Morgunblaðið - 18.12.2006, Page 23
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2006 23
! "#$%& '( ' )*+%&
,-& ./ 0'' 111!23+22!&
4
4
5
Umm … það er unaðslegt íamstri dagsins aðbregða sér einn eða meðsínum heittelskaða, vin-
um eða vinnufélögum í fótabað og
fá nudd á herðar, hendur, bak og
höfuð á meðan. Og að því loknu fót-
anudd. Sitja saman eða liggja út af,
spjalla og jafnvel fá sér eitthvað í
gogginn á meðan eða dreypa á góð-
um veigum.
„Fyrirmyndina að þessari þjón-
ustu sækjum við til Kína en þar er
mjög vinsælt hjá fólki að hittast á
svona nuddstofum til að slaka á í
hádeginu eða eftir vinnu. Jafnvel
er hægt að nýta þessar 40 mínútur
sem nuddið tekur til vinnufunda og
slá þannig tvær flugur í einu
höggi,“ segir Fjóla Rut Rúnars-
dóttir nuddari sem rekur Dong
Fang Saloon fótanuddstofu á Hótel
Loftleiðum, sem er fyrsta sinnar
tegundar hér á landi.
Bankað á bak
að kínverskum sið
„Það er svo skemmtilegt að sitja
saman í fótabaði og nuddi og hafa
félagsskap af þeim sem koma með.
Þessi hópstemning er líka mjög
skemmtileg fyrir okkur sem erum
að nudda, við leggjum okkur fram
um að vera samtaka og það skapast
allt annað andrúmsloft heldur en
þegar við erum með einn í einu í
lokuðu herbergi. Eins er hægt að
vera tvö eða tveir saman í heil-
nuddinu, pörum og vinum finnst
það mjög notalegt.“
Siao Ling Soon er faglegur ráð-
gjafi við stofuna en hún er kínversk
og rak fótanuddstofu í Belgíu í þrjú
ár. „Hún kenndi okkur handtökin
en austurlenskt nudd gengur mikið
út á samræmingu hugar, líkama og
sálar. Í kínversku nuddi er líka
mikið gert af því að banka, sem er
ólíkt því sem við erum vön hér.“
Þarf ekki að fækka fötum
Ilmurinn af fótabaðsvatninu er
allt um lykjandi en út í það er ýmist
sett engifer, sítrónur eða rósir.
„Í gamla daga var fólk mikið í
fótabaði en það virðist hafa lagst
af. Við erum að leggja okkar af
mörkum til að endurheimta þann
góða sið. Ótal taugaendar liggja
niður í iljar og fólki finnst svo
þægilegt að koma hingað í fót-
anuddið af því það er ekkert rask,
fólk þarf ekki einu sinni að fara úr
neinum fötum, nema sokkunum.
Þess vegna er hægt að skjótast í
vinnutímanum og fá sér að borða í
leiðinni. Hægt er að panta veit-
ingar hér á hótelinu, samlokur,
súshí eða aðra smárétti hjá JT-
veitingum og einnig drykki og láta
færa sér hingað á meðan fólk er í
fótabaðinu og nuddinu. Hingað
hafa komið þó nokkrir sauma-
klúbbar, vinnuhópar og vinahópar
til að njóta og við getum tekið á
móti allt að níu manns í einu. Marg-
ir hafa líka keypt fótanudd sem
gjöf og þannig komið sínum nán-
ustu á óvart.“
Fjóla er þeirrar skoðunar að
nudd eigi að vera sjálfsagður hlut-
ur af daglegu lífi, rétt eins og að
láta klippa sig eða fara út að
hlaupa. „Þetta snýst um að hugsa
um heilsuna í heild sinni. Nudd er
mjög góð forvörn gegn streitu og
áreiti.“
Morgunblaðið/G. Rúnar
Sæla Sara og Antonía njóta þess að bragða á veitingum á meðan Fjóla og Hilmar nudda fætur þeirra.
Saman í fótabað
Slökun Hluti af meðferðinni er slökun með jurtapúða yfir augunum.
massage@icehotels.is
s: 444-4085
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn