amnesty.is.
Ágóði af tónleikunum rennur til fórnar-
lamba mannréttindabrota. Miðaverð er
1.500 kr. Forsala aðgöngumiða er á skrif-
stofunni Hafnarstræti 15 og Tónastöðinni,
Skipholti 50d. Sími 511 7900 eða amnesty-
@amnesty.is.
Salurinn, Kópavogi | Stórsöngvarinn Ólaf-
ur Kjartan hefur sett saman skemmtilega
hátíðardagskrá fyrir unga sem aldna kl. 16.
Ólafur Kjartan hefur fengið til liðs við sig
ættingja og vini og verða fjórir ættliðir
saman komnir á sviðinu. Miðaverð: 2000/
1600 kr. í s: 570 0400 og á salurinn.is.
Salurinn, Kópavogi | Mánudag 11. desem-
ber kl. 20: Seinustu tónleikar Miklós
Dalmay þar sem hann leikur píanósónötur
Mozarts eins og hann hefur gert seinustu
mánudagskvöld. Píanósónata nr. 14–18
verða á dagskránni. Nánar á heimasíðu
okkar. Miðaverð: 2000/1600 kr. í s:
570 0400 og á salurinn.is.
Samkór Reykjavíkur | Samkór Reykjavíkur
undir stjórn John Gear heldur jólatónleika
sunnudaginn 10. des. kl. 16 í Fella- og Hóla-
kirkju. Miðasala við innganginn, kaffi og
smákökur í boði kórsins eftir tónleika.
Skálholtskirkja | Skálholtskórinn heldur
aðventutónleika í Skálholtskirkju laugadag-
inn 16. des. Sigrún Hjálmtýsdóttir og Óskar
Pétursson, ásamt Kammersveit. Tónleik-
arnir verða tvennir: Kl. 14 og kl. 17. Auka-
tónleikar kl. 20.30. Miðasala er hafin í síma
847 5057, verð 2500 kr. Stjórnandi er
Hilmar Örn.
Þjóðmenningarhúsið | Kvennakórinn Vox
feminae heldur tónleika í Þjóðmenningar-
húsinu kl. 16. Tilefnið er útgáfa nýs geisla-
disks með kórnum, Ave Maria, sem helgað-
ur er heilagri guðsmóður. Kórinn flytur
nokkur verk af diskinum ásamt einsöngv-
ara og undirleikara, Margrét J. Pálmadóttir
stjórnar.
Myndlist
Anima gallerí | Bjarni Sigurbjörnsson, Jón
Óskar og Kristinn Már. Til 23. des.
Artótek Grófarhúsi | Tryggvagötu 15 1.
hæð . Anna Hallin myndlistarmaður með
sýningu á verkum sínum. Anna sýnir teikn-
ingar og myndband. Sjá http://www.arto-
tek.is.
Aurum | Soffía sýnir teikningar sem eru til-
raun höfundar til að vinna úr sjónrænum
upplýsingum frá umhverfi og náttúru. Til
15. desember.
Café 17 (verlsunin 17) | Mæja sýnir 20 ný
málverk, flest eru lítil en hver mynd er
ævintýri út af fyrir sig. Allir velkomnir.
Café Mílanó | Ingvar Þorvaldsson er með
málverkasýningu. Sýnd eru 10 ný olíu-
málverk. Sýningin stendur til áramóta.
DaLí gallerí | Magdalena Margrét Kjartans-
dóttir með sýningu á grafíkverkum sínum
til 17. des. Opið fös. og laug. kl. 14–18.
Gallerí Stígur | Myndlistarsýning Auðar
Ingu Ingvarsd. til 10. desember. Opið
þriðjud.–föstud. frá kl. 13–18 og laugardaga
frá kl. 11–16.
Gallerí Úlfur | Sigurdís Harpa Arnarsdóttir
með sýningu út desember. Opið virka daga
frá 14–18.
Gallery Turpentine | Jólasýningin „ … eitt-
hvað fallegt.“ er samsýning með listamönn-
um gallerísins auk gesta til 18. des. Opið:
þri.–fös. kl. 12–18, laug. kl. 12–16.
Gerðuberg | Gerðuberg á í safni sínu um
1.000 listaverk eftir börn sem unnin voru í
listsmiðjunum Gagn og Gaman sem starf-
ræktar voru sumrin 1988–2004. Til 21. jan.
Sýning á myndskreytingum í íslenskum
barnabókum 2006. Sýningin stendur til 21.
janúar 2007. Tekið er á móti 8 ára skóla-
börnum í samstarfi við Borgarbókasafnið.
Hugarheimar – Guðrún Bergsdóttir sýnir
útsaum og tússteikningar. Ein allsherjars-
infónía fjölskrúðugra lita og forma; eins og
íslensk brekka þakin berjum að hausti eða
brúðarklæði frá Austurlöndum. Sýningin
stendur til 21. janúar. Sjá www.gerduberg.is.
Grafíksafn Íslands | Samsýning 20 félags-
manna í íslenskri grafík. Opið fimmtudaga –
sunnudaga frá kl. 14–18. Grafíksafn Íslands
– salur Íslenskrar grafíkur er í Tryggvagötu
17, hafnarmegin. Til 23. des.
Hafnarborg | Ljósmyndarinn Spessi til 30.
desember. Verkin eru úr væntanlegri bók
sem mun bera titilinn „Locations“.
