Morgunblaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK Sími - 564 0000Sími - 462 3500 M.M.J. Kvikmyndir.com eeee Blaðið eeee Þ.Þ. Fbl. 80.000 gestir! - Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir The Holiday kl. 8 og 10:30 Saw 3 kl. 8 og 10.15 B.i. 16 ára Hnotubrjóturinn og Músakóngurinn kl. 6 Deck the Halls kl. 6 The Holiday kl. 5.10, 8 og 10:45 Casino Royale kl. 5, 8 og 10.50 B.i. 14 ára Casino Royale LÚXUS kl. 5, 8 og 10.50 Hnotubrjóturinn og Músakóngurinn kl. 3.40 Hátíð í bæ / Deck the halls kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 Borat kl. 10.30 B.i. 12 ára Mýrin kl. 5.40 B.i. 12 ára Skógarstríð m.ísl.tali kl. 3.40 JÓLAMYNDIN Í ÁR Cameron Diaz Kate Winslet Jude Law Jack Black Frábær fjölskyldu- og gamanmynd sem kemur öllum í gott jólaskap FORSALA AÐGÖNGUMIÐA HAFIN Á MIDI.IS Now with english subtitles in Regnboginn Frábær rómantísk gamanmynd frá Nancy Meyers leikstjóra What Women Want og Something´s Gotta Give. Aðeins 500 kr. Á Torginu í Þjóðminjasafninustendur yfir sýningin Sérkenni sveinanna. Á sýningunni er lítið jólahús og sitthvað sem tengist jólasveinunum, svo sem kjöt fyrir Ketkrók og bjúgu fyrir Bjúgnakræki. Sýningin getur hjálpað börn- unum til að skilja hin skrýtnu nöfn jólasveinanna. Skráning viðburðar í Staður og stund er á heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos Skráning viðburða Sýningin Upp á Sigurhæðir er íLandsbókasafni Íslands, Há- skólabókasafni. Matthías Joch- umsson var lykilmaður í þjóðbygg- ingu 19. aldar. Menn þekkja best sálmana, þjóðsönginn og Skugga- Svein, en skáldpresturinn sá eftir sig 28 bækur, þar af 15 frumsamd- ar. Sýningin stendur yfir til 31. des- ember. Sjá www.landsbokasafn.is Samvera syrgjenda verður 14.desember kl. 20 í Grens- áskirkju og er öllum opin, einnig börnum. Syrgjendum er sér- staklega boðið að taka þátt til að búa sig undir hátíðina. Eitt af því sem gefur þessari samveru gildi er minningarstund þar sem hver og einn getur tendrað ljós fyrir ástvin sinn og minnst hans þann- ig. Sungnir verða jólasálmar sem Árni Arinbjarnarson og félagar úr kirkjukór Grensáskirkju leiða. Þá flyt- ur sr. Sigfinnur Þorleifsson hugvekju og Hamrahlíðarkórinn syngur undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Monika Abendroth leikur á hörpu undir minningarstundinni. Sr. Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir og Valgerður Hjart- ardóttir, djákni, leiða samveruna. Túlkað verður á táknmál. Boðið verður upp á léttar veitingar. Að þessari samveru standa Land- spítali Háskólasjúkrahús, Hjúkrunarþjónustan Karítas og Þjóðkirkjan. Tónlist DOMO Bar | Fimmtudagskvöldið 14. des. flytur Jóel Pálsson, ásamt kvintett sínum, tónlist af nýútkomnum geisladiski sínum, Varp, sem hann hlaut á dögunum tvær til- nefningar fyrir. Kvintettinn skipa auk Jóels Davíð Þór Jónsson, Hilmar Jensson, Valdi- mar Kolbeinn Sigurjónsson og Matthías Hemstock. Magga Stína og hennar unaðslega hljóm- sveit halda tónleika 15. des. Húsið opnað kl. 21, tónleikarnir hefjast kl. 22, stundvíslega. Miðar: Midi.is og við innganginn. Efnisskrá: Lögin ellefu á nýju plötunni Magga Stína syngur Megas, lög og textar eftir Megas – átta eldri lög þekkt í flutningi hans og þrjú ný. Dómkirkjan | Erlendur Þór Elvarsson tenór, Jóna Fanney Svavarsdóttir sópran, Sólveig Samúelsdóttir mezzósópran og Bjarni Þór Jónatansson píanó- og orgelleikari halda jólatónleika í Dómkirkjunni fimmtudag 14. des. kl. 21. Hátíðleg