Morgunblaðið - 13.12.2006, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Upplestur
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● HLUTABRÉF hækkuðu í verði í
Kauphöll Íslands í gær. Úrvalsvísi-
talan hækkaði um 0,56% og var
6460 stig við lokun markaða. Bréf
365 hækkuðu um 1,77%, bréf
Landsbanka um 1,12% og bréf KB
banka um 1,07%. Bréf Flögu lækk-
uðu um 4,86% og hafa nú lækkað
um 49% á árinu. Krónan stóð í stað í
lok dags miðað við stöðu hennar í
gærmorgun. Gengi evru er nú 91,90
krónur og dollara 69,45 krónur.
Hlutabréf hækka
● ACTAVIS er
meðal 22 aðila
sem sýnt hafa
áhuga á 53% hlut
rúmenska ríkisins
í samheitalyfjafyr-
irtækinu Antibiot-
ice Iasi í Rúmen-
íu. Segir í frétt á
vef Bloomberg að
talið sé hugs-
anlegt að Actavis muni leggja fram
tilboð í fyrirtækið. Róbert Wess-
mann, forstjóri Actavis, hefur sagt í
viðtali í Morgunblaðinu að félagið
hafi leitað að kauptækifærum eftir
að ljóst varð að ekkert yrði af kaup-
um þess á Pliva sl. haust. Taldi hann
m.a. að Actavis gæti á næstu tveim-
ur árum eða svo náð svipuðu út úr
því að kaupa minni einingar en Pliva.
Markmiðið sé að Actavis verði þriðja
stærsta samheitalyfjafyrirtæki í
heimi. Vitnað er til þessa markmiðs í
frétt Bloomberg. Markaðsvirði þessa
rúmenska félags er talið um 21 millj-
arður.
Actavis orðað við
fyrirtæki í Rúmeníu
Róbert Wessmann
vísitölu neysluverðs í desember, en
greining Glitnis spáði 0,1% hækkun
frá síðasta mánuði.
Að mati greiningardeilda KB
banka og Glitnis mun draga úr verð-
bólguhraða á næstu mánuðum.
Greining Glitnis spáir þannig að
verðbólgan verði um 6,6% yfir þetta
ár en aðeins 1,6% yfir næsta ár og
því nokkuð undir verðbólgumark-
miði Seðlabankans. Greining KB
spáir einnig að verðbólga verði kom-
in á markmið Seðlabankans um mitt
næsta ár og verði í kringum 2,5%
undir lok 2007. Deildirnar gera ekki
ráð fyrir frekari veikingu krónunnar
í þessum spám sínum.
Þrátt fyrir betri verðbólguhorfur
telja Greining Glitnis, KB banka og
Landsbankans líkur hafa aukist á því
að Seðlabankinn hækki stýrivexti
sína 21. desember næstkomandi.
Dregur úr verð-
bólguþrýstingi
Greiningardeildir spá hækkun stýrivaxta Seðlabanka
VÍSITALA neysluverðs í desember
2006 er 266,2 stig og hækkaði um
0,04% frá fyrra mánuði, samkvæmt
tölum frá Hagstofu Íslands, sem
komu út í gær. Vísitala neysluverðs
án húsnæðis er 245 stig, óbreytt frá
því í nóvember. Síðastliðna tólf mán-
uði hefur vísitala neysluverðs hækk-
að um 7% en vísitala neysluverðs án
húsnæðis um 5,6%. Undanfarna þrjá
mánuði hefur vísitala neysluverðs
hækkað um 0,2% sem jafngildir 0,9%
verðbólgu á ári (0,3% verðhjöðnun
fyrir vísitöluna án húsnæðis).
Í síðasta mánuði lækkaði vísitala
neysluverðs um 0,04% en þá mældist
tólf mánaða verðbólga 7,3%. Verð-
bólga mæld á tólf mánaða tímabili
hefur farið lækkandi frá því í ágúst
er hún mældist 8,6%. Að vísu hækk-
aði hún í síðasta mánuði úr 7,2% í
7,3% en mælist nú eins og áður sagði
7%.
Spá 2,5% verðbólgu árið 2007
Verð á mat- og drykkjarvörum
lækkaði um 0,4% milli mánaða, en í
umfjöllun sinni bendir greiningar-
deild KB banka á að undanfarin ár
hafi þessi liður hækkað í desember.
Verð á fatnaði og skóm lækkaði um
1% en á sama tíma í fyrra hækkaði sá
liður um 2%. Að mati greiningar-
deildarinnar gefur þetta vísbend-
ingu um að dregið hafi úr verðbólgu-
þrýstingi í hagkerfinu.
Greidd húsaleiga hækkaði um
1,8% milli mánaða sem endurspeglar
mikinn uppgang á leigumarkaði, en
aukna eftirspurn eftir leiguhúsnæði
má líklega tengja við mikið innflæði
erlends vinnuafls að undanförnu.
Greiningardeildir KB banka og
Landsbankans spáðu 0,2% hækkun
Í HNOTSKURN
» Meginmarkmið Seðla-bankans er stöðugt verð-
lag, skilgreint sem hækkun
neysluverðs um 2½% á tólf
mánuðum.
» Helsta tæki Seðlabankanstil að ná verðbólgumark-
miðinu eru vextir í endur-
hverfum viðskiptum bankans
við lánastofnanir, svokallaðir
stýrivextir.
