Morgunblaðið - 29.12.2006, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2006 31
gur fram
neyslu
, sýslu-
i, sagði
tu svo
árangri
það væri
sla hefði
elstu inn-
flutningsleiðunum, þ.e.a.s. Keflavík-
urflugvelli, Reykjavíkurhöfn og
Seyðisfirði. Markviss uppbygging
tollgæslu og þjálfun tollvarða væri
greinilega að skila árangri. Að-
spurður hvort að hugsanlega væri
innflutningurinn orðinn mun meiri
sagði Jóhann að ekkert hefði komið
fram um að einhvers stökkbreyting
hefði orðið á fíkniefnaneyslu á milli
ára. “Þó svo að einhver aukning í
neyslu harðari efna sé sennilega
staðreynd er hún í engu ekki sam-
ræmi við þann gríðarlega mikla ár-
angur sem hefur náðst.“ Að hans
áliti væri það alveg ljóst að lögregla
og tollgæsla hefðu náð mjög háu
hlutfalli, og hærra en áður, af þeim
efnum sem smyglað var inn í landið
á árinu sem er að líða. Jóhann vildi
ekki gefa upp í hverju uppbygging
og þjálfun hjá tollgæslunni hefði fal-
ist. „Menn hafa haldið þeim spilum
mjög þétt að sér en það er þó hægt
að segja að miklum fjármunum hef-
ur verið varið í að bæta þjálfun og
tækjubúnað. Við höfum líka þétt
samskiptanetið, bæði innanlands og
við önnur ríki svo sem Danmörku,
Eystrasaltsríkin, Bretland og Hol-
land. Allir þessir þættir hafa skilað
árangri,“ sagði hann. „En við höld-
um okkar rannsóknaraðferðum
kyrfilega leyndum því um leið og ég
fer að ústkýra hvernig við bætum
okkar rannsóknaraðferðir er ég að
upplýsa um hvernig við vinnum.
Þessi árangur er ekki tilviljun, hann
er árangur þrotlausrar vinnu í mörg
ár og markvissrar uppbyggingar.“
Breyta aðferðum
Þó að vel hafi tekist til á þessu ári
er það síður en svo ávísun á vel-
gengni á því næsta, að sögn Jó-
hanns. Afar erfitt yrði að bæta
þennan árangur og raunar væri
varla hægt að ætlast til þess. Smygl-
arar breyttu vinnubrögðum sínum í
sífellu og lögregla og tollgæsla yrðu
áfram að vera á tánum gagnvart
nýjum aðferðum.
Aðspurður sagði Jóhann að
greina mætti ákveðnar tilhneig-
ingar hjá smyglurum eftir árum.
Þannig hefði í ár verið tiltölulega lít-
ið um að menn reyndu að smygla
fíkniefnum innvortis og einnig hefði
fremur lítið fundist af efnum sem
höfðu verið falin á líkama. Á hinn
bóginn hefði verið algengara að
fíkniefni væru falin í farangri og í
byrjun ársins komst upp um tvær
tilraunir til að smygla amfetamín-
basa hingað í vökvakenndu formi.
„Smygltilraunirnar eru stöðugt að
breytast og það ganga yfir ákveðnar
bylgjur í þessum málum eins og öðr-
um,“ sagði Jóhann R. Benediktsson,
sýslumaður á Keflavíkurflugvelli.
Milljarða markaður
SÁÁ hefur sagt frá því að neysla á
örvandi fíkniefnum fari stöðugt vax-
and og í grein sem birtist á vef sam-
takanna í apríl sl. sagði m.a. að út
frá fjölda amfetamínfíkla mætti
álykta að heildarinnflutningur gæti
numið 640 kílóum árlega. Miðað við
það og verðkannanir SÁÁ má áætla
að viðskipti með amfetamín nemi
um 2,7 milljörðum króna á ári. Verð-
mæti þess amfetamín og kókaín sem
haldlagt var á árinu nemur um 330
milljónum króna.
g stórar fíkniefnasendingar á þessu ári
mfetamín og
árin 2000-2005
Morgunblaðið/Árni Sæberg
: !" !$" 1%
1& Q#!150 $
& $/ #!.J$0&
/$C$"##!:$0&
-! ' " $0" $
'
12 ?
+
2
+
2
/,2
, ( ; R$
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Árleg pílagrímsferð músl-íma, haj, til hinnarhelgu borgar Mekka íSádi-Arabíu er nú
hafin og lýkur hátíðinni á mánu-
dag. Er fetað í fótspor spámanns-
ins Múhameðs sem fór fyrsta haj
sögunnar snemma á sjöundu öld
eftir Krists burð. Talið er að gest-
irnir verði að þessu sinni um þrjár
milljónir en alls eru múslímar í
heiminum nú vel á annað þúsund
milljónir, að sögn fréttavefs breska
ríkisútvarpsins, BBC.
