Morgunblaðið - 13.12.2006, Síða 52

Morgunblaðið - 13.12.2006, Síða 52
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 347. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  SA 5–10 m/s, slydda eða rign- ing sunnanlands. NA-átt fyrir norð- an 10–13 m/s og stöku él á annesjum. » 8 Heitast Kaldast 5°C -4°C ÍSLENSKA kvikmyndin Börn hlaut verð- laun dómnefndar á kvikmyndahátíðinni Courmayeur Noir á Ítalíu um nýliðna helgi en myndin er framlag Íslands í for- vali til Óskarsverðlaunanna. Ragnar Bragason, leikstjóri myndarinn- ar, segir mikla eftirspurn vera eftir henni og nú liggi fyrir hátt í fjörutíu boð á kvik- myndahátíðir víðsvegar um heiminn sem verið sé að skoða. Sala á myndinni til ann- arra landa gengur einnig vel og nú þegar hafa fjögur lönd keypt hana. Ragnar er nú að leggja lokahönd á kvikmyndina For- eldrar sem verður frumsýnd 19. janúar hér á landi en hún er seinni myndin í tví- leiknum Börn og Foreldrar. | 19 Eftirsótt Börn Vinsæl Börn fara víða um lönd. GUÐBJÖRN Magnússon rafeindavirki vann í gær það afrek að gefa blóð í 150. sinn í Blóð- bankanum. Enginn Íslendingur hefur oftar gefið blóð en Guðbjörn og má því með sanni segja að hann sé mikið gæðablóð. Hann sagði að sér þætti vænt um að ná þessum áfanga. „Þetta er trúlega eina Íslandsmetið sem ég kem til með að ná á lífsleiðinni og þykir gott að eiga það – í bili. Vonandi nær einhver því að slá það, en þetta er ósköp notaleg tilfinning,“ sagði Guðbjörn. Fyrst gaf Guðbjörn blóð þeg- ar hann var í Loftskeytaskólanum 1966–67. „Það var slitrótt til að byrja með, en svo fóru þeir að hringja í mig útaf blóðskiptum. Ég get gefið öllum blóð, er 0-. Það þarf því ekkert að spyrja, vegna blóðskipta í kornabörnum, í hvaða flokki þau eru. Þetta varð til þess að ég fór að sinna þessu oftar. Ég kom oft á föstu- dögum til að þær gætu átt ferskt blóð yfir helgina. Svo varð þetta hálfgerður kækur.“ Mikilvægt að gefa blóð reglulega Guðbjörn segir það löngu komið í vana að gefa blóð á þriggja mánaða fresti. Vitundin um gagnsemi blóðs hans til blóðskipta í börnum hafi ýtt sérstaklega á sig að gefa reglulega. Guðbjörn segir að hann hafi aldrei fundið neitt fyrir því að gefa blóð. Einu sinni þurfti hann að fara til baka því það fór að leka með plástr- inum, en telur að það hafi verið sér að kenna. Líklega hafi hann reynt of mikið á sig of fljótt eftir blóðgjöfina. Hann kveðst vera heilsu- hraustur og þykja fínt að geta gefið blóð. Blóðgjafi veit yfirleitt ekki hvernig gjöf hans er notuð. Guðbjörn hefur þó einu sinni fengið viðbrögð við innleggjum sínum í Blóðbankann. Það gerðist í vetur eftir að hann var kosinn Hvunndagshetja í Fréttablaðinu. „Það hringdi í mig kona og sagðist vera viss um að ég hefði bjargað börnum hennar. Dóttir hennar hefði t.d. þurft að fara sex sinnum í blóðskipti.“ Guðbjörn segir að vinnuveitendur hans í gegnum tíðina hafi aldrei amast við því þótt hann þyrfti að skreppa í Blóðbankann. „Menn vita alveg hvað þetta þýðir. Maður lifir ekkert nema hafa blóð. Ef menn fram- leiða þetta ekki sjálfir fá þeir þetta ekki nema frá okkur blóðgjöfum. Blóðið kemur ekki annars staðar frá,“ sagði Guðbjörn. Ljúf samfélagsleg skylda Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður og formaður Blóðgjafafélags Íslands, segir það ómetanlegt að blóðgjafar séu jafn þrautseig- ir og Guðbjörn. „Flestir okkar þekkja ekki þá sem þiggja og við erum ekkert að velta þeim fyrir okkur. Rannsóknir, þar á meðal íslensk rannsókn Marínar Þórsdóttur, sýna að menn hafa engan áhuga á að fá neitt fyr- ir. Þeir líta á þetta sem ljúfa samfélagslega skyldu. Guðbjörn er glöggt dæmi um slíkan mann.