Morgunblaðið - 23.12.2006, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Eftir Sigurð Jónsson
Selfoss | „Við áttum von á því að
jarðvatnið kæmi upp um allan bæ
en það hækkar með yfirborði Ölf-
usár. Þetta er þekkt staðreynd
sem við vitum af og nauðsynlegt
er að sem flestir geri sér grein
fyrir,“ sagði Kristján Einarsson,
slökkviliðsstjóri Brunavarna Ár-
nesinga, en slökkviliðsmenn stóðu
í ströngu við að dæla vatni frá hús-
um næst Ölfusá þegar flóðið í ánni
náði hámarki.
„Ég vil herða á því að það verði
ekki byggð hús með kjöllurum á
Selfossi þar sem verðmæti eru
geymd. Það er allt í lagi að hafa
kjallarana sem bílageymslur en
ekki annað. Vilji menn hafa kjall-
arana til annarra nota verða þeir
að grípa til aðgerða til að verja þá
fyrir vatni, með því að steypa dúk
í gólfið eða á annan hátt. Vilji
menn gera þetta þá gefur tækni
dagsins í dag möguleika á því að
bregðast við með dælubúnaði og
viðvörunarkerfum. Það er algjör
óþarfi fyrir húseigendur að láta
þetta koma í bakið á sér. Það voru
allt þekktar aðstæður sem komu
upp núna við þetta flóð,“ sagði
Kristján en slökkviliðsmenn
dældu vatni úr bílakjallara versl-
unarmiðstöðvarinnar Kjarnans,
úr kjallara Hótel Selfoss,
Tryggvaskála og frá Grænumörk
2.
Kjallarinn í verslunarmiðstöð-
inni Kjarnanum er byggður sem
bílakjallari og á sínum tíma fékkst
byggingaleyfi fyrir honum með
ákveðnum skilyrðum vegna þess
að gólfið er fyrir neðan þekktar
flóðahæðir.
Sjá má á Ölfusárbrú merkingar
á vatnshæð í flóðum sem komið
hafa. Kristján sagði að í ljósi þessa
væri mjög óeðlilegt að geyma bók-
haldsgögn í slíku húsnæði eða ein-
hver verðmæti nema menn væru á
varðbergi og með viðvörunarbún-
að svo þeir gætu sjálfir brugðist
við þegar hækkaði í ánni.
„Það hefur alltaf legið fyrir að
það myndi flæða inn í þennan bíla-
kjallara en þrátt fyrir það treysta
eigendur hússins á það að slökkvi-
liðið komi og standi vaktina við að
dæla frá húsinu. Það er auðvitað
sjálfsagt þegar hætta steðjar að.
En þarna þyrftu húseigendur að
vera með búnað, lokur eða dælur
sem þeir gætu sett í gang til að
tryggja sitt öryggi enn frekar,
sagði Kristján.
Dælan virkaði ekki
Í nýbyggingu Hótel Selfoss er
dælubúnaður sem dælir grunn-
vatni stöðugt frá húsinu. Aðrar
dælur er til staðar sem fara eiga í
gang og taka toppálag þegar
grunnvatn hækkar í sérstökum
dælubrunni undir húsinu. Þessi
varadæla fór ekki af stað, var föst.
Í ljós kom að ekkert eftirlit hafði
verið með dælunni og húseigendur
látið undir höfuð leggjast að fylgj-
ast með þessum búnaði. Þegar
slökkviliðsmenn komu með jafn-
stóra dælu og dældu úr brunnum
við húsið þá hvarf vatnið.
Í kjallara Tryggvaskála nægði
að hafa litla dælu því steypan í
kjallaranum var svo þétt að hún
hleypti vatni ekki í gegn nema að
litlu leyti. Í kjallaranum í Grænu-
mörk 2 þar sem eru íbúðir eldra
fólks kom vatn upp í gegnum
steypuna í gólfinu þar sem eru
geymslur frá íbúðunum. Þrátt fyr-
ir mikla og þykka steypu í gólfinu
þá gerðist þetta.
Kallar eigendur á fund
„Ég mun kalla eigendur þess-
ara húsa og annarra til fundar um
þessi mál svona til að fara yfir þær
aðstæður sem upp komu og sem
við vitum að geta komið upp. Ég
vil að eigendur húsa séu á varð-
bergi og hafi tiltækar ráðstafanir
sem þeir geta sjálfir gripið til en
til þess þarf að hafa vakandi auga
með búnaði sem settur er upp svo
hann virki þegar á reynir. Slökkvi-
liðið er tilbúið til hjálpar en að-
stæður geta verið það erfiðar að
við ráðum ekki alveg við að sinna
öllu þegar mikil flóð verða. Við
þurfum að vera vel á verði gagn-
vart grunnvatninu þegar aðstæð-
ur sem þessar koma upp,“ sagði
Kristján Einarsson slökkviliðs-
stjóri í samtali við fréttaritara.
