Morgunblaðið - 17.12.2006, Page 68

Morgunblaðið - 17.12.2006, Page 68
68 SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ menning ÓFAGRA VERÖLD Fim 28/12 kl. 20 Forsýning Miðaverð 1.000 Fös 29/12 kl. 20 Frumsýning UPPS. Fim 4/1 kl. 20 2. sýning Gul kort Fös 12/1 kl. 20 3. sýning Rauð kort Fim 18/1 kl. 20 4.sýning Græn kort Sun 21/1 kl. 20 5.sýning Blá kort Lau 30/12 kl. 20 Fös 5/1 kl. 20 Lau 13/1 kl. 20 Fös 19/1 kl. 20 SAN FRANCISCO BALLETTINN Samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík og Borgarleikhússins. Mið 16/5 kl. 20 UPPS. Fim 17/5 kl. 20 Fös 18/5 kl. 20 Lau 19/5 kl. 14 Lau 19/5 kl. 20 Sun 20/5 kl. 14 Sun 20/5 kl. 20 Miðaverð 4.800 Fös 29/12 kl. 20 Lau 30/12 kl. 20 Lau 6/1 kl. 20 Lau 13/1 kl. 20 Sun 7/1 kl. 20 AUKAS. Sun 14/1 kl.20 AUKAS. Lau 20/1 kl. 20 AUKAS. Lau 27/1 kl. 20 AUKAS. Síðustu sýningar DAGUR VONAR Mið 10/1 kl. 20 Forsýning Miðaverð 1.000 Fim 11/1 Afmælissýning UPPS. Fös 12/1 kl. 20 Fim 18/1 kl. 20 Sun 21/1 kl. 20 Fös 26/1 kl. 20 Sun 7/1 kl. 20 Sun 14/1 kl. 20 Lau 20/1 kl. 20 Allra síðustu sýningar Lau 6/1 kl. 20 Fim 11/1 kl. 20 Fim 18/1 kl. 20 Lau 27/1 kl. 20 JÓLALEIKRITIÐ RÉTTA LEIÐIN Barna og unglingaleikhúsið Borgarbörn Í dag kl. 13:00 Í dag kl. 15:00 Miðaverð 1.400 Síðustu sýningar RONJA RÆNINGJADÓTTIR Lau 30/12 kl. 14 Sun 7/1 kl. 14 Sun 14/1 kl. 14 GJAFAKORT Gjafakort í Borgarleikhúsið, frábær jólagjöf. Gjafakortin gilda endalaust! LISTAFÉLAG ÍSLANDS Leirlistafélag Íslands er hagsmunafélag fagfólks. Frá 1. apríl 2006 merkja félagsmenn verkin sín á þennan hátt. Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Netinu allan sólarhringinn. Kammersveitin Ísafold ásamt Huldu Björk Garðarsdóttur sópran og Ágústi Ólafssyni barítón flytja verk eftir Mahler. Hljómsveitarstjóri: Daníel Bjarnason www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200 6. janúar kl. 17.00 í DUUS - húsum í Keflavík 7. janúar kl. 20.00 í Íslensku óperunni Miðaverð kr. 2.000 - Námsmenn: 2 fyrir 1 Frumsýning fös. 9. feb. kl. 20 - nokkur sæti laus - 2. sýn. sun 11. feb. kl. 20 FLAGARI Í FRAMSÓKN - HALLDÓR ER KOMINN AFTUR! - Nánari upplýsingar á www.opera.is 3. sýn. fös. 16. feb. kl. 20 – 4. sýn. sun. 18. feb. kl. 20 - FÁAR SÝNINGAR - TRYGGÐU ÞÉR MIÐA STRAX Þorláksmessa í Óperunni - Óperukareokí Davíð Ólafsson, óperusöngvari, heldur uppi fjörinu - Húsið opnar kl. 20 Karíus og Baktus – sýnt í Rýminu Lau 30. des kl. 14 örfá sæti laus. Síðasta sýning! Gjafakort – afmælistilboð! Einstakt afmælistilboð í tilefni 100 ára afmælis Samkomuhússins. Gjafakort í leikhúsið er frábær jólagjöf sem lifir. Svartur köttur – forsala hafin Fös 19. jan kl. 19 Forsýn – UPPSELT Lau 20. jan kl. 19 Frumsýn – UPPSELT Næstu sýningar: 21/1, 25/1, 26/1, 27/1. Sala hafin! www.leikfelag.is 4 600 200 Gjafakort - góð jólagjöf Stóra sviðið kl. 20:00 Afgreiðsla er opin kl. 12:30 – 18:00 mán. – þri. Aðra daga kl. 12:30 – 20:00. STÓRFENGLEG! eftir Peter Quilter Lau. 6/1, lau. 13/1 lau. 20/1, lau. 27/1. SITJI GUÐS ENGLAR eftir Guðrúnu Helgadóttur. Leikgerð Illugi Jökulsson. Fös. 29/12 kl. 20:00 uppselt, lau. 30/12 kl. 14:00 uppselt og kl. 17:00 uppselt, lau. 6/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 7/1 kl. 