Morgunblaðið - 17.12.2006, Blaðsíða 10
10 SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ER ÍSLAND BARNVÆNT SAMFÉLAG?
GREIN 6
Á
Á 21. öldinni held ég
að við komum til með
að beina sjónum okkar
í auknum mæli að
börnunum og þeim að-
stæðum sem þau búa
við,“ segir dr. Herdís Þorgeirs-
dóttir, prófessor í stjórnskip-
unarrétti og mannréttindum við
lagadeild Háskólans á Bifröst.
„Við erum stöðugt minnt á
slæmt ástand meðal stórra hópa
barna, bæði á Íslandi og annars
staðar, svo ekki sé minnst á þær
hörmungar sem milljónir svangra,
sjúkra og vanræktra barna búa við
víða um heim. Það er ekki nóg
vitneskja til staðar um almenn
réttindi barna. Þau njóta allra
sömu grunnréttinda og við sam-
kvæmt stjórnarskrá og alþjóð-
legum mannréttindasamningum.
Þess utan er Barnasáttmáli Sam-
einuðu þjóðanna, sem öðlaðist gildi
gagnvart Íslandi 1992, einn víð-
tækasti alþjóðasamningur sem til
er, viðurkenning á því að börnum
beri sérstök vernd og aðstoð. Það
þýðir ekki að við eigum aðeins að
líta á börn sem eign okkar eða
andlag miskunnsemi ef eitthvað
bjátar á. Þau eru verur sem hafa
sama rétt og við á mannhelgi og
að vera ekki mismunað á grund-
velli þátta sem þau geta ekki
breytt eins og kynferði, þjóðern-
isuppruna, kynþætti, litarhætti,
efnahag, ætterni og stöðu að öðru
leyti. Ein meginreglan varðandi
ráðstafanir sem varða börn er sú,
að það sem er barni fyrir bestu
skuli ávallt hafa forgang. Þessi
regla virðist því miður ekki
ráða ferðinni á allt of mörgum
Morgunblaðið/Kristinn
AFTUR TIL SAKLEYSIS
Ein meginreglan í
Barnasáttmála Sam-
einuðu þjóðanna er sú,
að það sem er barni
fyrir bestu skuli ávallt
hafa forgang. Þessi
regla virðist því miður
ekki ráða ferðinni. Við
erum flest á klafa
gegndarlausrar verald-
arhyggju og drögum
börnin okkar með, seg-
ir Herdís Þorgeirs-
dóttir prófessor.
Eftir Helgu Kristínu Einarsdóttur
helga@mbl.is
og Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
Morgunblaðið og viðmælendur
þess hafa fengið mikil viðbrögð
frá lesendum við umfjöllun um
spurninguna hvort Ísland sé
barnvænt samfélag, en athygli
vekur að erindin eru öll frá kon-
um. Hér koma tilvitnanir í nokkur
bréf. „ Takk fyrir frábærar grein-
ar og greinaflokka. Loksins
koma einhverjar sem ræða um
líðan barna og hafa hagsmuni
þeirra og velferð að leiðarljósi ...
Ég hef annast börn frá unga
aldri. Á sex systkini, er fimm
barna móðir, sjö barna amma og
er sérkennari sem vinn með van-
sæl og óörugg börn sem líður illa í
látunum og margir foreldrar hafa
ekki tíma til að sinna.“„ Þetta stofnanauppeldi sem
viðgengst í dag getur ekki
verið það besta fyrir börnin. Það
getur heldur ekki verið skortur á
jafnrétti þegar kona velur að vera
heima og hugsa um börnin sín.“„ Ég er kennari og amma og
hef miklar áhyggjur af vel-
ferð barna á Íslandi. Þegar ég var
með ung börn valdi ég að vera
heima hluta úr degi og sé ekki
eftir einum klukkutíma. Ég er
ekki verðlaunuð fyrir að koma
góðum þegnum út í samfélagið
heldur er mér hegnt fyrir það
með því að skerða lífeyrinn
minn.“„ Þetta er mikið hitamál í
mínum huga og sjálf hef ég
miklar áhyggjur hvert þetta þjóð-
félag stefnir varðandi börnin,
sem skipta öllu máli. Ég er ein-
mitt heima með 8 mánaða dóttur
minni og hef fengið furðuleg við-
brögð frá alltof mörgum. Ertu
ennþá heima? Ætlar þú ekki að
fara að vinna? Ég sótti um pláss
hjá dagmömmu þegar ég var
komin 2 mánuði á leið o.s.frv.
Það gefa alltof fáir sér tíma til
að annast börnin sín og þetta er
sorgleg þróun.“„ Ég er að velta fyrir mér
hvort hægt sé að halda þess-
ari umræðu áfram því hún er svo
mikilvæg. Við leikskólakennarar
höfum talað um þetta í nokkur ár,
okkar á milli.“„ Ég er ekki í vafa um að fólk
les þetta vel. Það er sjald-
gæft að þessi málaflokkur fái svo
gott rými og svo ítarlega og fag-
lega umfjöllun.“
VIÐBRÖGÐ
LESENDA
VIÐ UMFJÖLLUN
UM BARNVÆNT
SAMFÉLAG
SKIPULAG ER LYKILATRIÐI FYRIR EINSTÆÐA FORELDRA
ENGIN ÁSTÆÐA TIL AÐ FÓRNA FJÖLSKYLDUNNI FYRIR VINNUNA
VINNUVEITENDUR OPNARI FYRIR SVEIGJANLEGUM VINNUTÍMA EN VIÐ HÖLDUM
VILJUM AÐ ANNAÐ HVORT OKKAR SÉ ALLTAF TIL STAÐAR Á HEIMILINU
FLESTIR FORELDRAR LEGGJA MJÖG HART AÐ SÉR TIL AÐ SINNA BÖRNUNUM VEL
LANDSVIRKJUN AUGLÝSIR SIG SEM FJÖLSKYLDUVÆNT FYRIRTÆKI
FJÖLSKYLDUVÆN STEFNA EN GLITNIR FORGANGSRAÐAR EKKI FYRIR FÓLK
FEÐURNIR TAKA HLUTA AF SAMVISKUBITI MÆÐRANNA
SJÁLFSAGT AÐ MÆTA ÞÖRFUM FJÖLSKYLDUNNAR HJÁ TOYOTA
UMÖNNUNARÁBYRGÐ VEGNA VEIKINDA Í AUKNUM MÆLI Á HEIMILUM
»