Morgunblaðið - 16.12.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.12.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 342. TBL. 94. ÁRG. LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is UNGUR SENUÞJÓFUR BRYNJA ÓLAFSDÓTTIR SÖNG Á FJÖLSKYLDU- TÓNLEIKUM Í ÞJÓÐBÚNINGI ÖMMU SINNAR >> 28 8 dagar til jóla Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is LÖGREGLA og fólk sem aðstoðar fíkniefnaneytendur í Ipswich í Bret- landi gefa nú vændiskonum peninga til að fá þær til að hætta að stunda vinnu sína á götunum, að sögn vef- síðu dagblaðsins Guardian í gær. Ástæðan er að raðmorðingi hefur myrt fimm konur á svæðinu síðustu daga og vikur og virðist einbeita sér að vændiskonum. Staðfest var í gær að fimmta líkið sem fundist hefur væri af 29 ára vændiskonu, Annette Nicholls. Góðgerðar- stofnun lagði fram féð sem var afhent ráði er hef- ur yfirumsjón með öryggismál- um almennings í Ipswich. Um 300 lögreglumenn taka þátt í leitinni að morðingjanum eða morðingjunum, um fleiri en einn gæti verið að ræða. Stewart Gull hjá rannsóknarlögreglunni sagði að yf- irvöld í grannborgunum Norwich og Cambridge hefðu einnig gripið til ráðstafana. Hann sagði að morðing- inn færi nú ef til vill að leita uppi fórnarlömb á öðrum svæðum. Lögreglan veltir því fyrir sér hvort konurnar, sem vitað er að not- uðu fíkniefni, hafi verið deyfðar eða svæfðar með lyfjum áður en þær voru myrtar. Ein lést „af völdum þrýstings á háls“ eins og lögreglan orðar það, önnur hafði verið kæfð. Haldi sig frá götunni Vændiskonum í Ipswich nú borgað fyrir að hætta Stewart Gull lögreglumaður. San Antonio í Texas. AP. | Ný rannsókn vís- indamanna sýnir að tíðni brjóstakrabba minnkaði um rúmlega 7% í Bandaríkjunum árið 2003. Er talið að ástæðan sé að miklu leyti sú að fjöldi kvenna hafi hætt að taka inn hormónalyf til að vinna gegn áhrifum tíðahvarfa. En bent er á að einnig geti það haft áhrif að á sama tíma hafi færri konur farið í brjóstaskoðun sem geti valdið því að færri tilfelli en ella hafi uppgötvast. Árið 2002 kom í ljós í Bandaríkjunum að tíðni brjóstakrabba og hjartasjúkdóma jókst hjá konum sem tóku hormónalyf og fóru læknar þá að hvetja konur til að taka aðeins litla skammta og ekki nema í stuttan tíma. Ári síðar hafði konum sem tóku lyfin fækkað um helming. Rannsóknir í Bretlandi sýna einnig lækk- andi tíðni brjóstakrabba. Krabbamein eru nokkur ár að þróast og hætti kona að taka hormónalyfin myndi það ekki tafarlaust koma í veg fyrir krabbameinsmyndun. En æxli sem hafa verið byrjuð að myndast gætu hafa hætt að vaxa, minnkað eða jafn- vel horfið. Færri með brjóstakrabba Eftir Andra Karl og Elvu Björk Sverrisdóttur „VIÐ treystum því og göngum út frá að deiluaðilar leysi þennan hnút þannig að ekki komi til neinna truflana í flugi,“ sagði Guðjón Arn- grímsson, upplýsingafulltrúi Ice- landair, í gærkvöldi um ástandið sem upp er komið hjá flugumferð- arstjórum og Flugstoðum ohf., sem tekur til starfa um áramót. Hætta er á að flug lamist um áramót komi ekki til ráðninga um sextíu flugumferðarstjóra sem ekki hafa skrifað undir ráðningar- samning við Flugstoðir. Frestur flugumferðarstjóra var í gærkvöldi framlengdur til mánudags. Matthías Imsland, fram- kvæmdastjóri Iceland Express, segist ekki trúa öðru en að menn geti leyst þessi mál, ekki sé annað í stöðunni. „Þessir aðilar hljóta að hafa það mikla skynsemi að þeir leysi þetta og við treystum því að það verði gert.“ Ólafur Sveinsson, stjórnarfor- maður Flugstoða, telur ljóst að skerða þurfi þjónustu komi ekki til frekari ráðninga. „En landið verð- ur ekki samgöngulaust,“ segir Ólafur og bætir því við að verið sé að vinna að viðbragðsaðgerðum. Loftur Jóhannsson, formaður Félags flugumferðarstjóra, segir að ef ekki verði samið um kjör verði landið samgöngulaust komi ekkert annað til. „Ég veit ekki hvernig [Ólafur] sér þetta fyrir sér. Eftir því sem ég best veit eru ekki nema svona þrír eða fjórir flugumferðarstjórar, með réttindi til að starfa sem slíkir, sem hafa ráðið sig, þá er ég að tala um á öllu landinu,“ segir Loftur. Sturla Böðvarsson samgöngu- ráðherra vildi ekki tjá sig efnislega um málið þegar eftir því var leitað.  Skerða þarf | 6 Líkur á að samgöngur lamist ef ekki úr leysist Flugumferðarstjórar ráða sig ekki til Flugstoða nema samið verði um kjör Í HNOTSKURN »Flugstoð er nýtt opin-bert hlutafélag sem tekur til starfa um áramót. »Félagið sendi á mið-vikudag bréf til flug- umferðarstjóra þar sem þeim var gefinn frestur til kl. 15 í gær til að ráða sig hjá félaginu. »Fresturinn var í gær-kvöldi framlengdur til mánudags. ÞEIR voru sprækir hundarnir hans Birgis Jónssonar þegar ljós- myndari Morgunblaðsins rakst á þá í síðdegisgöngu í Hafnarfirð- inum í vikunni. Ferfætlingarnir létu kuldabola ekkert á sig fá heldur stukku sprækir til og frá. Hvort það var til þess að halda á sér hita eða vegna eðlislægrar forvitni skal ósagt látið. Í hugum margra er hundurinn besti vinur mannsins og víst er að mörgum þykir gott að leita fé- lagsskapar í nærveru hans. Ekki þykir heldur spilla fyrir að eig- endur hunda fá kjörið tækifæri til þess að hreyfa sig daglega þegar þeir þurfa að viðra þessa ferfættu vini sína. Ágætlega hefur viðrað til þess arna síðustu daga.Morgunblaðið/Kristinn Hundarnir fráir á fæti í frostinu ♦♦♦ Kaupmannahöfn. AP. | Lögþingið í Færeyjum samþykkti í gær með 17 atkvæðum gegn 15 tillögu um að bannað yrði að mismuna sam- kynhneigðum. Þingið felldi sams konar til- lögu í fyrra en andstæðingar tillögunnar sögðu samkynhneigð ganga gegn fyrir- mælum í Biblíunni. „Við erum afskaplega ánægð, fyrir okkur hefur þetta verið spurning um mannrétt- indi,“ sagði þingkonan Annita af Fridriks- mörk sem flutti tillöguna ásamt félaga sín- um úr Lýðveldisflokknum. „Færeysk lög hafa haltrað á eftir lögum í öðrum nútíma- samfélögum.“ Mismunun gagnvart samkynhneigðum komst mjög í sviðsljósið í september síðast- liðnum þegar fimm karlar réðust á 25 ára gamlan tónlistarmann, Rasmus Rasm- ussen, en hann er samkynhneigður og fór ekki leynt með það. Lögreglan vildi ekki meðhöndla málið sem ofbeldi vegna haturs á samkynhneigð og bar því við að mis- munun vegna kynhneigðar væri ekki ólög- leg í landinu. Samkynhneigð tekin í sátt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.