Morgunblaðið - 13.12.2006, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 13.12.2006, Qupperneq 48
48 MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ / KEFLAVÍK THE HOLIDAY kl. 8 - 10:30 LEYFÐ SANTA CLAUSE 3 kl. 8 LEYFÐ THE GRUDGE kl. 10 B.I. 16 / AKUREYRI DEAD OR ALIVE kl. 6 - 8 - 10 B.I. 12 SCANNER DARKLY ÁN TEXTA kl. 10 B.I. 16 SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ FLUSHED AWAY m/ensku tali kl. 8 LEYFÐ WWW.HASKOLABIO.ISHAGATORGI • S. 530 1919 BOSS OF IT ALL kl. 5:50 - 8 - 10:10 THE U.S. VS. JOHN LENNON kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 12 ára SANTA CLAUSE 3 kl. 5:50 - 8 LEYFÐ THE NATIVITY STORY kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7.ára MÝRIN kl. 6 - 8 - 10:10 B.i. 12.ára THE DEPARTED kl. 10:10 B.i. 16.ára FRÁFÖLLNUHINIR KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK eeeee Jón Viðar – Ísafoldeee SV, MBL ÓBORGANLEG GRÍNMYND EFTIR LARS VON TRIER UM ÁREKSTRA ÍSLENDINGA OG DANA, ÞAR SEM FRIÐRIK ÞÓR OG BENEDIKT ERLINGS STELA SENUNNI. ÞESSAR HASARSKUTLUR HAFA ÚTLIT TIL AÐ DEYJA FYRIR. HEIMSFRUMSÝNING TÓNLISTARMAÐUR. MANNÚÐARVINUR. ÞJÓÐARÓGN. FORSTJÓRI HEILA KLABBSINS BNA GEGN JOHN LENNON THE U.S. VS. JOHN LENNON BYGGÐ Á TÖLVULEIKNUM VINSÆLA DEAD OR ALIVE ÞRJÁR Á TOPPNUM árnað heilla ritstjorn@mbl.is Íslensku jólasveinarnir horfnir? ÉG verð stórhissa á því að sjá bara ameríska jólasveina í öllum auglýs- ingum í sjónvarpi og blöðum. Hvað varð um íslensku jólasvein- ana? Grýlu og Stekkjastaur? Sumar auglýsingar sýna ameríska jóla- sveininn (í rauða búningum) sem ís- lenskan, sem er auðvitað ekki rétt. Einnig er auglýsing þar sem jóla- sveinninn er á sleða með hrein- dýrum (amerískt). Mér finnst íslensku jólasveinarnir vera þess verðir að halda í, ekki bara skipta út þeim út fyrir erlenda jóla- sveina. Þeir eru einstakt fyrirbæri sem Íslendingar ættu ekki að missa úr menningu sinni. Mér sýnist þró- unin samt sem áður stefna í þá átt og jólasveinarnir okkar muni hverfa úr íslenskri menningu innan nokkurra ára. Gísli. Beygingavilla í jólalagi ÉG heyrði í útvarpinu lagið „Jóla- sveinninn kemur í kvöld“. Það kom mér á óvart að persónufornafnið með sögninni „að hlakka til“ var vit- laust beygt í textanum. Ég er ekki viss með hvaða hljómsveit flutti lag- ið en þetta var einhver karla- hljómsveit (hljómaði eins og Land og synir). Söngvarinn söng: „Þú veist hvenær hann kemur, þig hlakk- ar alltaf til.“ Ég hélt að svona stór villa gæti ekki komið fyrir í lagi þar sem einhverjir færu yfir textann. Svo þekkja líka langflestir lagið „Ég hlakka svo til“ þar sem þetta er rétt- lega sagt. Fannst bara rétt að benda á þetta svo hægt sé að leiðrétta vill- una. Málfræðiunnandi. Endurnýjunargjald ÉG var að endurnýja trygg- ingaiðgjöld og sá þá að það er komið nýtt gjald sem heitir endurnýj- unargjald og er 200 kr. Ég er með 6 tryggingar, tvo bíla og 4 húseignir og eitthvað meira og þarf að borga kr. 200 fyrir hvern einasta seðil. Ef tryggingafélagið er með mörg þúsund tryggingar þá eru þetta sjálfsagt einhverjar milljónir sem verið er að hala inn. Borgari. Gullhringur týndist GULLHRINGUR glataðist í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt sunnudags. Það er grafið inn í hann P.J. Ef ein- hver hefur fundið hann er sá sami vinsamlegast beðinn um að hafa samband í síma 848 1236. Blár bakpoki tapaðist FYRIR um mánuði síðan tapaðist blár bakpoki, með leikskólafötum og prjónadóti. Finnandi vinsamlegast hafið samband í síma 663 4143. velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 50ára af-mæli. Jón B. Olsen verður fimm- tugur á morgun, 14. desember. Jón og kona hans, Erla, ætla að taka á móti gestum í Stap- anum, Reykja- nesbæ, á afmælisdaginn frá kl. 19. 