Morgunblaðið - 13.12.2006, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 13.12.2006, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ UNGLINGAR úr 10. bekk í Síðu- skóla munu koma á Amtsbókasafnið á Akureyri og lesa upp úr 20 nýjum bókum, annars vegar í dag og hins vegar á morgun, fimmtudag. Báða dagana verða þau í bókasafninu á milli 16 og 17. Í dag verður lesið upp úr þessum bókum: Viltu vinna milljarð?, Háski og hundakjöt, Land hinna týndu sokka, Ríki gullna drekans, Konungsbók, Fljótandi heimur, Ballaðan um Bubba, Nafnlausir veg- ir, Heil brú. Á morgun, fimmtudag, verður svo lesið upp úr eftirfarandi bókum: Feimnismál, Frostfiðrildi, Yosoy, Indjáninn, Ég er ekki dramadrottn- ing, Sunnudagsklúbburinn, Engla- flug, Undan illgresinu, Fyrir kvöld- dyrum, Skuggi vindsins, Þrumu- fleygur. Þetta er liður í því að leyfa ung- lingum að æfa sig að tala fyrir fram- an annað fólk, efla sjálfstraust og þjálfa framkomu. „Sýnum þeim endilega stuðning og mætum á stór- skemmtilega upplestra! Einnig mun krakkarnir fjalla örlítið um bækurn- ar, þannig að hér er um að ræða glæsilega dagskrá hjá nemendunum í Síðuskóla!“ segir í tilkynningu.    SÍÐUSTU sýningar á leikritinu Herra Kolbert verða um næstu helgi. Leikritið var frumsýnt í októ- ber og uppselt hefur verið á allar sýningar verksins.    YFIRLITSSÝNINGU á verkum Drafnar Friðfinnsdóttur (1946– 2000) í Listasafninu á Akureyri lýk- ur um næstu helgi. Dröfn lét mikið að sér kveða í íslensku listalífi og haslaði hún sér völl í einum erfiðasta geira grafíklistarinnar, tréristunni. Á stuttum en afkastamiklum ferli vann hún fjölmargar tréristur sem marka henni mikla sérstöðu í sögu íslenskrar grafíklistar. Nemendur í 10. bekk lesa úr bókum á Amtsbókasafninu AKUREYRI EFRI hæð í parhúsi við Oddeyrar- götu á Akureyri er því sem næst ónýt eftir eldsvoða seint í fyrrakvöld. Roskin kona hafði nýlega slökkt á sjónvarpstæki sínu þegar sprenging varð í tækinu og efri hæðin virðist hafa orðið alelda á augabragði. Það varð konunni til happs að hún brá sér niður á neðri hæðina eftir að hafa slökkt á sjónvarpinu. Það var klukkan rétt tæplega hálf tólf í fyrrakvöld sem tilkynnt var um eldinn. Um er að ræða tveggja hæða parhús neðarlega við Oddeyrargötu. Lögreglu- og slökkviliðsmenn fóru á vettvang og er þangað kom mátti sjá talsverðan eld á efri hæð annarrar íbúðarinnar. Í búðinni býr roskin kona og komst hún út af sjálfsdáðum en hún hafði gert ungu fólki sem býr í hinni íbúðinni viðvart um eldinn þegar lögregla og slökkvilið kom á staðinn og komst það einnig út af sjálfsdáðum. Engum varð líkamlega meint af eldsvoðanum. Slökkviliðsmenn slökktu eldinn á um það bil tíu mínútum og síðan voru íbúðirnar báðar reykræstar en mikill reykur var á staðnum. Íbúar hússins gistu hjá ættingjum og vakt var á staðnum fram eftir nóttu. Efri hæðin, þar sem eldurinn kom upp, er nánast ónýt og þá eru tals- verðar skemmdir af völdum reyks sem fór um allt. Mikið af persónu- legum munum konunnar eru ónýtir eftir brunann. Rannsóknardeild lögreglunnar á Akureyri vann í gær að rannsókn málsins en ljóst er að eldurinn kvikn- aði vegna sprengingar í sjónvarps- tækinu