Morgunblaðið - 18.12.2006, Síða 38
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Stóra sviðið kl. 20:00
Afgreiðsla er opin kl. 12:30 – 18:00 mán. – þri. Aðra daga kl. 12:30 – 20:00.
STÓRFENGLEG! eftir Peter Quilter
Lau. 6/1, lau. 13/1 lau. 20/1, lau. 27/1.
SITJI GUÐS ENGLAR eftir Guðrúnu Helgadóttur. Leikgerð Illugi Jökulsson.
Fös. 29/12 kl. 20:00 uppselt, lau. 30/12 kl. 14:00 uppselt og kl. 17:00 uppselt, lau. 6/1
kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 7/1 kl. 14:00 örfá sæti laus og kl. 20:00, lau. 13/1
kl. 14:00 nokkur sæti laus, sun. 14/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, lau. 20/1 kl. 14:00 örfá sæti
laus, sun. 21/1 kl. 14:00 nokkur sæti laus.
BAKKYNJUR eftir Evripídes
Frumsýning 26/12 uppselt, 2. sýn. mið. 27/12 örfá sæti laus, 3. sýn. fim. 28/12 örfá sæti
laus, 4. sýn. fim. 4/1 örfá sæti laus, 5. sýn. fös. 5/1 örfá sæti laus, 6. sýn. fim. 11/1 örfá
sæti laus, 7. sýn. fös. 12/1 nokkur sæti laus, 8. sýn. fim. 18/1.
LEITIN AÐ JÓLUNUM eftir Þorvald Þorsteinsson
Fös. 22/12 kl. 13:00 uppselt, lau. 23/12 kl. 13:00 uppselt.
Leikhúsloftið
SKOPPA OG SKRÍTLA eftir Hrefnu Hallgrímsdóttur
Lau. 6/1 kl. 11:00 uppselt, kl. 12:15 og kl. 14:00, sun. 7/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og
kl. 14:00, lau. 13/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 14/1 kl. 11:00,
kl. 12:15 og kl. 14:00 uppselt.
Kúlan
Smíðaverkstæðið kl. 20:00
PATREKUR 1,5 eftir Michael Druker.
Lau. 6/1, lau. 13/1 nokkur sæti laus, lau. 20/1
Ath! Miðaverð aðeins 1.500 kr. fyrir nema gegn framvísun skólaskírteinis.
Miðasala í síma 551 1200 og á netinu www.leikhusid.is.
Gjafakort fyrir
alla fjölskylduna!
Gjafakort í miðasölu og á www.leikhusid.is
38 MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRAMUNDAN
ÓFAGRA
VERÖLD
ANTHONY NEILSON
FORSÝNING 28.DESEMBER
MIÐAVERÐ 1.000
Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga.
Símasala kl. 10-18 þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Netinu allan sólarhringinn.
Kammersveitin Ísafold ásamt Huldu Björk Garðarsdóttur sópran og Ágústi Ólafssyni barítón
flytja verk eftir Mahler. Hljómsveitarstjóri: Daníel Bjarnason
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
6. janúar kl. 17.00 í DUUS - húsum í Keflavík
7. janúar kl. 20.00 í Íslensku óperunni
Miðaverð kr. 2.000 - Námsmenn: 2 fyrir 1
Frumsýning fös. 9. feb. kl. 20 - nokkur sæti laus - 2. sýn. sun 11. feb. kl. 20
FLAGARI Í FRAMSÓKN - HALLDÓR ER KOMINN AFTUR! - Nánari upplýsingar á www.opera.is
3. sýn. fös. 16. feb. kl. 20 – 4. sýn. sun. 18. feb. kl. 20 - FÁAR SÝNINGAR - TRYGGÐU ÞÉR MIÐA STRAX
Þorláksmessa í Óperunni - Óperukareokí
Davíð Ólafsson, óperusöngvari, heldur uppi fjörinu - Húsið opnar kl. 20
Karíus og Baktus – sýnt í Rýminu
Lau 30. des kl. 14 örfá sæti laus. Síðasta sýning!