Slökkviliðsstjórinn á Selfossi vill herða reglur um kjallara húsa
Mikill grunnvatnsþrýstingur
takmarkar notkun kjallara
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Dælt af krafti Slökkviliðsmenn Brunavarna Árnessýslu á Selfossi
þurftu að dæla vatni frá bílakjallara Kjarnans í flóðunum í vikunni.
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Ölfus | Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra afhjúpaði á dögunum minning-
arskjöld um þá sem farist hafa í umferð-
arslysum á Suðurlandsvegi og kveikti á
lýsingu minningarkrossanna við Kög-
unarhól í Ölfusi. Við þetta tækifæri lagði
samgönguráðherra áherslu á nauðsyn um-
ferðaröryggis og markvissra aðgerða í
þeim efnum.
Krossarnir við Kögunarhól voru settir
upp til að minnast þeirra sem farist hafa í
umferðarslysum á Suðurlandsvegi, einnig
til að minna vegfarendur á nauðsyn þess
að fara varlega í umferðinni, til þess að
leggja áherslu á tvöföldun og lýsingu Suð-
urlandsvegar og ná með því hámarks-
öryggi fyrir umferðina sem um veginn fer.
Nauðsynlegt að auka öryggi vegarins
Auk samgönguráðherra tóku til máls
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á
Selfossi, sem lagði áherslu á nauðsyn þess
að bæta öryggi vegarins og Aldís Haf-
steinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, sem
sagði nauðsynlegt að tvöfalda Suðurlands-
veg til þess að ná sem mestu öryggi.
Myndin var tekin við lok athafnarinnar.
Fulltrúar Vina Hellisheiðar, Guðmundur
Sigurðsson, Garðar Eiríksson, Hannes
Kristmundsson og Sigurður Jónsson,
Sturla Böðvarsson, Ólafur Helgi Kjart-
ansson sýslumaður, Kjartan Þorkelsson,
sýslumaður á Hvolsvelli, og Aldís Haf-
steinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði.
Kveikt á lýsingu
við krossana undir
Kögunarhóli
Ljósmynd/Magnús Hlynur Hreiðarsson
GERT er ráð fyrir því að heildar-
tekjur Akureyrarbæjar á næsta ári
verði tæpir 12,2 milljarðar króna
en heildargjöld tæplega 11,9 millj-
arðar, og rekstarafgangur því tæp-
ar 300 milljónir. Bæjarstjóri segir
áætlunina einkennast af mjög
miklu framboði þjónustu sem bæj-
arfélagið veitir íbúum sínum.
„Akureyrarbær rekur mjög víð-
feðma þjónustu á öllum sviðum,
það er alveg sama hvar ég ber nið-
ur; það er varla til sú þjónustu-
starfsemi sem sveitarfélag rekur
hér á landi sem ekki er veitt öll hér
í þessu sveitarfélagi,“ sagði Krist-
ján Þór Júlíusson bæjarstjóri við
Morgunblaðið. Fjárhagsáætlun
fyrir árið 2007 var samþykkt á
fundi bæjarstjórnar á þriðjudag-
inn.
Svigrúm minnkar
Kristján Þór segir að áfram sé
lögð áhersla á mikla þjónustu við
bæjarbúa og því hafi fjárhagsáætl-
unin óhjákvæmilega í för með sér
að svigrúm til viðbótarfram-
kvæmda – að uppfylla allar óskir
um aukna þjónustu á flestum svið-
um – minnki á hverju ári á meðan
tekjur vaxa ekki í sama hlutfalli og
kostnaður.
„En þótt við bætum ekki við
mjög mörgum nýjum atriðum í
þjónustunni eru engu að síður
mörg verkefni í gangi; ég nefni nýj-
an leikskóla, Hólmasól, sem kemur
á fullu inn í rekstri á nýju ári, en
hann gerir okkur kleift að tryggja
börnum að 18 mánaða aldri leik-
skólapláss.“
Bæjarstjóri segir einnig að
greiðslur til dagmæðra hafi aukist
til þess að jafna kostnað foreldra af
vistun barna sinna, hvort sem þau
eru á leikskóla eða hjá dagmæðr-
um. Þá nefnir hann tilraun sem
hefst um áramótin þegar hætt
verður að taka gjald fyrir ferðir
með strætisvögnum bæjarins, og
íbúar í Hrísey greiða heldur ekki
fargjald með ferjunni á milli eyju
og lands.
Mjög stór verkefni í gangi
Kristján nefnir tvö stór atriði,
varðandi uppbyggingu á næstu ár-
um. „Bygging menningarhúss er
gríðarlega stórt verkefni og við er-
um líka með stórt verkefni í gangi í
Hrísey – byggingu íþróttahúss fyr-
ir grunnskólann og byggingu sam-
komusalar við fjölnotahúsið.“
Alls leggur bærinn 1.200 millj-
ónir í framkvæmdir vegna æsku-
lýðs-, íþrótta og menningarmála á
næsta ári, skv. fjárhagsáætluninni.
