Morgunblaðið - 28.12.2006, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 28.12.2006, Qupperneq 1
Í HNOTSKURN » Degi eftir að FL Groupkaupir 6% hlut í móður- félagi American Airlins sel- ur félagið Sterling fyrir 20 milljarða. » Samanlögð velta félag-anna innan Northern Travel er um 120 milljarðar. Eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl.is EIGENDUR hins nýstofnaða Northern Travel Holding stefna að því að skrá félagið á markaði innan tveggja ára, samkvæmt upplýsing- um Pálma Haraldssonar, stjórnar- formanns félagsins. Fons eignar- haldsfélag í eigu þeirra Pálma og Jóhannesar Kristinssonar verður stærsti hluthafinn í Northern Trav- el Holding með 44% hlut. Tilkynnt var um kaup félagsins í gær á danska lággjaldafélaginu Sterling af FL Group fyrir um 20 milljarða. Aðrir eigendur í Northern Travel eru FL Group, með 34%, og fjár- festingafélagið Sund með 22%. „Það hefur verið langur aðdrag- andi að þessu máli og samnings- gerðin hefur verið mjög flókin. Ég er afskaplega ánægður með þá nið- urstöðu sem fékkst. Ég held að hér sé verið að búa til mjög spennandi fyrirtæki, sem verður leiðandi á Norðurlöndum í lággjaldaflugi, leiðandi í smásölu á ferðaþjónustu og mjög stórt á leiguflugsmarkaðn- um í Bretlandi,“ sagði Pálmi í sam- tali við Morgunblaðið í gær. Í október í fyrra seldi Fons Sterling til FL Group á 14,6 millj- arða króna, en hið nýja félag, Northern Travel Holding, kaupir nú sem fyrr segir Sterling á 20 milljarða króna, rúmu ári síðar. Pálmi var spurður hvort hann teldi að raunvirði félagsins hefði vaxið sem þessu nemur, á svo skömmum tíma. „Já, það held ég. Menn sjá það nú bara á afkomutölum hjá FL Group eftir þriðja ársfjórðung, sem birtar voru fyrir skömmu, þar sem kemur fram að afkomubatinn hjá Sterling á milli áranna 2005 og 2006 er á bilinu 6 til 8 milljarðar króna og ég held að þær tölur tali bara sínu máli,“ sagði Pálmi. Sterling flýgur til Íslands „Það er alveg ljóst að Sterling mun fljúga fyrir þetta nýja félag, bæði til Egilsstaða og Akureyrar. Sterling er með einn yngsta flugflota í Evrópu,“ sagði Pálmi. Hann sagði að sama gilti um sænsku ferðaskrifstofuna Ticket. Þar yrði áframhaldandi vöxtur hjá fé- laginu. Hannes Smárason, forstjóri FL Group, segir að með stofnun North- ern Travel verði til nýtt og spennandi afl á ferðamannamarkaðnum á Norð- urlöndunum. Með sölu á Sterling skapist betri tækifæri til að nýta tækifæri á starfssvæði hins nýja fé- lags. Nýr ferðarisi stefnir á skráningu á markaði FL Group, Fons og Sund stofna félag um kaup á Sterling fyrir 20 milljarða                FL Group selur | Viðskipti STOFNAÐ 1913 352. TBL. 94. ÁRG. FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is FÖNK AÐ EILÍFU MINNING UM DRAMATÍSKAN JAMES BROWN OG AMEN EFTIR EFNINU >> 39 GLEYMDAR GYÐJUR SNORRA-EDDU Í TÓNUM TRÚIÁGYÐJUR GJÖRNINGUR >> 18 MARGIR Danir gera allt of miklar kröfur til sjálfra sín og afleiðingin er streita og alls kyns kvillar af hennar völdum. Kemur þetta fram í nýrri könnun en höfundar hennar líkja streitunni