Morgunblaðið - 13.12.2006, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 13.12.2006, Qupperneq 32
32 MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Svandís ÞulaÁsgeirsdóttir fæddist á Heilbrigð- isstofnun Suður- lands á Selfossi 26. febrúar 2001. Hún lést af slysförum 2. desember síðastlið- inn. Foreldrar hennar eru Ásgeir Ingvi Jónsson, f. 12.9. 1966, og Hrefna Björk Sig- urðardóttir, f. 6.8. 1975. Bræður henn- ar eru Nóni Sær Ás- geirsson, f. 24.8. 1998, og Pálmi Freyr Steingrímsson, f. 3.3. 1993. Foreldrar Ásgeirs eru Þóra Krist- jánsdóttir og Jón Guðmundsson. Foreldrar Hrefnu eru Sigríður Jónsdóttir, maki Hjalti Svanberg Hafsteinsson, og Sigurður J. Pálma- son, maki Auður Eysteinsdóttir. Svandís var á leikskólanum Berg- heimum í Þorláks- höfn en frá því í júní var hún á leikskól- anum Blásölum í Reykjavík. Svandís æfði ballett hjá Ball- etskóla Eddu Schev- ing frá þriggja ára aldri. Útför Svandísar verður gerð frá Langholtskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Jarðsett verður í Stokkseyrarkirkjugarði. Elsku dísin okkar. Með þessum fá- tæklegu orðum viljum við þakka þér, prinsessan okkar, hvað þú gafst okk- ur alltaf mikið. Þessir dagar frá slys- inu eru búnir að vera erfiðir en þú kemur oft upp í huga okkar með þitt fallega bros og nóg eigum við af góð- um minningum um þig þó ævi þín hafi verið alltof stutt. Þú gast gert svo margt og þið systkinin voruð svo náin þótt þið væruð ekki alltaf alveg sammála. Þú varst prinsessa og hafðir mikið gaman af að búa þig upp og við sjáum þig fyrir okkur í kjól, tilbúna til að fara eitthvað. Mikið er- um við fegin í dag hvað við vorum dugleg að segja að við elskuðum þig, og minningin um þig að segja okkur hvað þú elskir okkur mikið er alltaf að koma upp í hugann. Þegar pabbi náði í þig síðasta árið komst þú alltaf hlaupandi á móti honum og kallaðir yfir alla: „Pabbi er kominn,“ og þeg- ar var verið að kveðja varðstu að fá að kyssa okkur bless. Þú hafðir alltaf mikla þörf fyrir að kyssa okkur og munum við eftir því að þegar pabbi var að fara með þig á leikskólann og þú varst komin út í bíl þá varðst þú að fara inn aftur til að kyssa mömmu bless. Það er svo margt sem við mundum vilja segja við þig en við hittumst síðar og þá kemur þú örugglega hlaupandi á móti okkur og kallar: „Mamma og pabbi eru kom- in.“ En þangað til segjum við eins og þú sagðir alltaf áður en þú fórst að sofa: „Við hittumst í draumi, góða nótt og guð geymi þig.“ Mamma og pabbi. Litla systir mín, þú ert þæg og góð, þú ert kát og rjóð, þú ert yndið mitt er þú sefur rótt. Mér þykir vænt um þig. Þinn bróðir Pálmi Freyr. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Kveðja. Amma og afi á Sauðárkróki. Elsku ömmustelpan okkar. Það er skrítið til þess að hugsa að þú eigir ekki eftir að birtast hér á eldhúsgólf- inu með stóru bláu augun þín og hafa frá svo mörgu að segja og liggja svo mikið á hjarta að stundum gleymdir þú bara að heilsa. Þú varst svo lífs- glöð lítil telpa sem hreifst okkur með þér í gleðina sem þú vildir óspart deila með okkur hinum. Þú hringdir oft til okkar á Stokkseyri til að segja okkur frá ef eitthvað spennandi hafði gerst eins og þegar naggrísunum ykkar Nóna fjölgaði skyndilega og lítill ungi bættist í