Morgunblaðið - 18.12.2006, Page 24

Morgunblaðið - 18.12.2006, Page 24
24 MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. SAMEIGINLEGIR HAGSMUNIR Viðræður um öryggis- og varn-armál við Dani og Norðmennhefjast í dag. Það er byrjað að koma í ljós hverju slíkar viðræður geta skilað. Norðmenn hafa brugðizt við áhyggjum íslenzkra stjórnvalda í kjölfar brottfarar bandarísks varn- arliðs með því að bjóða fram að orr- ustuflugvélar þeirra komi hingað til lands með reglulegu millibili, til æf- inga eða í eftirlitsferðir. Þá bjóða þeir upp á að eftirlitsflugvélar taki á sig sveig til vesturs og fylgist þannig með hafsvæðinu norður og austur af Íslandi. Í úttekt Morgunblaðsins í gær á afstöðu danskra stjórnvalda til þeirrar stöðu, sem upp er komin eft- ir að Bandaríkin fóru með lið sitt frá Keflavíkurstöðinni, kemur fram að þau telja lokun stöðvarinnar ekki vandamál fyrir eigin varnir og ör- yggi með sama hætti og Norðmenn gera. En engu að síður er ljóst að möguleikar eru á samstarfi við Dani, sem getur styrkt öryggi og varnir Íslands. Danskar eftirlitsvélar eru oft á ferð við Ísland vegna þeirra skyldna, sem Danir hafa að gegna við Grænland. Þær fljúga meðal ann- ars um svæðið suður og vestur af landinu. Í sameiningu geta því danskar og norskar flugvélar haft eftirlit með talsverðum hluta haf- svæðisins umhverfis Ísland. Um eitt- hvert eftirlit munu Íslendingar auð- vitað sjá sjálfir og Landhelgisgæzlan mun fá nýja flugvél til eftirlitsstarfa. Það virðast í raun möguleikar á að koma málum þannig fyrir, að meira eftirlit úr lofti verði með hafsvæðinu umhverfis landið en var undir lokin á veru varnarliðsins hér, því það sendi Orion-eftirlitsflugvélar sínar burt frá Keflavíkurflugvelli í ársbyrjun 2004. Eftir stendur hins vegar að ekki verða hér orrustuþotur að staðaldri, sem hægt verður að senda á loft ef þörf er á. Reglulegar ferðir orrustu- þotna frá öðrum NATO-ríkjum hér við landið, þótt ekki væri nema vegna æfinga, myndu þjóna því hlut- verki að „sýna flaggið“ eins og Sturla Sigurjónsson, ráðgjafi í utan- ríkismálum í forsætisráðuneytinu, orðar það í samtali við Morgunblaðið í dag. Þá er hugsanlegt að hægt yrði að senda orrustuþotur á loft frá Nor- egi og/eða Bretlandi ef þörf krefði. Með þessu móti má stuðla að því að fylla upp í það öryggistómarúm á Norður-Atlantshafi, sem Banda- ríkjamenn skildu eftir sig er þeir fóru með lið sitt héðan. Það er rétt stefna hjá íslenzkum stjórnvöldum, sem lýst er í Morgun- blaðinu í dag, að fara ekki fram á nýjar skuldbindingar eða útgjöld frá grannríkjunum í NATO, heldur leggja áherzlu á að finna sameig- inlega hagsmuni. Þeir sameiginlegu hagsmunir eru fyrir hendi og felast meðal annars í því að skilja ekki stóran hluta Norð- ur-Atlantshafsins eftir án eftirlits eða möguleika á að stugga við óvel- komnum gestum. STUÐNINGUR VIÐ ÁLVER Þótt mikil náttúruverndarbylgjahafi gengið yfir landið í sumar er ljóst af nýrri skoðanakönnun Gallup, að stuðningur við byggingu álvera er enn mikill. Þannig voru rúmlega 58% Norðlendinga hlynnt byggingu ál- vers við Húsavík og rúmlega 