Morgunblaðið - 23.12.2006, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2006 17
ERLENT
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
YFIRMAÐUR
norrænu eftirlits-
sveitanna,
SLMM, á Srí
Lanka, Lars
Sölvberg, til-
kynnti í gær, að
hann hefði ákveð-
ið að kalla eftir-
litsmennina til að-
alstöðva
sveitanna í höfuð-
borginni Colombo. Hörð átök hafa
geisað á eyjunni að undanförnu og
uppreisnarmenn úr röðum Tamíl-
Tígra og stjórnarherinn verið sak-
aðir um að brjóta skilmála vopna-
hléssamkomulagsins frá árinu 2002.
Þorfinnur Ómarsson, talsmaður
SLMM, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær, þar sem hann var stadd-
ur í Reykjavík í jólafríi, að um tíma-
bundna ákvörðun væri að ræða sem
væri tekin af öryggisástæðum.
„Það hefur verið rætt um þennan
möguleika síðustu vikur. Eftirlits-
sveitirnar eru fáliðaðri um jól og ára-
mót en á öðrum tímum ársins. Til að
mynda eru sex af Íslendingunum ell-
efu, sem starfa í sveitunum, nú í leyfi
og um helmingur eftirlitsmannanna
35, séu Norðmennirnir 24 teknir með
í reikninginn. Þetta skiptir því ekki
miklu fyrir starfið á þessum tíma.“
Þorfinnur neitar því aðspurður að
átökin hafi farið harðnandi, með
þeim orðum að enginn einstakur at-
burður hafi valdið ákvörðuninni.
„Það er ekki verið að leggja upp
laupana. Það er ekkert sem hefur
gerst síðustu daga sem kallar á víð-
tækt endurmat. Öryggismál eru
rædd á hverjum degi og nú var talinn
heppilegur tími til að hittast.“
Friðarviðræðurnar í biðstöðu
Að sögn Þorfinns eru friðarvið-
ræðurnar enn í biðstöðu, eftir að
stjórnin neitaði að verða við þeirri
beiðni Tígranna á fundi þeirra í Genf
í lok október að þjóðvegurinn til
Jaffna-skagans yrði opnaður á ný.
„Friðarviðræðurnar eru ennþá í
biðstöðu og fylkingarnar hafa ekki
fallist á hvar og hvenær þær eigi að
hittast aftur. Það er mjög ólíklegt að
viðræðurnar fari í ákjósanlegan far-
veg fyrr en búið er að leysa ágrein-
inginn um veginn til Jaffna.
Eftirlitssveitirnar hafa verið
tengiliður til að liðka fyrir ferlinu.
Við erum í hlutverki sendiboða, því
fylkingarnar talast ekki beint við.
Við þurfum að vinna með þeim,
hvorri í sínu lagi, þannig að þær geti
rætt hlutina.“
Lið SLMM
kallað til
Colombo
Þorfinnur
Ómarsson
HÆTTA var á því í gær að áætlanir
tugþúsunda manna um jólahald og
jólafrí færu í vaskinn vegna mikillar
og þrálátrar þoku í London. Vegna
hennar hafði Heathrow-flugvöllur
verið lokaður í þrjá daga og aðeins í
gær var aflýst 300 flugferðum.
Nokkuð er um að fólk, sem beðið hef-
ur allan tímann í flughöfninni, hafi
látið bugast.
Flugstöðvarbyggingin á Heath-
row líkist mest risastórum flótta-
mannabúðum þar sem þúsundir
manna eigra um í hálfgerðu vonleysi.
Þeir, sem eru svo heppnir að geta
sest, reyna að loka augunum og
sofna stundarkorn en það er erfitt í
öllum ysnum og skarkalanum. Þar
fyrir utan eru afgreiðslu- og biðsal-
irnir ekki kyntir neitt sérstaklega og
því er þar kalt á nóttinni. Hefur verið
reynt að bæta úr því með teppum og
heitu súkkulaði en líðan margra er
orðin heldur bágborin.
Hefst við í tjöldum
Fólkið, sem heita má innilokað á
Heathrow, er alls staðar að úr heimi
og þar á meðal er danska parið Sør-
en Thor og Sofie Baagøe. Þau voru
að koma frá Kólumbíu með millilend-
ingu í Miami en voru búin að bíða í
þrjá daga eftir ferð til Kaupmanna-
hafnar.
