Morgunblaðið - 17.12.2006, Qupperneq 79
Bænasafn heimilanna er að finna í þessari fallegu
bænabók. Hún veitir ómetanlega leiðsögn þeim sem
vilja fræðast um bæn og þroska trúarlíf sitt.
Hér getur hver og einn fundið við sitt hæfi bænir í
önnum hversdagsins, í gleði og sorg, nýjar og gamlar,
kunnar og óþekktar. Karl Sigurbjörnsson biskup vefur
hér saman fortíð og nútíð, reynsluheimi kynslóðanna
og veruleika nútímafólks. Þessi bók ætti að vera til á
hverju heimili.
Bókin er hönnuð af myndlistarkonunum Björgu
Vilhjálmsdóttur og Höllu Sólveigu Þorgeirsdóttur.
Bæn úr Bænabókinni:
Þarfnast þú handa minna, Drottinn,
til að geta hjálpað sjúkum,
fátækum og nauðstöddum?
Drottinn, í dag vil ég gefa þér hendur mínar.
Þarfnast þú fóta minna, Drottinn,
til að geta vitjað þeirra,
sem einmana eru og án vonar?
Drottinn, í dag vil ég gefa þér fætur mína.
Þarfnast þú vara minna, Drottinn,
til að geta talað til allra þeirra,
sem þrá kærleiksríkt orð og viðmót?
Drottinn, í dag vil ég gefa þér varir mínar.
Þarfnast þú hjarta míns, Drottinn,
að geta elskað
skilyrðislaust sérhvern mann?
Drottinn, í dag vil ég gefa þér hjarta mitt.
(Móðir Theresa)
Kirkjuhúsið - Skálholtsútgáfan Laugavegi 31 Sími: 552 1090 og 562 1581
Netfang: skalholtsutgafan@skalholtsutgafan.is www.skalholtsutgafan.is
KIRKJUHÚSIÐ - BÓKABÚÐ Á KRISTNUM GRUNNI
BÆNABÓKIN
“Hííííí-eróóóóónýmus! Hííííí-
eróóóóónýmus!“ hrópar Pétur
við dyr himnaríkis. Það heyrist
greinilega að hann er reiður…
Litli engillinn, hann Híerónýmus,
er mikill prakkari. Hann eltist við
himneskar kindur, týnir lyklinum að
hliði himnaríkis og truflar kórsöng
himinsins. Hvernig ætti slíkur engill
að geta orðið góður verndarengill?
Dag nokkurn fær Híerónýmus
verðugt verkefni og sekkur sér ofan
í það ...
VERNDARENGILL LEYSIR MÁLIÐ
Fást í Kirkjuhúsinu og öllum helstu bókaverslunum
Höfundur er Karl Sigurbjörnsson, biskup.