sem stóð í stofu á efri hæð- inni. Konan sem býr í íbúðinni gekk niður á neðri hæðina eftir að hafa slökkt á sjónvarpinu og skynjaði allt í einu að eldur var laus á efri hæð- inni. Hún á tvo smáhunda og það varð hundunum að öllum líkindum til lífs að þeir fylgdu eiganda sínum nið- ur á neðri hæðina. Ók undir áhrifum Aðfararnótt þriðjudagsins stöðv- aði lögreglan á Akureyri fjóra pilta á bifreið og er ökumaðurinn grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkni- efna. Við leit í bifreið þeirra fundust hafnarboltakylfa og butterfly-hnífur. Að sýna- og skýrslutöku lokinni var piltunum leyft að fara frjálsum ferða sinna en hald var lagt á kylfuna og hnífinn. Efri hæð parhúss ónýt eftir eldsvoða Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Efri hæðin ónýt Parhúsið á Oddeyrargötu 10 á Akureyri. Sjónvarp sprakk með þeim afleiðingum að efri hæðin hægra megin er nær ónýt. Sjónvarpið sprakk og efri hæðin varð alelda á augabragði Í HNOTSKURN »Sjónvarpstæki sprakk áefri hæð parhúss og hæðin varð alelda á svipstundu. »Roskin kona, sem býr ííbúðinni var nýfarin niður á neðri hæðina þegar sjón- varpið sprakk. Tveir hundar konunnar fylgdu henni niður á neðri hæðina og það varð þeim örugglega til lífs. Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is BORGARRÁÐ hefur samþykkt að styrkja embætti miðborgarprests Dómkirkjunnar um samtals fjórar milljónir í ár og á næsta ári. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri segir að Reykjavíkurborg styðji margvíslega starfsemi innan miðborgarinnar auk þeirrar starfsemi sem þar sé rekin á vegum borgar- innar sjálfrar. Styrkur til miðborgarstarfs Dómkirkjunnar sé veittur til þeirra verkefna sem snúi að samfélagsmálum. Miðborgar- prestur taki þátt í samstarfi um ýmis verk- efni sem unnið sé að á vegum borgarstofn- ana, lögreglu, félagasamtaka og einstaklinga. Miklum hluta starfsins sé ætlað að beinast að börnum og unglingum. „Dómkirkjan hefur lagt áherslu á að svara breyttum aðstæðum með nýjum áherslum í starfi sínu,“ segir hann. „Reykjavíkurborg er tilbúin til að styrkja starf eins og miðborgarpresti er ætl- að að sinna til hagsbóta fyrir betra og auð- ugra mannlíf í miðborginni.“ Styrkurinn efli starfið Að sögn borgarstjóra er vonast til þess að styrkur Reykjavíkurborgar verði til þess að efla miðborgarstarf Dómkirkjunnar. „Með þátttöku borgarinnar er þess vænst að mið- borgarpresti gefist tækifæri til að sinna sam- félagslegum verkefnum með þeim hætti sem stefnt er að. Auðvitað er framlag borgar- innar ekki miklir fjármunir miðað við það mikilvæga starf sem miðborgarpresti er ætl- að að sinna. Við verðum að gera okkur grein fyrir að allt of margir eiga um sárt að binda og þörfin er mikil. Ég vona svo sannarlega að framlag borgarinnar skipti máli.