Morgunblaðið - 17.12.2006, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2006 69
menning
GHOSTIGITAL á frönsku. Beta
Band í baði. Gusgusgusgus. Laug-
ardagsmorgunn með Afa. Til að
lýsa tónlist Helmus und Dalli
verður að grípa til fáránlegra lýs-
inga vegna þess að tónlistin er …
fáránleg! Þúsundþjalasmiðirnir
Helgi Svavar og Davíð Þór hafa
leikið inn á fjölda platna síðustu
ár, flestar þeirra djassplötur, en
einnig eru þeir í hljómsveitinni
Benna Hemm Hemm svo dæmi sé
tekið. Með Helmus und Dalli fá
þeir útrás fyrir hugmyndir sem
hafa ekki passað annars staðar:
Þeir fá vini sína með sér, opna
(líklegast) nokkra bjóra, og
skemmta sér ærlega. Útkoman er
Drunk Is Faster.
Platan er í grunninn einhvers
konar hipp-hopp- og/eða dans-
tónlistarbræðingur þar sem kjána-
legir hljóðbútar og furðuraddir
spila lykilrullu. Þá er neðanbelt-
ishúmor þó nokkuð áberandi, og
yfirleitt mjög fyndinn. Dæmi: Í
einu besta lagi plötunnar, „Trying
My Best“, eru angurværir píanó-
hljómar spyrtir saman við R’n’B-
raddir, dynjandi hústakta og fönk-
að hljóðgervilssóló. Það sem „ger-
ir“ þó lagið er ógleymanleg
frammistaða Jasons nokkurs sem
lýsir ásetningi sínum við unga
stúlku á sprenghlægilegri blöndu
af íslensku og ensku.
Í „Deep-Fried Monkey“ er skipt
úr „Dry the Rain“ með Beta Band
(eða tvíbura þess) yfir í söng am-
erísks sveitalubba og aftur til
baka á nokkrum sekúndum.
Teiknimyndahljóð mynda takt-
grunninn í „Mr. Ritz“ og þar á
áhugarapparinn MC Leibbidjazz
gríðarlega góða innkomu eins og í
fleiri lögum, t.d. „Ice Cream“.
Fönkgítar í „Freaky Design“
brýtur upp „óhljóða-hopp“ og fær-
eysku (?) svo úr verður góð
stemning. Söngur í „Touch Body
Dance“ er ómótstæðilegur og gít-
arsóló (eða er þetta hljóðgervill?)
bindur lagið skemmtilega saman.
Upphafslagið „Broken Heart“ er
eitt fárra eiginlegra „laga“ með
áþreifanlegum hljómagangi, rök-
réttri byggingu, laglínu o.s.frv.
Hér blómstra Helmus und Dalli í
hipp-hopp-grúvi með fönkuðum
bassa, gormahljóðum og kór.
Eins og sjá má af ofangreindu
er platan eins konar klippimynd,
hljóðin koma héðan og þaðan og
er púslað saman í eina nær órofa
fimmtíu mínútna heild. Yfirleitt
tekst lögunum ekki að höfða til
manns sem slík, heldur sigtast at-
riði héðan og þaðan úr plötunni
allri og sitja eftir ein og sér í
heilavefjunum að hlustun lokinni.
Ég efast ekki um að það hafi verið
gaman að gera þessa plötu, lífs-
gleðin skín í gegn (umslagið á
ekki lítinn þátt í því), og þó að
hugurinn fyllist vissulega af alls
konar skemmtilegum pælingum
hefðu Helmus und Dalli eflaust
haft gott af örlítilli ritstjórn svona
rétt til að koma böndum á sjarm-
ann.
