Morgunblaðið - 13.12.2006, Qupperneq 22
|miðvikudagur|13. 12. 2006| mbl.is
Jólasöfnun
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
er hafin
Þeir sem vilja leggja nefndinni lið vinsamlega hafið samband
á skrifstofutíma í síma 551 4349 eða á netfangið
maedur@simnet.is. Einnig er hægt að leggja framlög inn á
reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119.
Umsóknir um jólaúthlutun eru dagana
6., 13. og 14. desember.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Hátúni 12b.
daglegtlíf
Bryndís Baldursdóttir er járn-
kvendi sem ætlar að taka þátt í
Ironman keppninni fyrst
íslenskra kvenna. » 25
hreyfing aðventan
Góður svefn er mikilvægur til
að hvíla líkama og huga, sem og
til að viðhalda og styrkja
minnið. » 24
heilsa
T
vær verslanir hafa al-
gjöra sérstöðu í
Reykjavík. Í fyrsta lagi
eru þær á sjúkra-
húsum, í öðru lagi vinn-
ur starfsfólkið þar í sjálfboðavinnu
og í þriðja lagi rennur allur ágóð-
inn til líknarmála. Þetta eru að
sjálfsögðu sölubúðir Reykjavík-
urdeildar Rauða kross Íslands,
nánar tiltekið kvennadeildar, en sú
deild fagnaði nýlega 40 ára starf-
samæli.
„Það hvarflaði aldrei að mér að
verða búðarkona,“ segir Steinunn
Jónsdóttir, sjálfboðaliði á vakt í
sölubúðinni á LSH í Fossvogi. „En
þetta starf er mjög gefandi og
skemmtilegt. Ég hef megnið af
minni starfsævi unnið á skrifstofu
og geri reyndar enn. Ég gef mér
samt tíma til þess að vera búð-
arkona hálfan dag aðra hverja viku
en ég hef unnið hér í átta ár. Mér
finnst það ómissandi hluti af tilver-
unni. Bæði er félagsskapurinn
skemmtilegur og svo er þetta ein-
stakt starf og þakklátt,“ segir hún
brosandi og afgreiðir sjúkraliða
sem klæddur er rauðakrosslit-
unum, í hvítum búningi og rauðri
peysu.
„Starfsfólkið hér á sjúkrahúsinu
eru tryggir viðskiptavinir og kemur
reglulega. Innanhúss gengur búðin
undir nafninu „mollið“ sem er
enska orðið yfir verslunarmiðstöð.
Það fæst nefnilega alveg ótrúlega
margt hér, líkt og í verslunarmið-
stöðvunum, þótt búðin sé aðeins á
nokkrum fermetrum,“ segir hún og
sýnir fallegar töskur, fóðruð
herðatré og flóru af leikföngum.
„Þá erum við með ilmvötn og þekkt
snyrtivörumerki fyrir konur og
karla, skartgripi, sokka og sælgæti
svo aðeins fátt eitt sé nefnt.“
Í þeim töluðum orðum kemur
Bryndís Jónsdóttir verkstjóri aðvíf-
andi og biður um gleraugu. Stein-
unn snarar kassa með gleraugum
upp á afgreiðsluborðið og verk-
stjórinn er fljótur að velja gleraugu
með fallegri hvítri umgjörð.
„Við eigum þó því miður ekki allt
sem fólk biður um, eins og skós-
vertuna sem maður spurði eftir
ekki alls fyrir löngu. En vöruúr-
valið er samt ótrúlega mikið og
breitt í ekki stærri verslun.“
Steinunn segir að sjúklingarnir
komi að sjálfsögðu líka til þess að
versla og ættingjar þeirra og vinir
sem eru að koma í heimsókn. „Við
seljum mikið af sætindum og
snyrtivörum en gjafavaran nýtur
líka mikilla vinsælda enda er hún á
góðu verði. Sumir sjúklingar kom-
ast sjaldan í verslanir þar sem þeir
eiga ekki auðveldlega heimangengt.
Þá nýta þeir oft tækifærið þegar
þeir leggjast inn á spítalann og
birgja sig upp af gjöfum til þess að
gefa öðrum á afmælum og um jól-
in.“
Sjálfboðaliðinn segir aðventuna
sérstaka. „Jólastemningin smitar
alla og svo versla auðvitað jóla-
sveinarnir hér. Það er svo gaman,“
segir hún dálítið leyndardómsfull á
svip en tvær hvítklæddar hjúkr-
unarkonur staðfesta það. Þær hafa
séð alls kyns jólasveina kaupa í
skóinn í Rauða krossbúðinni.
„Ágóðinn af allri sölu fer síðan til
kaupa á lækninga- og rannsókn-
artækjum fyrir sjúkrahúsin auk
annarra líknarmála,“ segir Stein-
unn sem eins og jólasveinunum, og
hinum mörgu sjálfboðaliðum RKÍ,
finnst skemmtilegt að gefa.
Morgunblaðið/Ásdís
Jólagjafainnkaup Ingibjörg Torfadóttir var að kaupa jólagjöf en þær eru margar góðar í RKÍ búðunum.
Kærleiksverk Steinunn Jónsdóttir segir starfið í búðinni mjög gefandi og þakklátt.
Jólasveinatengsl Þessar höfðu séð jólasveina kaupa dót í skóinn í búðinni.
Jólasveinninn
verslar í
RKÍ-búðunum
heilsa
VÍSINDAMENN við NTNU-
háskólann í Þrándheimi í Noregi og
St. Olavs-sjúkrahúsið í sama bæ
hafa fundið sannanir fyrir því að
kímnigáfa lengir lífið. Þetta er í
fyrsta sinn sem sönnur eru færðar á
að þeir sem hafa húmor eru líklegri
til að lifa af alvarleg veikindi.
Öllum sjúklingum sem þjáðust af
krónískri nýrnabilun í Syðri-
Þrændalögum var í janúar eitt árið
boðið að taka þátt í rannsókninni,
að því er forskning.no greinir frá.
Sjúklingarnir voru í lífshættu og
þurftu að undirgangast meðferð í
blóðskiljuvél allt frá því daglega að
einu sinni í viku til að hreinsa úr-
gangsefni líkamans úr blóðinu. Án
blóðskiljunnar hefðu þessir sjúk-
lingar látist.
Um 80 prósent sjúklinganna
svöruðu spurningum um aldur,
kyn, menntun, lífsgæði og kímni-
gáfu. Um helmingur sjúklinganna
skoraði tiltölulega hátt á prófinu
þegar kom að húmor og tveimur ár-
um síðar var 30 prósentum líklegra
að þeir væru enn á lífi en þeir sem
tilheyrðu hinum helmingi svar-
enda.
Í þeim niðurstöðum er búið að
taka mið af öðrum heilsufarsvanda-
málum sjúklinganna, almennum
lífsgæðum og fleiri hugsanlegum
áhrifavöldum. Ekkert annað atriði í
aðstæðum sjúklinganna reyndist
eins afgerandi og kímnigáfa þeirra
þegar kom að því að segja fyrir um
lífslíkur.
Kímnigáfan lengir lífið
Reuters
Hlátur Nú er búið að sanna vís-
indalega að húmor lengir lífið.
Mörgum eru jólin kærkomin
hvíld en aðrir kvíða hátíð-
arstundunum. » 24