jólalög og helgar aríur. Miðaverð: 1.500/1.000 kr. Eldri borg./ öryrkjar fá 2 fyrir 1. Flensborgarskólinn | Hátíðartónleikar Kórs Flensborgarskólans ásamt Páli Óskari og Moniku í Hamarssal Flensborgarskólans 16. des. kl. 16. Aðgangseyrir kr. 1.500. Forsala aðgöngumiða í Súfistanum, Strandgötu 9, Hafnarfirði, Súfistanum, Laugavegi 18, Reykjavík og hjá kórfélögum. Frítt kaffi og meðlæti í hléi. Grafarvogskirkja | Kammerkórinn Vox aca- demica flytur þætti úr Messíasi e. Händel og Magnificat e. Bach í Grafarvogskirkju föstudaginn 15. desember kl. 20. Ásamt kórnum koma fram fimm einsöngvarar og hljómsveitin Jón Leifs camerata. Stjórnandi er Hákon Leifsson. Miðaverð 3.000/2.500 í forsölu. Sími 899 7579/ 864 5658. Hafnarborg | Ég man þau jól – jólatónleikar 13. desember kl. 20. Flutt verða gömlu góðu amerísku jólalögin sem þekkt eru með Frank Sinatra, Bing Crosby, Tony Bennet, Mahaliu Jackson o.fl. í djass- og swing- útsetningum. Lög eins og White Cristmas, Christmas Song, Have yourself a merry little Christmas og mörg fleiri. Skálholtskirkja | Skálholtskórinn heldur aðventutónleika laugardaginn 16. des. Sig- rún Hjálmtýsdóttir og Óskar Pétursson ásamt Kammersveit. Tónleikarnir verða tvennir: Kl. 14 og kl. 17. Aukatónleikar kl. 20.30. Miðasala er hafin í síma 847 5057, verð 2.500 kr. Stjórnandi er Hilmar Örn. Myndlist Anima gallerí | Bjarni Sigurbjörnsson, Jón Óskar og Kristinn Már. Til 23. des. Artótek Grófarhúsi | Anna Hallin myndlist- armaður sýnir teikningar og myndband. Aurum | Soffía sýnir teikningar sem eru til- raun höfundar til að vinna úr sjónrænum upplýsingum frá umhverfi og náttúru. Café 17 (verlsunin 17) | Mæja sýnir 20 ný málverk, flest eru lítil en hver mynd er æv- intýri út af fyrir sig. Allir velkomnir. Café Mílanó | Ingvar Þorvaldsson er með málverkasýningu. Sýnd eru 10 ný olíu- málverk. Sýningin stendur til áramóta. DaLí gallerí | Magdalena Margrét Kjart- ansdóttir með sýningu á grafíkverkum sín- um til 17. des.Opið föst. og laug. kl. 14–18. Gallerí 100° | Sýning á myndlist í eigu Orkuveitu Reykjavíkur. Opið virka daga kl. 8.30–16. Gallerí Úlfur | Sigurdís Harpa Arnarsdóttir sýnir út desember. Opið virka daga 14–18. Gallery Turpentine | Jólasýning Gallery Turpentine „… eitthvað fallegt“ er samsýn- ing með listamönnum gallerísins auk gesta til 18. des. Opið sem hér segir: Þri.–fös. kl. 12–18, laug. kl. 12–16. Gerðuberg | Gerðuberg á í safni sínu um 1.000 listaverk eftir börn sem unnin voru í listsmiðjunum Gagni og gamni sem starf- ræktar voru sumrin 1988–2004. Sýning á myndskreytingum í íslenskum barnabókum 2006. Sýningin stendur til 21. janúar 2007. Hugarheimar – Guðrún Bergsdóttir sýnir útsaum og tússteikningar. Ein allsherjar sin- fónía fjölskrúðugra lita og forma; eins og ís- lensk brekka þakin berjum að hausti eða brúðarklæði frá Austurlöndum. Til 21. jan- úar. www.gerduberg.is. Hafnarborg | Ljósmyndarinn Spessi til 30. desember. Verkin eru úr væntanlegri bók sem mun bera titilinn „Locations“. Sigrún Guðjónsdóttir, Rúna, sýnir í Sverr- issal og Apóteki. Á sýningunni verða stein- leirsmyndir og verk unnin á pappír með ak- rýl, olíukrít, pastel og bleki. Hjá Marlín | Birgir Breiðdal, Biggi, sýnir til 23. desember. Hrafnista, Hafnarfirði | Ellen Bjarnadóttir sýnir í Menningarsal til 8. janúar. Kaffi Sólon | Elena Fitts sýnir málverk unn- in með olíu á striga. Til 5. janúar. Listasafn Einars Jónssonar | Lokað í des- ember og janúar. Höggmyndagarðurinn við Freyjugötu er alltaf opinn. Listasafnið á Akureyri | Yfirlitssýning á verkum Drafnar Friðfinnsdóttur (1946– 2000). Sýningarlok 17. desember. Opið alla daga nema mánudaga 12–17. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Bandarísk list á þriðja árþúsundinu. Margir af fremstu listamönnum Bandaríkjanna, sem fæddir eru eftir 1970, eiga verk á sýn- ingunni. Listasetur Lafleur | Sölusýning stendur nú yfir í Listasetri Lafleur á myndverkum Benedikts S. Lafleur. Benedikt sýnir þar myndaskúlptúra sína og glerlistaverk. Gest- ir geta notið bókakaffis Lafleur-útgáfunnar og slakað á í jógarými. Til 23. des. Norræna húsið | Sýningin Exercise in To- uching, Æfing í að snerta, er opin alla daga nema mánudaga kl. 12–17. Sýnd eru verk Borgny Svalastog sem eru unnin í ýmsa tækni. Sýningin stendur til 17. desember. Ófeigur listhús | Skólavörðustig 5. Mál- verkasýning Ómars Stefánssonar til ára- móta, opið á verslunartíma. Skaftfell | Haraldur Jónsson með sýn- inguna „Framköllun“ í Skaftfelli, menningar- miðstöð á Seyðisfirði. Bjargey Ólafsdóttir sýnir vinnuteikningar; „ég missti næstum vitið“, á Vesturveggnum. Þjóðminjasafn Íslands | Á Veggnum í Þjóð- minjasafninu stendur yfir jólasýning með myndum tvíburabræðranna Ingimundar og Kristjáns Magnússona. Í Myndasal Þjóðminjasafnsins eru til sýnis þjóðlífsmyndir úr safni hins þjóðþekkta Guðna Þórðarsonar í Sunnu, blaðamanns, ljósmyndara og ferðamálafrömuðar. Mynd- irnar tók hann við störf og ferðalög á tíma- bilinu 1946–60. Þær eru eins og tímasneið frá miklu umbrotaskeiði í sögu þjóðarinnar. Í Bogasal Þjóðminjasafnsins stendur yfir sýning á útsaumuðum handaverkum list- fengra kvenna frá fyrri öldum. Sýningin byggist á rannsóknum Elsu E. Guðjónsson textíl- og búningafræðings. Söfn Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Nú stend- ur yfir á Bókatorgi í Grófarhúsi, Tryggva- götu 15, 1. hæð, sýningin „… hér er hlið him- insins“ sem Borgarskjalasafn Reykjavíkur vann í tilefni af 20 ára vígsluafmæli Hall- grímskirkju. Til 7. jan. Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið alla daga nema mánudaga kl. 10–17. Hljóð- leiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og sænsku. Margmiðlunarsýning og gönguleið- ir í nágrenninu. Frekari upplýsingar á www.gljufrasteinn.is. Sími 586 8066. Landsbókasafn Íslands, Háskólabókasafn | Í spegli Íslands er lítil sýning í forsal þjóð- deildar safnsins. Þar er sagt frá ferðasög- um til Íslands í gegnum aldirnar. Sú þrá að þekkja og nema … Sýning til heið- urs Jónasi Jónassyni frá Hrafnagili – 150 ára minning. Jónas var prestur, rithöfundur, þýðandi og fræðimaður, eins og verk hans Íslenskir þjóðhættir ber vott um. Upp á Sig- urhæðir – Matthías Jochumsson var lyk- ilmaður í þjóðbyggingu 19. aldar. Menn þekkja best sálmana, þjóðsönginn og Skugga–Svein. Til 31. des. Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns | Í húsnæði Seðlabankans á Kalkofnsvegi 1 hefur verið sett upp ný yfirlitssýning á ís- lenskum gjaldmiðli og öðru efni í eigu safns- ins. Þar er einnig kynningarefni á margmiðl- unarformi um hlutverk og starfsemi Seðlabanka Íslands. Gengið er inn um að- aldyr bankans frá Arnarhóli. Aðgangur er ókeypis. Sýningin er opin mán.