Morgunblaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2006 37 Atvinnuauglýsingar Barnagæsla Óskum að ráða trausta og barngóða manneskju til að gæta tveggja lítilla stráka hluta úr degi 3-4 daga í viku. Nánari upplýsingar í síma 581 1517/895 1517. Rekstrarstjóri óskast sem fyrst á lítinn veitingastað í miðborginni. Skemmtilegur aðventutími framundan. Upplýsingar í síma 848 0393. Smiður eða laghentur maður óskast til starfa í PVC- gluggaverksmiðju. Um er að ræða spennandi starf í ört vaxandi fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu. Umsækjandi þarf að vera duglegur, skipu- lagður og hafa góða samkiptahæfileika. Reynsla úr byggingaiðnaðinum er nauðsynleg. Góð laun eru í boði fyrir góðan starfskraft. Umsóknir sendist á pgv@pgv.is Raðauglýsingar 569 1100 Fundir/Mannfagnaðir Aðalfundur Hollvinafélags lagadeildar Háskóla Íslands verður haldinn fimmtudaginn 21. desember 2006 í stofu 201 á 2. hæð í Lögbergi, Háskóla Íslands, kl. 17.15. Dagskrá fundarins: 1. Skýrsla og reikningar stjórnar fyrir liðið starfsár. 2. Umræður um skýrslu og reikninga. 3. Lagabreytingar. 3.1. Tillaga um hækkun á félagsgjöldum. 4. Kosning stjórnar fyrir komandi starfsár. 5. Kosning tveggja skoðunarmanna. 6. Önnur mál. Allir félagsmenn eru hvattir til þess að mæta. Stjórn félagsins. Félag sjálfstæðismanna í Austurbæ - Norðurmýri Aðalfundur verður haldinn í Valhöll miðvikudaginn 13. des- ember kl. 18.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. 3. Bóka- og ljóðaupplestur. Gestur fundarins verður Jakob F. Ásgeirsson sem segir frá nokkrum athyglisverðum bókum í jólabókaflóðinu. Allir velkomnir. Stjórnin. Kvóti Tollkvótar vegna innflutnings á blómum Með vísan til 65. gr. og 65. gr. A, laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum og með vísan til reglugerðar dags. 11. desember 2006, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta vegna innflutnings á blómum, fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2007. Nánari upplýsingar liggja frammi í landbúnaðarráðuneytinu á skrifstofutíma frá kl. 9:00-16:00. Skriflegar umsóknir skulu berast til landbúnaðarráðuneytisins, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík, fyrir kl. 15:00 mánudaginn 18. des- ember nk. Tollkvótar vegna innflutnings á ostum frá Noregi Með vísan til 87. gr. laga nr. 99/1993 um fram- leiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum og með vísan til reglugerðar dags. 11. desember 2006, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta vegna innflutn- ings á smurostum (0406.3000) framleiddum í Noregi, fyrir tímabilið 1. janúar–31. desem- ber 2007. Nánari upplýsingar liggja frammi í landbúnaðarráðuneytinu á skrifstofutíma frá kl. 9:00-16:00. Skriflegar umsóknir skulu berast til landbúnaðarráðuneytisins, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík, fyrir kl. 15:00 mánudaginn 18. des- ember nk. Tilkynningar Auglýsing um deiliskipulag frístundabyggðar í landi Beitistaða, Hvalfjarðarsveit Samkvæmt ákvæðum 1. mgr. 25. gr. Skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögu að deiliskipu- lagi frístundabyggðar í landi Beitistaða, Hval- fjarðarsveit. Deiliskipulagstillagan er í samræmi við aðal- skipulag Leirár- og Melahrepps 2002-2014 og gerir ráð fyrir 20 lóðum frá um 0,5 til 1,0 hekt- ara stærð. Tillagan ásamt skipulags- og byggingarskil- málum liggur frammi á skrifstofu Hvalfjarðar- sveitar, Innrimel 3, frá 13. desember 2006 til 10. janúar 2007 á venjulegum skrifstofutíma. Athugasemdum skal skila á skrifstofu skipu- lags- og byggingarfulltrúa Miðgarði fyrir 24. janúar 2007 og skulu þær vera skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemd innan til- greinds frests teljast samþykkir tillögunni. Skipulags- og byggingarfulltrúi. Grýtubakkahreppur auglýsir Auglýsing um breytingu á Aðalskipulagi Grenivíkur 1987-2007 Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps auglýsir hér með breytingu á Aðalskipulagi Grenivíkur 1987-2007 skv. 18. gr. skipulags- og byggingar- laga nr. 73/1997. Tillagan felst í að grænu svæði við Ægissíðu á Grenivík (suð-vestur) verði breytt í íbúðalóðir. Breytingin verður til sýnis á skrifstofu Grýtu- bakkahrepps, Gamla skólanum Grenivík frá og með 14. desember 2006 til og með 11. janúar 2007. Þeir sem vilja gera athugasemdir við til- löguna skulu gera það með skriflegum hætti eigi síðar en 25. janúar 2007. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni. Sveitarstjóri Grýtubakkahrepps. Auglýsing um deiliskipu- lag á Grenivík í Grýtubakkahreppi Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi fyrir einbýlis- húsalóðir viðÆgissíðu (suð-vestur) á Grenivík. Tillaga þessi, sem auglýst er með vísan til 25. gr. skipulags- og byggingarlaga, nr. 73/1997, verður til sýnis á skrifstofu Grýtubakkahrepps, Gamla skólanum, Grenivík, frá og með 14. des- ember 2006 til og með 11. janúar 2007. Þeir sem vilja gera athugasemdir við tillöguna skulu gera það með skriflegum hætti eigi síðar en 25. janúar 2007. Hver sá sem ekki gerir athuga- semdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni. Sveitarstjóri Grýtubakkahrepps. Sjálfstæðisflokkurinn Jólateiti sjálfstæðismanna í Reykjavík 2006 Föstudaginn 15. desember næstkomandi efna sjálfstæðisfélögin í Reykjavík til hinnar árlegu jólateiti í Valhöll frá kl. 17.00 til 19.00. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og menntamálaráðherra, flytur hugvekju, við hlýðum á tónlistar- atriði og þiggjum léttar veitingar. Þetta er kjörið tækifæri fyrir sjálfstæðismenn í Reykjavík til að líta upp úr jólaönnunum og hitt- ast í góðra vina hópi. Allir velkomnir. Með jólakveðju, stjórn Varðar – Fulltrúaráðsins. Ýmislegt Jólasveinaþjónusta vantar þig jólasvein við kom- um í heimahús, jólaböll, hús- félög og aðrar samkomur. Margra ára reynsla. Uppl. í síma 820 7378. Félagslíf Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. I.O.O.F. 18  18712138  Jf I.O.O.F. 9187121381/2 Jv I.O.O.F. 7  18712137½   GLITNIR 6006121319 I  HELGAFELL 6006121319 IV/V Erindi Raðauglýsingar augl@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.