Morgunblaðið - 13.12.2006, Page 40
40 MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
menning
Það er sérkennilegt í sjálfusér hve lítið samband er ámilli frændþjóðanna á
Norðurlöndum þegar tónlist er
annars vegar. Á meðan þorri
breskra hljómsveita virðist ná
eyrum manna hér á landi, komast
í útvarp og fást í verslunum, er
allt of lítið um það að við kom-
umst í skemmtilega tónlist frá ná-
grannaþjóðum okkar í norðri.
Vissulega hafa menn gert sitt
hvað til að auka tónlistar-
samskipti manna á milli, nefni
góða spretti Rásar 2 á þessu
sviði, en þrátt fyrir allt hefur
ekki tekist að kveikja áhuga
manna nema viðkomandi hljóm-
sveitir verði fyrst frægar annars
staðar, koma inn á íslenskan
markað nánast fyrir tilstilli
breskra og bandarískra fjölmiðla.
Löngum hefur affarasælastaleiðin til að kynnast nor-
rænni tónlist verið sú að kaupa
plötur í gríð og erg í ferðum til
Norðurlandanna, ein ferð til
Finnlands skilaði 50 eða 60 disk-
um, og eins að sitja um að kom-
ast á tónleika þar ytra þegar færi
hefur gefist. Það er og gríðar-
lega mikið af skemmtilegri tónlist
til hjá frændum okkar, Finnum
og Svíum sérstaklega, en einnig
kemur margt gott frá Noregi og
eins frá Danmörku, þó þar finnist
mér einna minnst skemmtilegt
vera að gerast.
Ég fór í stutta ferð til Kaup-mannahafnar um daginn að
sjá dönsku hljómsveitina Under
byen spila, en sú er ein besta
hljómsveit Norðurlanda nú um
stundir að mínu mati. Að vanda
lá leiðin í plötuverslun, bestu
plötubúð Kaupmannahafnar að
menn segja mér, 12 Tónar í Fi-
olstræde 7. Þar var ýmislegt til
af danskri tónlist, allt það nýjasta
reyndar, en heldur fannst mér
það þunnur þrettándi þegar
grannt var skoðað, óttaleg lítið
spennandi að gerast fyrir minn
smekk, aðallega hljóðgervlarokk
og diskópopp.
Helsta poppblað þeirra Danaer Gaffa, ókeypis blað og út
um allt, sem fjallar um danska
tónlist í bland við erlenda. Það er
reyndar merkilegt að danskri
tónlist sé ekki gert hærra undir
höfði í því blaði en raun ber vitni,
enda hefði maður haldið að nóg
væri um að skrifa í sex milljón
manna landi.
Þetta sannast í nýjasta Gaffa-
blaðinu sem í er samantekt yfir
bestu plötur ársins. Inni í blaðinu
er opnan Årets album 2006 og
þar getur að líta 40 bestu erlend-
ar plötur ársins að mati þeirra
Gaffa-manna. Innlend músík fær
þó ekki eins góða meðferð, því á
næstu opnu er ekki nema ríflega
hálf síða lögð undir bestu dönsku
plötur ársins og þar aðeins tíu
plötur að finna. Semsé: hægt var
að finna fjörutíu plötur erlendar
til að setja á lista, en þótti
greinilega ekki taka því að hafa
þær dönsku nema tíu!
Nú kveinka menn sér mjögundan því í Danmörku um
þessar mundir að sala tónlistar á
diskum hefur dregist gríðarlega
saman þar í landi, farið úr rúm-
um fimmtán milljónum eintaka í
ríflega níu milljónir á síðustu tíu
árum. Þar kenna menn um ólög-
legri dreifingu, en að mínu viti
hlýtur skýringin liggja að ein-
hverju leyti í því hve lítil
stemmning er fyrir danskri tón-
list og reyndar tónlist yfirleitt
þar í landi. Mér er minnisstætt í
því sambandi dönsk útvarpskona
sem kom hingað á Airwaves fyr-
ir nokkrum árum og furðaði sig
á því hve íslenskir tónlistarmenn
væru lítið gefnir fyrir ríkis-
styrki. Er hér kominn hluti
skýringarinnar? Ósýnilega hönd-
in?
Kreppir að danskri tónlist?
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Ríkisstyrkt? Under byen – ein besta hljómsveit Norðurlanda nú um stundir, að mati greinarhöfundar.
AF LISTUM
Árni Matthíasson
» Það er sérkennilegt ísjálfu sér hve lítið
samband er á milli
frændþjóðanna á
Norðurlöndum þegar
tónlist er annars vegar.
arnim@mbl.is
MÁNI Svavarsson tónlistarmaður
hefur náð þeim frábæra árangri að
selst hafa 100.000 smáskífur með
lagi hans Bing Bang úr Latabæ og
er lagið þar með komið í gull-
plötusölu á breska vinsældalist-
anum. Lagið er nýkomið inn á
listann og situr í fjórða sæti listans
á eftir listamönnunum Take That,
Booty Luv og Eminem en á undan
Nelly Furtado, Justin Timberlake
og Beyonce. Máni segir í samtali
við Morgunblaðið að honum hafi
borist hamingjuóskir frá útgáfu-
fyrirtæki sínu ytra síðastliðinn
sunnudag og honum tjáð að salan
væri orðin 100.000 eintök. Um er
að ræða svokallaðan „single“ sem
þýðir að einungis er að finna á
disknum eitt lag, Bing Bang, en
það er í fjórum útgáfum á disk-
inum. Máni sagði að öll lögin úr
Latabæjarþáttunum hefðu áður
komið út á safndiski í Bretlandi og
salan gengið mjög vel. Því hefði út-
gáfufyrirtækið átt von á því að
smáskífan gæti átt góðu gengi að
fagna. Máni segir að menn bíði nú
spenntir eftir því hvort smáskífan
hækki sig enn frekar á listanum en
von er á nýjum sölutölum í dag.