Sigtað í heilavefinn
TÓNLIST
Geisladiskur
Öll lög eru eftir Helmus (Helga Svavar
Helgason) und Dalli (Davíð Þór Jónsson),
nema „Mr. Ritz“ sem er eftir Helmus,
Dalla og DJ Magic (Gísla Galdur Þorgeirs-
son). President Bongo, The Rally Horns,
MC Leibbidjazz, Róbert Sturla, Youseff,
Pink Lloyd, MC Búi, Earth, Jason, Valid
Lilko (Tap Specialist), Irene, Rakel,
Svenbest, Skítaguttinn og Dilbert koma
einnig við sögu. Platan var tekin upp á
Háaleitisbraut 41, í Klink&Bank og Flís
stúdíói. Hljómblöndun og hljómjöfnun var
í höndum Helmus und Dalli og Finns Há-
konarsonar. Bjarni Grímsson tók myndir
og Linda Loeskow teiknaði og hannaði
umslag. Smekkleysa gefur út. 13 lög,
51:39.
Helmus und Dalli – Drunk Is Faster
Atli Bollason
Dmitri Hvorostovsky í Háskólabíói 20. maí
Miðaverð: 5.900 / 6.400
San Francisco ballettinn undir stjórn
Helga Tómassonar í Borgarleikhúsinu
16.– 20. maí
Tvennutilboð á barítónana
út desember
Á hátindi frægðar sinnar Tveir fremstu barítónar heims
Miðaverð: 4.800
Sýningarnar eru samstarfsverkefni Listahátíðar
í Reykjavík og Borgarleikhússins
Miðaverð: 11.800
Takmarkaður sætafjöldi
Nánari upplýsingar
á www.listahatid.is
Bryn Terfel í Háskólabíói 21. maí
Miðaverð: 5.900 / 6.400
San Francisco ballettinn, Hvorostovsky og Terfel á Listahátíð í vor
Glæsileg hátíðargjöf!
Miðasala á www.listahatid.is og í síma 552 8588
Söngkonan fagra BeyonceKnowles segir að þegar hún
stígur á svið breytist hún í aðra
manneskju en hún er í raun og
veru, en þessa manneskju kallar
hún Söshu. „Mér myndi ekki líka
vel við Söshu ef ég hitti hana ann-
ars staðar en á sviðinu,“ segir
Beyonce. „Hún er of ákveðin, of
sterk, of kynþokkafull. Ég er ekk-
ert lík henni í raunveruleik-
anum.Ég er ekki með svona mikið
sjálfstraust og algjörlega óttalaus
eins og hún,“ segir hin 25 ára gamla
söngkona. „Ég skapaði þessa per-
sónu til þess að vernda sjálfa mig.
Þegar ég kem heim þarf ég ekki
lengur að hugsa um það sem ég
geri að atvinnu. Sasha er ekki ég.
Fólkið sem umgengst mig daglega
veit hver ég er.“ Beyonce sem hóf
ferilinn í stúlknasveitinni
Destiny’s Child leikur aðal-
hlutverkið í kvikmyndinni Dreamg-
irls sem nú er sýnd í kvikmynda-
húsum í Bandaríkjunum.
Hótelerfinginn Paris Hilton hef-ur neitað fregnum þess efnis
að hún noti eiturlyf.
Orðrómur komst á kreik þegar
myndir náðust af stúlkunni á förn-
um vegi í New York, en á mynd-
unum virtist hún vera með eitthvað
hvítt á nefinu. Myndirnar birtust í
dagblaðinu The New York Daily
Post og þar var gefið í skyn að Hil-
ton notaði kókaín. Elliot Mintz,
talsmaður hennar, neitar þessu
hins vegar alfarið. „Þeir spurðu
mig hvort hún notaði kókaín og ég
sagði þeim að hún notaði engin eit-
urlyf. Þá spurðu þeir hvaða efni
þetta gæti verið og ég sagði þeim
að ég hefði ekki verið þarna og vissi
það því ekki. En ég gaf þeim nokkr-
ar hugsanlegar skýringar,“ sagði
Mintz. Aðspurð sagði Mintz hugs-
anlegt að Hilton muni höfða mál á
hendur blaðinu vegna þessa.
Fólk folk@mbl.is