Morgunblaðið - 13.12.2006, Síða 17

Morgunblaðið - 13.12.2006, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2006 17 veidihornid.is Hafnarstræti 5 - Sími 551 6760 • Síðumúli 8 - Sími 568 8410 Erfitt að velja? Gefðu gjafabréf í stærstu veiðiverslun landsins. Þar er úrvalið Þú sérð jólatilboðin líka á veidihornid.is - Opið alla daga - Fyrir veiðimanninn í fjölskyldunni þinni veidihornid.is Simms Classic Guide vöðlusett. Simms Classic Guide Gore-tex vöðlur. Áralöng frábær reynsla veiðileiðsögumanna á Íslandi tryggir gæðin. Simms Freestone skór með filtsóla. Sterkir skór með góðum ökklastuðningi. Simms Freestone vöðlusett. Simms Freestone öndunarvöðlur. Mest keyptu öndunar- vöðlurnar á markaðnum. Simms Freestone skór með filtsóla. Sterkir skór með góðum ökklastuðningi. Scierra Blackwater vöðlusett. Scierra Blackwater vöðlurnar hafa reynst frábærlega vel við íslenskar aðstæður. Scierra skór með filtsóla. Léttir og sterkir skór. Vöðlutaska fylgir með. Ron Thompson neoprenvöðlusett. Ron Thompson Crosswater neoprenvöðlur og Ron Thompson Aquasafe jakki, vatnsheldur með útöndun. Jólatilboðaðeins 38.995.- Jólatilboðaðeins 24.995.- Jólatilboðaðeins 28.995.- Jólatilboðaðeins 27.995.- Jólatilboðaðeins 32.995.- Jólatilboðaðeins 18.995.- Ron Thompson öndunarvöðlusett. Ron Thompson Aquasafe öndunarvöðlur. Ron Thompson vöðluskór með filtbotni. Vatnsheldur Ron Thompson Aquasafe jakki með útöndun. Scierra Aquatex vöðlusett. Scierra Aquatex öndunarvöðlur úr lipru efni. Áfastar sandhlífar. Scierra skór með filtsóla. Léttir og sterkir skór. Síðumúli 8Hafnarstræti 5 Bagdad. AP, AFP. | Að minnsta kosti 70 manns biðu bana í sjálfsmorðsárás- um í miðborg Bagdad í gær. Flestir þeirra sem lágu í valnum voru sjítar. Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, fordæmdi árásirnar og sagði þær verk öfgamanna úr röðum súnní-araba og stuðningsmanna Saddams Husseins. Tveir bílar voru notaðir í árásun- um sem voru gerðar á fjölförnu torgi klukkan sjö um morguninn að stað- artíma (klukkan 4.00 að íslenskum) þegar verkamenn úr röðum sjíta söfnuðust þar saman til að leita að vinnu. Hermt er að annar tilræðis- mannanna hafi ekið lítilli rútu að mönnunum, þóst ætla að ráða þá til vinnu en sprengt rútuna í loft upp þegar þeir voru komnir inn í hana. Öfgamenn úr röðum súnní-araba hafa oft gert slíkar árásir og vopn- aðir hópar sjíta hafa svarað þeim með árásum á súnní-araba. Uppreisnarmenn komu einnig fyr- ir sprengju við mosku sjíta í bænum Samarra en hún sprakk þegar sér- fræðingar reyndu að aftengja hana. Minnst 70 létu lífið í tilræðum í Bagdad AP Blóðsúthellingar Írakar á sjúkrahúsi í Bagdad hlynna að manni sem særð- ist í sprengjuárás í gær. Alls særðust 236 manns í sprengingunum. Mogadishu. AFP. | Hreyfing íslamista, sem hefur náð stórum hluta Sómalíu á sitt vald, hótaði í gær að hefja alls- herjarstríð gegn eþíópískum her- mönnum ef þeir færu ekki frá Sómal- íu innan viku. Einn leiðtoga íslamistahreyfingar- innar, Yusuf Mohamed Siad, sagði að ef eþíópísku hermennirnir færu ekki frá Sómalíu áður en fresturinn rynni út bæru þeir ábyrgð á blóðs- úthellingunum í stríðinu. Stjórn Eþíópíu hefur neitað því að hafa sent þúsundir hermanna til að verja sómölsku bráðabirgðastjórn- ina sem hefur aðeins einn bæ á valdi sínu en nýtur alþjóðlegrar viður- kenningar. Eþíópíustjórn hefur þó viðurkennt að hafa sent hundruð hernaðarráðgjafa og leiðbeinenda til að aðstoða her bráðabirgðastjórnar- innar. Ef allsherjarstríð blossar upp í Sómalíu er talin hætta á að það breiðist út og leiði til átaka milli Eþí- ópíumanna og Erítreumanna sem sakaðir eru um að styðja íslamist- ana. Hóta stríði í Sómalíu Berlín, Jerúsalem. AFP. | Ehud Ol- mert, forsætis- ráðherra Ísraels, lýsti því yfir eftir fund sinn með Angelu Merkel, kanslara Þýska- lands, í gær að ekkert hefði breyst varðandi þá afstöðu Ísraela að staðfesta hvorki né hafna því að þeir eigi kjarnorkuvopn. Olmert hefur sætt harðri gagnrýni í Ísrael eftir að hann taldi Ísrael nýlega upp með vestræn- um kjarnorkuveldum. „Ísraelar hafa margoft sagt, og ég sagði það líka í viðtalinu við þýska sjónvarpið, að við munum ekki verða fyrstir til þess að hefja kjarnorku- væðingu í Mið-Austurlöndum,“ sagði Olmert. „Íranar hafa opinberlega og um- búðalaust hótað að þurrka Ísrael af yfirborði jarðar. Er hægt að segja, þegar þeir reyna að koma sér upp kjarnorkuvopnum, að um sé að ræða eitthvað sambærilegt við Frakkland, Bandaríkin, Rússland og Ísrael?“ sagði ráðherrann á mánudag í viðtali fyrir Þýskalandsheimsókn sem hófst í gær. Olmert ber af sér sakir Ehud Olmert Riga. AFP. | Emb- ættismenn í bæn- um Rujiena í Litháen ráku upp stór augu í síðustu viku þeg- ar þeir uppgötv- uðu, að 300 kílóa styttu af byltingarleið- toganum Vladímír Lenín, hafði verið stolið, þaðan sem hún hafði allt frá árinu 1998 verið höfð til sýnis fyrir utan safn í hjarta bæjarins. Skemmdarvargar höfðu áður brotið höfuð styttunnar sem var varðveitt innandyra til öryggis. Styttan var smíðuð af liháíska myndhöggvaranum Janis Zarins en á meðan Litháen var leppríki Sovétríkjanna þurftu slík mynd- verk að prýða sérhvert torg í bæj- um landsins. Eftir fall Sovétríkj- anna enduðu margar á ruslahaug- um eða sem brotajárn. Nú er öldin hins vegar önnur og slíkar styttur sagðar í tísku meðal safnara. Lenín í tísku ♦♦♦ ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.