hópinn. Þú gistir líka hérna hjá okkur fyrir stuttu síð- an og þá varstu svo upptekin af því að þú áttir að leika „Maríu mey“ í leikskólanum þínum og syngja „Þú nýfæddur Jesús“. Þú lékst þetta allt fyrir okkur og söngst fyrir okkur aft- ur og aftur, því þú kunnir þetta allt og varst svo spennt yfir þessu öllu saman. Þeir segja þig látna, þú lifir samt og í ljósinu færð þú að dafna. Því ljósið var úthlutað öllum jafnt og engum ber þar að hafna. Frá litlu hjarta berst lítil rós, því lífið þú þurftir að kveðja. Í sorg og í gleði þú senda munt ljós, sem að mun okkur gleðja. (Guðm. Ingi Guðm.) Elsku Svandís, það er erfitt að hugsa til þess að þú sért ekki lengur hér, en við vitum að amma á Grund hefur tekið á móti þér og hugsar vel um þig. Elsku Hrefna okkar, Ásgeir, Pálmi Freyr og Nóni Sær, Guð gefi ykkur og okkur hinum styrk í þess- ari raun. Amma Sigríður og Hjalti. „Amma, gettu hver var þjónn í dag?“ „Ég veit ekki, ég þekki svo fáa í leikskólanum, var það kannski Svan- dís Þula?“ „Já, ég var sko þægust, ég sagði ekki orð, þess vegna fékk ég að vera þjónn.“ Minning á við þessi orðaskipti þjóta í gegn um hugann. Minning um litla hönd sem stakk sér inn í mína – ljúft handtak. Það er svo óendanlega sárt að hugsa til þess að þessi litli sólargeisli fái ekki að vaxa og lifa því lífi sem hugur hennar stóð til. Svandís var að verða stór. Spenn- ingurinn þegar fyrstu tennurnar fóru og undrunin þegar tannálfurinn gaf henni fullt af peningum en gleymdi að taka tönnina. En það var ekki bara tannmissir sem gerði litla stelpu stóra, niður- talning á sex ára afmælisdaginn var hafin og undirbúningur fyrir skóla- göngu byrjaður. Nafnið Svandís Þula var skrifað á alla pappírssnepla og orðið ís við hliðina. Við fáum aldrei að sjá Svandísi Þulu dansa ballett í bleikum kjól með ljóst sítt hár sett í hnút, eins og draumur hennar stóð til, en eigum minningu um litla dúllu að flögra um sviðið með balletskólanum sínum, vinkandi okkur, með allt of stutt hár sem mömmu hennar, af sinni al- kunnu snilld, tókst að búa til plathár- hnút í. Svandís flutti með mömmu sinni og bróður, Nóna Sæ, frá Þorlákshöfn í Norðlingaholtið sl. vor við skilnað forelda sinna. Elsti bróðir Svandísar, Pálmi Freyr flutti þá til pabba síns og fjölskyldu á Stokkseyri. Sam- bandið til Þorlákshafnar var sterkt og fóru öll börnin oft til Ásgeirs sem ávallt tók þeim opnum örmum. Svandís var á leikskólanum Blá- sölum og þangað náði ég yfirleitt í hana og hún dvaldi hjá mér, afa Sigga og frændum sínum stund úr degi. Svandís var hlý og mikill gleði- gjafi en átti sínar þrjóskustundir, enda bleik prinsessa í eðli sínu. Henni fannst ótrúlega gaman að stríða og þá lá ég oft vel við höggi. Eitt sinn þegar ég náði í hana á leik- skólann, þá fór ég beint út á leikvöll- inn. Þennan dag vildi svo til að hún var inni og sá hún mig út um gluggann, þar sem ég leitaði hennar. Þetta fannst henni óskaplega fyndið og hún hló alla leiðina heim og minnti mig á í marga daga á eftir hvað ég væri vitlaus. Eftir þetta gerði hún sér far um að fela sig þegar ég náði í hana. Svandís bullaði oftast út í eitt við mig og þegar ég var að gefast upp á öllu glensinu þá hló hún og sagði: „1.apríl!