Morgunblaðið - 21.12.2006, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 21.12.2006, Blaðsíða 54
54 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ M.M.J. Kvikmyndir.com eeee Blaðið eeee Þ.Þ. Fbl. Eragon kl. 5.50, 8 og 10:10 B.i. 10 ára The Holiday kl. 5.40 og 8 Saw 3 kl. 10.30 B.i. 16 ára Eragon kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 10 ára Eragon LÚXUS kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20 The Holiday kl. 8 og 10:45 Casino Royale kl. 5, 8 og 10.50 B.i. 14 ára Borat kl. 10.10 B.i. 12 ára Hátíð í bæ / Deck the halls kl. 3.40, 5.50 og 8 Hnotubrjóturinn og Músakóngurinn kl. 3.20 Mýrin kl. 5.40 B.i. 12 ára Skógarstríð m.ísl.tali kl. 3.40 JÓLAMYNDIN Í ÁR Frábær rómantísk gamanmynd frá Nancy Meyers leikstjóra What Women Want og Something´s Gotta Give. - Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir eee S.V. MBL. eee MMJ, KVIKMYNDIR.COM Þegar myrkrið skellur á...hefst ævintýrið! Stórkostleg ævintýramynd byggð á magnaðri metsölubók JÓLAMYNDIN 2006 47.000 MANNS Sími - 564 0000Sími - 462 3500 Cameron Diaz Kate Winslet Jude Law Jack Black Frelsun litarins/Regard Fauve,sýning á frönskum expressjón- isma í upphafi 20. aldar í Listasafni Íslands. Sýningin kemur frá Musée des beaux-arts í Bordeaux í Frakk- landi, 52 verk eftir 13 listamenn. Sýning á verkum Jóns Stefánssonar er í sal 2. Opið er kl. 11–17 alla daga en lokað mánudaga. Aðgangur er ókeypis. Skráning viðburðar í Staður og stund er á heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos Skráning viðburða Hin árlega aðventuvaka er í Frí-kirkjunni í Reykjavík í kvöld kl. 21. Á aðventuvökunni er lögð áhersla á upplifun. Þetta er hugljúf stund þar sem samspil tóna og guðs orðs er í fyrirrúmi. Flytjendur tón- listar eru Aðalheiður Þorsteins- dóttir organisti og Anna Sigríður Helgadóttir söngkona. Ása Björk Ólafsdóttir flytur hið talaða orð. Þjóðmenningarhúsið hefur gef-ið út glæsilega sýningarbók vegna yfirstandandi sýningar: Ís- lensk tískuhönnun. Á sýningunni Íslensk tískuhönnun er sýndur þverskurður tískuhönnunar í ís- lenskri nútímamenningu. Þrjátíu og átta úrvalsverk eftir tíu hönn- uði sýna fjölbreytni og sköpunar- kraft íslenska tískugeirans. Sýn- ingarstjóri er þjóðverjinn Matthias Wagner K. Á sýningunni eru verk eftirtaldra hönnuða: Anna Guðmundsdóttir; ásta créative clothes (Ásta Guðmundsdóttir); Dóra Emilsdóttir; jbj design (Jóna Björg Jónsdóttir); Path of Love (Ragna Fróða- dóttir): Rósa Helgadóttir; Spaksmannsspjarir; STEINUNN (Steinunn Sig- urðardóttir) og Þorbjörg Valdimarsdóttir. Matthias Wagner K og Guðrún Garðarsdóttir eru ritstjórar bókarinnar sem er á þremur tungumálum; íslensku, ensku og þýsku. Hún er til sölu hjá Þjóðmenningarhúsinu og hönnuðunum sem verk eiga í bókinni. Tónlist Café Paris | DJ Lucky spilar Soul, Funk og Reggí á Café Paris kl. 21.30. Dómkirkjan | Jólatónleikar Dómkórsins verða fimmtudagskvöld 21. desember kl. 22. Dómkórinn syngur jólasálmar og mót- ettur frá 16./17. öld. Stjórnandi kórsins er Marteinn H. Friðriksson. Aðgangur ókeypis. Kópavogskirkja | Kammerhópurinn Camer- arctica leikur ljúfa tónlist kl. 21 eftir W.A. Mozart í Kópavogskirkju sem verður ein- ungis lýst upp með kertaljósum. Í tilefni af- mælisárs Mozarts leikur hópurinn á hljóð- færi eins og þau tíðkuðust á klassíska tímanum. Stúdentakjallarinn | Benni Hemm Hemm og Sprengjuhöllin ætla að gera allt vitlaust í