Morgunblaðið - 18.12.2006, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2006 17
VESTURLAND
Eftir Guðrúnu Völu Elísdóttur
gve@ismennt.is
NÝLEGA samþykkti bæjarráð
Akraness tillögu félagsmálaráðs
um að gera samkomulag við Akra-
nesdeild Rauða kross Íslands um
þjónustu við útlendinga sem bú-
settir eru á Akranesi. Á næstunni
verður komið upp þjónustumiðstöð
um málefni útlendinga í Rauða-
krosshúsinu við Þjóðbraut.
Þar munu útlendingar geta leit-
að allra nauðsynlegra upplýsinga á
einum stað, svo sem um húsnæðis-
mál, dvalar- og atvinnuleyfi,
heilsugæslu, aðgengi að íslensku-
námi, réttindi og skyldur á vinnu-
markaði, mannréttindi og fleira.
Gegn fordómum
Anna Lára Steindal, verkefn-
isstjóri hjá Akranesdeildinni, segir
að ætla megi að um 200 ein-
staklingar af erlendum uppruna
séu búsettir á Akranesi.
,,Aðlögun þeirra að nýju sam-
félagi veltur að verulegu leyti á
því hvernig sveitarfélagið gerir
þeim kleift að nýta hæfileika sína
til þess að vera fullgildir og sjálf-
stæðir þátttakendur á öllum svið-
um þjóðfélagsins. Það er því brýn
þörf fyrir svona þjónustu enda er
það okkur öllum í hag að aðlögun
fólks af erlendum uppruna sé far-
sæl.“
Í nóvember sl. unnu sjálf-
boðaliðar verkefni sem þeir köll-
uðu „Gegn fordómum“. Þeir fóru
um Akranesbæ, í leik- og grunn-
skólana, í fjölbrautaskólann og á
ýmsa staði þar sem fólki var boðið
að þrykkja handarfari sínu á dúk
sem táknrænt merki þess að það
tæki afstöðu gegn fordómum.
,,Þetta vakti athygli,“ segir
Anna Lára ,,og flestir tóku þessu
vel en einstaka manneskja vildi
ekki taka þátt. Við kynntum þetta
þannig að fordómar gætu birst í
ýmsum myndum; gegn fólki sem
er á einhvern hátt öðruvísi en
„normið“ og við lögðum áherslu á
að til að minnka fordóma væri
nauðsynlegt að bera virðingu hvert
fyrir öðru og leyfa öllum að njóta
sín á eigin forsendum án þess að
dæma. Dúkarnir hafa verið
strengdir á ramma og hanga m.a.
á Sjúkrahúsinu á Akranesi,“ segir
Anna Lára.
Hún segir að strax verði byrjað
í janúar að vinna með málefni út-
lendinga. Reiknað er með að auka
þurfti starfshlutfall við deildina í
byrjun um 25%.
Alþjóðlegt matarboð
,,Annars er alveg fullt að gera
hjá okkur, við fjölgum sjálf-
boðaliðum eftir áramót. Við sömd-
um við fjölbrautaskólann um sjálf-
boðaliðanám, þannig að nemendur
sem í það fara koma í sjálf-
boðaverkefni hjá okkur og fá ein-
ingu fyrir. Við höfum líka verið að
fá fólk í verkefni hingað inn, t.d.
að gera jólapakka fyrir fátæk börn
en það kom mér sorglega á óvart
að komast að því að um 40 börn
hér á Akranesi fá ekki aðrar jóla-
gjafir en þær sem við útbýtum.
Nýlega var svo jólakortaföndur
fyrir bæjarbúa hérna, en kortin
eru svo send til þeirra sem við vilj-
um gleðja um jólin,“ segir Anna
Lára.
