Morgunblaðið - 14.12.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.12.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 340. TBL. 94. ÁRG. FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is ABBABABB SÖNGLEIKUR EFTIR DR. GUNNA Í HAFNARFJARÐARLEIKHÚSINU >> 46 10 dagar til jóla www.postur.is 14.12. er síðasti öruggi skiladagur á jólakortum til Evrópu! ÍS L E N S K A /S IA .I S /I C E 3 45 81 1 2/ 06 Eftir Brján Jónasson og Baldur Arnarson ÞRÍR núverandi eða fyrrverandi forstjórar þriggja olíufélaga voru í gær ákærðir fyrir meint brot gegn samkeppnislögum, fyrir að hafa haft ólögmætt samráð, ýmist sjálfir eða fyrir milligöngu undirmanna, með það að markmiði að hafa áhrif á og koma í veg fyrir samkeppni. Ríkissaksóknari gaf í gær út ákæru á hendur Einari Benediktssyni, forstjóra Olíuverzlunar Íslands, Geir Magnússyni, fyrrverandi forstjóra Olíufélagsins – sem nú heitir Ker, og Kristni Björnssyni, fyrrverandi forstjóra Skeljungs. Verði þeir fundnir sekir geta þeir átt von á sekt- um og fangelsisdómum allt að tveimur árum, fjórum ef sakir þeirra eru taldar miklar, sam- kvæmt núgildandi samkeppnislögum. Undirmenn þeirra, sem höfðu stöðu grunaðra við rannsókn, verða ekki ákærðir vegna sam- ráðsins, né félögin sjálf sem þegar hafa sætt stjórnvaldssektum, að því er fram kemur í til- kynningu frá ríkissaksóknara. Að sögn lögmanns eins ákærðu er búist við því að ákæran verði þingfest í janúar nk. Ætluð brot voru framin á tímabilinu frá 1. mars 1993 til árs- loka 2001. Ákæran er í þremur köflum og 27 ákæruliðum og er birt í Morgunblaðinu í dag. Fyrsti kafli ákærunnar lýtur að samráði við gerð tilboða, en þar er fjallað um meint samráð forstjóranna þriggja, eða undirmanna þeirra, við útboð ríkis, sveitarfélaga og fyrirtækja á eldsneyti, olíuvörum og fleiri vörum. Er þar m.a. um að ræða útboð dómsmálaráðuneytisins vegna eldsneytis fyrir lögreglubíla og önnur ökutæki, en þar segir í ákæru að starfsmenn hafi fundað til að koma sér saman um hvað hvert fyrirtæki myndi bjóða. Ríkiskaup höfnuðu til- boðunum. Annar kafli ákærunnar fjallar um það hvernig ætlað er að fyrirtækin hafi markvisst skipt markaðinum með sér með ólöglegu samráði. Er þar m.a. fjallað um meint samráð þar sem mark- aðssvæðum hafi verið skipt markvisst á milli fé- laganna þriggja, t.d. með því að eitt eða tvö félög hættu starfsemi í bæjum á landsbyggðinni til að eitt félag sæti að markaðinum þar. Segir í ákæru að félögin þrjú hafi m.a. undirritað samning þar sem Olíufélagið og Skeljungur hafi skuldbundið sig til að opna ekki bensínsölu í Grindavík. Sagðir hafa átt fjölda funda Einnig er ákært vegna ætlaðs samráðs í tengslum við sölu á eldsneyti til erlendra skipa, þar sem markaðinum var skipt niður á milli fé- laganna þriggja í ákveðnum hlutföllum. Er talið að félögin þrjú hafi jafnað kostnað og hagnað af sölu til skipa eftir þessum hlutföllum. Þriðji hluti ákærunnar er sá viðamesti, en þar er ákært vegna meints samráðs um ákvörðun verðs á söluvörum, afsláttarkjör, álagningu og viðskiptakjör. Er þar m.a. lýst 35 fundum eða samtölum sem ákærðu og undirmenn þeirra áttu þar sem þeir ráðfærðu sig og skiptust á upplýs- ingum um rekstur félaganna og fyrirætlanir á markaði, skiptust á skoðunum um verðlagningu, viðskiptakjör, afslætti og álagningu. Einnig er ákært vegna meints samráðs vegna sölu á eldsneyti til erlendra skipa og vegna ætl- aðs samráðs gegn aðgerðum LÍÚ um að lækka verð á olíu til fiskiskipa.  