“ Hjálmar Jónsson Dómkirkjuprestur segir framlag borgarinnar til starfs miðborgar- prests vera mikilsvert og geri söfnuðinum kleift að taka verkefnin fastari tökum. Fjölbreytt starfsemi Sr. Þorvaldur Víðisson er nýr miðborgar- prestur og starfar sem prestur við Dómkirkj- una og á ábyrgð hennar. Hann er æskulýðs- fulltrúi kirkjunnar og sinnir barna- og æsku- lýðsstarfi hennar auk þess sem hann er í hálfu starfi hjá borginni, þar sem hann sinnir samfélagsmálum miðborgarinnar. „Ég tek að mér ákveðin verkefni sem snúa að hagsmunum borgarinnar, ýmis samfélags- mál tengd stofnunum í borginni og fyrst og fremst verkefni sem tengjast börnum og unglingum,“ segir Þorvaldur. Í því sambandi nefnir hann m.a. samstarf um ýmis verkefni við þjónustumiðstöðvar, lögreglu, Foreldra- hús, Eineltissamtökin, Samtakahópinn, Sam- an-hópinn og fleiri stofnanir, félög og ein- staklinga fyrir utan þátttöku í fundum, nefndum og ráðum á vegum borgarinnar, eft- ir því sem við eigi. Miðborgarprestur sinnir einnig sálgæslu og stuðningi við einstaklinga, sérstaklega skjólstæðinga þeirra stofnana sem hafa aðsetur í miðborginni eins og t.d. Geðhjálp. Hann kemur til móts við utan- garðsfólk og jaðarhópa með óhefðbundu helgihaldi og samstarfi við þá sem sinna þeim málaflokki á vegum borgarinnar. Auk þess tiltekur Þorvaldur reglulegar helgistundir í Kolaportinu og segir að kristilegt götu- og leitarstarf sé mjög mikilvægur þáttur í starf- inu. „Þetta felst í því að aðstoða börn og ung- linga sem ráfa um göturnar utan síns útivist- artíma, hvetja foreldra til ábyrgðar og taka þátt í götustarfinu, vera á vettvangi, og sér- staklega í tengslum við hátíðir borgarinnar.“ Fyrir um fimm árum starfaði Þorvaldur hjá Dómkirkjunni og vann þá meðal annars með sr. Jónu Hrönn Bolladóttur, þáverandi mið- borgarpresti, en starfið hefur legið niðri síð- an hún varð sóknarprestur í Garðaprestakalli fyrir nokkrum misserum. Hann segir að starfsemi embættis miðborgarprests sé með töluvert öðru sniði nú og grundvallarbreyt- ingin sé að hann sé starfsmaður Dómkirkj- unnar en sem fyrr byggist starfið á samvinnu og samstarfi. „Starfið er í stöðugri þróun,“ segir hann. Í því sambandi bendir hann á að Dómkirkjan hefur að frumkvæði sóknar- prests og sóknarnefndar opnað kvöldkirkju á fimmtudagskvöldum en fyrirmyndin er Frú- arkirkjan í Kaupmannahöfn. „Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir sinnti sínu hlutverki vel og á eftirminnilegan máta. Ýmis verkefni sem hún sinnti á sínum tíma hafa fundið sér nýja og góða farvegi. Við sr. Hjálmar Jónsson sóknarprestur og fleiri sem hafa komið að þessum undirbúningi nú höfum reynt að taka stöðuna í miðborginni upp á nýtt og viljum mæta þeirri þörf sem uppi er í samfélaginu.“ Miðborgarstarf Dómkirkjunnar eflt Morgunblaðið/Kristinn Uppbygging Sr. Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri og Þorvaldur Víðisson, miðborgarprestur og æskulýðsfulltrúi Dómkirkjunnar, efla starf mið- borgarprests til hagsbóta fyrir betra og auðugra mannlíf í miðborginni. Í HNOTSKURN » Miðborgarprestur starfar semprestur við Dómkirkjuna og á ábyrgð hennar. Hann sinnir barna- og æskulýðsstarfi hennar. » Miðborgarprestur er í hálfu starfihjá borginni, þar sem hann sinnir samfélagsmálum miðborgarinnar. » Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir varfyrsti miðborgarpresturinn og nú hefur sr. Þorvaldur Víðisson tekið við starfinu. Borgarráð styrkir embættið um fjórar milljónir í ár og á næsta ári HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.