60ára af-mæli. Sr. Birgir Thom- sen, prestur að Sólheimum, verður sextíu ára í dag 13. desember. Af því tilefni taka Erla og Birgir á móti ættingjum og vinum í arinstofunni í Sesseljuhúsi að Sólheimum, milli kl. 18 og 21 á af- mælisdaginn. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostn- aðarlausu. Tilkynningar þurfa að ber- ast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánudagsblað. Sam- þykki afmælisbarns þarf að fylgja af- mælistilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100 eða sent á netfangið ritstjorn@mbl.is. 80ára af-mæli. Þorgerður Guð- mundsdóttir, fyrrum versl- unarstjóri hjá Kaupfélagi Hafnfirðinga, er áttræð í dag. Hún er að heim- an á afmæl- isdaginn.Umfjöllun ummorðið á rúss- neska njósnaranum fyrrverandi, Alexand- er Lítvínenkó, hefur verið reyfarakennd lesning og blandast forvitnilegar persón- ur og leikendur inn í atburðarásina. Und- arlegastur er þó þátt- ur Ítalans Marios Scaramella. Scaramella sagði í upphafi að hann hefði orðið fyrir fimmfalt öflugri skammti geislavirka efnisins pólons-210 en teldist banvænn. Um miðja síðustu viku gekk hann hins vegar út af sjúkra- húsi í London án þess að nokkuð amaði að honum utan þess að mæla mátti snefil af póloneitrun. Scaramella hitti Lítvínenko á súsjí-bar í London daginn, sem eitrað var fyrir þann síðarnefnda. Í blaðinu International Herald Tribune eru raktar fullyrðingar Scaramella og hvað hæft er í þeim. Hann hefur sagst vera pró- fessor við háskólann í Napolí, en þar kannast enginn við hann. Til er upptaka þar sem hann miklast af því að Silvio Berlusconi, fyrr- verandi forsætisráðherra Ítalíu, ætli að tryggja sér brautargengi í eina af valdastöðunum hjá Sameinuðu þjóð- unum, en varð síðar að viðurkenna að hann hefði aldrei hitt Berlusconi. Scaramella hefur reynt að sýna fram á að ýmsir vinstri menn í ítölskum stjórn- málum séu rússneskir njósnarar, þar á með- al Romano Prodi, fyr- ir kosningarnar fyrr á þessu ári. Fyrir slíkar fullyrðingar hefur hann uppskorið háð og verið kallaður „ólæknandi lygari“, sem eigi sér þann draum að verða James Bond. Oleg Gordíjevskí, hæst setti maður, sem flúði undan merkjum KGB til Vesturlanda, átti samtal við Lítvínenko á banabeði. Í viðtali við International Herald Tribune lýsir Gordíevskí samtalinu og seg- ir að Lítvínenkó hafi verið tilbúinn að trúa því að Scaramella hafi ver- ið á bak við tilræðið. „Ég sagði: „Sasja, það getur ekki verið Scaramella vegna þess að hann kemur málum KGB ekkert við. Hann er bara sápukúla. Hann veit ekki neitt.“ Lífið getur verið lygilegra en skáldskapurinn. víkverji skrifar | vikverji@mbl.is        dagbók MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF: ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Í dag er miðvikudagur 13. desember, 347. dagur ársins 2006 Orð dagsins: Þegar sál mín örmagnaðist í mér, þá minntist ég Drottins, og bæn mín kom til þín, í þitt heilaga musteri. (Jónas 2, 8.) FRÉTTASTOFAN Reuters hefur nú safnað saman þeim ljósmyndum sem henni þykja bestar það sem af er árinu. Af nógu er að taka og margt skrautlegt að sjá. Á myndinni til hliðar virðist sem utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, Condoleezza Rice, sé komin með nýja og djarfa hárgreiðslu. Svo er þó ekki heldur stendur hún fyrir framan fána Ung- verjalands sem búið er að klippa úr tákn Sov- étríkjanna. Fréttamyndir ársins hjá Reuters Barnapía George W. Bush Bandaríkjaforseti í vand- ræðum með lítinn Þjóðverja. Bush kom drengnum aft- ur til móður sinnar og snæddi svo kvöldverð með kanslara Þýskalands, Angelu Merkel, í júlí.Reuters Fótafimi Fóturinn á franska landsliðsmanninum Florent Malouda nálgast höfuð Spán- verjans Pablo Ibanez á HM í sumar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.