14:00 örfá sæti laus og kl. 20:00, lau. 13/1 kl. 14:00 nokkur sæti laus, sun. 14/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, lau. 20/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 21/1 kl. 14:00 nokkur sæti laus. BAKKYNJUR eftir Evripídes Frumsýning 26/12 uppselt, 2. sýn. mið. 27/12 örfá sæti laus, 3. sýn. fim. 28/12 örfá sæti laus, 4. sýn. fim. 4/1 örfá sæti laus, 5. sýn. fös. 5/1 örfá sæti laus, 6. sýn. fim. 11/1 örfá sæti laus, 7. sýn. fös. 12/1 nokkur sæti laus, 8. sýn. fim. 18/1. LEITIN AÐ JÓLUNUM eftir Þorvald Þorsteinsson Í dag sun. 17/12 kl. 13:00 uppselt, kl. 14:30 uppselt og kl. 16:00 uppselt, fös. 22/12 kl. 13:00 uppselt, lau. 23/12 kl. 13:00 uppselt. Leikhúsloftið SKOPPA OG SKRÍTLA eftir Hrefnu Hallgrímsdóttur Lau. 6/1 kl. 11:00 uppselt, kl. 12:15 og kl. 14:00, sun. 7/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00, lau. 13/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 14/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00 uppselt. Kúlan Smíðaverkstæðið kl. 20:00 PATREKUR 1,5 eftir Michael Druker. Lau. 6/1, lau. 13/1 nokkur sæti laus, lau. 20/1 Ath! Miðaverð aðeins 1.500 kr. fyrir nema gegn framvísun skólaskírteinis. Miðasala í síma 551 1200 og á netinu www.leikhusid.is. Fæst nú á geisladiski í miðasölu Þjóðleikhússins og Hagkaupum. bókasalur: Upplestur Í dag KL 12:15 Einar Hjartarsson Nehéz Blóðrauð rauðrófusúpa á veitingastofu Á MORGUN Steinar Bragi Hið stórfenglega leynarmál Heimsins MEÐ FYRIRVARA UM FORFÖLL FYRR á árinu kom út bókin Ráð við hversdagslegum uppákomum og með henni fagnaði Óskar Árni Óskarsson 20 ára útgáfuafmæli sínu. Nú bætir hann um betur og færir okkur aðra bók á afmælisárinu. Það hefur enginn beinlínis verið að berja á bumbur fyr- ir skáldið Óskar Árna en á þessum tveimur áratugum hefur hann birt 21 bókarkver, frumsamin og þýdd. Vera kann að einhverjir láti blekkjast af hógværð skáldsins og telji jafnframt að sum ljóð þess allt að því renni sam- an við hversdagslífið – enda er Óskar Árni einn af meisturum hversdagsins í íslenskum bókmenntum. Sumir bókatitlar hans votta um þetta, t.d. sá fyrsti, Handklæði í gluggakistunni, eða þá Myrkrið kringum ljósastaur- ana frá 1999, heiti sem leynir á sér og teiknar mikilvæga drætti í borg- armynd skálds og lesenda. Heiti nýju bókarinnar virðist síður ættað úr kvunndeginum. Loftskip. Úrelt farartæki? Ef til vill þá líka kaldhæðin vísun til ljóðsins? Vísun til glæstra áforma fyrri tíma? Eða til ævintýravitundar bernskunnar? Kannski, en fleira býr í heitinu. Myrkrið hefur dýpkað og nú nægja ekki tírur ljósastauranna. Loftskipið er sjálf sólin sem siglir inn á sviðið strax í einkunnarorðum bókarinnar, en þau koma frá portúgalska skáld- inu Fernando Pessoa og tjá gleði yfir að mega enn sjá þetta fyrirbæri sem er í senn hversdagsleiki okkar og undraverk. „Líklega besta bók höfundar til þessa.