Morgunblaðið - 18.12.2006, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2006 15
Jólaþjónusta starfsfólks
Jól í görðunum
Á jólum kemur fjöldi fólks í Fossvogskirkjugarð, Gufuneskirkjugarð og
Hólavallagarð við Suðurgötu til þess að huga að leiðum ástvina sinna. Við
munum leitast við að leiðbeina ykkur eftir bestu getu. Hægt er að nálgast
upplýsingar um staðsetningu leiða á vefnum: gardur.is
Þjónustusímar 585 2700 og 585 2770
Aðalskrifstofan í Fossvogi, sími 585 2700 og skrifstofan í Gufunesi, sími
585 2770, eru opnar á Þorláksmessu og aðfangadag frá kl. 9.00 til 15.00.
Þar veitum við upplýsingar, gefum leiðbeiningar um aðhlynningu leiða og
afhendum ratkort ef þörf krefur.
Þjónusta á Þorláksmessu og aðfangadag
Á Þorláksmessu og aðfangadag, milli kl. 9:00 og 15:00, verða starfsmenn
Kirkjugarðanna á vettvangi og taka á móti ykkur og leiðbeina að leiðum.
Fossvogskirkja verður opin á aðfangadag frá kl. 10:00 til 15:00.
Tilkynning frá Kirkjugörðum
Reykjavíkurprófastsdæma
Gleðilega jólahátíð
Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma
www.kirkjugardar.is
NÆR 250 milljónir barna, eða sextán
af hundraði barna í heiminum, hafa
verið hnepptar í vinnuþrælkun eða
stunda vinnu sem brýtur í bága við al-
þjóðlegan sáttmála um réttindi barna
og alþjóðareglur um vinnuvernd.
Nær þrír fjórðu þessara barna vinna
við hættulegar aðstæður, til að
mynda í námum eða verksmiðjum,
eða þurfa að nota hættuleg efni við
vinnuna, að því er fram kemur á vef-
setri UNICEF, Barnahjálpar Sam-
einuðu þjóðanna.
Að minnsta kosti 120 milljónir
barna eru í fullri vinnu alla daga, að
mati Alþjóðavinnumálastofnunarinn-
ar (ILO). Langflest þeirra starfa við
landbúnað og hefur hlutskipti þeirra
vakið minni athygli á alþjóðavísu en
hinna sem starfa í verksmiðjum.
Mörg börn vinna sem heimilishjú,
börn í borgunum eru í verslunar- og
þjónustustörfum, færri í verksmiðju-
störfum eða byggingarvinnu.
Mannréttindavaktin (Human
Rigths Watch) segir að mörg
barnanna geti ekki gengið í skóla
vegna vinnunnar og þau séu svipt
eðlilegri æsku. Sum þeirra eru lokuð
inni, barin og hneppt í þrældóm. Sum
eru svipt ferðafrelsinu og fá ekki að
fara heim til sín af vinnustaðnum.
Mörg barnanna vinna of lengi á
hverjum degi, of marga daga, fyrir of
lítil ef nokkur laun, sæta misþyrm-
ingum, eru berskjölduð gagnvart eit-
urefnum, t.d. skordýraeitri, og þurfa
að nota of hættuleg verkfæri eða
tæki.
Heilsuspillandi vinna
Vinnan veldur oft börnunum var-
anlegum heilsuspjöllum. Langvar-
andi vinna við teppavefstóla hefur til
að mynda valdið augnskaða, lungna-
sjúkdómum og vanþrifum, auk þess
sem börnunum er hættara við liða-
gigt þegar þau eldast. Börn sem búa
til silkiþræði á Indlandi fá brunasár
og blöðrur á hendurnar þegar þau
dýfa þeim í sjóðandi vatn, þau anda
að sér hættulegum reyk eða gufu frá
vélum, handleika dauða orma sem
geta valdið sýkingum og fá sár á fing-
urna af silkiþráðunum, svo dæmi séu
tekin.
Um 61% umræddra barna búa í
Asíulöndum, 32% í Afríku og sjö af
hundraði í Rómönsku Ameríku. Bent
er á í skýrslu ILO að í sumum til-
fellum geti vinna barns komið því að
gagni eða fjölskyldu þess, það geti
verið jákvæður þáttur í uppeldi barns
að vinna sér inn tekjur. Mestu skipti
hver aldur barnsins sé, hvernig
vinnuaðstæðurnar séu og jafnframt
hvort vinnan hindri barnið í að ganga
í skóla.
Nær 250 milljónir
barna í vinnuþrælkun
! " "
# "
$ %!% ! "&' " %
"
() * %
""& (+,-./0(
&
$ $ &' "
!" #$% &'%(
*12,3-,,+42567+,
*12,308#2--,,+
) %
%* +
!"
#
$ ! &'
()$
*+,,,
*-
./'
01+*2+3,4
#
,51+()$
6'
*)
#
$7-(
/'
!
"
#$
%
!
&' #$
!(#
)!$*$
##
&' $
+,+--
%
(.&
!
% 8
9
!
9
.::
0 ) $
.:&;&
, - .
$+/ * +
. 01
Oft berskjölduð
gagnvart eitur-
efnum og látin
nota hættuleg
verkfæri
Róm. AFP. | Ítölsk stjórnvöld ætla í
samstarfi við tískufyrirtæki að
setja reglur sem miða að því að sýn-
ingarstúlkur reyni ekki að grenna
sig svo mjög að þær skaði heilsuna.
Ráðherra æskulýðsmála, Giov-
ana Melandri, sagði að ætlunin væri
að hefja aftur til virðingar hefð-
bundna „Miðjarðarhafsfegurð“.
Brasilíska fyrirsætan Ana Carolina
Reston lést af völdum lystarstols í
nóvember, hún var 174 sm og 40
kíló. Fyrirsæta sem er 174 sm að
hæð og 53 kíló að þyngd fær fram-
vegis ekki að taka þátt í sýningum,
hún verður að þyngja sig.
Fyrirsætur
eiga að fita sig
Kabúl. AFP. | Afgönsk stjórnvöld
vöruðu í gær bændur við því að þau
myndu grípa til þess ráðs að láta
dreifa eyðandi efnum yfir valmúa-
akra ef ekki fyndust önnur ráð til
að stöðva framleiðslu á hráefni í
fíkniefni. Var það ráðherra fíkni-
efnavarna, Habibullah Qaderi, sem
skýrði frá þessu í gær.
Ráðherrann tók hins vegar fram
að efnunum yrði ekki dreift úr lofti
eins og gert hefur verið í Kólumbíu
í Rómönsku Ameríku til að eyða
kókalaufum. Afganistan hefur á
þessu ári framleitt um 6.100 tonn af
ópíum eða um 90% heims-
framleiðslunnar.
Hóta að eyða
valmúaökrum