75% Húsvíkinga. Í könnun þessari kom einnig í ljós, að um 82% Austfirðinga eru hlynnt byggingu álversins við Reyðarfjörð. Þessar tölur lækka um leið og horft er til fylgis við slíkar framkvæmdir á landsvísu. Þó sýndi könnunin að 51% á landsvísu styður byggingu álvers- ins fyrir austan. Þetta eru athyglisverðar tölur en koma ekki á óvart. Þær sýna, að þrátt fyrir mikinn stuðning við sjónarmið náttúruverndarsinna er mikill stuðn- ingur við álver hjá þeim, sem eiga mestra hagsmuna að gæta. Fram- kvæmdirnar fyrir austan hafa gjör- breytt stöðu Austfirðinga. Húsvík- ingar sérstaklega en einnig Norð- lendingar almennt eru fylgjandi álveri við Húsavík vegna þess, að þeir ganga út frá því sem vísu að ál- ver þar muni hafa svipuð áhrif á Norðurlandi eins og álver og stór- virkjun á Austurlandi. Eignir muni hækka í verði, atvinna aukast svo og tekjur fólks. Í ljósi þessarar könnunar verður afar forvitnilegt að sjá, hver verða úrslit þeirrar kosningar, sem fram mun fara meðal Hafnfirðinga um stækkun álversins í Straumsvík. Ljóst er að stjórnvöld ætla að beita sér fyrir lagabreytingum til þess að meira af skattgreiðslum Alcan gangi í bæjarsjóð og þarf ekki að leita langt eftir skýringum á því. Kannski hafa menn ofmetið áhrif náttúruverndarsinna vegna þess, að umræðurnar voru mjög einhliða þeim í vil. En svo er líka hugsanlegt að af- staða þjóðarinnar til þessara fram- kvæmda allra sé mjög mótsagna- kennd. Stuðningur sé fyrir hendi við álver en væri ekki til staðar ef for- sendan væri virkjun á viðkvæmum stað. Þetta verða erfiðar kosningar fyrir Steingrím J. Sigfússon, formann Vinstri grænna í hans kjördæmi. Ef formaðurinn er samkvæmur sjálfum sér mun hann berjast hart gegn ál- veri við Húsavík. Miðað við þær töl- ur, sem nú liggja fyrir um afstöðu hins almenna borgara í hans kjör- dæmi má gera ráð fyrir að fylgið streymi í stórum stíl frá Vinstri grænum í kjördæmi formannsins, þegar hann byrjar að láta til sín heyra fyrir alvöru. En hvert? Þessi skoðanakönnun bendir líka til þess, að staðbundnar kosningar um framkvæmdir á borð við álver á Húsavík muni fara á annan veg en ef kosið væri á landsvísu. Þess vegna má búast við, að hart verði deilt um það, hvort kosningar um álversframkvæmdir eigi að vera staðbundnar eða á landsvísu. Náttúruvernd og álversfram- kvæmdir eru nú þau mál, sem skipta þjóðinni í tvær fylkingar. Skoðana- könnun Gallup mun hleypa kjarki og krafti í þá, sem vilja fleiri álver. Á ður en ég stofnaði fjölskyldu var ég í hjálparstarfi hjá Rauða krossinum í Taílandi og í Eþíópíu fyrir Hjálp- arstofnun kirkjunnar,“ seg- ir Ragnhildur Rós, sem er hjúkr- unarfræðingur og ljósmóðir. „Mig hafði alltaf langað að sinna þróunaraðstoð í lengri tíma samfleytt en þá sex mánuði sem ég dvaldi á hvorum stað við neyð- araðstoð. Við Skarphéðinn sáum auglýs- ingu um að stofnuð hefðu verið samtökin Afríka 20:20 hér á Íslandi árið 2003. Það ýtti við mér og þegar Þróunarsam- vinnustofnun auglýsti eftir hjúkr- unarfræðingi með ljósmæðramenntun í byrjun árs 2004 sótti ég um. Við höfðum verið að velta slíkum möguleikum fyrir okkur