Stúdentakjallaranum kl. 22. Hljómsveitirnar tvær ætla að leiða saman hesta sína og keyra jólastuðið í botn. Ekki missa af jóla- stuðtónleikum ársins! Aðeins 500 krónur og ógleymanlegt kvöld. Myndlist Anima gallerí | Bjarni Sigurbjörnsson, Jón Óskar og Kristinn Már. Til 23. des. Art-Iceland.com | Skólavörðustíg 1a er með smámyndasýningu frá 10. des. 2006 til 14. janúar 1007. Listamennirnir 20 og galleríið gefa 10% af sölu til Barnaheilla. Verkin á sýningunni eru mjög fjölbreytt og áhugaverð. Vikuna fyrir jól er opið frá kl. 11– 21. Eftir jól frá kl. 12–18. Allir velkomnir. Artótek Grófarhúsi | Anna Hallin myndlist- armaður sýnir teikningar og myndband á Reykjavíkurtorgi í Borgarbókasafni Tryggvagötu 15. Til áramóta. Café Mílanó | Ingvar Þorvaldsson er með málverkasýningu. Sýnd eru 10 ný olíu- málverk. Sýningin stendur til áramóta. Gallerí 100° | Sýning á myndlist í eigu Orkuveitu Reykjavíkur. Opið virka daga kl. 8.30–16. Gallerí – Skálinn | Gallerí – Skálinn, Seyðis- firði. Garðar Eymundsson og Rúnar Loftur sýna teikningar, pastelmyndir, vatnslita- myndir og olíumyndir. Opið eftir hádegi alla daga til jóla. Gallerí Úlfur | Sigurdís Harpa Arnarsdóttir sýnir út des. Opið virka daga kl. 14–18. Gerðuberg | Gerðuberg á í safni sínu um 1.000 listaverk eftir börn sem unnin voru í listsmiðjunum Gagn og Gaman sem starf- ræktar voru sumrin 1988–2004. Sýning á myndskreytingum í íslenskum barnabókum 2006. Sýningin stendur til 21. janúar 2007. Tekið er á móti 8 ára skóla- börnum í samstarfi við Borgarbókasafnið. Hugarheimar – Guðrún Bergsdóttir sýnir útsaum og tússteikningar. Ein allsherjar sin- fónía fjölskrúðugra lita og forma; eins og ís- lensk brekka þakin berjum að hausti eða brúðarklæði frá Austurlöndum. Til 21. jan- úar. Sjá www.gerduberg.is. Grafíksafn Íslands | Samsýning 20 félags- manna í íslenskri grafík. Opið fimmtudaga – sunnudaga frá kl. 14–18. Grafíksafn Íslands- salur Íslenskrar grafíkur er í Tryggvagötu 17, hafnarmegin. Sýningin er sölusýning og stendur til 23. desember. Hafnarborg | Ljósmyndarinn Spessi til 30. desember. Sigrún Guðjónsdóttir, Rúna, sýnir í Sverris- sal og Apóteki. Hjá Marlín | Birgir Breiðdal, Biggi, sýnir til 23. desember. Hrafnista Hafnarfirði | Ellen Bjarnadóttir sýnir í Menningarsal til 8. janúar. i8 | Sýning Katrínar Sigurðardóttur, Stig, stendur nú yfir í i8 fram að jólum. Opið þri.– fös. kl. 11–17 og laugardaga kl. 13–17. Undir stiganum í i8 galleríi stendur yfir sýn- ing Péturs Más Gunnarssonar Eins og að sjálfsögðu. Til 23. desember. Kaffi Sólon | Elena Fitts sýnir málverk á Sólon. Verkin eru unnin með olíu á striga. Kling og Bang gallerí | Sirra Sigrún Sigurð- ardóttir, Hekla Dögg Jónsdóttir, Ásdís Sif Gunnarsdóttir og Daníel Björnsson sýna í Kling & Bang gallerí, Laugavegi 23. Sýn- ingin heitir Ljósaskipti-Jólasýning Kling og Bang – til 28. janúar 2007. Listasafn Einars Jónssonar | Lokað í des- ember og janúar. Höggmyndagarðurinn við Freyjugötu er alltaf opinn. Listasafn Íslands | Frelsun litarins/Regard Fauve, sýning á frönskum expressjónisma í upphafi 20. aldar. Sýningin kemur frá Musée des beaux-arts í Bordeaux í Frakk- landi, 52 verk eftir 13 listamenn. Sýning á verkum Jóns Stefánssonar í sal 2. Opið kl. 11–17, lokað mánudaga. Ókeypis aðgangur. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Banda- rísk list á þriðja árþúsundinu. Margir af fremstu listamönnum Bandaríkjanna, sem fæddir eru eftir 1970, eiga verk á sýning- unni. Listasetur Lafleur | Sölusýning stendur nú yfir í Listasetri Lafleur á myndverkum Benedikts S. Lafleur. Hann sýnir þar mynda- skúlptúra og glerlistaverk. Til 23. des. Ófeigur listhús | Skólavörðustíg 5. Mál- verkasýning Ómars Stefánssonar. Sýningin stendur til áramóta, opið á verslunartíma. Skaftfell | Haraldur Jónsson sýnir „Fram- köllun“ í Skaftfelli, menningarmiðstöð á Seyðisfirði. Bjargey Ólafsdóttir sýnir vinnu- teikningar; „ég missti næstum vitið“ á Vest- urveggnum. www.skaftfell.is. Smiðjan-Listhús | Jólasýning Smiðjunnar- Listhúss, Ármúla 36, stendur nú yfir. Gömlu meistararnir í bland við yngri listamenn þ.á m Þorvald Skúlason, Jón Stefánsson, Jóhann Briem, Kjarval, Hafstein Austmann, Valgarð Gunnarsson og Tolla svo fátt eitt sé nefnt. Opið virka daga kl. 10–18 og laug. kl. 12–17. Allir velkomnir. Þjóðminjasafn Íslands | Á Veggnum í Þjóð- minjasafninu stendur yfir jólasýning með myndum tvíburabræðranna Ingimundar og Kristjáns Magnússona. Í Myndasal Þjóðminjasafnsins eru til sýnis þjóðlífsmyndir úr safni hins þjóðþekkta Guðna Þórðarsonar í Sunnu, blaðamanns, ljósmyndara og ferðamálafrömuðar. Mynd- irnar tók hann við störf og ferðalög á tíma- bilinu 1946–60. Þær eru eins og tímasneið frá miklu umbrotaskeiði í sögu þjóðarinnar. Í Bogasal Þjóðminjasafnsins stendur yfir sýning á útsaumuðum handaverkum list- fengra kvenna frá fyrri öldum. Sýningin byggist á rannsóknum Elsu E. Guðjónsson, textíl- og búningafræðings. Myndefni út- saumsins er fjölbreytt, m.a. sótt í Biblíuna og kynjadýraveröld fortíðarinnar. Söfn Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Nú stend- ur yfir á Bókatorg í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15, 1. hæð, sýningin „ … hér er hlið himins- ins“ sem Borgarskjalasafn Reykjavíkur vann í tilefni af 20 ára vígsluafmæli Hall- grímskirkju. Sýningin er opin virka daga kl. 11–19 og um helgar kl. 13–17. Aðgangur ókeypis, allir velkomnir. Til 7. jan. Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið alla daga nema mánudaga kl. 10–17. Hljóðleið- sögn á íslensku, ensku, þýsku og sænsku. Margmiðlunarsýning og gönguleiðir í ná- grenninu. Frekari upplýsingar á www.gljufrasteinn.is Sími 586 8066. Landsbókasafn Íslands – háskólabókasafn | Í spegli Íslands er lítil sýning í forsal þjóð- deildar safnsins. Þar er sagt frá ferðasög- um til Íslands í gegnum aldirnar. Sjá nánar á heimasíðu: www.landsbokasafn.is. Landsbókasafn Íslands – háskólabókasafn | Sú þrá að þekkja og nema … Sýning til heiðurs Jónas Jónassyni frá Hrafnagili – 150 ára minning. Jónas var prestur, rithöf- undur, þýðandi og fræðimaður, eins og verk hans Íslenskir þjóðhættir bera vott um. Sýningin spannar æviferil Jónasar. www.landsbokasafn.is. Landsbókasafn Íslands – háskólabókasafn | Upp á Sigurhæðir – Matthías Jochumsson var lykilmaður í þjóðbyggingu 19. aldar. Menn þekkja best sálmana, þjóðsönginn og Skugga-Svein, en skáldpresturinn sá eftir sig 28 bækur, þar af 15 frumsamdar. Sýn- ingin stendur yfir til 31. desember. Sjá heimasíðu safnsins www.landsbokasafn.is. Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns | Í húsnæði Seðlabankans á Kalkofnsvegi 1 hefur verið sett upp ný yfirlitssýning á ís- lenskum gjaldmiðli og öðru efni í eigu safns- ins. Þar er einnig kynningarefni á margmiðl- unarformi um hlutverk og starfsemi Seðlabanka Íslands. Gengið er inn um að- aldyr bankans frá Arnarhóli. Aðgangur er ókeypis. Sýningin er opin mán.