Morgunblaðið - 18.12.2006, Side 40

Morgunblaðið - 18.12.2006, Side 40
40 MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ fólk Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn HVAÐ ERTU AÐ SEGJA ELLEN? ERTU BÚIN AÐ MISSA MINNIÐ OG MANST EKKI HVER ÉG ER? SNILLD! EKKERT ER MEÐ ÖLLU ILLT AÐ EKKI BOÐI NOKKUÐ GOTT ÞETTA ER DÓTA- BÓNDABÆR- INN MINN ÉG ÆTLA AÐ SETJA HLÖÐUNA HÉR, OG FJÓSIÐ HÉRNA... OG ÆTLI ÉG LÁTI EKKI TRÉÐ VERA HÉRNA... EF MÉR SKJÁTLAST EKKI ÞÁ ER TÚNFISKUR HÉRNA EINHVERS STAÐAR! NÚNA ER HANN ÚT UM ALLT HELGA! ÞÚ VERÐUR AÐ DRÍFA ÞIG AÐ LÆSA HURÐINNI! ÞAÐ ER HÓPUR AF BRJÁLUÐUM VILLIMÖNNUM HÉRNA ÚTI!! SÆLL HRÓLFUR HVAR ER HELGA? ÞETTA ER ALLT Í LAGI! ÞETTA ER BARA FJÖLSKYLDAN ÞÍN! GRÍMUR, HEFURÐU NOKKUÐ SÉÐ KÖTTINN? JÁ, HANN ER Í STÓLNUM KRYBB! KRYBB! KRYBB! KRYBB! BVANG! BIGABVANG! BVANG! KRYBB! RIGGA! RIGGA! KRYBB! BVANG! ÞETTA ER ROKKUÐ ENGI- SPRETTA M.J. ER AÐ FARA AÐ VERÐA STJARNA OG ÉG ER BARA ATVINNULAUS SVONA ER AÐ VERA OFURHETJA EN ÉG GET ALLTAF FENGIÐ MÉR VINNU Á BLAÐINU ÞESSAR MYNDIR ERU HREIN HÖRMUNG HVAR ER PETER PARKER ÞEGAR ÉG ÞARF Á HONUM AÐ HALDA? JONAH GÆTI VEL ORÐIÐ AÐ ÓSK SINNI... Ámorgun, þriðjudaginn 19.desember, mun RóbertH. Haraldsson flytja fyr-irlesturinn „Sannast sagna: Efasemdir um gildi sannleik- ans fyrir sagnfræði, og hvernig má eyða þeim.“ Fyrirlesturinn er hluti af fyr- irlestraröð Sagnfræðingafélags Ís- lands í vetur, og verður að vanda fluttur í fyrirlestrarsal Þjóðminja- safnsins, kl. 12.05. „Efasemdir um gildi sannleikans í sagnfræði hafa verið eitt umræðu- efni fyrirlestraraðar Sagnfræðinga- félagsins, en í erindi mínu mun ég einkum ræða um efasemdir um sannleikann sem vaknað hafa innan heimspekinnar, eða fengið byr undir báða vængi í heimspekilegri um- ræðu,“ segir Róbert. Tungumál og sjónarhorn Sem dæmi nefnir Róbert fjögur hugtök sem eru sameiginleg heim- speki og sagnfræði, og skiptar skoð- anir eru um: „Tungumálið er eitt slíkt, en sumir heimspekingar vilja halda því fram að tungumálið sé takmarkað tæki til að tjá veru- leikann, og því sé ekki hægt að tjá sannleikann með tungumálinu,“ segir Róbert. „Sjónarhorn er annað dæmi, en ýmsir heimspekingar hafa haldið því fram að öll séum við óhjá- kvæmilega bundin okkar sjón- arhorni, og getum þess vegna aldrei komist að raunverulegum hlut- lægum sannleika, t.d. í sagnfræði. Eins eru til efasemdir um að sann- leikurinn sem slíkur hafi gildi, oft virðist sannleikurinn að vísu hafa gildi en við nánari athugun kemur í ljós að gildið er annað, t.d. það að fóta okkur í veruleikanum eða stýra öðru fólki og ná markmiðum okkar.