Morgunblaðið - 17.12.2006, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ef þið vilduð gjöra svo vel, herrar mínir, að vera nú samtaka og reyna einu sinni enn
að loka þverrifunni í sekúndubrot svo ná megi þöglu eintaki af þessum furðufuglum,
fyrir þjóðina.
VEÐUR
Sú var tíðin, að Framsóknarflokk-urinn hafði mikil völd og áhrif,
bæði í viðskiptalífi og pólitík. Svo
misstu þeir áhrif sín í viðskiptalíf-
inu með falli Sambands ísl. sam-
vinnufélaga og kaupfélaganna en
Halldór Ásgrímsson endurreisti
pólitísk áhrif þeirra í 12 ára stjórn-
arsamstarfi Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks.
Nú virðist semFinnur Ing-
ólfsson, fyrrum
þingmaður og
ráðherra flokks-
ins, sé að byggja
viðskiptaveldi
framsókn-
armanna upp á
ný miðað við
fréttir Morgun-
blaðsins í gær.
Það er ljóst að þessi innsti kjarniFramsóknarflokksins ræður nú
Icelandair (er ekki hægt að breyta
nafninu aftur í Flugleiðir?) í sam-
starfi við Engeyinga og nú hafa
þessir aðilar keypt sig inn í Straum
og eru þar með komnir í samstarf
við þá feðga Björgólf Guðmundsson
og Björgólf Thor Björgólfsson.
Það hefur þurft býsna mikla út-sjónarsemi til þess að koma
þessu í kring.
Og þar með ljóst að jafnvel þóttFramsóknarflokkurinn fari illa
út úr kosningum og missi pólitísku
völdin, sem vel má vera, eru áhrif
hans mikil í viðskiptalífinu.
Þessi áhrifastaða byggist á fjár-málaveldi Samvinnutrygginga
en m.ö.o. hver á Samvinnutrygg-
ingar?! Áhugaverð spurning sem
margir vilja fá svar við.
Hvað sem þeirri spurningu líðurfer ekki á milli mála að Finnur
hefur sennilega meiri áhrif í þjóð-
félagsmálum með þeirri stöðu, sem
hann hefur nú á vettvangi við-
skiptalífsins, en hann hefði fengið
ef hann hefði orðið formaður Fram-
sóknarflokksins.
STAKSTEINAR
Finnur Ingólfsson
Valdamenn Framsóknar
SIGMUND
!"
#$%
& '
( &
) *
+
, $
-
.
)+
/0
/
1
2
0
+ 0
(+
3/
#
4
&56
7 2
"&
!
"
8
("9:;##
!
"
#
!
! $
"
(
""
9 (
$ % &#
#%#
!'
<0
< <0
< <0
$&#(
)
*#+ ,
:= +
<
-%'
#
%
# #
%
.#/)#%
# #!0
# #).
4
0
-%'
#
#
#
%
#
%&
1#
#
2#
%
)
.
- #%## ##
.
9
$ #23#*
#
#
#)#%
%
1#
#
)
&# # 0# 44#
0
.
-#
%
.
50 # # 44
#! #6
! #(
)
1%23>2
>(<3?@A
(B,-A<3?@A
*3C.B',A
1
1
.
3. .
.
. 3. .
.
.3
.
1
1
3. .
1
1
1
1
1
1
1
1
1
1
afnotarétt af íþróttaaðstöðu, starfs-
mannaaðstöðu, list- og verkgreina-
stofum, bókasafni, útileiksvæði og
annarri sameiginlegri aðstöðu.
Garðabær greiðir framlag með
hverjum nemanda sem hefur lög-
heimili í Garðabæ í samræmi við
samþykkt um framlög til einkaskóla
en Alþjóðaskólinn greiðir kostnað af
rekstrartengdum afnotum.
Átján nemendur
Í Alþjóðaskólanum eru 18 nem-
endur í vetur. Hann starfar sam-
kvæmt alþjóðlegri námskrá og
kennsla í honum fer fram á ensku.
Nemendur skólans fá einnig kennslu
í nokkrum námsgreinum svo sem
íþróttum, tónlist, listum, smíði og
textílmennt með nemendum Sjá-
landsskóla eftir því sem rými leyfir.
ALÞJÓÐASKÓLINN og Garðabær
hafa undirritað samning um sam-
starf og gildir hann frá 1. ágúst 2006
út júlí 2008. Fimm til þrettán ára
gamlir nemendur af ýmsu þjóðerni
stunda nú nám í Alþjóðaskólanum á
Íslandi, sem tók til starfa í Sjálands-
skóla í haust. Þetta er þriðja starfsár
þessa einkaskóla, en hann var innan
veggja Víkurskóla í Reykjavík sl. tvo
vetur. Skólastjóri er Berta Faber.
Markmið samstarfs Garðabæjar
og Alþjóðaskólans er að gefa nem-
endum skólanna tækifæri á fjöl-
breyttari námskrá og námstækifær-
um með gagnkvæmum samskiptum
nemenda og kennara. Samkvæmt
samningnum leggur Garðabær Al-
þjóðaskólanum til aðstöðu í húsnæði
Sjálandsskóla. Alþjóðaskólinn nýtir
heimasvæði Sjálandsskóla og hefur
Samningur við
Alþjóðaskólann
Morgunblaðið/Kristinn
Samstarf Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, og Berta Faber
skólastjóri undirrita samstarfssamninginn við Alþjóðaskólann.
HÉRAÐSDÓMUR Austurlands
hefur dæmt tvo Perúmenn, búsetta í
Danmörku, til að greiða sektir fyrir
tollalagabrot en þeir komu til lands-
ins með Norrænu í september með
1.323 geisladiska, og ullarflíkur í
hundraðatali.
Mennirnir voru með varninginn í
sendibíl sínum sem skoðaður var af
tollvörðum. Sögðust mennirnir ekki
hafa ætlað að selja varninginn hér á
landi, enda komnir sem ferðamenn.
Ástæða fyrir varningnum í bílnum
var sögð sú að þeir hefðu ekki yfir
öðru geymsluplássi að ráða en sendi-
bílnum.
Dóminum þótti þessi framburður
mjög ótrúverðugur og einnig þótti sá
framburður annars mannsins ótrú-
verðugur, að hann hefði ekki verið
kunnugur alþjóðlegum reglum um
græn og rauð tollhlið í ljósi þess að
hann hefði sjálfur borið vitni um það
að hann hefði ferðast á milli heima-
lands síns Perú og Evrópu oftar en
einu sinni.
Annar maðurinn var dæmdur til
að greiða 165 þúsund krónur í sekt
og hinn 24 þúsund krónur. Varning-
urinn var gerður upptækur.
Ragnheiður Bragadóttir dóm-
stjóri dæmdi málið. Verjandi var
Gísli Auðbergsson hdl. og sækjandi
Lára Huld Guðjónsdóttir sýslu-
mannsfulltrúi.
Dæmdir
fyrir fata-
smygl
Panettone
Ítalska jólakakan sem farið hefur sigurför um heiminn!
n á t t ú r u l e g a
Skólavörðustíg, Kringlunni, Smáratorgi, Lágmúla & Selfossi
Margar tegundir og
margvíslegar umbúðir.