við viðvarandi landfarsótt. Streita er sá kvilli sem ein- kennir lífið nú á dögum og hún verður sí- fellt verri og verri. Er það niðurstaðan af Gallup-könnun, en 70% svarenda kváðust þjást af streitu í vinnunni. Rúmlega tíundi hver kvaðst hafa verið frá vinnu dögum saman vegna streitu og fylgikvilla hennar. Vinnusálfræðingurinn Jørgen Møller Christiansen telur að 10– 12% Dana þjáist af alvarlegri streitu og um 30% að því marki að kanna þurfi það nánar. „Í mörgum fyrirtækjum er komið til móts við fólk með því að kenna því að takast á við streituna en líklega væri ár- angursríkara að huga betur að aðstæðum á vinnustað. Mestu skiptir að krefjast ekki meira af fólki en það getur með góðu móti orðið við,“ segir Christiansen. Streitan eins og landfarsótt Um 70% Dana segjast þjást af streitu í vinnunni Washington. AFP, AP. | Stjórn George W. Bush Bandaríkjaforseta lagði til í gær- kvöldi að ísbirnir yrðu settir á lista yfir dýr í útrýmingarhættu. Stjórnin sagði að ísbirnir væru taldir í hættu vegna loftslagsbreytinga í heim- inum, mengunar og ofveiði. Er þetta í fyrsta skipti sem stjórn Bush viðurkennir að dýrategund kunni að vera í útrýming- arhættu vegna loftslagsbreytinga. Talið er að í heiminum séu um 20.000– 25.000 ísbirnir, þar af 4.700 í Alaska. Sér- fræðingar hafa spáð því að ísbjörnum fækki um 30% á næstu 45 árum. Stjórn Bush vill friða ísbirni ♦♦♦ FISKSALA tekur jafnan kipp milli jóla og ný- árs enda eru landsmenn þá flestir búnir að fá nóg af þungmeltu kjöti og þrá að fá eitthvað léttara í kroppinn. Stundum bregður svo við að skortur verður á fiskmeti enda ekki mörg skip sem landa strax eftir hátíðirnar. Feðgarnir á Von GK 113, þeir Eyþór Áki Sigmarsson skipstjóri og hásetinn Sigmar Ey- þórsson, létu ekki sitt eftir liggja og lögðu af stað á miðin um klukkan fimm árdegis og lönduðu í Sandgerði síðdegis í gær. Fiskiríið var ekkert merkilegt, sagði Sigmar enda haugasjór og leiðindabræla. Þó náðust tvö tonn af þorski og ýsu úr sjó. Hjá fiskbúðakeðjunni Fiskisögu var fisk- salan mun meiri en væntingar stóðu til og mun meira seldist hjá Fylgifiskum en í fyrra. Óskar Garðarsson, framkvæmdastjóri Fiskisögu, sagði erfitt að fá fisk og hann væri líka dýr. Staðan hefði verið ágæt í gær en óvíst hvert framboðið yrði í dag. Morgunblaðið/ÞÖK Fiskurinn er léttari í kroppinn Moskva. AP. | Ríkissaksóknari Rússlands kvaðst í gær hafa hafið rannsókn á því hvort Leoníd Nevzlín, fyrrverandi aðaleigandi olíufyrirtækisins Yukos, væri viðriðinn morðið á Rússanum Alexander Lítvínenko, fyrrverandi njósnara sem dó af völdum geislavirks eiturs í London 23. nóvember. Saksóknarinn sagði að Nevzlín og fleiri Yukos-menn, sem rússnesk yfirvöld hafa lýst eftir, kynnu að hafa fyrirskipað morðið. Saksóknarar væru að undirbúa hugsanlega framsalskröfu. Nevzlín er í útlegð í Ísrael. Alex Goldfarb, vinur Lítvínenkos, sagði saksóknarann fara með „tómt bull“ því að rússnesk stjórnvöld hefðu fyrirskipað morðið. Bendla Yukos- menn við morð ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.