Morgunblaðið - 18.12.2006, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2006 45
/ KRINGLUNNI
DÉJÁ VU kl. 5:30 - 8 - 10:40 B.i. 12 DIGITAL
THE HOLIDAY kl. 5:30 - 8 - 10:40 LEYFÐ
DEAD OR ALIVE kl. 10:20 B.i. 12
SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 3:30 LEYFÐ DIGITAL
FLUSHED AWAY m/ensku tali kl. 8:10 LEYFÐ DIGITAL
BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 3:30 LEYFÐ
/ KEFLAVÍK
ERAGON kl. 8 B.I. 12
DÉJÁ VU kl. 8 - 10:30 B.I. 12
THE HOLIDAY kl. 10:10 LEYFÐ
/ AKUREYRI
DÉJÁ VU kl. 8 - 10:20 B.I. 12
DEAD OR ALIVE kl. 6 - 8 B.I. 12
SCANNER DARKLY ÁN TEXTA kl. 10 B.I. 16
SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
ÞESSAR HASARSKUT-
LUR HAFA ÚTLIT TIL
AÐ DEYJA FYRIR.
SÝND Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK
DÉJÁ VU kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i.12 ára
DÉJÁ VU VIP kl. 5:20 - 8 - 10:40
DEAD OR ALIVE kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 B.i.12 ára
SAW 3 kl. 8:15 - 10:40 B.i.16 ára
THE GRUDGE 2 kl. 10:10 B.i.16 ára
SANTA CLAUSE 3 kl. 3:40 - 5:50 - 8 LEYFÐ
SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 3:40 - 5:50 LEYFÐ
FLUSHED AWAY m/ensku tali kl. 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ
BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 3:40 LEYFÐ
BYGGÐ Á TÖLVULEIKNUM VINSÆLA
DEAD OR ALIVE
HVERSU LANGT MYNDIR ÞÚ
GANGA TIL AÐ HALDA LÍFI
FLUSHED AWAY
Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna
eeee
V.J.V. TOPP5.IS.
eeee
S.V. MBL.
SÝND BÆÐI MEÐ ÍSKLENSKU
OG ENSKU TALI
HÉR ER Á FERÐINNI FRUMLEGASTI
SPENNUHASAR ÁRSINS.
FRÁ TONY SCOTT LEIKSTJÓRA
"CRIMSON TIDE"
ENDURUPPLIFUNIN
FRÁ JERRY BRUCKHEIMER
“PIRATES OF THE CARIBBEAN”
DENZEL WASHINGTON VAL KILMER
ÞRJÁR Á TOPPNUM
Martin ShortTim Allen
JÓLASVEININN 3
Frábær rómantísk gamanmynd frá Nancy Meyers
leikstjóra What Women Want og Something´s Gotta Give.
eee
S.V. MBL.
eee
MMJ, KVIKMYNDIR.COM
JÓLAMYNDIN Í ÁR
THE GRUDGE 2 ÞORIR ÞÚ
AFTUR?
BÖLVUNIN 2
/ ÁLFABAKKA
í bíó1fyrir2 Kæru gestir vins-amlegast athugið að tilboð þetta
*
MoggaBíó á mánudögum GILDIR Á ALLAR MYNDIR SÍÐASTI DAGUR
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Skynjun hrútsins magnast upp að vissu
marki. Sýn hans er eins og röntgengeisli
og svo hann sér innyfli og bein, hvers
vegna aðstæðurnar ganga og hvað mætti
betur fara.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nautið hefur allt sem þarf til þess að búa
til uppskrift af lífsmáta sem það hefur
alltaf þráð. Byrjaðu að matbúa, lífið kall-
ar á þig. Bogmenn og sporðdrekar eru
upplagðir aðstoðarkokkar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Tvíburinn vill vera elskaður, ekki undir
stjórn. Stattu fast á sjálfstæði þínu. Það
gæti haft í för með sér óvæntan leið-
angur. Enn betra ef ferðataska kemur
við sögu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Krabbinn verður klappstýran, verk-
stjórinn, eða þjálfarinn – hvaða persóna
sem er til þess að koma liðinu að gagni.
Hringdu nokkur símtöl til þess að fá ný
verkefni. Samtal sem ber engan árangur
er betra en ekkert.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Himintunglin eru í mannúðlegum stell-
ingum. Ljónið vill fæða þá hungruðu og
skjóta skjólshúsi yfir þá heimilislausu.
Ef það er ekki hægt, skaltu gera það
sem þú getur. Í hvert sinn sem þú bætir
heiminn örlítið breytirðu honum var-
anlega.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyjan er búin að átta sig á því hvað
hún vill fá út úr framtíðinni og það á eftir
að verða dýrt. Skipstu á að beita þínu
auðuga ímyndunarafli og hagnýtu við-
horfi til lífsins. Þú kemst þangað sem þú
ætlar þér.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Rausnarskapur vogarinnar virðist óend-
anlegur. Hið sama gildir ekki um inni-
stæðuna á bankareikningnum. Gerðu
fjárhagsáætlun fyrir hátíðirnar og
fylgdu henni eftir. Besta gjöfin sem þú
færir yfirmanninum er jákvætt viðhorf
og einlæg viðleitni upp á hvern dag.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Nýjar aðstæður laða það besta fram í
sporðdrekanum en magna upp við-
kvæmni hans að sama skapi. Klappaðu
sjálfum þér á bakið fyrir að þora að færa
út kvíarnar. Einhver í þínum innsta
hring fær fréttir í dag.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Að bíða er listgrein. Lærðu hana vel og
óskir þínar uppfyllast mun hraðar en þú
hefðir ætlað. Leyfðu þinni eðlislægu
bjartsýni að njóta sín. Láttu þig langa og
gerðu ráð fyrir að fá á endanum það sem
þú vilt.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Steingeitin er með réttu ráði. Vanda-
málin geta vel verið fyrir hendi, þótt
enginn sjá þau nema þú. Trúðu eigin
skynjun. Streituvaldandi aðstæður
lagast ef maður biður um aðstoð.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Hættu að hafa áhyggjur af því hvað þú
átt að gefa vinum og vandamönnum um
hátíðirnar. Innilegt kort eða bréf er eft-
irminnilegasta og dýrmætasta gjöfin og
alltaf í lit og stærð sem passar.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Listin nærir sálina. Það er of langt síðan
fiskurinn hefur farið á safn, sótt tónleika
eða leikrit. Skráðu þig á póstlista yfir
menningarviðburði og gefðu þér tíma til
þess að mæta.
stjörnuspá
Holiday Mathis
Tungl í bogmanni tendrar
neista ævintýra, mögu-
leika og forvitni. Það lán-
samasta sem maður getur
tekið sér fyrir hendur er að
láta af fordómum og
kanna nýja heima. Höfum í huga að
ferðalög merkja ekki endilega að fara út
fyrir borgarmörkin. Maður getur ferðast í
huganum með því að bregða út af van-
anum.
lesbískar kennd-
ir. „Kevin vonast
annað hvort til
þess að einhver
útgefandi sé
tilbúinn til þess
að borga honum
stórar fjárhæðir
fyrir að skrifa
slíka bók eða þá að Britney muni
borga honum fyrir að skrifa hana
ekki,“ sagði heimildarmaður í sam-
tali við tímaritið America’s Star.
Talið er að Federline hafi fengið
rúmlega sjö milljónir dollara eftir
skilnaðinn, en það nemur um 500
milljónum íslenskra króna. Federl-
ine vill hins vegar meira og fer fram
á um það bil 20 milljónir dollara til
viðbótar. Þá hefur hann farið fram á
forræði yfir börnum þeirra, þeim
Sean Preston sem er 15 mánaða
gamall og Jayden James sem er
þriggja mánaða. Talið er að hann
muni reyna að sýna fram á að Brit-
ney sé vanhæf móðir.
Söng- og leikkonan Jessica Simp-son notar lítið senditæki í eyr-
anu þegar hún er að leika í kvik-
myndum. Þangað fær hún sendar
þær línur sem hún á að segja því
hún getur ekki munað þær. Simpson
leikur nú í kvikmyndinni Blonde
Ambition ásamt Luke Wilson og
hefur neyðst til að beita þessari að-
ferð.
TIL er ákveðinn geiri tónlistar,
þar sem menn leitast við að slá
saman heimunum tveimur sem
kenndir eru við há- og lágmenn-
ingu. Eða klassík og popp eins og
það kallast í daglegu tali. „Cros-
sover“ er þetta kallað á ensku og
nokkur þekkt nöfn sem þetta
stunda eru
Sarah Brig-
htman, Andr-
ea Bocceli, Il
Divo, Char-
lotte Church,
Vannessa
Mae og Josh
Groban. Plöt-
um þessara listamanna hættir til
að seljast í tonnum en óhætt er að
fullyrða að þessi iðnaður – sem
hann svo sannarlega er í lang-
flestum tilfellum – er jafnan ekki
hátt skrifaður hjá þeim sem hafa
raunverulegan áhuga á tónlist.
