Morgunblaðið - 17.12.2006, Blaðsíða 70
70 SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
UNIFEM á Íslandi fagnarþví á morgun, mánudag,að liðin eru 30 ár frástofnun UNIFEM, þró-
unarsjóðs Sameinuðu þjóðanna í
þágu kvenna, og 17 ár frá því UNI-
FEM á Íslandi var stofnað.
Sjöfn Vilhelmsdóttir er fram-
kvæmdastýra UNIFEM á Íslandi:
„UNIFEM hefur umboð Sameinuðu
þjóðanna til að styðja verkefni sem
stuðla að bættri stöðu kvenna, og
beinist starfsemi sjóðsins einkum að
konum í þróunarlöndum og á átaka-
svæðum,“ segir Sjöfn. „Meðal annars
leitast UNIFEM með starfi sínu við
að efla efnahagslegt öryggi kvenna,
draga úr fátækt meðal þeirra, og efla
þátttöku kvenna í pólitískri stefnu-
mótun og ákvarðanaferli. Á síðustu
árum hefur UNIFEM einnig beint
sjónum sínum að þátttöku kvenna í
friðarumleitunum og uppbyggingu í
kjölfar átaka, t.d. á Balkanskaga.
Umfram allt berst UNIFEM fyrir
því að mannréttindi kvenna séu virt
og öll mismunun gegn konum afnum-
in, en í því felst m.a. að vinna gegn
hverskyns kynbundnu ofbeldi.“
Landsnefndir UNIFEM starfa
víða um heim: „Landsnefnd UNI-
FEM á Íslandi eru frjáls fé-
lagasamtök sem hafa það að mark-
miði að kynna og auka áhuga
almennings á starfsemi UNIFEM,
vera málsvari kvenna í þróun-
arlöndum og átakasvæðum á op-
inberum vettvangi, og afla fjár-
framlaga til starfsemi UNIFEM,“
segir Sjöfn, en sjóðurinn er háður
frjálsum framlögum aðildarríkja SÞ
og stuðningi fyrirtækja og ein-
staklinga.
„Það er því miður alls ekki sjálf-
gefið að þróunarfé sé varið í verkefni
sem huga sérstaklega að málefnum
kvenna eða jafnrétti kynjanna, og
hefur mikið af kröftum UNIFEM á
Íslandi beinst að því að auka framlög
íslenska ríkisins til þróunarverkefna
á vegum UNIFEM, og hafa sam-
tökin átt mjög gott samstarf við ut-
anríkisráðuneytið,“ bætir Sjöfn við.
Af öllu því fjármagni sem varið var
til þróunaraðstoðar í heiminum árið
2003 fóru aðeins 4% til verkefna sem
höfðu jafnréttismál meðal mark-
miða, og aðeins hálft prósent fór í
verkefni sem helguð voru jafnrétt-
ismálum: „Öll rök mæla með því að
auka hlut verkefna sem lúta að jafn-
rétti og málefnum kvenna,“ segir
Sjöfn. „Bæði fræðimenn, sem og þeir
sem starfa við þróunarhjálp við-
urkenna að í dag er besta leiðin til að
takast á við flest þau vandamál sem
hrjá þróunarlöndin að fjárfesta í
menntun kvenna, heilsu þeirra og
réttindum. Þá eru ónefnd siðferð-
isleg rök fyrir því að sinna málefnum
kvenna sérstaklega og rétta hlut
þeirra, en konur eiga t.a.m. aðeins
1% eigna í heims, þær fá aðeins 10%
heimstekna í sinn hlut og þriðja hver
kona verður einhvern tíma á lífsleið-
inni fórnarlamb kynbundins ofbeld-
is.“
UNIFEM á Íslandi býður alla fé-
lagsmenn velkomna í húsakynni
samtakanna í Miðstöð Sameinuðu
þjóðanna, Laugavegi 42, á morgun
mánudag milli kl. 17 og 19. Boðið
verður upp á jólaglögg og pip-
arkökur við bókaupplestur, farsælu
starfsári fagnað og kynnt verður ný-
útkomið árlegt tímarit UNIFEM á
Íslandi.
Jafnréttismál | Jólaglögg og bókaupplestur
hjá UNIFEM á mánudag milli 17 og 19
30 ár liðin frá
stofnun UNIFEM
Sjöfn Vil-
helmsdóttir
fæddist á Ísafirði
1970. Hún lauk
stúdentsprófi frá
MÍ 1990, BA-
námi í stjórn-
málafræði frá HÍ
1996 og MA-námi
í alþjóðafræðum
frá Háskólanum í Denver 1999.
Sjöfn starfaði lengi fyrir Þróun-
arsamvinnustofnun Íslands, m.a.
sem verkefnastjóri í Namibíu. Hún
var sjálfstætt starfandi ráðgjafi við
þróunarsamvinnu þar til hún tók
við starfi framkvæmdastýru UNI-
FEM í júlí á þessu ári.