–fös. kl. 13.30–15.30. Norska húsið í Stykkishólmi | Í Norska húsinu er jólastemningin allsráðandi og húsið er skreytt hátt og lágt. Heimsókn í Norska húsið á aðventunni er sannkallað ævintýri fyrir börn á öllum aldri og ógleym- anleg upplifun á aðventunni. Í krambúð hússins er jólakrambúðarstemning og boð- ið er upp á heitan epladrykk og piparkökur. Til 23. des. Þjóðmenningarhúsið | Að vanda eru fjöl- breyttar sýningar í sölum Þjóðmenning- arhússins. Þær eru: Íslensk tískuhönnun, með fatalínum frá níu merkjum eða hönn- uðum í samhengi við íslenska náttúru. Berlin Excursion, bókagerðarlist frá forlagi rithöfunda og myndlistarmanna frá Berlín. Fyrirheitna landið og Handritin að auki. Þjóðminjasafn Íslands | Skoðunarferð um grunnsýningu Þjóðminjasafnsins er ævin- týralegt ferðalag gegnum 1.200 ár sem hefst í skipi landnámsmanna og lýkur í flug- höfn nútímans. Fjölbreyttar sýningar, fræðsla og leikir fyrir alla fjölskylduna. Skemmtileg safnbúð og notalegt kaffihús. Opið alla daga nema mánudaga kl. 11–17. Bækur Þjóðmenningarhúsið | Upplestrarserían Jólahrollur í hádeginu fer fram í Þjóðmenn- ingarhúsinu kl. 12.15 dag hvern til jóla. Í dag les Bjarni Klemenz úr bók sinni Fenrisúlfur. Súputilboð á veitingastofunni. Safnbúð með forvitnilegum bókum og öðrum grip- um. Skemmtanir Aflagrandi 40 | Jólasúkkulaði: Dagskráin hefst með stór-bingói kl. 14 föst. 22. des. Barnakór Neskirkju syngur, Gerður G. Bjarklind les upp, Magga Stína syngur jóla- lög, Vinabandið leikur fyrir dansi. Jólalegt meðlæti. Allir velkomnir. Kringlukráin | Dúettinn Sessý & Sjonni flyt- ur tónlist úr ýmsum áttum og á lagalistan- um er að finna djass, blús, létt popp, rokk og fleiri stefnur. Uppákomur Barinn | PhuNk hópurinn verður með uppá- komur á BARNUM á Laugavegi 22. Þar verða myndverk til sýnis, föt til sölu, gjörn- ingar í kringum atburðinn og Dj-ar til að halda uppi stemningu. Fyrirlestrar og fundir Þjóðminjasafn Íslands | Dr. Terry Gunnell þjóðfræðingur flytur erindi á ensku í léttum dúr í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins 21. des. kl. 12.10. Íslensku jólin. Trú og siðir tengd íslensku jólunum í aldanna rás, frá heiðnum goðum til gárunga og hrekkjóttra íslenskra jólasveina. Ekkert kostar inn og allir velkomnir. Fréttir og tilkynningar Happdrætti bókatíðinda | Númer dagsins 21. desember er: 1573. Börn Dimmuborgir | Jólasveinarnir í Dimmu- borgum, Mývatnssveit, taka á móti gestum á Hallarflöt frá kl. 13 til 15. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn | Jóla- sveinn dagsins kíkir í heimsókn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í dag kl. 14. Hann mun segja sögur af lífinu í fjöllunum og frá ýmsu sem á daga hans hefur drifið. Fyrir þá sem vilja koma fyrir hádegi er lesin jólasaga í fjósinu kl. 10.45. Kíktu í heimsókn. Opið frá 10–17. www.mu.is. Þjóðminjasafn Íslands | Á Torginu í Þjóð- minjasafninu stendur yfir sýningin Sérkenni sveinanna. Á sýningunni er lítið jólahús og sitthvað sem tengist jólasveinunum, svo sem kjöt fyrir Ketkrók og bjúgu fyrir Bjúgnakræki. Sýningin getur hjálpað börn- unum til að skilja hin skrýtnu nöfn jólasvein- anna. staðurstund Kirkjustarf Aðventuvaka í kvöld Myndlist Frelsun litarins Regard Fauve Söfn Sýningarbók vegna yfirstandandi sýningar: Íslensk tískuhönnun Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.