Ástundun þessa samsláttar er
með margvíslegum hætti, stundum
þykir nóg að þokkafullur sellóleik-
ari stilli sér upp fáklæddur, en
stundum er bræðingurinn öllu
meiri, hvort sem klassíkinni er
velt upp úr poppglans eða þá að
klassíkerar og popparar mætist á
miðri leið. Stundum þykjast popp-
ararnir líka kunna ýmislegt fyrir
sér í klassískum söng, eins og
þegar Michael Bolton tók nokkrar
óperuaríur af lífi án dóms og laga
á plötu sinni My Secret Passion –
The Arias frá árinu 1998.
Jóhann Friðgeir, sem ræðst hér
inn á þessi mið, styðst við ým-
islegt úr nefndri aðferðafræði.
Hann syngur dúetta með popp-
urum, en einnig fær hann „jafn-
ingja“ til liðs við sig, auk þess sem
hann syngur einn og óstuddur lög
af dægurlagameiði. Lagavalið er
blandað, bæði þekkt og óþekkt
lög, innlend sem erlend.
Skemmst frá að segja er þetta
ekki burðug plata. Lagasmíðar
eru margar hverjar veikar, t.d.
nærfellt allar þær sem hann syng-
ur með poppurunum. Jóhann er þá
að fara bil beggja í söngnum; í
sumum lögum er eins og hann
syngi til hálfs með popprödd og til
hálfs með tenórrödd. Þetta kemur
einkennilega út. Framburður í
enskunni er þá klaufalegur, perlan
„Besame Mucho“ virkar stirð og
útgáfan af Evróvisjónlagi Johnny
Logans, „Hold me Now“, er skelfi-
leg. Í raun er hægt að tala um
hreina slátrun. Eina lagið sem
gengur nokkurn veginn upp er
lagið sem hann syngur með KK og
er það nær eingöngu vegna þess
hversu furðuleg framvindan er í
því og hversu ólíkt söngparið er.
Jóhann Friðgeir er að stíma inn
á mjög ákveðinn markað sem hef-
ur reynst mörgum happadrjúgur
upp á almenna kynningu og plötu-
sölu. En sjálf tónlistin er iðulega
ómerkilegur pappír og svo reynist
líka hér. Eins og með misheppnuð
blind stefnumót er eiginlega holl-
ast að gleyma þessu bara sem
fyrst.
Blind
stefnumót
TÓNLIST
Geisladiskur
Fram koma Jóhann Friðgeir Valdimars-
son, Stefán Hilmarsson, Bjarni Arason,
Björgvin Halldórsson, Guðný Árný Karls-
dóttir, KK, Kristinn Sigmundsson, Leone
Tinganelli, Margrét Eir Hjartardóttir og
Sigrún Hjálmtýsdóttir. Þórir Úlfarsson
stýrði upptökum og útsetti. Frost Music
gefur út.
Jóhann Friðgeir & vinir – Jóhann Friðgeir &
vinir
Arnar Eggert Thoroddsen
Smáskífa með lagi Mána Svav-arssonar, Bing Bang úr Lata-
bæ, er nú í níunda sæti breska vin-
sældalistans. Skífan fellur því um
fimm sæti milli vikna, en hún sat í
því fjórða um síðustu helgi. Yfir
100.000 smáksífur með laginu hafa
selst sem þykir virkilega góður ár-
angur. Um er að ræða svokallaðan
„single“ sem þýðir að einungis er að
finna á disknum eitt lag, Bing Bang,
en það er í fjórum útgáfum á disk-
inum. Í umfjöllun um breska
smáskífulistann sagði tónlistar-
gagnrýnandinn James Masterson að
þótt líklega kaupi enginn yfir tíu ára
aldri plötuna þá sé um frísklegt og
barnvænlegt skandinavískt popp að
ræða.Engir aukvisar sitja í efstu
sætunum þremur, en það eru Take
That, Cliff Richard og Gwen Stef-
ani. Sitt hvoru megin við Mána á
listanum eru svo P. Diddy og
Christina Aguilera, en þau sitja í
áttunda sæti, en í tíunda sætinu er
hið klassíska jólalag Fairytale Of
New York með The Pouges.
Fólk folk@mbl.is