Olíusamráðið | Aukablað Þrír núverandi eða fyrrverandi forstjórar þriggja olíufélaga ákærðir fyrir brot gegn samkeppnislögum Ákærðir fyrir þátt sinn í samráði olíufélaganna  Sakaðir um samráð við gerð tilboða, markaðsskiptingu og ákvörðun um verð  Starfsmenn félaganna sem höfðu stöðu grunaðra við rannsókn ekki ákærðir Í HNOTSKURN »Málið hófst með húsleit hjá olíufélög-unum þremur 18. desember 2001. »Samkeppnisstofnun sendi fyrri hlutafrumathugunarskýrslu á meintu verð- samráði félaganna til þeirra 8. janúar 2003. »Úrskurður áfrýjunarnefndar sam-keppnismála féll 31. janúar 2005. Í kjölfarið voru sektargreiðslur félaganna lækkaðar. »Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóralauk rannsókn sinni á meintu samráði 17. nóvember 2005. „HÉR er verið að láta á það reyna hvort ákvæði samkeppnislaga nái til brota einstaklinga. Refsirétt- arfræðingar eru almennt þeirrar skoðunar að svo sé ekki og ég tel að svona tilraunastarfsemi eigi ekki heima í réttarríki,“ segir Gísli Bald- ur Garðarsson, hrl., lögmaður Ein- ars Benediktssonar, forstjóra Olíu- verzlunar Íslands. „Þetta er þó líka ákveðinn léttir að því leyti til, að nú hafa hand- hafar ákæruvaldsins loksins ákveð- ið hvaða stefnu þeir ætla að taka í þessu máli,“ segir Gísli. „Núna loks- ins er hægt að takast á um efn- isþætti málsins.“ Ragnar Hall, hrl., lögmaður Kristins Björnssonar, fyrrverandi forstjóra Skeljungs, segir það hafa verið sinn skilning að þau laga- ákvæði sem ákært er vegna vörð- uðu félög en ekki einstaklinga. „Ákæruvaldið hefur kosið að láta dómstóla svara þeirri spurningu, og þá verður bara að taka því,“ seg- ir Ragnar. Hann segir það þó alls ekki réttlátt gagnvart þeim þremur mönnum sem eru ákærðir. „Ég tel þetta satt að segja með ólíkindum, að það eigi að vera niðurstaðan að velta þessu áfram á þessum grunni eftir að hafa legið yfir málinu svo árum skiptir.“ Hvorki Geir Magnússon, fyrrver- andi forstjóri Olíuverzlunar Ís- lands, né lögmaður hans vildu tjá sig um ákæruna í gær. Tilraun sem ekki á heima í réttarríki London. AFP. | Breska vikublaðið News of the World hét í gær 250.000 pundum, eða sem svarar 34,2 millj- ónum króna, þeim sem veitt gæti upplýsingar sem leitt gætu til hand- töku morðingja kvennanna fimm sem fundist hafa í nágrenni Ipswich- borgar síðan 2. desember sl. „Við vonum að þessi metverðlaun muni hjálpa við lausn þessara grimmilegu morða sem hafa valdið óhug með þjóðinni,“ sagði í yfirlýs- ingu blaðsins í gær. Líklegt þykir, að konurnar fimm hafi þekkt morðingjann, sem kann að búa í borginni. | 16 Leggja fram metfé til höfuðs morðingjanum FJÖLMENNUR íbúafundur, þar sem kynntar voru hugmyndir bæjaryfirvalda um framtíðarskipulag við Kársnes, var haldinn í Salnum í Kópavogi í gærkvöldi en hugmyndirnar falla í misfrjóan jarðveg meðal bæj- arbúa. Þannig hefur formaður íbúasamtaka vestur- bæjar lýst áhyggjum af aukinni umferð og vaxandi um- svifum á fyrirhuguðu hafnarsvæði. Þá er formaður foreldraráðs Kársnesskóla áhyggjufullur vegna auk- innar umferðar og hefur sent bæjaryfirvöldum bréf með ósk um upplýsingar um frekara skipulag. | 12 Morgunblaðið/Sverrir Kópavogsbúar funduðu um Kársnesið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.