„Það er kannski ekki á hverjum
degi sem maður dettur niður á
svona lag. Þetta er auðvitað lítið
dægurlag en það er eitthvað gríp-
andi við það og það verður ekki
svo ýkja leiðigjarnt við hlustun,“
segir Máni. Hann bætir því við að
alls óvíst sé hvernig laginu reiði af
því margir þekktir tónlistarmenn
séu einmitt að gefa út smáskífur í
desembermánuði. „Þetta gæti ver-
ið blaðra en hún er orðin ansi stór
nú þegar,“ segir Máni.
Í umfjöllun um breska smáskífu-
listann segir tónlistargagnrýnand-
inn James Masterson að þótt lík-
lega kaupi enginn yfir tíu ára aldri
plötuna þá sé um frísklegt og
barnvænlegt skandinavískt popp
að ræða. „Hvort sem þið trúið því
eða ekki þá er Bing Bang í raun-
inni ein af bestu og gleðilegustu
poppskífum ársins,“ segir Master-
son.
Hefur selt 100.000
smáskífur í Bretlandi
Morgunblaðið/ÞÖK
Vinsæll Máni Svavarsson.
Breski smáskífulistinn í vikunni
Take That, Patience.
Booty Luv, Boogie 2Nite.
Akon FT Eminem, Smack That.
Lazy Town, Bing Bang (Time to
Dance).
Nelly Furtado, All Good Things
Justin Timberlake, My Love.
Beyonce, Irreplacable.
Gwen Stefani, Wind it up.
Fedde Le Grand, Put Your Hands
up for Detrot.
Jamelia, Beware of the Dog.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞAÐ leggst bara mjög vel í okkur
að fá þessar tilnefningar,“ segir
Einar Örn Benediktsson, forsprakki
hljómsveitarinnar Ghostigital, en
sveitin hlaut þrjár tilnefningar til
Íslensku tónlistarverðlaunanna á
dögunum. „Það er auðvitað mikill
heiður fyrir okkur að fá þessar til-
nefningar og að það sé litið til okkar
og þeirra verka sem við höfum verið
að vinna að í nokkur ár,“ segir Ein-
ar, en sveitin er tilnefnd fyrir
hljómplötu ársins, lag ársins og
myndband ársins.
Margir líta á tónlist Ghostigital
sem einhvers konar jaðartónlist og í
ljósi þess segir Einar að á vissan
hátt hafi tilnefningarnar komið á
óvart. „Auðvitað er þetta óvænt
þannig séð en við höfum samt aldrei
litið á okkur sem einhverja jaðar-
tónlistarmenn. Ég hef alltaf verið
að búa til popptónlist hvar sem ég
hef verið,“ segir Einar, og bætir því
við að góð og gild ástæða sé fyrir
því að tónlist sveitarinnar höfði ekki
til allra. „Það er bara vegna þess að
hún fær ekki spilun. Menn álíta að
hún höfði ekki til allra. Ef fólk
hlustar náið á plötuna, þá er þetta
fantagóð tónlist, og hún hefur líka
þetta nauðsynlega aðgengi sem góð
tónlist þarf. Hún leggur vissulega
aðeins á þig að hlusta en þegar þú
ert kominn inn í hana þá er það
fint.“
Ný plata í vor
Í lok september hélt Ghostigital í
tónleikaferðalag um Bandaríkin og
stóð það yfir fram í miðjan október.
„Við spiluðum á um 20 tónleikum
í norðausturhluta Bandaríkjanna,
byrjuðum í Minneapolis og enduð-
um í New York,“ segir Einar.
„Þetta gekk mjög vel. Við vorum
að spila með Melvin sem er rokk-
sveit en þekkt fyrir að fara ekki allt-
af troðnar slóðir. Þannig að þetta
var svolítil áhætta hjá þeim að fá
okkur með og líka hjá okkur að fara
bara tveir í þetta. En það kom á
daginn að við áttum alveg heima á
þessum túr þótt við værum bara
með einn gítar,“ segir Einar, en
hann og Curver Thoroddsen skip-
uðu sveitina á ferðalaginu. Þeir fé-
lagar léku hins vegar á tónleikum á
Stúdentakjallaranum og í Liborius
um helgina, og í kvöld halda þeir
tónleika á Sirkus. „Þetta verða
sennilega okkar síðustu tónleikar á
þessu ári því við erum að vinna að
nýjum lögum,“ segir Einar. „Á með-
an við vorum á ferð um Ameríku
höfðum við þann háttinn á að ég
keyrði bílinn og síðan tengdum við
mac-ann í bílaútvarpið og Curver
sat með hann í fanginu og klippti til
lögin sem við vorum að vinna í.
Þannig að við vorum eins konar
ferðastúdíó,“ segir Einar, og bætir
því við að aðdáendur sveitarinnar
megi eiga von á nýrri plötu innan
skamms. „Við reynum að klára
þetta núna í janúar þannig að það er
von á plötu í vor.“
Engir jaðartónlistarmenn
Morgunblaðið/Ásdís
Frumlegir Einar segir að tónlist Ghostigital fái ekki nógu mikla spilun.
Tónlist | Tilnefndir til íslensku tónlistarverðlaunanna
Tónleikar Ghostigital á Sirkus hefj-
ast klukkan 21 í kvöld. Aðgangur er
ókeypis.