“ Ef gagnrýnendur hefðu ekki undið allt lífsmark úr þessari umsögn á liðnum árum í viðleitni sinni til að segja eitthvað jákvætt um mjög mis- góð verk ýmissa höfunda, er aldrei að vita nema ég hefði gripið til hennar nú. Óskar Árni er skáldið sem sér að „allt í einu blaktir marglitur þvottur / á snúrum bakgarðanna“; skáldið sem tekur eftir þremur svörtum töskum í snjóum – og rútan nýfarin, kannski eru það töskur finnskra tangódans- ara sem koma til Reykjavíkur í öðru ljóði, „tungl komið á loft / og marrar í snjónum / undan háhæluðum skóm // aðallega rauðum“; og hann er skáldið sem horfir þolinmótt og sér stjörnu „sem var ekki þarna í gær“, finnur skyndilega „lykt af söltu þangi“ og „hvít ský speglast í augum þínum / þau eru gjöf til þín“ eins og segir í ljóðinu „Segl“. Þessi hljóðláti lífsfögnuður kemur lesendum skáldsins ekki á óvart – og hann birtist einnig í örari músík þeg- ar borgin rumskar, börnin hrópa og ljóðlínurnar víbra með malbikinu sem á alveg sérstökum dögum getur jafn- vel orðið „sólheitt“, eins og segir í „Umbreyttum andartökum“. Maður kannast líka við að hafa setið í stræt- isvagni áður með Óskari Árna, en að þessu sinni stefnir vagninn út úr bænum, uns „sér ekki í nóttina / fyrir myrkri“. Myrkrið er víðar á kreiki í ljóðunum, „nótt leggst á hús og menn“ segir í „Innviðum“. Nú er ekki svo að skilja að sólin sé einfalt mótsvar við myrkrinu og hverfulleikanum. Saman myndar allt þetta ljósaskiptin sem eru skáldinu hugleikin, „vegvísar þjóta gegnum ljósaskiptin“ eins og segir í ljóðinu „Í bláu myrkri“, þar sem ljóðmælandi sópar „sólskininu af þökum húsanna“ og kveikir „rauðan glampa í rúðum“. Þetta minnir á iðju málarans, en eitt ljóðið heitir einmitt „Pensilstrokur“ og stendur frábærlega undir nafni. Ljóðin þrjátíu og tvö í Loftskipi má lesa sem „eðlilega“ viðbót við þá heildarmynd höfundarverksins sem Óskar Árni hefur skapað jafnt og þétt á síðustu tveimur áratugum. Í ljóðum sínum bregður hann upp myndum af fegurðinni sem leynst getur í smæð- inni, kímninni, hægferðinni, nægju- seminni: „Hekla í skýjum / póstkortið í sjoppunni / verður að duga“ segir á einum stað. En þótt Óskar Árni geti verið að- skorinn í tjáningu þegar hann vill svo við hafa – eins og sannast hér í örljóð- inu „Draumrof“: „Á hnífsoddinum / blaktir hvít fjöður“ – þá er ekki við hæfi að nýta sér eingöngu viðmið naumhyggjunnar eða fyrri kennileita. Í Loftskipi má finna öfluga og bein- línis glæsilega ljóðlist eins helsta borgarskálds okkar, til dæmis í þremur ljóðum sem hvert um sig fjallar um fernt: fjórar sólir, fjögur skáld og fjórar árstíðir (þar sem á haustin eru garðar sem „fyllast af fálmandi höndum / og síð frakkalöfin sópa / logandi laufi yfir húsin“). Einn- ig vil ég nefna ljóðin „Í bláu myrkri“ og „Söng flautunnar“, upphafsljóðið „Nætur sem daga“ og lokaljóðið „Skýjaborg“ þar sem skáldið ræðir við borgina, þessa borg sem kann góð skil á skáldinu: En ég sé líka í gegnum þig, ímyndaða borg, skýjaborg, þú ert ráðvillt, hvorki gömul né ung, æðir um allar trissur, nýjungagjörn, byrjar hvergi, endar hvergi, með alltof dýr armbönd, alltof fátækar hendur. Þú ert spegillinn minn, bakportið mitt, gluggakistan mín. Myrkur, sól, borg BÆKUR Ljóð Eftir Óskar Árna Óskarsson, Bjartur 2006. Loftskip Ástráður Eysteinsson Morgunblaðið/Einar Falur Loftskip Gagnrýnandi segir Óskar Árna einn af meisturum hversdagsins. smáauglýsingar mbl.is mbl.is ókeypis smáauglýsingar Fréttir í tölvupósti Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.