Sigrún Guðjónsdóttir, Rúna, með sýningu í
Sverrissal og Apóteki. Á sýningunni verða
steinleirsmyndir og verk unnin á pappír
með akrýl, olíukrít, pastel og bleki.
Hjá Marlín | Birgir Breiðdal, Biggi, sýnir til
23. desember.
Hrafnista Hafnarfirði | Ellen Bjarnadóttir
sýnir í Menningarsal til 8. janúar.
Jónas Viðar Gallerí | Kristinn G. Jóhanns-
son sýnir grafík. Opið föstudaga og laugar-
daga 13–18. Heimasíða www.jvs.is.
Kaffi Sólon | Elena Fitts sýnir málverk á
Sólon. Til 5. janúar.
Listasafn Einars Jónssonar | Lokað í des-
ember og janúar. Höggmyndagarðurinn við
Freyjugötu er alltaf opinn.
Listasafnið á Akureyri | Yfirlitssýning á
verkum Drafnar Friðfinnsdóttur (1946–
2000). Sýningarlok 17. desember. Opið alla
daga nema mánudaga 12–17.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús |
Bandarísk list á þriðja árþúsundinu. Margir
af fremstu listamönnum Bandaríkjanna,
sem fæddir eru eftir 1970, eiga verk á sýn-
ingunni.
Norræna húsið | Sýningin Exercise in
Touching, Æfing í að snerta er opin alla
daga nema mánudaga kl. 12–17. Sýnd eru
verk Borgny Svalastog sem eru unnin í
ýmsa tækni. Sýningin stendur til 17. desem-
ber.
Ófeigur listhús | Skólavörðustig 5. Mál-
verkasýning Ómars Stefánssonar. Til ára-
móta, opið á verslunartíma.
Skaftfell | Haraldur Jónsson sýnir í Skaft-
felli, menningarmiðstöð á Seyðisfirði.
Bjargey Ólafsdóttir sýnir vinnuteikninga;
„ég missti næstum vitið“ á Vesturveggn-
um. Til 23. des. www.skaftfell.is.
Vinnustofa Katrínar og Stefáns | Textíl-
vinnustofa Katrínar og Stefáns, Hlaðbæ 9,
Reykjavík, verður opin næstu helgar. Unnið
er með vaxteikningu (batik) sem er útfært í
myndverkum með þjóðlegu ívafi og fatnað.
Þjóðminjasafn Íslands | Á Veggnum í Þjóð-
minjasafninu stendur yfir jólasýning með
myndum tvíburabræðranna Ingimundar og
Kristjáns Magnússona. Myndirnar fanga
anda jólanna á sjöunda áratugnum. Margt í
þeim ætti að koma börnum í jólaskap og
fullorðna fólkið þekkir þar vafalaust hina
sönnu jólastemningu bernsku sinnar.
Í Myndasal Þjóðminjasafnsins eru til sýnis
þjóðlífsmyndir úr safni hins þjóðþekkta
Guðna Þórðarsonar í Sunnu, blaðamanns,
ljósmyndara og ferðamálafrömuðar. Mynd-
irnar tók hann við störf og ferðalög á tíma-
bilinu 1946–60. Þær eru eins og tímasneið
frá miklu umbrotaskeiði í sögu þjóðarinnar.
Í Bogasal Þjóðminjasafnsins stendur yfir
sýning á útsaumuðu handaverki listfengra
kvenna frá fyrri öldum. Sýningin byggist á
rannsóknum Elsu E. Guðjónsson, textíl- og
búningafræðings. Myndefni útsaumsins er
fjölbreytt, m.a. sótt í Biblíuna og kynjadýra-
veröld fortíðarinnar.
Söfn
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Nú stend-
ur yfir á Bókatorg í Grófarhúsi, Tryggva-
- Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
M.M.J. Kvikmyndir.com
eeee
V.J.V. Topp5.is
eeee
Blaðið
eeee
Þ.Þ. Fbl.
eeee
S.V. Mbl.
3 VIKUR Á TOPPNUM!
40.000 MANNS!
The Holiday kl. 8 og 10:30
Saw 3 kl. 8 og 10.15 B.i. 16 ára
Casino Royale kl. 5.20 B.i. 14 ára
Hnotubrjóturinn og Músakóngurinn kl. 2 (450 kr.) og 3.40
Deck the Halls kl. 2 (450 kr.), 4 og 6
The Holiday kl. 5.10, 8 og 10:45
Casino Royale kl. 5, 8 og 10.50 B.i. 14 ára
Casino Royale LÚXUS kl. 2, 5, 8 og 10.50
Hnotubrjóturinn og Músakóngurinn kl. 1.30 og 3.20
Hátíð í bæ / Deck the halls kl. 1.30, 3.40, 5.50, 8 og 10.10
Borat kl. 3 og 10.20 B.i. 12 ára
Mýrin kl. 5.40 og 8 B.i. 12 ára
Skógarstríð m.ísl.tali kl. 1.50 og 3.40
JÓLAMYNDIN Í ÁR
Cameron
Diaz
Kate
Winslet
Jude
Law
Jack
Black
Frábær rómantísk gamanmynd frá Nancy Meyers
leikstjóra What Women Want og Something´s Gotta Give.
Frábær fjölskyldu- og gamanmynd
sem kemur öllum í gott jólaskap
FORSALA AÐGÖNGU
ATH! EINNIG ER HÆGT AÐ VERLSA