Morgunblaðið - 17.12.2006, Síða 29

Morgunblaðið - 17.12.2006, Síða 29
ég var aldrei banginn við það.“ – Hafa ljóð komið til þín á slíkum stundum? „Nei, ég hef ekki farið í skáldlegum hugleiðingum í svona gönguferðir. Ég hef aðallega leitað hugsvölunar – að vera einn og horfa í kringum mig, liggja úti í náttúrunni og góna upp í loftið. Ætli fólk kalli þetta ekki draumlyndi? Ég veit ekki hvað skal segja, einhver annarlegheit, sérviska og útúrboruháttur? Það má nefna þetta ýmsum nöfnum.“ – Myndirðu segja að þú værir sér- vitur? „Ég neita því á engan hátt – í mér er allskonar sérviska.“ – Eins og hvað? „Það yrði of langt mál að telja það upp,“ segir maðurinn sem tók bílpróf næstum því sextugur og átti bíl í tíu ár, en fannst ómögulegt að vera í öll- um þessum umferðarþunga og seldi bílinn aftur. Hann segir dagana tæt- ast upp ef hann þeyti konunni sinni um allt á bílnum og þess vegna sæki hann sjaldan viðburði, svo sem opn- anir á listsýningum. „Þar er fólk að spegla sig hvert í öðru yfir hvítvíns- glasi og maður sér engar myndir. Ég get ekki þvælst þetta lengur. Tíminn er orðinn annarskonar.“ – Ertu vanafastur? „Já, ég hygg það nú, en ég er ekki vanafastur með vinnu mína. Það stendur allavega á fyrir mér með það, enda vinna ljóðskáld allt öðruvísi en skáldsagnahöfundar eða fræðimenn. Ég get ekki neitað því að þegar ég hef unnið að öðrum skriftum en ljóða- gerð, þá hef ég unnið mjög reglu- bundið, til dæmis þegar ég samdi ævisögu Steingríms Thorsteinssonar og ég hef furðað mig á því hvað ég skrifaði hana á skömmum tíma. En ég er ekki vanafastur að því leyti að ég skammti mér tiltekinn tíma á dag til skrifta eða vakni á nákvæmlega sama tíma til þess að hefja vinnu og hætti alltaf á sama tíma. Ég læt bara nótt sem nemur með þetta. Ég vinn í skorpum, en vanafestan birtist í ýmsu öðru.“ Hannes hagræðir hægindastóln- um, sem hann vill helst sitja í og eng- um öðrum, og bætir við annars hug- ar: „Já, já, það gengur svona lagsmaður minn prúði, sagði faðir minn stundum.“ Gæti framleitt skáldskap – Þannig að það er ekki til neitt sem heitir venjulegur dagur í lífi Hannesar Péturssonar? „Nei, alls ekki, síst nú orðið! Maður þurfti að stunda skriftir í hjáverkum lengi framan af, vann úti og greip sín- ar stundir þegar heim kom, þá hafði maður gott næði að kvöldi og fram eftir nóttu. Ég er því miður að rugl- ast eitthvað í ríminu, því mér finnst oft gott að vinna á kvöldin og jafnvel um nætur. Eftir að ég hætti að ganga til vinnu úti, um tíma vann ég hjá Bókaútgáfu Menningarsjóðs, þá get ég alveg ráðið því hvenær ég sest við. Þá reyni ég að hvíla mig að deginum og búa mig undir kvöldið, kannski nóttina. Mér hefur þótt gott að vinna hér á Nesinu um nætur. Það er eitt- hvað svo mikill blessaður friður. Oft hef ég unnið vornætur og sum- arnætur og ekkert litið á klukku, ekk- ert haft áhyggjur af gangi klukkn- anna í heiminum.“ – Þó heyrirðu tifið? „Já, eða jafnvel ekki – ég tek ekki eftir því. Ég læt bara innri manninn stjórna siglingunni hverju sinni.“ – Það eru liðin 13 ár frá því þú gafst síðast út ljóðabók, Eldhyl. Varð bókin til á þessum langa tíma eða vannstu hana í skorpu? „Hún kom alls ekki til mín á skömmum tíma,“ segir Hannes. „Ég orti bókstaflega ekkert fyrst eftir að Eldhylur kom út. Það hefur oft verið þannig með mig að fyrstu misserin frá því ég sendi frá mér bók þá þagna ég beinlínis. Vitundin fer að starfa að öðru, finna nýjan áslátt og það getur tekið tíma. Ég vil ekki gera mikið af því að yrkja mig upp. Það er svo vandalaust að yrkja alltaf í sama farinu. Maður gæti framleitt skáld- skap í þeim stíl og það er nú það sem lesendur manns vilja. Ef þeir hafa orðið hrifnir af einhverju sem maður gerði fyrr, þá vilja þeir helst að mað- ur yrki ævinlega þannig og gera viss- ar kröfur til þess. Ég hef aldrei hlust- að á neinar slíkar kröfur og reynt að fylgja þeim innri kröfum, sem ég finn fyrir. Ég skulda sjálfum mér og er ekkert að spyrja að því hvað blessuðu lesendurnir vilja að ég fáist við. Það getur stundum tekið tíma að komast á nýtt spor, án þess að maður rífi sjálfan sig algjörlega í tætlur – haldi samhengi. Svo er nú hitt að ég hef fengist mikið við lausamál, stundum bók- menntafræði og þjóðleg fræði, og það hefur klofið mig niður, svo ég hef ekki getað haft eins mikla samfellu innra með mér sem ljóðskáld; ekki alltaf getað gefið mig að ljóðlistinni. Ég get ekki að því gert, því hitt kallar á mig líka. Ég verð að búa við að hafa feng- ið í vöggugjöf þessa hneigð til fræði- iðkana og verð að hlýða því kalli. Ég hef reynt að yrkja þegar mér finnst ég hafa náð einu skrefi umfram það sem var í bókinni á undan, annars- konar skrefi.“ Hannes segir að ljóðin í bókinni Fyrir kvölddyrum hafi flest orðið til hægt og bítandi eftir síðustu aldamót. „Ég átti drög að ýmsu áður, en fór ekkert að yrkja þessi ljóð fyrr en þá – sjötugur kall. Ég varð sjötugur árið 2001. Kannski er ekki vitglóra í því vegna þess að yfirleitt starfa ljóð- skáld meira fyrri hluta ævi sinnar og yrkja ekki fram í háa elli, nema þau séu að endurtaka sig. Sem betur fer held ég að kollurinn á mér sé ennþá í það góðu lagi að ég átti mig á því að ég er ekki alveg að tyggja sjálfan mig upp.“ veröldinni MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2006 29

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.