Morgunblaðið - 27.12.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.12.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 351. TBL. 94. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 27. DESEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Í SUNDRALANDI TVEIR HUGARHEIMAR LÍSU Í ÓFAGURRI VERÖLD BORGARLEIKHÚSSINS >> 40 ÞRÍR FEIMNIR HRÚTAR OG ÞRJÁTÍU KINDUR FENGITÍMINN Í FJÁRBORGUM >> 20 Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is EKKI tókst að hefja dælingu á olíu úr flutningaskipinu Wilson Muuga, sem strandaði við Hvalsnes að morgni 19. desember sl., en unnið var að undirbúningi dælingar í gær. Þegar hefja átti dælingu um kvöldmatarleytið gaf sig tenging og fór eitthvað af olíu í sjóinn en að sögn Kristjáns Geirssonar hjá Um- hverfisstofnun var um lítið magn að ræða, nokkra lítra. Síðar um kvöldið var reynt að hefja dælingu á nýjan leik en þá gerðist það að snúningur kom á slönguna þannig að ekki var unnt að dæla. Háflóð skall á fljótlega í kjölfarið og ekki reyndist unnt að halda að- gerðum áfram um kvöldið en að sögn Árna Ingimundarsonar hjá Olíudreifingu, sem sér um dæl- inguna, stóð til að reyna aftur í nótt. „Við förum að dæla um leið og við getum.“ Aðspurður hve langan tíma það muni taka að dæla olíunni yfir segir Árni að það sé erfitt að segja til um. „Það mun taka nokkrar klukku- stundir en ég veit ekki hvaða af- köstum við náum.“ | 6 Náðu ekki að hefja dælingu í gær Morgunblaðið/Ómar Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is AÐ MINNSTA kosti 260 manns fórust þegar eldur blossaði upp í bensínleiðslu í fátækrahverfi í Lag- os, stærstu borg Nígeríu, í gær. Hópur þjófa hafði borað gat á leiðsluna til að stela bensíni og hundruð íbúa hverfisins hafði drifið að til að verða sér úti um eldsneyti þegar eldurinn gaus upp. Íbúar fátækrahverfisins sögðu að þjófarnir hefðu stolið bensíni úr leiðslunni mánuðum saman til að selja eldsneytið á svörtum mark- aði. Þótt Nígería sé mesti olíufram- leiðandi Afríku hefur spilling og óstjórn orðið til þess að olíuhreins- unarstöðvar landsins anna ekki eft- irspurn og algengt er að bensín- stöðvar verði uppiskroppa með eldsneyti. Verðið á einum brúsa af bensíni á svörtum markaði getur þá jafngilt um tveggja vikna laun- um fátæks Nígeríumanns. Sjónarvottar sögðu að þjófarnir hefðu farið án þess að loka fyrir gatið og íbúa í grenndinni hefði drifið að með brúsa, fötur og jafn- vel plastpoka til að verða sér úti um bensín. „Þarna voru mæður, með lítil börn,“ sagði Emmanuel Unokhua, verkfræðingur sem býr nálægt slysstaðnum. „Ég sárbað þau um að fara í burtu.“ „Að fólk skuli deyja fyrir brúsa af bensíni! Þeir sem dóu brunnu svo illa að fjölskyldur þeirra geta ekki borið kennsl á þá,“ sagði gam- all maður og hristi höfuðið.  Yfir 2.000 hafa farist | 15 Reuters Eldhaf á svipstundu Nígeríumaður hreinsar sót af andlitinu eftir að eldur gaus upp og varð fjölda manns að bana á augabragði í Lagos. Minnst 260 létu lífið Mikill eldur blossaði upp þegar fátækir íbúar Lagos-borgar reyndu að verða sér úti um bensín úr leiðslu sem þjófar höfðu gert gat á til að stela eldsneyti Í HNOTSKURN » Rauði krossinn sagði aðtala látinna gæti hækkað vegna þess að talið væri að margir þeirra sem fengu brunasár hefðu farið í felur af ótta við að verða sóttir til saka fyrir að stela bensíni. » Nokkrir Lagos-búarsögðust hafa sagt lög- reglunni frá skemmdar- verkum á leiðslunni löngu áður en eldurinn gaus upp. Colombo. AFP. | Kofi Annan, fráfarandi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, gagnrýndi í gær stjórnarher Srí Lanka og uppreisnarmenn úr röðum Tamíla fyrir að tefja endurreisnarstarfið í landinu eftir flóðbylgjuna miklu fyrir tveimur árum. Um 220.000 manns létu lífið í flóðbylgj- unni, þar af 31.000 á Srí Lanka. „Enginn hefði getað komið í veg fyrir eyðilegginguna af völdum flóðbylgjunnar,“ sagði Kofi Annan. „En við getum í samein- ingu komið í veg fyrir ófriðarbylgjuna sem Srí Lanka-búar eiga enn einu sinni yfir höfði sér.“ Um 100.000 íbúðir á Srí Lanka eyði- lögðust eða skemmdust í flóðbylgjunni og aðeins um 56% þeirra hafa verið endur- reistar. Þúsundir landsmanna búa enn í tjöldum. | 26 Ófriður tálmar endurreisn Annan gagnrýnir stríðs- fylkingarnar á Srí Lanka ♦♦♦ „VIÐ viljum biðja fólk afsökunar á þessum mistökum,“ segir Baldur Baldursson, framkvæmdastjóri pitsufyrirtækisins Dominos, en sms-skilaboð með jólakveðju frá fyrirtækinu voru send á um 80 þúsund viðskiptavini fyrirtækisins og bárust mörg þeirra er komið var fram á að- fangadagskvöld og fólk snæddi jólamat- inn með fjölskyldu sinni. „Við vorum í góðri trú. Þessi skilaboð áttu að fara út á milli kl. 10 og 14 en mistök hjá þjón- ustuaðila okkar urðu til þess að skeytin héldu áfram að berast,“ segir Baldur sem hafnar þeim orðum Jóhannesar Gunn- arssonar, formanns Neytendasamtak- anna, að sending Dominos sé dulbúin aug- lýsing. „Þetta var jólakveðja sem var hugsuð til að gleðja fólk,“ segir hann. Biðjast afsök- unar á sms-um

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.