“ Róbert segist í erindi sínu ætla að sýna fram á að hægt sé að finna við- unnandi andsvör við þessum efa- semdaröddum: „Þetta eru út- breiddar og vinsælar efasemdir, og sterkar sem slíkar, en það eru til leiðir til að svara þeim. Í hnotskurn mun ég í erindi mínu hvetja sagn- fræðinga til að vera ekki að flækja sig um of í heimspekinni, heldur hugsa hversdagslega um þessi grunnhugtök,“ segir Róbert. „Með því er ég þó ekki að segja að heim- spekin eigi ekki erindi við sagn- fræðina, því heimspekin getur dreg- ið úr löngun okkar til að fletja út hugtökin og nota þau í annarlegu samhengi.“ Undarlegar efasemdir „Góð heimspeki beinir okkur að hinu praktíska og aðstæðubundna, einstaklingsbundna samhengi, en við megum ekki gleyma okkur þar,“ segir Róbert. „Það er okkur öllum eðlilegt að beita heimspekilegri hugsun til að skilja viðfangsefni okkar og umhverfi betur, en okkur hættir stundum til að kúpla okkur út úr raunveruleikanum og alhæfa hugtökin, og er það þá sem und- arlegar efasemdir um sannleikann skjóta upp kollinum.“ Fyrirlestraröð Sagnfræðinga- félags Íslands er öllum opin og að- gangur er ókeypis. Nánari upplýs- ingar má finna á slóðinni www.sagnfraedingafelag.net. Vísindi | Fyrirlestraröð Sagnfræðingafélags- ins í Þjóðminjasafninu á þriðjudag kl. 12.05 Efasemdir um gildi sannleikans  Róbert H. Har- aldsson fæddist í Reykjavík 1959. Hann lauk stúd- entsprófi frá FB 1980, BA-gráðu í heimspeki og sál- arfræði frá Há- skóla Íslands 1985, meistara- gráðu í heimspeki frá Pittsburg- háskóla 1991 og doktorsgráðu frá sama skóla 1997. Róbert var stundakennari og síðar lektor og dósent við hugvísindadeild Háskóla Íslands. Meðal ritverka hans má nefna bókina Frjálsir andar (2004) og Plotting Against a Lie (2004). Róbert er kvæntur Kolbrúnu Þ. Pálsdóttur deildarstjóra og eiga þau samanlagt fimm börn. Kynbomban Pamela Andersonætlar að fara með börnin sín á snjóbretti um jólin. Strandvarða- gellan, sem sagði nýverið skilið við rokkarann Kid Rock eftir aðeins 5 mánaða hjónaband, ætlar að fara upp í fjöll vegna þess að henni finnst ekki hátíðlegt að vera í hit- anum í Kaliforníu um jólin. „Ég hlakka mikið til jólanna. Ég hef ver- ið heima hjá mér að skreyta með krökkunum alla vikuna og svo höf- um við líka verið að baka,“ skrifar hún á heimasíðu sína. „En ég hlakka til að fara með börnin á snjó- bretti. Ég sakna snjósins, veðrið í Kaliforníu er ekki nógu hátíðlegt.“ Þá hefur Pamela hvatt syni sína, Brandon sem er tíu ára og Dylan sem er átta, til þess að gefa þau leikföng sem þeir eru hættir að nota til góðgerðarmála. „Strákarnir eru búnir að fara í gegnum dótið sitt, og reyndar fötin sín líka, og þeir gáfu fullt af hlutum til fátækra. Þetta er góð hefð,“ segir Pamela, sem ætlar að njóta jólanna en ekki að velta sér upp úr skilnaði sínum. Reuters Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.