“ Einu sinni þegar bullið og gamanið var komið út í öfgar að mínu mati, þá ákvað ég að stríða henni. Hún brást hart við og þaut upp í rúm í fýlu. Ég sagði henni að hún mætti aldrei stríða mér oftar, því fýlupúkar mættu ekki stríða mér. Hún var fljót að snúa vörn í sókn, stökk fram úr rúminu og hrópaði: „1.apríl!!“ Við skiljum ekki af hverju svona lítið, elskulegt og lífsglatt barn var hrifsað frá okkur í einu vetfangi. Af hverju svo margir þurfa að þjást. Minningarnar getur enginn tekið frá okkur. Minningar um Svandísi Þulu eru grafnar djúpt í hjarta okkar og leiða okkur í gegnum sársaukann. Elsku Hrefna Björk, Ásgeir, Pálmi Freyr og Nóni Sær, ykkar missir er mikill og erfiðleikar ekki að baki, en samheldni og kærleikur er ykkar mikli styrkur og hjálpar ykk- ur til að ná fótfestu aftur. Þið eruð í bænum okkar öllum stundum og einnig allir þeir sem eiga um sárt að binda. Kveðja. Amma Auður, afi Siggi, Sigurður Örn, Leifur Daníel og Þröstur. Lífið er svo stutt, það er svo margt ógert. Hversu mörg okkar hafa ekki hugsað slíkt, og sannarlega erum við minnt á vanmátt okkar þegar lítið barn er hrifið frá okkur á einu ein- asta augnabliki. Laugardagurinn 2. desember var sólbjartur dagur í New York. Borgin hafði verið að klæðast jólaskarti síð- ustu vikurnar, en í huga Íslendings- ins eru sumarveður og ímynd jólanna langt hvort frá öðru. Skjótt skipast veður í lofti segjum við Ís- lendingar. Allt í einu var hringt í mig og mér sagt að bróðir minn hefði lent í bílslysi, litla stúlkan hans væri dáin og drengurinn hans alvarlega slas- aður. Sólin skein áfram, en ekki í mínum huga. Það voru þungar stundir. Svandís Þula var yndisleg lítil stúlka. Hún var sólargeisli sem skein svo allt of stutt. Hún var ávallt brosandi og það var alltaf líflegt í kringum þau systkinin. Í júní kom ég stutta ferð til Íslands, öllum að óvör- um nema Ásgeiri sem tók á móti mér ásamt börnunum sínum, og við keyrðum sem leið lá norður í Skaga- fjörð. Þegar norður var komið urðu fagnaðarfundir með frændsystkin- unum Svandísi og Helga. Ég bullaði einhver ósköp við þau og á endanum fannst Svandísi nóg komið og sagði: „Komdu, Helgi, hún á heima í út- löndum.“ Ég hef oft vitnað í þessi orð litlu frænku minnar á Íslandi. Sagt með öðrum orðum, útlendingum treystum við ekki um of. Sakleysi barnsins gerði þessi orð skemmtileg, en undir stakk djúpur sannleikur. Við treystum þeim sem næstir okkur eru. Elsku Ásgeir minn, Hrefna, Pálmi, Nóni, afar, ömmur og allir aðrir aðstandendur. Í huga okkar núna ríkir sorg, örvænting og van- máttur. Á þessu augnabliki er erfitt að finna tilfinningar sem ást og gleði en þær tilfinningar höfum við haft og munum alltaf hafa. Svandís Þula treysti sínum nánustu og hún lifði sín fáu ár við ást og umönnun góðra for- eldra, bræðra sem og allra annarra aðstandenda og vina. Ekkert okkar mun nokkurn tíma gleyma litlu, fal- legu stúlkunni með bjarta brosið og stóru augun. Blessuð sé minning þín, elsku litla frænka mín. Ingibjörg. Þegar líða fer að jólum á gleði og eftirvænting að ríkja í huga okkar. En í einum vettvangi er slíku svipt burt. Eitt lítið augnablik og lítil fimm ára stúlka er ekki lengur meðal okk- ar. Svandís Þula frænka mín með stóru augun sín sem alltaf var gleði og kátína í kringum. Á svona stund- um sitjum við eftir vanmáttug