Í desember var haldið alþjóðlegt
matarboð í húsnæði Rauða kross-
ins. ,,Við vildum með þessu reyna
að ná til útlendinganna hér og
kynna þeim starfsemi okkar, ekki
síst þar sem við erum að taka við
þjónustu við þá. Alþjóðlega mat-
arboðið var þannig kynnt að allir
væru velkomnir, þó sérstaklega
þeir sem væru af erlendum upp-
runa og byggju á Akranesi. Þetta
væri gott tækifæri til að hitta nýtt
fólk og kynnast öðrum menningar-
heimum. Fólk var beðið að koma
með eitthvað matarkyns með sér
til að leggja á sameiginlegt hlað-
borð,“ segir Anna Lára sem telur
matarboðið hafa heppnast mjög
vel þó að þau hefðu vissulega von-
ast til að sjá fleiri. Það komi bara
næst. Á hlaðborðinu mátti m.a að
líta ungverskt buff, indverskan
pottrétt, filippseyskar hveitibollur
og nokkra sviðakjamma sem
Sveinn Kristinsson bauð upp á.
„Ég segi nú ekki að þetta sé við-
bjóður,“ segir Pauline McCarthty
um sviðakjammann sem hún
gæddi sér á í matarboðinu. Henni
fannst augað sérstaklega óvið-
kunnanlegt undir tönn og skinnið
fitugt. Pauline er skosk en hefur
búið á Íslandi í 14 ár en einungis
fáeina mánuði á Akranesi og líkar
það afskaplega vel. ,,Ég frétti að
hér væru bestu skólar landsins og
ákvað strákanna minna vegna, sem
eru 9 og 13 ára, að flytja hingað
og sé ekki eftir því,“ segir Pauline.
Allra hagur að aðlögun útlendinga
að nýju samfélagi sé farsæl
RKÍ Anna Lára Steindal er verkefnisstjóri Akranesdeildarinnar. Hún ætlar
að um 200 einstaklingar af erlendum uppruna séu búsettir í bænum.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Matarboð Pauline McCarthy frá Skotlandi hefur búið á Íslandi í 14 ár. Hún
bragðaði á sviðakjömmum í matarboði Rauða krossins á Akranesi nýlega.
Akranesdeild Rauða
kross Íslands hefur
unnið ötullega að mál-
efnum innflytjenda á
Akranesi en á næstunni
verður komið upp þjón-
ustumiðstöð um mál-
efni útlendinga í
Rauðakrosshúsinu.
Mývatnssveit | Í tengslum við jóla-
sveinaverkefnið í Mývatnssveit hef-
ur verið starfrækt pósthús á Skútu-
stöðum nokkur undangengin jól við
vaxandi vinsældir.
Nú hefur þessi starfsemi fengið
varanlega aðstöðu og jólaland í
versluninni Seli. Þar verður hægt að
skrifa jólakveðjur hvenær sem er á
árinu og stinga þeim í póstkassa, og
kasta þannig kveðju á vini og ætt-
ingja í fjarlægum lands- og heims-
hlutum.
Þaðan fer síðan pósturinn ekki af
stað til viðtakanda fyrr en líður að
næstu jólum. Þannig gefst fólki
tækifæri til að senda sjálfu sér eða
öðrum jólakveðju með löngum fyr-
irvara.
Á Skútustöðum var bréfhirðing á
árum áður með sérstakan póststimp-
il. Það lætur að líkum að hér þarf
ábyrgan og öruggan póstmeistara,
enda hefur Skyrgámur verið ráðinn
til að annast pósthúsið.
Sveinninn sá á það þó til að vilja
skófla í sig skyrslettu af og til þegar
hann á annars að vera að svara mikl-
um fjölda jólabréfa sem honum
berst. Lætur nærri að starfsbræður
Skyrgáms í stétt íslenskra og fág-
aðra póstmeistara myndu ekki láta
sjást til sín sletta skyrinu með þess-
um hætti.
Skyrgámur
póstmeistari í
Mývatnssveit
Jólasveinapósthús í versluninni Seli
tekur við jólakveðjum árið um kring
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Póstmeistari Skyrgámur, póstmeistari í Mývatnssveit, gæðir sér á íslensku skyri, í miðjum jólaönnum.
LANDIÐ