Gjafakort – afmælistilboð!
Einstakt afmælistilboð í tilefni 100 ára
afmælis Samkomuhússins.
Gjafakort í leikhúsið er frábær jólagjöf sem lifir.
Svartur köttur – forsala hafin
Fös 19. jan kl. 19 Forsýn – UPPSELT
Lau 20. jan kl. 19 Frumsýn – UPPSELT
Næstu sýningar: 21/1, 25/1, 26/1, 27/1. Sala hafin!
www.leikfelag.is
4 600 200
Gjafakort
- góð
jólagjöf
bókasalur: Upplestur Í dag KL 12:15
Steinar Bragi
Hið stórfenglega leyndarmál Heimsins
Blóðrauð rauðrófusúpa á veitingastofu
Á MORGUN
Sigurjón Magnússon
Gaddavír
MEÐ FYRIRVARA UM FORFÖLL
SÁL og mál eftir Þorstein Gylfa-
son er komin út hjá Heimskringlu,
háskólaforlagi Máls og menningar.
Í ritinu hefur umfjöllun um sál-
arfræði forgang
þótt víðar sé kom-
ið við, ekki síst í
málspeki með
áherslu á sann-
leika og skiling.
Bókin er safn tólf
greina og skiptist
í þrjá hluta. Nefn-
ist sá fyrsti Sál,
annar Mál og sá
þriðji Sál og mál.
Í viðauka eru þrír fyrirlestrar sem
Þorsteinn hélt á ensku og hafa
þeir ekki verið birtir áður, auk
þess sem þrjár greinanna eru áður
óbirtar. Inngang ritar Mikael M.
Karlsson, prófessor í heimspeki,
en ritstjóri safnsins er Hrafn Ás-
geirsson, doktorsnemi í heimspeki.
Í formála Mikaels M. Karlssonar
segir hann að Þorsteinn hafi ekki
verið dæmigerður heimspekingur
og rit hans ekki dæmigerð heim-
spekirit. Mikael bendir á orð Þor-
steins sjálfs: „Ég er enginn heim-
spekingur eins og stjórn þessa
félags hefur kallað mig í fund-
arboði, því ef þeir Platón og Ari-
stóteles, Hume og Kant, Husserl
og Wittgenstein voru heimspek-
ingar, þá er ég allt annað og
minna.“ Mikael heldur síðan
áfram: „Vitaskuld var Þorsteinn
heimspekingur og skilgreindi sjálf-
an sig sem slíkan við allar venju-
legar aðstæður. Hins vegar má
segja að Þorsteinn hafi öllu frem-
ur verið ritsnillingur, skáld og
töframaður, og e.t.v. annað – en
ekki endilega minna – en t.d. Witt-
genstein.“
Þorsteinn hafði lagt drög að
greinasafninu þegar hann lést í
ágúst 2005. Þorsteinn var prófess-
or í heimspeki við Háskóla Íslands.
Hann ritaði margt um fræði sín og
önnur málefni og var auk þess
mikilvirkur ljóðaþýðandi. Hann
hlaut stílverðlaun Þórbergs Þórð-
arsonar árið 1994. Hjá Heims-
kringlu hafa áður komið út bækur
hans Tilraun um heiminn, Að
hugsa á íslensku, sem hlaut Ís-
lensku bókmenntaverðlaunin 1996,
og Réttlæti og ranglæti.
Bækur | Greinasafn
Þorsteins Gylfasonar
Sál
og mál
Þorsteinn
Gylfason
HYMNODIA-heitið er úr latínu og
merkir dýrðarsöngur. Þannig að kór
með því heiti verður að hljóma dýrð-
lega eigi hann að standa undir nafni.