„Við höldum líka áfram með ýmis
verkefni sem fólk verður almennt
ekki mikið vart við, t.d. í gatnagerð
og fráveitu,“ sagði Kristján Þór.
Bæjarstjóri nefnir einnig að við
fjárhagsáætlun næsta árs sé ein-
kennandi töluverð aukning á
launakostnaði sveitarfélagsins
vegna aukinnar þjónustu við
íbúana. „En við höldum í heiðri
slagorð bæjarins: Akureyri – öll
lífsins gæði. Hér eiga að vera bestu
skilyrði til búsetu.“
Eitt af því sem ráðgert hafði ver-
ið en slegið hefur verið á frest er
bygging íþróttahúss við Giljaskóla
en þar var fyrirhuguð aðstaða fyrir
fimleikafólks bæjarins.
„Allir bæjarfulltrúar, hvar í
flokki sem þeir eru, vilja koma upp
aðstöðu fyrir fimleika og jafnframt
er það lögskipað verkefni sveitar-
félaga til að sjá nemendum fyrir
aðstöðu til þess að stunda sitt nám,
m.a. að byggja aðstöðu til þess að
nemendur við grunnskóla geti
stundað íþróttir.“
Giljaskólahúsið allt of dýrt
Kristján segir að kostnaðaráætl-
un við verkefnið hafi verið komin
upp í 750–800 milljónir, sem í ljósi
reynslunnar gæti farið yfir einn
milljarð króna, og það sé einfald-
lega miklu meira en lagt var upp
með á sínum tíma. Því sé hvort
tveggja skynsamlegt og eðlilegt að
staldra örlítið við og fara yfir málið
að nýju. En hann leggur áherslu á
að vilji sé til þess að vinna að því
með foreldrafélagi skólans og for-
ráðamönnum Fimleikafélags Ak-
ureyrar að finna viðunandi lausn.
1.200 milljónir í framkvæmdir vegna æskulýðs-, íþrótta- og menningarmála
„Bestu skilyrði til búsetu“
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Stórt verkefni Unnið er við að steypa upp menningarhús ið sem byrjað
var á í haust, á horni Strandgötu og Glerárgötu. Myndin er tekin í gær.
Í HNOTSKURN
»Tekjur Akureyrarbæjarnæsta ár verða 12,2 millj-
arðar, gjöld 11,9 og rekstr-
afgangur því 300 milljónir.
» Kristján Þór Júlíussonbæjarstóri segir mikið
framboð þjónustu einkenna
fjárhagsáætlun næsta árs.
» Byggingu íþróttahússvið Giljaskóla hefur ver-
ið slegið á frest, en þar átti
fimleikafólk bæjarins að fá
aðstöðu. Bæjarstjóri segir
komið í ljós að verkefnið hafi
infaldlega verið allt of dýrt;
bærinn hafi ekki fjárhags-
legt bolmagn til að fara í það
eins og er.
GERÐUR hefur verið verkefnasamn-
ingur milli Hörgárbyggðar, Akureyr-
arbæjar og Minjasafnsins á Akureyri um
uppbyggingu ferðamannastaðar á mið-
aldakaupstaðnum Gásum í Eyjafirði.
Undirskriftin fór fram í vikunni í skötu-
veislu um borð í Húna II sem liggur við
Torfunesbryggjuna á Akureyri.
Samningurinn kveður á um framhald
þeirrar vinnu að gera minjar hins forna
Gásakaupstaðar aðgengilegar og koma á
fót góðri aðstöðu og sýningu fyrir gesti
og gangandi. Mjög miklir möguleikar
eru taldir liggja í því fyrir uppbyggingu
ferðaþjónustu í Eyjafirði. Hörgárbyggð
annast stjórnsýslu verkefnisins, Minja-
safnið stýrir því faglega og leggur til
verkefnisstjóra og Akureyrarstofa kemur
að þróun verkefnisins fyrir hönd Ak-
ureyrarbæjar. Stefnt er að því að í fram-
tíðinni verði verkefnið rekið sjálfstætt.
Gásir er best varðveitti miðaldakaup-
staður á Íslandi en Minjasafnið á Ak-
ureyri hefur staðið fyrir fornleifaupp-
greftri þar síðustu fimm ár. Stefnt er að
því að í framtíðinni verði Gásakaup-
staður lifandi sýning þar sem handverks-
fólk verður að störfum og leik í end-
urgerð af hluta kaupstaðarins. Áherslan
verður á verslun og viðskipti ásamt
handverki og iðnaði þessa tímabils. Gásir
verður um leið minjagarður með menn-
ingarlegu ívafi sem byggist á fornleifum,
sögu og náttúru staðarins sem miðlað
verður með ólíkum hætti.
Minjarnar á
Gásum verða
aðgengilegar
ÁHUGAFÓLK um friðvænlegri heim stend-
ur að árlegri blysför í þágu friðar í kvöld kl.
20. Gengið verður frá Samkomuhúsinu
(Leikhúsinu) kl. 20:00 og út á Ráðhústorg.
Árleg blysför
♦♦♦