» Stýrivextir Seðlabankanseru nú 14%, en greiningar-
deildir viðskiptabankanna
þriggja telja auknar líkur á
hækkun stýrivaxta síðar í
mánuðinum.
% +,%-
. /+
0$ 1
*-' .
,'!"
/"
&0
$0#
*1'2#
!"'
$#
*+'
!"'
SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ hef-
ur með nýjum úrskurði sett skilyrði
fyrir kaupum félagsins DM ehf. á
Dreifingarmiðstöðinni ehf. Eigendur
DM eru að miklu leyti þeir sömu eða
eru tengdir eigendum Pennans.
DM hefur eftir kaupin annast
rekstur vöruhúss og vörudreifingu
m.a. á bókum, tímaritum, ritföngum
og skrifstofuvörum. Það er niður-
staða Samkeppniseftirlitsins eftir
rannsókn á umræddum samruna að
tilefni sé til íhlutunar á grundvelli 17.
gr. samkeppnislaga. Viðræður á milli
samrunaaðila og Samkeppniseftir-
litsins hafa leitt til sáttar um að að-
ilar hlíti skilyrðum sem koma eiga í
veg fyrir óheppileg áhrif samrunans
á samkeppni á viðkomandi mörkuð-
um, eins og segir í úrskurði eftirlits-
ins. Skilyrðin felast m.a. í því að
koma í veg fyrir flæði upplýsinga á
milli DM og Pennans og skapa jafn-
ræði með þeim sem eru á mörkuðum
fyrir bóka-, tímarita- og ritfanga-
sölu. Í því skyni m.a. verður DM
óheimilt að sinna innheimtu fyrir þá
aðila sem fyrirtækið dreifir fyrir.
Skilyrt kaup
HEIÐRÚN Jóns-
dóttir hefur ver-
ið ráðin fram-
kvæmdastjóri í
yfirstjórn Eim-
skipafélags Ís-
lands. Hennar
verksvið verður
yfirstjórn starfs-
þróunarsvið og
samskiptasviðs
ásamt lögfræðilegum verkefnum
félagsins. Heiðrún er fædd á Húsa-
vík árið 1969. Hún lauk kandidats-
prófi í lögfræði frá HÍ árið 1995 og
varð héraðsdómslögmaður haustið
1996. Hún tók próf í starfsmanna-
stjórnun frá HA 1999 og lauk lög-
gildingu í verðbréfamiðlun árið
2006. Síðast var hún einn meðeig-
enda Lex lögmannsstofu og starfaði
áður sem upplýsingafulltrúi Símans
og starfsmannastjóri KEA.
Heiðrún til
Eimskips
Heiðrún Jónsdóttir
!" !# $%
2
34
5.6 2
3 4 2
3
47
. 78(
3
.*5.6 2
9**5.6 2
(:5.6 2
5
* 2
% 2;*6 <-/+
'6=-* 2
:+*/+ 2
> 2
>.4(. 2
?
@9 (" 22 2
A 2
!" # ;B
2
(-5.6 2
C4 +45.6 2
D# " 2
E>F39
G & 2
G&---
2
)
2
$!%&'(
?
<-? + 2
)*+,%& %95+ 2
%6 " 2
&
-(31
34(-*
4(1)
3(45
3)(6*
)-(**
)+(3*
+1(-*
7-5(**
)6(1*
66(**
13()*
16(3*
11)(4*
))()*
)(+4
-(33
% +@
*6
+-
G. !.*+-,
'6?
2 2 2 2
22 @
2
2
2
2 22 2 2 2 22 222
222
2
2
2 2 2
2 2
2 2 2 22 @
@
@
2
2
@
@
@
@
@
@
) *6
!*
3G%213
-
("+
*6
@
@
@
@
@
@
@
@
@
?!
*2
D+H
?I7 )8-+)
18-1)
9*(4
9*(1
J
J
(G?;
K3F
38143
38-63
9*(1
:*(1
J
J
L3L
E>F?
.**2
48-)6
181+*
*(*
:1(6
J
J
E>F'
D**
-+4
1383+7
:*(3
:*(6
J
J
CL;F K.M0.
38-3*
1)8+13
:*(3
9*(1
J
J
TVÖ félög hafa í sameiningu geng-
ið frá kaupum á 83,8% hlut í Nord-
Vest verðbréfum, með fyrirvara um
samþykki FME. Kaupendur eru
annars vegar F. Bergsson Eignar-
haldsfélag ehf., en forsvarsmaður
þess er Frosti Bergsson, og hins
vegar Gnúpverjar ehf., en forsvars-
maður þess er Eiríkur Tómasson.
Kaupin eru gerð í samstarfi við
framkvæmdastjóra NordVest,
Skúla Sveinsson, og forstöðumann
verðbréfamiðlunar félagsins, Jón F.
Thoroddsen. NordVest er óháð
verðbréfafyrirtæki og í tilkynningu
segir að velta þess hafi margfaldast
síðustu ár. Í kjölfarið hafi fjárfestar
sýnt félaginu áhuga en það er með
aðild að Kauphöll Íslands og stefnir
að aðild að OMX. Starfsmenn eru
fjórir en þeim á að fjölga um 4–6 á
næsta ári.
Nýir eigendur
NordVest
♦♦♦