„Flugstöðvarbyggingin er yfirfull
og búið að setja upp stór tjöld fyrir
utan. Þar er alls konar fólk, allt frá
bandarískum kvikmyndastjörnum til
puttaferðalanga, og öðru hverju læt-
ur einhver bugast af þreytu og von-
brigðum,“ sagði Thor. Sagðist hann
hafa hitt einn landa sinn, sem var að
koma frá Buenos Aires með milli-
lendingu í London.
„Hann var þrisvar sinnum búinn
að koma sér fyrir í flugvél, sem átti
að fara til Kaupmannahafnar. Þá var
öllu aflýst og aftur í röðina,“ sagði
Thor og bætti við, að þau Baagøe
væru í góðu skapi og viss um að þau
myndu halda jól heima í Danmörku
en ekki á Heathrow.
Breskir veðurfræðingar sögðu í
gær að líklega yrði þokan viðvarandi
að einhverju leyti fram yfir helgi,
einkum í Englandi og Wales.
Jólafríið í uppnámi
vegna mikillar þoku
Heathrow-flughöfnin eins og risastórar flóttamannabúðir
þar sem sumir láta bugast af þreytu og vonbrigðum
AP
Þokudrungi Þotan sést illa í þykkri þokunni, sem legið hefur yfir dögum
saman. Í gær var á fjórða hundrað flugferða aflýst.
Baidoa. AFP. | Eþíópumenn sendu í
gær skriðdreka og fleiri hermenn á
átakasvæðin í Sómalíu, að sögn sjón-
arvotta. Hermt var að bardagarnir
hefðu harðnað á tveimur vígstöðvum
nálægt bænum Baidoa sem er á valdi
bráðabirgðastjórnar landsins.
Alþjóðaráð Rauða krossins
(ICRC) sagði að tugir manna lægju í
valnum eftir þriggja daga átök og
margir íbúar á svæðinu hefðu misst
heimili sín.
Bráðabirgðastjórnin sagði að her-
sveitir hennar, sem njóta stuðnings
eþíópískra hermanna, hefðu fellt yfir
500 liðsmenn hreyfingar íslamista
sem hafa náð höfuðborginni, Mogad-
ishu, og stórum svæðum í sunnan-
verðu landinu á sitt vald.
„Við höfum miklar áhyggjur af að-
stæðum fólks sem kann að verða fyr-
ir árásum á átakasvæðunum,“ sagði
Pascal Hundt, yfirmaður ICRC í
Sómalíu. „Við skorum á allar fylking-
arnar að hlífa saklausum borgurum
og vernda þá.“
Sjúkrahús hafa tekið á móti a.m.k.
200 særðum hermönnum.
Mörg saklaus börn féllu
Ali Jama, upplýsingaráðherra
bráðabirgðastjórnarinnar, sagði að
yfir 500 liðsmenn íslömsku hreyfing-
arinnar hefðu fallið á tvennum víg-
stöðvum í grennd við Baidoa síðustu
þrjá daga. „Flest þeirra sem féllu
eru saklaus börn sem voru send á
vígstöðvarnar. Okkur þykir þetta
miður . . . við viljum ekki úthella
blóði barna.“
Mikið
mannfall í
Sómalíu
♦♦♦
Moskvu. AP. | Georgía á að greiða tvö-
falt hærra verð fyrir rússneskt jarð-
gas á næsta ári en landið hefur gert
til þessa, samkvæmt samkomulagi
sem undirritað var í gær.
Talið er að verðhækkunin geti
stefnt bágum efnahag Georgíu í
hættu.
Áður en rússneska gasfyrirtækið
Gazprom skýrði frá samkomulaginu
sögðust stjórnvöld í Georgíu ætla að
kaupa jarðgas frá Aserbaídsjan en
ekki Rússlandi. Forsætisráðherra
Georgíu, Zurab Nogaideli, sagði þó
síðdegis í gær að Aserbaídsjan gæti
ekki séð Georgíu fyrir jarðgasi á
fyrri hluta næsta árs og Georgíu-
menn þyrftu því að kaupa jarðgas
frá Rússlandi.
Samið við
Gazprom
Verð á gasi til
Georgíu tvöfaldast