Morgunblaðið - 17.12.2006, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2006 71
menning
Fréttir á SMS
FUTURE Future er hressandi
rokkhljómsveit sem spilar metn-
aðargjarna tónlist sem er líka
skemmtileg. Ýmis áhrif er að
greina og þá sérstaklega seiðandi
harðkjarna undir frekar fáguðu
yfirborði nýstárlegrar rokk-
tónlistar.
Umslag geisladisksins er ótrú-
legt. Á því (og reyndar í meðfylgj-
andi bæklingi líka) er mjög graf-
ísk mynd af innyflum. Ég verð að
segja að þetta er eitt af því ógeðs-
legasta sem ég hef séð á sama
tíma og það er glæsilega unnið.
Mjög áhrifaríkt.
En þetta er engin myndlist-
argagnrýni og því vil ég minnast
aðeins á framsetningu tónlistar
Future Future. Mér finnst það
alltaf athyglisvert þegar ráðist er
í gerð alvarlegra rokkplatna. Það
krefst mikils kjarks vegna þess að
það er mjög erfitt að gera það vel.
Hættan á tilgerð er mikil. Stund-
um tekst Future Future að leysa
verkefnið vel en stundum fara þeir
alveg yfir strikið og verða svolítið
klisjukenndir. Málið er að það
virðist samt sem áður vera mark-
miðið. Það er eins og Insight sé
tilraun til þess að gera frekar
staðlaða rokkplötu en að leika sér
innan þeirra viðja og athuga
hversu mikið sé hægt að teygja
formið.
Hljómur plötunnar er furðu
kunnuglegur á köflum, mér fannst
ég kannast við mörg gítarriff og
skiptingar. Söngurinn er þræl-
merkilegur. Hann er allt á milli
stórkostlegs og ægilegs. Stundum
er hann svo vondur að hann hrein-
lega eyðileggur lögin en við önnur
tækifæri er hann hrikalega flottur
og rennur vel saman við tónlistina.
Málið er þetta: Í þeim lögum
og/eða bútum úr þeim sem Future
Future tekst að láta dæmið ganga
upp eru þeir þrælfínir. Sér-
staklega þegar þeir missa sig í
harðkjarnann. Þegar þeim tekst
það ekki verður tónlistin krað-
aksleg og þvæld. Engu að síður
ágætisplata sem þjónar sínum stíl
ágætlega.
Geisladiskur
Future Future – Insight
Helga Þórey Jónsdóttir
Sérstakir „Söngurinn er þrælmerkilegur. Hann er allt á milli stórkostlegs og ægilegs.“
Geislaplata Future Future nefnd Insight.
Í FutureFuture eru Eiður Steindórsson,
Sigurður Oddsson, Brynjar Konráðsson
Árni Hjörvar Árnason og Arnar Ingi Við-
arsson. Tónlistin er eftir þá sjálfa. Hljóð-
ritað af Didda og Eiði Steindórssyni.
Upptökustjórn var í höndum Didda og
Eiðs Steindórssonar. Upptökur fóru f
ram í Hljóðrita og Egginu. Diddi sá
um tónjöfnun en hún fór fram í Rauða
torginu. Future Future gefa sjálfir út.
12 Tónar sjá um dreifingu.
Þveginn harðkjarni
TÓNLIST
Smáralind, sími 5288800, www.drangey.is
Harðar - fisléttar
- sterkar
Léttustu ferðatöskurnar!
®
75x57x34 4kg
kr. 17.900
62x47x28 3,2kg
kr. 15.500
53x37x23 2,4kg
kr. 8.500
5 ára ábyrgð!
Um allan heim bíða lesend-
ur í ofvæni eftir hverri nýrri
bók metsöluhöfundarins
Mary Higgins Clark.
Sem fyrr fer þessi vinsæli
höfundur á kostum og
má fullyrða að nýja bókin
hennar „Heima er engu
öðru líkt“ gefur fyrri
bókum hennar ekkert
eftir.
Alþjóðlegur
metsöluhöfundur:
Mörkinni 1 • Sími 588 24 00
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Vinsælustu
gjafakortin
Opið í dag frá kl. 12-18
Dansk julegudstjeneste
holdes i domkirken, søndag den 24. december 2006 kl. 15.00
ved pastor
Þórhallur Heimisson.
Kgl. Dansk Ambassade, Reykjavik.
Dönsk jólaguðsþjónusta
verður haldin í Dómkirkjunni á aðfangadag, 24. desember
kl. 15.00.
Prestur verður séra Þórhallur Heimisson.
Kgl. Dansk Ambassade, Reykjavík.