“ Alls hafa 47 karlar komist í hóp „hundr- aðshöfðingja“ Blóðgjafafélags Íslands, en þann flokk fylla þeir sem hafa gefið blóð 100 sinnum eða oftar. „Svo varð þetta hálfgerður kækur“ Morgunblaðið/ÞÖK Gæðablóð Guðbjörn Magnússon var hress í bragði þegar hann gaf blóð í 150. skipti í gær. Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is ÞÉTTING GSM-símakerfisins, með tilstyrk Fjarskiptasjóðs, hefst næsta vor. Eftir fyrsta áfanga á GSM-kerfið að ná til alls hringveg- arins og nokkurra helstu fjallvega. Stefnt er að því að stafrænar send- ingar Ríkisútvarpsins um gervi- hnött hefjist einnig næsta vor. Friðrik Már Baldursson, for- maður stjórnar Fjarskiptasjóðs, sagði að von væri á tilboðum í fyrsta áfanga GSM-verkefnisins í næstu viku. Boðnir voru út 24 áfangar og á fyrstu fjórum áföng- um að ljúka í apríl 2007, helmingi að vera lokið í árslok og öllum áföngum í síðasta lagi 22 mánuðum eftir undirritun samnings. Auk alls hringvegarins á að koma GSM- samband á Steingrímsfjarðarheiði, Fróðárheiði, Þverárfjalli, Fjarðar- heiði og Fagradal í fyrsta áfanga. Settur verður GSM-sendir í Flatey á Breiðafirði sem á að bæta mjög farsímasamband á Barðaströnd og norðurhluta Breiðafjarðar. Síðari áfangi GSM-þéttingar ræðst af því hve mikið fé verður til ráðstöfunar eftir fyrsta áfanga. Friðrik Már sagði að í síðari áfanga yrði GSM-samband bætt á fleiri stofnvegum, fjallvegum og ferða- mannastöðum. Aðspurður sagði hann að Gemlufallsheiði, þar sem rúta valt á mánudag, væri ekki með í fyrri áfanga og að eftir væri að forgangsraða verkefnum í síðari áfanga. Unnið er að undirbúningi staf- rænna sendinga á sjónvarpi og út- varpi Ríkisútvarpsins um gervi- hnött sem eiga að hefjast næsta vor. „Þá mun RÚV nást á skipum á hafinu kringum landið og móttaka stórbatna í strjálbýli á Íslandi,“ sagði Friðrik Már. Þegar hnöttur hefur verið valinn verður ljóst hve stórt móttökuloftnet notendur þurfa og hvert útbreiðslusvæðið verður. Tilboð í GSM-þéttingu opnuð í næstu viku Í HNOTSKURN »Fjarskiptasjóður varstofnaður með 2,5 millj- örðum af svonefndum síma- peningum, sem fengust fyrir söluna á Landsíma Íslands. »Alls á að verja einummilljarði af ráðstöfunar- fé Fjarskiptasjóðs til þétt- ingar GSM-kerfisins. »Fjarskiptasjóður muneinnig styðja við eflingu háhraðatenginga um landið og er útboð í undirbúningi. Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is LEIKUR ljóss og skugga getur verið mikilfenglegur í skamm- deginu. Skarfarnir á hafnarbakkanum í Reykjavík tóku stöð- una í stillunni í gær og skröfuðu saman sumir á meðan aðrir snyrtu sig eða þóttust flugfimir. Amstrið fyrir jólin hefur ekki áhrif á þessa spaklegu fugla sem sinna sínum verkum í sátt við guð og menn á meðan borgin vaknar. Morgunblaðið/RAX Sinna sínu á meðan borgin vaknar í skammdeginu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.