Morgunblaðið - 17.12.2006, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2006 65
menning
Fyrir jólin
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
Stór og lítil heimilistæki,
símtæki og ljós
í miklu úrvali
A
T
A
R
N
A
/
S
T
ÍN
A
M
.
/
F
ÍT
Kaffivél, brauðrist og hraðsuðukanna í sama stíl.
Nútíma tækni og ný glæsileg hönnun.
Siemens executive edition.
Sjáið jólatilboðin á
www.sminor.is
TK 65001
Ný alsjálfvirk kaffivél sem malar
baunir og býr til ýmsa kaffidrykki.
1400 W.
Jólaverð: 89.000 kr. stgr.
TT 61101 Brauðrist
Jólaverð: 3.900 kr. stgr.
TW 60101 Hraðsuðukanna
Jólaverð: 5.900 kr. stgr.
TC 60201 Kaffikanna
Jólaverð: 4.900 kr. stgr.
MK 55100 Ný matvinnsluvél. 800 W.
Jólaverð: 9.900 kr. stgr.
VS 08G2422 Afmælisryksugan.
Mjög öflug: 2400 W.
Virkilega þrífandi hrífandi.
Jólaverð: 26.900 kr. stgr.
SE 44M551SK
Ný glæsileg uppþvottavél úr ryðfríu
stáli. Mjög hljóðlát og fljót. A/A/A.
Jólaverð: 89.800 kr. stgr.
Gigaset S450
Glæsilegur þráðlaus sími.
Jólaverð: 8.900 kr. stgr.
Allt í stíl
Manet línan.
TB 21350 Ódýrt og gott straujárn.
Jólaverð: 3.900 kr. stgr.
iittala pottar og pönnur eru úr 18/10
ryðfríu stáli, hafa margfaldan botn og
mikla hitaleiðni. Ganga á öll helluborð.
iittala pottar og pönnur á
20% afslætti til jóla.
KERTALJÓS 4 teg.
Einstök vinargjöf,
fyrir allan aldur.
Verð aðeins kr. 1.650.-
KRINGLUNNI
FALLEG
www.tk.is
JÓLAGJÖF
gæða postulín
SKÆRBLEIK bókarkápan og
skemmtilegur káputexti gefur tón-
inn fyrir þann anda sem ráðandi
er í fyrstu bók Sifjar Sigmars-
dóttur, Ég er ekki dramadrottn-
ing. Raunir Emblu Þorvarð-
ardóttur. Hér segir
unglingsstúlkan Embla frá einum
og hálfum mánuði í lífi sínu á lit-
ríkan og fjörlegan hátt. Í upphafi
bókar er Embla í uppnámi yfir því
að fjölskylda hennar ætlar að
flytja til London en hún getur
ekki hugsað sér að yfirgefa Ísland
og vinkonurnar svo ekki sé talað
um GK (gangandi kynþokka),
strákinn sem hún er skotin í.
Meginhluti bókarinnar segir síðan
frá einum sumarmánuði sem fjöl-
skyldan ver í London í þeim til-
gangi að aðlagast lífinu þar fyrir
áætlaðan flutning um haustið.
Embla fylgir með tilneydd en er
staðráðin í að dvölin verði öm-
urleg. Eins og við er að búast
þróast málin þó á þann veg að
helst vill hún ekki snúa aftur heim
(og er búin að steingleyma GK).
Þar sem Embla er sögumaður
litast frásögnin að sjálfsögðu af
hennar sýn á tilveruna sem er,
geri ég ráð fyrir, nokkuð dæmi-
gerð fyrir unglingsstelpu sem hef-
ur áhyggjur af útliti sínu, hefur
áhuga á fötum og tísku og á bágt
með að þola hallærisganginn í for-
eldrum sínum. Framsetning máls
Emblu tekur einnig mið af nú-
tímaveruleika unglinga og hluti
textans er settur fram í formi
bloggfærslana. Þessi hluti hefði
jafnvel mátt vera meiri því hann
setur skemmtilegan svip á bókina.
Texti Sifjar er vel skrifaður, góður
húmor einkennir hann og
skemmtilegar ýkjur eiga stóran
þátt í að gæða textann lífi. Þetta
kemur vel fram í þessari upphafs-
klausu bókarinnar sem hefur yf-
irskriftina „Varúð!“ og gerir góð-
látlegt grín að íslenskum
barnabókum um leið og hún setur
tóninn fyrir það sem koma skal:
„Bók þessi er ekki skemmtileg
og spennandi saga fyrir hressa
krakka, hún er ekki svar Íslands
við Harry Potter og hún inniheld-
ur engan góðan boðskap. Sagan
gerist ekki í sveit og engir dul-
arfullir atburðir eiga sér stað í
henni (nema ef telja má óeðlilega
mikinn hárvöxt sem dularfullan
atburð). Þau fáu krúttlegu dýr
sem koma við sögu eru flest í
formi Dr. Martens skóbúnaðar og
McDonald’s hamborgara.“
Sif tekst vel upp í persónusköp-
un, auk Emblu og vina hennar eru
dregnar upp lifandi myndir af for-
eldrum, fósturforeldrum, tengda-
foreldrum og nágrönnum og
margar mjög skemmtilegar per-
sónulýsingar þar á ferðinni. Sem
fyrsta bók höfundar er bókin vel
heppnuð og gera má ráð fyrir að
þessi höfundur eigi eftir að láta
meira að sér kveða í framtíðinni.
Þetta er bók sem flestar stúlkur á
aldrinum tólf til fjórtán ára ættu
að hafa gaman af og ekki er ótrú-
legt að fleiri bækur um Emblu
Þorvarðardóttur eigi eftir að líta
dagsljósið, alla vega býður saga
hennar upp á framhald.
Af raunum Emblu Þorvarðardóttur
Sif Sigmarsdóttir
BÆKUR
Skáldsaga
Eftir Sif Sigmarsdóttur.
Mál og menning 2006, 166 bls.
Ég er ekki dramadrottning
Soffía Auður Birgisdóttir
Leikkonan Angelina Jolie er lít-ið gefin fyrir faðmlög, og
reynir að forðast þau í lengstu lög.
Þá segist hún alls ekki geta grátið.
„Maður græðir ekkert á því að
gráta. Og það hjálpar ekkert að fá
faðmlag,“ segir hún. „Ef einhver
faðmar mig held ég niðri í mér
andanum. Mér líður bara illa undir
slíkum kringumstæðum,“ bætir
leikkonan fagra við. Eins og mörg-
um er kunnugt er Jolie með leik-
aranum Brad Pitt, en hann þykir
með kynþokkafyllri mönnum í
heiminum í dag. Það virðist hins
vegar ekki skipta Jolie neinu máli
því það er sama um hvern ræðir,
hún vill ekki faðmlög.
Fólk folk@mbl.is
Reuters