Morgunblaðið - 18.12.2006, Page 42

Morgunblaðið - 18.12.2006, Page 42
42 MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ M.M.J. Kvikmyndir.com eeee Blaðið eeee Þ.Þ. Fbl. Eragon kl. 5.50, 8 og 10:10 B.i. 10 ára The Holiday kl. 5.40 og 8 Saw 3 kl. 10.30 B.i. 16 ára Eragon kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 10 ára Eragon LÚXUS kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20 The Holiday kl. 8 og 10:45 Casino Royale kl. 5, 8 og 10.50 B.i. 14 ára Borat kl. 10.10 B.i. 12 ára Hátíð í bæ / Deck the halls kl. 3.40, 5.50 og 8 Hnotubrjóturinn og Músakóngurinn kl. 3.20 Mýrin kl. 5.40 B.i. 12 ára Skógarstríð m.ísl.tali kl. 3.40 JÓLAMYNDIN Í ÁR Frábær rómantísk gamanmynd frá Nancy Meyers leikstjóra What Women Want og Something´s Gotta Give. Cameron Diaz Kate Winslet Jude Law Jack Black - Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir eee S.V. MBL. eee MMJ, KVIKMYNDIR.COM Þegar myrkrið skellur á...hefst ævintýrið! Stórkostleg ævintýramynd byggð á magnaðri metsölubók JÓLAMYNDIN 2006 47.000 MANNS Sími - 564 0000Sími - 462 3500 Jóla- og hátíðarsöngtónleikar verða haldnir í Dómkirkjunni mánudaginn 18. desember kl. 20. Flytjendur eru Hulda Guðrún Geirsdóttir sópran, Kristín R. Sig- urðardóttir sópran og Julian Hew- lett píanóleikari. Fluttir verða jóla- dúettar, sönglög og aríur. Miðar verða seldir við inngang og kosta 1.500 kr. Skráning viðburðar í Staður og stund er á heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos Skráning viðburða Jólasýning Smiðjunnar – Listhúss, Ármúla 36, stendur nú yfir. Gömlu meistararnir í bland við yngri lista- menn, þ.á m. Þorvald Skúlason, Jón Stefánsson, Jóhann Briem, Kjarval, Hafstein Austmann, Valgarð Gunn- arsson og Tolla, svo fátt eitt sé nefnt. Opið virka daga frá kl. 10–18 og laugardaga frá kl. 12–17. Allir velkomnir. Stórtónleikar kirkjukórs Lága- fellssóknar í Mosfellsbæ verða haldnir í Fríkirkjunni í Reykja- vík miðvikudaginn 20. desember kl. 20. Tónleikarnir eru til styrktar Grétu Rósný Jónsdóttur í Innri-Njarðvík og þremur dætr- um hennar en þær misstu fjöl- skylduföðurinn í bílslysi í sumar sem leið. Kirkjukór Lágafells- sóknar ásamt hópi listamanna heldur tónleikana. Stjórnandi kórsins er Jónas Þórir. Þeir sem koma fram á tónleikunum auk kirkjukórs Lágafellssóknar eru: Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú), Egill Ólafsson, Jóhann Friðgeir Valdi- marsson, Bergþór Pálsson, Margrét Árnadóttir, Ívar Helgason, Hanna Björk Guðjónsdóttir, Björg Birgisdóttir, Anna Sigríður Helgadóttir og Margrét Eir ásamt strengjasveit en hana skipa Eva Harðardóttir, Sigrún Harðardóttir, Hjörleifur Valsson og Sveinn Birgisson ásamt öðrum tónlist- armönnum. Aðgangseyrir 2.000 kr. Tónlist Dómkirkjan | Jóla- og hátíðarsöng- tónleikar verða haldnir í Dómkirkjunni mánudaginn 18. desember kl. 20. Flytj- endur eru: Hulda Guðrún Geirsdóttir sópr- an, Kristín R. Sigurðardóttir sópran og Julian Hewlett píanóleikari. Fluttir verða jóladúettar, sönglög og aríur. Grafarvogskirkja | Brynjólfsmessa eftir Gunnar Þórðarson verður flutt í Graf- arvogskirkju 18. des. kl. 20. Kirkjukórar Keflavíkur-, Skálholts- og Grafarvogskirkju ásamt Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og Jóhanni Friðgeiri Valdimarssyni og hljómsveitinni Jóns Leifs Camerata flytja Brynjólfs- messu. Hákon