Morgunblaðið - 29.12.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.12.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 353. TBL. 94. ÁRG. FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is ÖRLAGASAGA LEIKVERK BYGGT Á UPPVEXTI KK SETT UPP Í BORGARNESI >> 18 SJÓNRÆNN DANS- GJÖRNINGUR Í SAFNI TÍSKUTÁKNIN MARGRÉT SARA >> 48 BRÆÐURNIR Haraldur og Björn eru hér með kanínur í gamla fjósinu í Kristnesi skammt frá Akureyri en þær eru þó langt frá því einu gælu- dýrin á bænum því að foreldrar þeirra, þau Helgi Þórsson og Beate Stormo, eru líka með í fjósinu kött, geitur, „algjör gleðidýr“, svartar landnáms- hænur, gullfiska, fasana og stundum hesta líka. Gullfiskarnir eru í polli úti í garði á sumrin en teknir inn og hafðir í baðkari yfir veturinn. | 24 Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Gæludýra- fjósið í Kristnesi Mogadishu, Washington. AP, AFP. | Tom Casey, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins, sagði í gær eftir innrás hersveita bráðabirgða- stjórnar Sómalíu og eþíópískra hermanna inn í Mogadishu, höfuðborg landsins, að langtíma- lausn ástandsins í Sómalíu fælist ekki í ofbeldi og hvatti til samningaviðræðna stríðandi fylk- inga. „Við erum komnir til Mogadishu,“ sagði Mohamed Ali Gedi, forsætisráðherra bráða- birgðastjórnarinnar, eftir að hafa rætt við leið- toga ættflokka um samstarf við að koma bráða- birgðastjórninni til valda í höfuðborginni án blóðsúthellinga. Nokkrum klukkustundum áð- ur höfðu leiðtogar hreyfingar, sem höfðu reynt að stofna íslamskt ríki í Sómalíu, hörfað frá borginni. „Við erum að ræða leiðir til að tryggja að glundroði taki ekki við í Moga- dishu,“ sagði forsætisráðherrann. „Við ætlum ekki að láta Mogadishu brenna.“ | 16 „Ætlum ekki að láta Mogadishu brenna“ Reuters Kaflaskipti Hermenn bráðabirgðastjórnar Sómalíu mættu engri mótspyrnu í Mogadishu. Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is ALDREI áður hafa lögregla og toll- gæsla lagt hald á viðlíka magn af kókaíni og amfetamíni og á árinu sem nú er að líða. Á þessu ári hefur verið lagt hald á 12,8 kíló af kókaíni og 46,4 kíló af amfetamíni, sem er örlítið meira magn en lagt var hald á samanlagt á síðustu sex árum á undan, 2000–2005. „Auðvitað er ánægjulegt að leggja hald á svo mikið magn af efnum því það segir sig sjálft að það hefði verið slæmt ef þetta hefði komist inn á markaðinn,“ sagði Ás- geir Karlsson, yfirmaður fíkniefna- deildar lögreglunnar í Reykjavík, í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann segir erfitt að meta þróunina á fíkniefnamarkaðinum út frá þess- um tölum, en ljóst sé að fíkniefna- sendingarnar séu stærri en áður. Jóhann R. Benediktsson, sýslu- maður á Keflavíkurflugvelli, segir það alveg ljóst að lögregla og toll- gæsla hafi náð mjög háu hlutfalli, og hærra en áður, af þeim efnum sem smyglað var inn í landið á árinu sem er að líða. Hann vildi þó ekki gefa upp hvernig þjálfun og tækjabúnaður hefði verið bættur til að ná þessum árangri. „Við höldum rannsóknaraðferð- um okkar kirfilega leyndum því um leið og ég fer að útskýra hvernig við bætum rannsóknaraðferðir okkar er ég að upplýsa hvernig við vinnum. Þessi árangur er ekki til- viljun, hann er árangur þrotlausrar vinnu í mörg ár og markvissrar uppbyggingar.“ Jóhann segir smygltilraunir sí- breytilegar og ákveðnar bylgjur gangi í smyglinu eins og öðru. Í ár hafi til að mynda verið mikið um að reynt hafi verið að smygla í far- angri, en minna um smygl innvortis.  Tóku | Miðopna „Árangurinn ekki tilviljun“ Í HNOTSKURN » Lögregla og tollgæslahafa lagt hald á 12,8 kg af kókaíni það sem af er ári, og 46,4 kg af amfetamíni. » Söluverðmæti amfetamínsog kókaíns sem lagt hefur verið hald á í ár hefði getað numið um 330 milljónum kr. hefði það sloppið inn í landið. » Magnið af hassi og e-töflum sem tekið hefur verið á þessu ári er hins vegar minna en meðaltal sl. 6 ára. Lögregla og tollgæsla hafa aldrei lagt hald á meira af kókaíni og amfetamíni Rio De Janeiro. AP. | Meðlimir glæpa- samtaka í Brasilíu kveiktu í stræt- isvögnum og lögreglustöðvum í Rio De Janeiro í gær með þeim afleið- ingum að að minnsta kosti 19 týndu lífi og 20 særðust. Sjö manns fórust þegar kveikt var í strætisvagni, þrír lögreglumenn létust í átökunum og tveir borgarar voru skotnir til bana. Sjö meðlimir glæpasamtakanna létust í 12 skipu- lögðum árásum. Árásirnar voru gerðar til að mót- mæla innsetningu nýs ríkisstjóra 1. janúar nk. og hafði lögreglan varað við þeim fyrir nokkru. Blóðbað í Brasilíu ♦♦♦ FÉLAG íslenskra flugumferðar- stjóra (FÍF) mun greiða flugumferð- arstjórum sem ekki hafa ráðið sig til Flugstoða, og ekki eiga rétt á bið- launum, laun næstu þrjá mánuði, gerist þörf á því. Þetta var samþykkt á félagsfundi í gærkvöldi, en áður hafði verið ákveðið að greiða laun fyrir einn mánuð. Loftur Jóhannsson, formaður FÍF, segir að til séu sjóðir sem dugi til að greiða hluta launanna, en til að fjármagna greiðslurnar þurfi trú- lega að taka lán eða selja eignir, en félagið á m.a. skrifstofu í Borgartúni og tvo sumarbústaði. Lítil þörf sé á því að félagið eigi eignir ef fé- lagsmenn séu að hætta störfum. Loftur segir að á fundinum í gær- kvöldi hafi komið í ljós að yfirmenn Flugmálastjórnar Íslands hafi sett mikinn þrýsting á nokkra flugum- ferðarstjóra, í það minnsta tvo eða þrjá, sem ekki hafi ráðið sig til Flug- stoða um að koma til starfa, eða vera ella tilbúnir að koma til aðstoðar ef brýn þörf verði á eftir áramót. „Það er greinilegt að þeir hafa sjálfir ekki mikið traust á áætluninni sinni,“ segir Loftur og vísar þar til viðbúnaðaráætlunar sem Flugmála- stjórn kynnti flugrekendum í gær.  Skert þjónusta | 2 FÍF greiðir laun í þrjá mánuði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.