með ótal spurningar sem ekki fást svör við. Litla frænkan sem var farin að æfa ballett en ég hafði ekki enn séð dansa. Ekki fleiri gönguferðir til ömmu og afa og að kaupa bleikan ís í leiðinni. Frænka þurfti jafnvel að hjálpa til að klára hann því hann var stundum of stór. Það var alltaf mikil gleði hjá Helga Hrannari þegar frændsystkinin komu í heimsókn og yfirleitt mikið líf og fjör í pottapartí- unum þeirra á Grundarstígunum. Það var versta yfirsjón foreldranna ef sundfötin gleymdust þegar farið var norður. Yfirleitt var það eitt það fyrsta sem spurt var um þegar kom- ið var, hvort það mætti fara í pottinn. Mig langar að lokum að kveðja frænku mína með ljóðlínum sem óm- að hafa í huga mér síðan kvöldið ör- lagaríka: Þó farir þú um fjarlæg lönd og langt frá þinni heimaströnd, þá munu ljóssins englar ávallt fylgja þér. Elsku frænka mín, þakka þér samfylgdina og megi ljóssins englar ávallt fylgja þér. Elsku Ásgeir bróðir, Hrefna, Pálmi, Nóni, afar, ömmur og allir aðrir aðstandendur, megi englar ljóssins líka hjálpa okkur að komast í gegnum þessa erfiðu tíma og koma Nóna Sæ til heilsu á ný. Ásta frænka á Sauðárkróki og fjölskylda. Við skiljum ekki það sem gerðist og þó að við munum einhvern tímann skilja það munum við aldrei verða sammála því. Við skiljum ekki hvers vegna þú, lítil og saklaus, þurftir að fara héðan og við sem höfum ekki borið neina virðingu fyrir lífinu feng- um að vera um kyrrt. En hvað við eigum eftir að sakna þess að heyra að Svandís og Nóni séu að koma í pössun, eða að þurfa að vakna snemma vegna láta í Svandísi og Nóna þegar við höfum ætlað að sofa út. Þó að við höfum oft bölvað því þá þarf stundum eitthvað slæmt að ger- ast svo maður skilji hversu undur- vænt manni þykir um einhvern. En sama hversu gamlir við verðum máttu vita að það mun aldrei önnur stelpa fylla það skarð sem þú skildir eftir þig. Guð geymi þig. Þínir Unnar Már og Steinar Nóni Hjaltasynir. Elsku Svandís Þula. Við sitjum hérna heima í sorgum okkar og hugsum til þín, vonum að þú sért á góðum stað með góðu fólki og hafir það gott. Við héldum að þú yrðir allt- af hérna hjá okkur en þú varst tekin allt of snemma. Þegar við hugsum til baka og til þín, þá munum við hvað þú varst alltaf mikill spóaleggur, pínulítil og mjó. Þú varst með risa- stór blá augu, lítið nef og með tennur sem voru mótaðar eftir snuðið sem þú áttir svo erfitt með að skilja við þig. Fallegasta stelpan. Það er ekki svo langt síðan þú og Nóni Sær kom- uð í pössun hingað á Stokkseyri. Og þá eins og alltaf komstu inn með miklum skerandi skrækjum og flissi. Þú varst alltaf svo hress og kát þó að oft væri stutt í frekjuna; henni fylgdi einmitt líka mikið af skrækjum. Þeg- ar skrækirnir byrjuðu og þú vildir fá að ráða, þá sagði Nóni venjulega: ,,Ohhh, Svandís, þú ert svo frek! Ókei þú mátt ráða.