Leifsson stjórnar. Myndlist Anima gallerí | Bjarni Sigurbjörnsson, Jón Óskar og Kristinn Már. Til 23. des. Artótek Grófarhúsi | Anna Hallin mynd- listarmaður sýnir teikningar og myndband á Reykjavíkurtorgi í Borgarbókasafni Tryggvagötu 15. Til áramóta. Nánar á www.artotek.is. Café 17 (verslunin 17) | Mæja sýnir 20 ný málverk, flest eru lítil en hver mynd er æv- intýri út af fyrir sig. Álfar og litir eru ein- kenni mynda Mæju. Allir velkomnir. Café Mílanó | Ingvar Þorvaldsson er með málverkasýningu. Sýnd eru 10 ný olíu- málverk. Sýningin stendur til áramóta. Gallerí 100° | Sýning á myndlist í eigu Orkuveitu Reykjavíkur. Opið virka daga kl. 8.30–16. Gallerí Skálinn | Gallerí Skálinn, Seyð- isfirði. Garðar Eymundsson og Rúnar Loft- ur sýna teikningar, pastelmyndir, vatns- litamyndir og olíumyndir. Opið eftir hádegi alla daga til jóla. Gallerí Úlfur | Sigurdís Harpa Arnarsdóttir opnar sýningu laugardaginn 9. des kl. 16 og stendur sýningin út desember. Opið virka daga frá 14–18. Gerðuberg | Gerðuberg á í safni sínu um 1.000 listaverk eftir börn sem unnin voru í listsmiðjunum Gagni og gamni sem starf- ræktar voru sumrin 1988–2004. Fyrirtæki og stofnanir geta fengið leigð verk úr safn- inu til lengri eða skemmri tíma. Sýning á myndskreytingum í íslenskum barnabókum 2006. Sýningin stendur til 21. janúar 2007. Tekið er á móti átta ára skólabörnum í samstarfi við Borg- arbókasafnið | Hugarheimar – Guðrún Bergsdóttir sýnir útsaum og tússteikningar. Ein allsherjar sinfónía fjölskrúðugra lita og forma; eins og íslensk brekka þakin berjum að hausti eða brúðarklæði frá Austurlöndum. Verk Guðrúnar vitna um hina óheftu tjáningu sem sprettur fram úr hugarheimi hennar. Sýningin stendur til 21. janúar. Sjá www.gerduberg.is. Hafnarborg | Ljósmyndarinn Spessi til 30. desember. Verkin eru úr væntanlegri bók sem mun bera titilinn „Locations“ og kem- ur út nú fyrir jólin. Sýningin í Hafnarborg hefur fengið sömu yfirskrift. Þarna er fyrst og fremst um að ræða myndir af stöðum sem bera ummerki mannfólksins. Sigrún Guðjónsdóttir, Rúna, sýnir í Sverr- issal og Apóteki. Á sýningunni verða stein- leirsmyndir og verk unnin á pappír með ak- rýl, olíukrít, pastel og bleki. Hjá Marlín | Birgir Breiðdal, Biggi, sýnir til 23. desember. Hrafnista Hafnarfirði | Ellen Bjarnadóttir sýnir í Menningarsal til 8. janúar. Kaffi Sólon | Elena Fitts sýnir málverk á Sólon. Verkin eru unnin með olíu á striga. Elena fæddist 1984 í Úkraínu, byrjaði að teikna mjög ung. Hún flutti til Íslands 1999 og ári síðar hóf hún að nota olíuliti. Til 5. janúar. Listasafn Einars Jónssonar | Lokað í des- ember og janúar. Höggmyndagarðurinn við Freyjugötu er alltaf opinn. Listasafn Íslands | Frelsun litarins/Regard Fauve, sýning á frönskum expressjónisma í upphafi 20. aldar. Sýningin kemur frá Mu- sée des beaux-arts í Bordeaux í Frakklandi, 52 verk eftir 13 listamenn. Sýning á verk- um Jóns Stefánssonar í sal 2. Opið 11–17 alla daga, lokað mánudaga. Ókeypis að- gangur. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Bandarísk list á þriðja árþúsundinu. Margir af fremstu listamönnum Bandaríkjanna, sem fæddir eru eftir 1970, eiga verk á sýn- ingunni. Sýningarstjórarnir eru í fremstu röð innan hins alþjóðlega myndlistarvett- vangs. Sýningin hefur farið víða um heim, m.a. til New York og Lundúna. Listasetur Lafleur | Sölusýning stendur nú yfir í Listasetri Lafleur á myndverkum Benedikts S. Lafleur. Benedikt sýnir þar myndaskúlptúra sína og glerlistaverk. Myndaskúlptúrarnir eru nýjung í myndlist þar sem þeir sameina listform á frumlegan hátt. Gestir geta notið bókakaffis Lafleur- útgáfunnar og slakað á í jógarými. Til 23. des. Ófeigur listhús | Skólavörðustíg 5. Mál- verkasýning Ómars Stefánssonar. Sýningin stendur til áramóta og er opin á versl- unartíma. Skaftfell | Haraldur Jónsson sýnir „Fram- köllun“ í Skaftfelli, menningarmiðstöð á Seyðisfirði. Bjargey Ólafsdóttir sýnir vinnuteikningar; „ég missti næstum vitið“, á Vesturveggnum. www.skaftfell.is. Smiðjan-Listhús | Jólasýning Smiðjunnar- Listhúss, Ármúla 36, stendur nú yfir. Gömlu meistararnir í bland við yngri lista- menn þ.á m Þorvald Skúlason, Jón Stef- ánsson, Jóhann Briem, Kjarval, Hafstein Austmann, Valgarð Gunnarsson og Tolla svo fátt eitt sé nefnt. Opið virka daga kl. 10–18 og laug. kl. 12–17. Allir velkomnir. Þjóðminjasafn Íslands | Á Veggnum í Þjóð- minjasafninu stendur yfir jólasýning með myndum tvíburabræðranna Ingimundar og Kristjáns Magnússona. Myndirnar fanga anda jólanna á sjöunda áratugnum. Margt í þeim ætti að koma börnum í jólaskap og fullorðna fólkið þekkir þar vafalaust hina sönnu jólastemningu bernsku sinnar. Í Myndasal Þjóðminjasafnsins eru til sýnis þjóðlífsmyndir úr safni hins þjóðþekkta Guðna Þórðarsonar í Sunnu, blaðamanns, ljósmyndara og ferðamálafrömuðar. Mynd- irnar tók hann við störf og ferðalög á tíma- bilinu 1946–60. Þær eru eins og tímasneið frá miklu umbrotaskeiði í sögu þjóðarinnar. Í Bogasal Þjóðminjasafnsins stendur yfir sýning á útsaumuðum handaverkum list- fengra kvenna frá fyrri öldum. Sýningin byggist á rannsóknum Elsu E. Guðjónsson textíl- og búningafræðings. Myndefni út- saumsins er fjölbreytt, m.a. sótt í Biblíuna og kynjadýraveröld fortíðarinnar. Söfn Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Nú stend- ur yfir á Bókatorgi í Grófarhúsi, Tryggva- götu 15, 1. hæð sýningin „… hér er hlið him- insins“ sem Borgarskjalasafn Reykjavíkur vann í tilefni af 20 ára vígsluafmæli Hall- grímskirkju. Sýningin er opin virka daga kl. 11–19 og um helgar kl. 13–17. Aðgangur ókeypis, allir velkomnir. Til 7. jan. Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið alla daga nema mánudaga kl. 10–17. Hljóð- leiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og sænsku. Margmiðlunarsýning og göngu- leiðir í nágrenninu. Frekari upplýsingar á www.gljufrasteinn.is. Sími 586 8066. Landsbókasafn Íslands, Háskólabókasafn | Í spegli Íslands er lítil sýning í forsal þjóð- deildar safnsins. Þar er sagt frá ferðasög- um til Íslands í gegnum aldirnar. Sjá nánar á heimasíðu: www.landsbokasafn.is. Sú þrá að þekkja og nema … Sýning til heiðurs Jónasi Jónassyni frá Hrafnagili – 150 ára minning. Jónas var prestur, rithöf- undur, þýðandi og fræðimaður, eins og verk hans Íslenskir þjóðhættir ber vott um. Sýn- ingin spannar æviferil Jónasar. www.lands- bokasafn.is. Upp á Sigurhæðir – Matthías Jochumsson var lykilmaður í þjóðbyggingu 19. aldar. Menn þekkja best sálmana, þjóðsönginn og Skugga-Svein, en skáldpresturinn sá eftir sig 28 bækur, þar af 15 frumsamdar. Sýningin stendur yfir til 31. desember. Sjá heimasíðu safnsins, www.lands- bokasafn.is. Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminja- safns | Í húsnæði Seðlabankans á Kalk- ofnsvegi 1 hefur verið sett upp ný yfirlits- sýning á íslenskum gjaldmiðli og öðru efni í eigu safnsins. Þar er einnig kynn- ingarefni á margmiðlunarformi um hlut- verk og starfsemi Seðlabanka Íslands. Gengið er inn um aðaldyr bankans frá Arnarhóli. Aðgangur er ókeypis. Sýningin er opin mán.–föst. kl. 13.30–15.30. Þjóðmenningarhúsið | Að vanda eru fjöl- breyttar sýningar í sölum Þjóðmenning- arhússins. Þær eru: Íslensk tískuhönnun, með fatalínum frá níu merkjum eða hönnuðum í samhengi við íslenska nátt- úru. Berlin Excursion, bókagerðarlist frá forlagi rithöfunda og myndlistarmanna frá Berlín. Fyrirheitna landið og Hand- ritin að auki. Þjóðminjasafn Íslands | Skoðunarferð um grunnsýningu Þjóðminjasafnsins er ævintýralegt ferðalag gegnum 1200 ár sem hefst í skipi landnámsmanna og lýk- ur í flughöfn nútímans. Fjölbreyttar sýn- ingar, fræðsla og leikir fyrir alla fjölskyld- una. Skemmtileg safnbúð og notalegt kaffihúss. Opið alla daga nema mánu- daga kl. 11–17. Bækur Þjóðmenningarhúsið | Upplestrarserían Jólahrollur í hádeginu fer fram í Þjóð- menningarhúsinu kl. 12.15 dag hvern til jóla. Í dag les Steinar Bragi úr bók sinni Hið stórfenglega leyndarmál heimsins. Súputilboð á veitingastofunni. Safnbúð með forvitnilegum bókum og öðrum gripum. Uppákomur Þjóðminjasafn Íslands | Hurðaskellir kemur til húsa 18. des. og lítur inn í Þjóð- minjasafnið kl. 11. Hann gengur skelfing harkalega um og skellir hurðum svo fólk hefur varla svefnfrið. Skemmtilegt fyrir fjölskyldur og ókeypis inn. Fréttir og tilkynningar Fjölskylduhjálp Íslands | Bráðum koma blessuð jólin. Fjölskylduhjálpin hvetur landsmenn til að gefa fatnað, leikföng og borðbúnað vegna opnunar flóamarkaðar í lok nóvember í Eskihlíð 2–4, Rvík í þágu efnalítilla fjölskyldna. Tökum á móti mið- vikudaga eða eftir samkomulagi kl. 13–17. Svarað í síma 892 9603. Happdrætti bókatíðinda | Númer dagsins 18. desember er: 30281. Frístundir og námskeið Lesblindusetrið | Sérsniðið hraðlestr- arnámskeið fyrir 9–13 ára krakka. Hvers virði er aukinn lestrarhraði? Gefðu barninu þínu tækifæri á að skara fram úr með því að tvöfalda, jafnvel margfalda, lestrarhraða sinn. Leiðbeinandi er Kolbeinn Sig- urjónsson, Davis-ráðgjafi hjá Les- blindusetrinu í Mosfellsbæ. Sími 566 6664. Börn Dimmuborgir | Jólasveinarnir í Dimmu- borgum, Mývatnssveit, taka á móti gestum á Hallarflöt frá kl. 13 til 15. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn | Jóla- sveinn dagsins kíkir í heimsókn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í dag kl. 14. Hann mun segja sögur af lífinu í fjöllunum og frá ýmsu sem á daga hans hefur drifið. Fyrir þá sem vilja koma fyrir hádegi er lesin jólasaga í fjósinu kl. 10.45. Kíktu í heimsókn. Opið frá 10–17. www.mu.is. Þjóðminjasafn Íslands | Á Torginu í Þjóð- minjasafninu stendur yfir sýningin Sér- kenni sveinanna. Á sýningunni er lítið jóla- hús og sitthvað sem tengist jólasveinunum, svo sem kjöt fyrir Ketkrók og bjúgu fyrir Bjúgnakræki. Sýningin getur hjálpað börn- unum til að skilja hin skrýtnu nöfn jóla- sveinanna. staðurstund Myndlist Jólasýning Smiðjunnar Tónlist Jólastemning í Dómkirkjunni Tónlist Jólaljós – styrktartónleikar kirkjukórs Lágafellssóknar Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.