Morgunblaðið - 13.12.2006, Side 43

Morgunblaðið - 13.12.2006, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2006 43 menning Í TENGSLUM við útgáfu skop- myndabókarinnar 2006 í grófum dráttum eftir Halldór Baldursson var ákveðið að útnefna mann ársins 2006 í grófum dráttum. Viðurkenn- inguna hlýtur sá sem oftast kemur fyrir í bókinni, en að þessu sinni var það Geir Haarde forsætisráðherra. Geir tók á móti viðurkenningu frá Halldóri Baldurssyni skopmynda- teiknara á útgáfuhátíð bókarinnar, en þangað var öllum boðið sem teiknaðir eru í bókinni ásamt vinum, vandamönnum og velunnurum. Í ritdómi Morgunblaðsins á laug- ardag er bókin 2006 í grófum drátt- um kölluð „Fyndnasta bók ársins“. Hún inniheldur hundruð skopmynda sem Halldór hefur teiknað fyrir Blaðið og Viðskiptablaðið með for- mála eftir Egil Helgason. Stefnt er að því að gefa út sams konar bók að ári og verður maður ársins 2007 í grófum dráttum þá útnefndur á ný, eftir sömu reglum. Þau sem komu næst á eftir Geir í valinu á manni árins voru Halldór Ásgrímsson, Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, Davíð Oddsson, Björn Bjarnason, Steingrímur J. Sigfús- son, Sigurður Einarsson, Bjarni Ár- mannsson, Sigurjón Árnason og Guðni Ágústsson. Morgunblaðið/Golli Viðurkenning Geir H. Haarde tek- ur við viðurkenningarskjali úr höndum Halldórs Baldurssonar skopmyndateiknara. Geir maður ársins í grófum dráttum LÍKLEGA tengja flestir nafn Kristínar Steinsdóttur við barna- bækur og leikritaskrif en fyrir tveimur árum sendi hún frá sér sína fyrstu bók fyrir fullorðna lesendur, Sólin sest að morgni. Þar var um að ræða afar fallegt og áhrifaríkt sjálfsævisögulegt verk þar sem móðurminning er í miðdepli frá- sagnarinnar. Sagan sem Kristín sendir frá sér núna er hins vegar „hreinræktuð“ skáldsaga en hér segir frá Sigþrúði, ekkju í Reykja- vík sem komin er á efri ár og hefur fjárhagslega ekki úr miklu að spila en er þess útsjónarsamari þegar kemur að því að njóta tilverunnar. Bókinni mætti lýsa í heild sem per- sónulýsingu; það er Sigþrúður sem er í miðju frásagnarinnar frá upp- hafi til enda og sjónarhornið er ætíð bundið við hana þótt frásögnin sé í þriðju persónu. Sagan stendur því og fellur með því að persóna Sig- þrúðar nái að vekja áhuga hjá les- endum og það gerði hún svo sann- arlega hjá undirritaðri. Sigþrúður býr í Norðurmýrinni og starfar sem blaðberi og lifir því á fátæktarmörkum en hún kann þá list að skemmta sér án mikils til- kostnaðar. Hún hefur vakandi auga fyrir því sem gera má ókeypis í höf- uðborginni, fer á opnanir á myndlist- arsýningum, á tónleika og söfn og síðast en ekki síst sækir hún jarð- arfarir af kappi og meðfylgjandi erfi- drykkjur og einnig bregður hún gjarnan undir sig betri fætinum þeg- ar fasteignasölurnar auglýsa opið hús. Lýsingarnar á jarðarfar- arferðum Sigþrúðar eru víða kostu- legar, hún nýtur þess að syngja sálmana og lætur ekki augngotur annarra kirkju- gesta trufla sig; hún nýtur veit- inganna í erfi- drykkjunum, spjallar við aðra gesti um veðrið og lætur sig síðan hverfa í þann mund er nánustu aðstandendur hins láta koma í hús. Meginþráður frásagnarinnar ger- ist í Reykjavík nútímans en í end- urliti er sagt frá æsku Sigþrúðar og manndómsárum. Hún er fædd norð- ur í landi og alin upp hjá ljósu sinni, Hallfríði, sem tók hana að sér þegar móðirin lést í kjölfar fæðingarinnar. Móðirin var ógift vinnukona og af föður sínum hafði Sigþrúður ekkert að segja annað en að frá honum erfði hún rautt hár og freknur sem – ásamt vanskapaðri hendi – ollu henni ýmsum vandkvæðum í æsku og stuðluðu að því að hún verður ein- ræn og sérsinna. Fóstra Sigþrúðar deyr þegar hún er unglingur og eftir það er hún á eigin vegum og plumar sig ágætlega, þrátt fyrir einmana- leika og sorg sem komið er til skila á lágstemmdan en oft áhrifaríkan hátt. Kristín Steinsdóttir fléttar hin tvö tímasvið frásagnarinnar, nútíðina og fortíðina, mjög haganlega saman og tekst með knöppum stíl og mikilli samþjöppun (skáldsagan öll telur 136 blaðsíður) að draga upp mynd af ævi konu sem hefur lifað marg- breytilegri tilveru þrátt fyrir að hún láti einhvern veginn mjög lítið yfir sér. Sigþrúður hefur lifað tímana tvenna, í sveit og í borg, hún er kona sem hefur verið „trú yfir litlu“, eins og það er gjarnan orðað í eft- irmælum og ekki gert miklar kröfur sjálfri sér til handa. En hún hefur þó alltaf átt sér draum sem tengist sögusögnum um franskt faðerni móður hennar og í sögulok er hún á leiðinni til útlanda í fyrsta sinn á æv- inni, frjáls og „á eigin vegum“. Ein- um þræði er saga Sigþrúðar saga „óþekktu verkakonunnar“ sem öðl- ast kannski fyrst frelsið þegar á full- orðinsár er komið og allar skyldur að baki. Enda blómstar Sigþrúður í ekkjustandinu og er frásögnin einna mest lifandi þegar sagt er frá því hvernig hún eyðir tómstundum sín- um, eins og minnst var á hér að ofan, þar nýtur húmor Kristínar sín til fulls. Bráðskemmtileg persónulýsing BÆKUR Skáldsaga Eftir Kristínu Steinsdóttur. Vaka- Helgafell 2006, 136 bls. Á eigin vegum Kristín Steinsdóttir. Soffía Auður Birgisdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.