Samtals eru 14 konur og karlar í
kórnum og þar þarf að vera valinn
maður í hverju rúmi eigi áhrif dýrð-
arsöngs að tendra tónaljósið í brjósti
okkar áheyrendanna. Ég fullyrði af
kynnum mínum af söng kórsins,
bæði fyrr og nú, að þá takist hópnum
undir vandaðri og glaðbeittri stjórn
Eyþórs Inga að ná þessu marki.
Þessir tónleikar voru í röð vel
heppnaðra hádegistónleika Tónlist-
arfélags Akureyrar, þar sem létts og
lystugs málsverðar er notið í bland
við tónlistina. Þetta form virðist vera
að festa sig í sessi og er það vel, því
þetta er einkar skemmtilegt fyr-
irkomulag til að njóta.
Eyþór Ingi nefndi í upphafi að
Hymnodia legði á þessum vetri sér-
staka áherslu á kórverk íslenskra
kventónskálda og ræddi um það hve
mikinn fjársjóð af góðri kórtónlist
væri þar að finna.
Pie Maria eftir Finnann Jaaka er
áhrifamikið verk. Karlaraddir
syngja undirleik á sönghljóðum niðri
í salnum og konurnar lesa eins og
bænaþul latneska textann um heil-
aga Maríu ofan af svölum. Þessi upp-
stilling hentar þessu verki mjög vel
og virðist endurhljómurinn í Ket-
ilhúsinu vera kjörinn fyrir það.
Verkin tvö eftir Jórunni Viðar nutu
sín mjög vel og það hól sem Eyþór
bar á hana fyrir góða tilfinningu fyr-
ir kórröddun var síst of lítið.
Mér finnst líka hennar fallega lag
við Jól eftir Stefán frá Hvítadal, sem
ég hef heyrt í ýmsum útfærslum,
hljómi best eins og Jórunn upp-
haflega samdi þetta fyrir kór, þver-
flautu og píanó. Samstilling og fal-
legur blær radda naut sín
einstaklega vel í verki Hildigunnar
Rúnarsdóttur. Sama má segja um
sæta útsetningu Öhrwall á enska
þjóðlaginu, sem áður var sungið hér
sem „Kvöldið er fagurt“, en var hér
flutt við nýtt ljóð „Mamma“ eftir
Hannes Sigurðsson, einn kórfélaga.
Útsetning Michaels Jóns á Blá-
stjörnunni gerir óhemju kröfur til
kórsins af ýmsum toga. Þar má
nefna margskiptingu radda, þanþol,
bæði hvað varðar tónsvið og tón-
styrk, sem reynir mikið á kórinn.
Útsetningin er glæsileg og fagmann-
lega unnin. En ég hafði á tilfinning-
unni að hún þyrfti á stærri kór að
halda til að njóta sín vel. Skónúm-
erið var að mínu mati of stórt fyrir
þennan „kórfót“. Spennan í söngn-
um varð of mikil og stærri kór en þó
mjög góður hefði getað náð betur
einlægu tóntaki þjóðlagsins.
Hymnodia er sannarlega dýrð-
arkór sem stendur undir nafni.
Dýrðarsöngur í Ketilhúsinu
TÓNLIST
Ketilhúsinu á Akureyri
Kórtónleikar: Hymnodia, Kammerkór Ak-
ureyrarkirkju Hljóðfæraleikur: Helena
Bjarnadóttir, píanó og syngur í kórnum.
Jóna Valdís Ólafsdóttir, þverflauta og
syngur í kórnum. Stjórnandi: Eyþór Ingi
Jónsson. Föstudaginn 8.12. 2006 , kl.
12.15. Á dagskrá; Lög um og eftir konur.
„Litlar freistingar“ á vegum Tónlistar-
félags Akureyrar
Jón Hlöðver Áskelsson
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Góður „Hymnodia er sannarlega dýrðarkór, sem stendur undir nafni,“ segir meðal annars í dóminum.