Kalvin & Hobbes
GEIMFARINN, SPIFF,
NÁLGAST ÓVINASKIPIÐ
VERANDI ÓNÁTTÚRULEGA
HEIMSK, ÞÁ VEIT VERAN
EKKERT AF KOMU HANS
HANN RÆSIR BYSSURNAR
OG MIÐAR Á ÓVIÐBÚINN
ANDSTÆÐINGINN...
FRÚ
ORMSSON?
VARÚÐ!
RISAVAXIÐ
ÓVINASKIP
NÁLGAST
Kalvin & Hobbes
VÁ! ÖNNUR
HOLA Í HÖGGI
Kalvin & Hobbes
VÁ! ÞRJÚ NÝ TÍMARIT
HANDA MÉR Í DAG!
ÞAÐ ER SVO GAMAN AÐ FÁ
NÝ BLÖÐ! ÉG FÉKK FIMM
BLÖÐ Í GÆR
AF HVERJU ERTU
AÐ FÁ ÖLL ÞESSI
TÍMARIT SEND HEIM?
ÉG FÓR Á BÓKASAFNIÐ Í GÆR
OG FYLLTI ÚT ÖLL BLÖÐIN
SEM MAÐUR FINNUR Í MIÐJU
TÍMARITINU OG MERKTI VIÐ
“FÁ REIKNING HEIM”
Litli Svalur
© DUPUIS
JÆJA, NJÁLL
UNDIRFORINGI,
HVERNIG GENGUR
AÐ GRAFA
GÖNGIN?
GRÖFTURINN GENGUR
HRATT OG ÖRUGGLEGA.
GÁÐU BARA SJÁLFUR
FORINGI
SKAL GERT.
SÝNDU MÉR
LEIÐINA
SKAL
GERT!
ÖÖÖ... MAMMA ÞÍN
HEFUR ÖRUGGLEGA
VARAÐ ÞIG VIÐ ÞVÍ AÐ
GRAFA GÖNG
HAFÐU ENGAR ÁHYGGJUR
FORINGI, GÖNGIN ERU
STYRKT MEÐ STÓLPUM
MÉR SÝNIST VERKIÐ VERA Á
UNDAN ÁÆTLUN. ÉG SKAL
HJÁLPA ÞÉR UNDIRFORINGI
SAMKVÆMT MÍNUM
ÚTREIKNINGUM EIGUM
VIÐ EINUNGIS FÁEINA
SENTÍMETRA EFTIR
ÞEIR ERU ALLTAF ÞEIR
ERFIÐUSTU. TIL ÞESS AÐ
SIGRAST Á ÞEIM ÞURFUM
VIÐ VIÐEIGANDI VERKFÆRI
SVO SANNARLEGA. VIÐ ÞURFUM
ÖFLUGA SKÓFLU TIL ÞESS AÐ
SIGRAST Á ÞESSUM SÍÐASTA
ÁFANGA
ÉG SKAL SJÁ
UM ÞAÐ.
HÉRNA
KEMUR HÚN
HÉRNA FORINGI. ÞETTA
VERÐUR SÖGULEG STUND.
RYDDU VEGIN FYRIR OKKUR!
VIÐ VERÐUM AÐ VERA
REIÐUBÚNIR. ÞETTA ER
ÓVÆNT INNKOMA Í BÚSTAÐ
ÓVINARINS
EINN...
TVEIR...
OG...
ÞRÍR!! BÚMM!!
Leikkonan Cameron Diaz semer kærasta popparans Justin
Timberlake hefur viðurkennt að
hún laðist stundum kynferðislega
að öðrum konum. Hún skammast
sín hins vegar ekkert fyrir það.
„Ég elska konur og mér finnst
þær frábærar og fallegar.“ Að-
spurð sagðist hún meira að segja
hafa orðinn mjög hrifin af þekktri
kynbombu þegar hún var á sínum
unglingsárum. „Ég var alveg rosa-
lega skotin í Pamelu Anderson,“
sagði hún. „Og ég er það raunar
enn, hún er ennþá alveg rosalega
flott,“ sagði Diaz í samtali við
tímaritið Advocat. Engar fregnir
hafa hins vegar borist af því
hversu ánægður kærastinn er með
þessar yfirlýsingar hennar.
Kynbomban Anna Nicole Smithkom fyrir rétt í San Franc-
isco á föstudaginn þar sem rétt-
arhöld um arf fyrrverandi eig-
inmanns hennar héldu áfram.
Smith er nýkomin til Bandaríkj-
anna eftir að hafa dvalið á Ba-
hama-eyjum þar sem hún fæddi
dóttur og þar sem Daniel, tvítug-
ur sonur hennar lést.
Smith heldur því fram að
J. Howard Marshall, eig-
inmaður hennar fyrrverandi, hafi
ætlað sér eitthvert fé eftir sinn
dag, en hvergi er á hana minnst í
erfðaskrá hans. Marshall lést árið
1995, níræður að aldri. Þau gengu
í hjónaband árið áður, þegar
Smith var 26 ára gömul.
Fólk folk@mbl.is