um hríð og rætt það við krakkana. Ég fór svo til Monkey Bay í Malaví að sinna þar starfi tæknilegs ráðgjafa í heilsugæsluverkefni Þróunarsam- vinnustofnunar og vann þar ásamt ís- lenskum lækni, Lovísu Leifsdóttur. ÞSSÍ hefur sett sér það markmið að vinna meðal fátækustu þjóðanna og þar er Malaví mjög neðarlega með sínar 13 milljónir íbúa. En einnig hefur pólitískt ástand verið nokkuð stöðugt þar þrátt fyrir djúprætta spillingu og ekki er stríð eða óöld í landinu.“ Ragnhildur fór út í júlí 2004 og fjöl- skylda hennar, Skarphéðinn G. Þórisson líffræðingur og þrír unglingar, þau Þuríður, Indriði og Ingibjörg, kom út mánuði síðar þegar búið var að leigja út íbúðarhús þeirra í Fellabæ. Malavídvöl þeirra varði í tvö ár, fyrra árið voru þau í þorpinu Chirombo í Monkey Bay við Malavívatnið og það síðara var Skarp- héðinn með börnin í höfuðborginni Lilongwe og fjölskyldan hittist um helg- ar þar eða í Chirombo. „Ég man að Indriði og Ingibjörg tóku ekki vel í hugmyndina í upphafi,“ segir Þuríður og kímir. „Mér þótti þó strax mjög spennandi tilhugsun að flytja til Afríku.“ Skarphéðinn kenndi krökkunum heima samkvæmt íslenskri námsskrá og með aðstoð frá Fellaskóla, sem sendi vikulega námsáætlun. Smám saman eignuðust unglingarnir kunningja í þorp- inu en fundu sig þó ekki almennilega í Chirombo. Það breyttist þó mjög þegar þau fluttu með föður sínum í höfuðborg- ina og sóttu þar alþjóðlegan skóla. Morgunsárið og myndavélin Það fór bærilega um fjölskylduna rétt við vatnsborð hins fagra og gjöfula Malaví- vatns. Húsið var vel búið og fjarskiptin í lagi. Þorpsbúar fóru fram hjá húsinu og niður að ströndinni árla morguns til að þvo sér, vaska föt sín og ílát og sækja vatn. Flestir þeirra voru örsnauðir en höfðu þó til hnífs og skeiðar og áttu jafn- vel skó og gamalt hjól ef þannig stóð á. Það var þó ekki þar með sagt að þeir hefðu áhuga á að nota skóna. Skarphéðinn segist hafa kunnað því vel að sjá um menntun barna sinna, enda hefur hann verið kennari í 17 ár samhliða því að huga að hreindýrum frá 1978. „Þau lærðu líka ýmislegt utan við námsáætlunina. Þegar við fórum til Jó- hannesarborgar í Suður-Afríku skoð- uðum við t.d. Apartheid-safnið og fórum um Soweto. Þau kynntu sér því sögu Suð- ur-Afríku og sk það. Svo týndis morgnana úti m aukann. Ef ég s annað sem gam tafist nokkuð. Ö stundir á bak vi dýrmætar. Ég t náttúrunni og s mynda mannfól verið til staðar skera er að kyn og eignast fullt þetta framandi samsvörun og h sjálfri sér lík hv Óneitanlega hö að sumu leyti og njóta þessa í ák er hvorki þjaka ur hefur fólk au fæðu og menntu sinna.“ Ragnhildur s Hið hlýja hj Að flytja til Malaví til að sinna þróunarstarfi, kennslu og ljósmyndun í tvö ár reyndist hafa um- talsverð áhrif á hjónin Ragnhildi Rós Indriða- dóttur og Skarphéðin G. Þórisson og unglingana þeirra þrjá. Steinunn Ás- mundsdóttir fræddist um dvöl þeirra í þorpinu Chir- ombo við Malavívatnið. Jólamyndin Fjölskyldan situr á eintrjáning Skarphéðins í f Samhent Ragnhildur og Lovísa Leifsdóttir í hópi samstarf

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.