–föst. kl. 13.30–15.30. Norska húsið í Stykkishólmi | Í Norska húsinu er jólastemningin allsráðandi og húsið skreytt hátt og lágt. Heimsókn í Norska húsið á aðventunni er sannkallað ævintýri fyrir börn á öllum aldri og ógleym- anleg upplifun. Í krambúð hússins er jóla- krambúðarstemning og boðið er upp á heit- an epladrykk og piparkökur. Til 23. des. Þjóðmenningarhúsið | Að vanda eru fjöl- breyttar sýningar í sölum Þjóðmenning- arhússins. Þær eru: Íslensk tískuhönnun, með fatalínum frá níu merkjum eða hönn- uðum í samhengi við íslenska náttúru. Berl- in Excursion, bókagerðarlist frá forlagi rit- höfunda og myndlistarmanna frá Berlín. Fyrirheitna landið og Handritin að auki. Þjóðminjasafn Íslands | Skoðunarferð um grunnsýningu Þjóðminjasafnsins er æv- intýralegt ferðalag gegnum 1.200 ár sem hefst í skipi landnámsmanna og lýkur í flug- höfn nútímans. Skemmtileg safnbúð og notalegt kaffihúss. Opið alla daga nema mánudaga kl. 11–17. Fréttir og tilkynningar Blóðbankinn | Blóðbankabíllinn verður við Kentucky í Reykjanesbæ miðvikudaginn 13. des. kl. 10–17. Allir velkomnir. Fjölskylduhjálp Íslands | Tekið á móti mat- vælum, fatnaði, leikföngum, borðbúnaði o.fl. alla miðvikudaga kl. 13–17 í Eskihlíð 2–4 í fjósinu við Miklatorg. Úthlutun á matvælum alla miðvikudaga kl. 15–17. Sími 892-9603. Úthlutun til fólks óháð búsetu og kyni. Bráðum koma blessuð jólin. Fjöl- skylduhjálpin hvetur landsmenn til að gefa fatnað, leikföng og borðbúnað vegna opn- unar flóamarkaðar í lok nóvember í Eskihlíð 2–4 Rvík í þágu efnalítilla fjölskyldna. Tök- um á móti miðvikudaga eða eftir sam- komulagi kl. 13–17. Svarað í síma 892 9603. GA-fundir (Gamblers Anonymous) | Er spilafíkn að hrjá þig eða þína aðstand- endur? Hringdu í síma 698 3888. Happdrætti bókatíðinda | Númer dagsins 13. desember er: 66802. Bækur Þjóðmenningarhúsið | Upplestrarserían Jólahrollur í hádeginu fer fram í Þjóðmenn- ingarhúsinu kl. 12.15 dag hvern til jóla. Í dag les Ævar Örn Jósepsson úr bók sinni Sá yð- ar sem syndlaus er. Súputilboð á veit- ingastofunni. Safnbúð með forvitnilegum bókum og öðrum gripum. Uppákomur Þjóðminjasafn Íslands | Í dag, 13. des., kem- ur Giljagaur og lítur inn í Þjóðminjasafnið kl. 11. Áður en mjaltavélar komu til sögu var hann vanur að laumast inn í fjós og stela froðu ofan af mjólkurfötum. Ókeypis inn og öll börn sérlega velkomin. Fyrirlestrar og fundir Orkugarður | Guðmundur Ólafsson, lektor við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Ís- lands, fjallar um horfur í atvinnuþróun og nýtingu auðlinda, m.a. út frá skýrslu Hag- fræðistofnunar 2003 kl. 13. Hvaða atvinnuvegir eru vænlegir og hverjir ekki? Hvaða þróun ætti hið opinbera að styðja? Börn Dimmuborgir | Jólasveinarnir í Dimmu- borgum, Mývatnssveit, taka á móti gestum á Hallarflöt frá kl. 13 til 15. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn | Jóla- sveinn dagsins kíkir í heimsókn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í dag kl. 14. Hann mun segja sögur af lífinu í fjöllunum og frá ýmsu sem á daga hans hefur drifið. Fyrir þá sem vilja koma fyrir hádegi er lesin jólasaga í fjósinu kl. 10.45. Kíktu í heimsókn. Opið frá 10–17. www.mu.is. Þjóðminjasafn Íslands | Á Torginu í Þjóð- minjasafninu stendur yfir sýningin Sérkenni sveinanna. Á sýningunni er lítið jólahús og sitthvað sem tengist jólasveinunum, svo sem kjöt fyrir Ketkrók og bjúgu fyrir Bjúg- nakræki. Sýningin getur hjálpað börnunum til að skilja hin skrýtnu nöfn jólasveinanna. staðurstund Söfn Sýning í Há- skólabókasafni Söfn Sýningin sér- kenni sveinanna Kirkjustarf Samvera ætluð syrgjendum í Grensáskirku

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.