“ Og þá venjulega kom litla sólskinsbrosið upp aftur. Við munum aldrei skilja hvað átti sér stað þennan dag og við erum ekki vissar um að við viljum vita það. En þú verður ávallt í hjarta okkar og þér verður aldrei gleymt. En í staðinn fyrir að hafa ljóð eða einhvern sálm höfum við ákveðið að hafa einhvað sem þér fannst fallegt og varst alltaf að syngja. Ég held að þér hafi fund- ist þetta fallegt lag af því að þér fannst þú sjálf alltaf vera flottust og fínust og gast eytt endalausum tíma í að dást að sjálfri þér fyrir framan spegilinn: Ef spegillinn gæti talað þá mundi hann segja við mig að ég væri fegurst, flottust og fínust, það myndi hann segja við mig. En ef það væri eitthvað sem mér líkaði ekki við, ég skæri það burt og límdi svo nýtt sem ætti þá betur við mig. Ég ætla að punta, punta, punta, gera mig fína, fína, fína, síðan að púðra, púðra, púðra, allir mig vilja, vilja, vilja, ég er svo æðisleg og lang-lang-flottust að allir bara verða mig að sjá. Þínar uppáhaldsfrænkur Gunnhildur og Særún. Elsku Svandís okkar. Þegar við fengum fréttirnar að þú hefðir látist í umferðarslysi var eins og eitthvað hefði dáið í okkur öllum. Þetta var svo óraunverulegt. Ekki litla Svan- dísin okkar. Skömmu áður en þú lést varstu hjá okkur í Jörfabakkanum að leika við bróður þinn Nóna Sæ og svo vini þína og frændsystkin Hafþór Pálma og Magneu Dís og þegar þið fjögur komuð saman þá var nú yfirleitt mik- ið fjör. Við söknum þín svo mikið, elsku Svandís, meira en orð fá lýst. Brosið þitt, hláturinn, fallegu stóru bláu augun þín, fallega ljósa hárið þitt, svona gætum við lengi talið. Núna ertu orðin fallegur engill hjá guði og alltaf þegar við kveikjum á kerti hugsum við til þín og Hafþór Pálmi veit að þú ert örugglega búin að eignast góða englavinkonu. Við biðjum góðan guð að geyma þig og hjálpa bróður þínum, Nóna Sæ, í gegnum erfiða baráttu sem framundan er, sem og Pálma Frey og foreldrum þínum. Guð geymi þig, elsku Svandís okk- ar, þú ert alltaf í bænum okkar. Elsku Ásgeir, Hrefna, Pálmi Freyr og Nóni Sær, Guð veri með ykkur og styrki ykkur á þessum erf- iðu tímum. Oddur, Sigurlaug, Eyþór Ernir, Hafþór Pálmi og Magnea Dís. Elsku Svandís Þula. Takk fyrir allar góðu stundirnar okkar saman. Þinn frændi Helgi Hrannar. Elsku Svandís Þula. Ég á bágt með að trúa því að þú sért farin frá okkur og ég eigi ekki eftir að sjá þig, þú sem varst alltaf svo glöð og eilíft brosandi. Ég man að í afmælum hjá Auði, Sigga og fjölskyldu þá fórum við krakkarnir oft út á róló og þar vorum við í einhverjum leikjum og skemmtum okkur. Við sátum líka og spiluðum saman og þá var ekki verið að spara hláturinn. Þegar þú komst seinast heim til mín þá komstu bros- andi til mín og sagðir: „Sjáðu, Ína, ég var að læra að skrifa þessa stafi og amma Auður var að kenna mér.“ Þú varst svo dugleg og hlakkaðir svo til að fara í skóla eins og Nóni Sær. Ég á eftir að sakna þín mjög mikið og þegar ég kveiki á kertum þá ætla ég að hugsa til þín. Ég bið góðan Guð að styrkja for- eldra þína, bræður og aðra aðstand- endur. Ég vil kveðja þig með þessu ljóði: Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér (Hallgr, Pét.) Guð geymi þig. Þín frænka Ína Björk. Svandís Þula var mikill stríðnis- púki. Eitt af því sem Björk og hún gerðu oft þegar Svandís Þula kom í heimsókn var að hlaupa yfir til Haf- dísar og sníkja sleikjó. Einu sinni hlupu þær af stað til að fá sleikjó og voru búnar að vera óvenju lengi. Þegar var farið að athuga með þær þá stóðu þær hálfbognar undir glugganum á íbúðinni við hliðina, bönkuðu þar og hlupu í burtu. Þegar þær voru spurðar að því hvað þær Svandís Þula Ásgeirsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.