Hátíðin hefst ávallt í mánuði er
nefnist á arabísku Dhu al-Hiijah
en tímasetning hans fer eftir
tunglkomum. Ein af hinum helgu
skyldum múslíma, hvort sem þeir
eru af grein súnníta eða sjíta, er að
fara minnst einu sinni á ævinni til
Mekka, fæðingarborgar Múham-
eðs, og fylgja þeim helgisiðum sem
ferðinni tengjast. Skilyrðið er að
þeir hafi til þess heilsu og að sjálf-
sögðu verða þeir að hafa efni á
ferðinni. En sádi-arabísk stjórn-
völd hafa á síðari áratugum orðið
að setja kvóta á hvert land til að
koma í veg fyrir að allt fari úr
böndunum, svo mikill er fjöldinn
sem vill sinna pílagrímsskyldu
sinni. Gefa Sádi-Arabar út sérstök
vegabréf fyrir pílagríma til að ekk-
ert fari milli mála.
Ekki er amast við að konur taki
þátt í hátíðinni en þeim er ráðlagt
að fara í hópi með öðrum konum,
koma ekki stakar. Best er samt að
þær séu í fylgd með föður, eig-
inmanni eða bróður. Hins vegar er
fólki af annarri trú en íslam
strangleg bönnuð þátttaka.
Hefðin fyrir haj gömul
og eldri en íslam
Enginn villutrúarmaður má fara
til Mekka og hefur fáum tekist að
brjóta það bann. Borgin er helgasti
staður íslams. En að sögn eins
þekktasta Miðausturlandafræðings
heims, Karen Armstrong, er hefðin
fyrir pílagrímsferð til Mekka samt
mun eldri en íslam og er bundin
við Kaba-steininn fræga sem hul-
inn er svörtu klæði á torginu við
moskuna miklu í Mekka. Þangað
héldu þúsundir manna frá nálæg-
um löndum á hverju ári til að
dýrka guðinn, Al Lah. Heitið varð
síðar nafnið á guði íslams. En
Mekka naut og nýtur enn góðs af
þeim geysimiklu tekjum sem ár-
viss ferðamannastraumurinn til
borgarinnar færir henni. Eitt af
því sem lengi hefur varpað skugga
á hátíðarhöldin er að oft lætur
fjöldi fólks lífið í troðningnum sem
myndast á staðnum. Þannig fórust
nær 400 manns í janúar á þessu
ári. Enn minnast menn skelfing-
anna árið 1990 þegar talið er að
rúmlega 1400 manns hafi farist í
troðningi í jarðgöngum. En stjórn-
völd í Sádi-Arabíu segjast hafa
hert öryggisreglur svo mjög að
þessu sinni að ekki eigi að vera
hætta á mannskæðum uppþotum
vegna troðnings.
Geysilegur fjöldi fólks streymir
nú í áttina að tjaldborginni Mina,
skammt frá Mekka, en þar verður
heimili pílagrímanna næstu sólar-
hringana. Þegar pílagrímurinn
kemur til Mekka fer hann vand-
lega eftir ýmsum helgisiðum sem
eiga að tákna líf Abrahams (Ibra-
hims) og Hagar (Hajarah), for-
feðra araba og reyndar einnig gyð-
inga sem að vísu eru synir Söru.
Einnig eiga siðirnir að minna á
samheldni múslíma um heim allan.
Helstu siðirnir eru þessir:
Gengið er hratt þrisvar um-
hverfis Kaba, síðan aftur fjórum
sinnum en þá nær steininum, hæg-
ar og í öfuga átt við fyrri ferðirnar.
Gengið er sjö sinnum fram og
aftur milli tveggja hæða, Safa og
Marwah. Er með þessu líkt eftir
örvæntingarfullri leit Hagar að
vatni áður en guð sendi engil sem
vísaði Hagar á brunninn Zamzam.
Þessi hluti ferðarinnar nefnist
Umrah, hið minna haj, og margir
heimsækja síðan Medina þar sem
þeir berja augum gröf Múhameðs.
En mikilvægasti hlutinn er eftir,
hið meira haj, sem hefst áttunda
dag Dhu al-Hijah. Þá halda píla-
grímarnir til tjaldborgarinnar
Mina þar sem þeir dvelja það sem
eftir lifir dagsins.
Að grýta sjálfan Satan
Daginn eftir er haldið á fjallið
Arafat og verða pílagrímarnir að
halda sig á ákveðnu svæði á fjall-
inu þar til eftir sólsetur. Tímanum
er varið til bænahalds og íhugunar.
Næsta skrefið er að eftir sól-
setur er farið á svæði er nefnist
Muzdalifah, milli Arafat og Mina,
og er þar safnað smásteinum sem
notaðir eru til að grýta skrattann
(Shaitan) daginn eftir. Er þá fyrst
fleygt sjö steinum í múr nokkurn í
Mina, síðan er dýri fórnað en
margir láta þó duga að kaupa svo-
nefnd fórnarskilríki í Mekka. Er
þá fórnað dýrum fyrir marga í
senn án þess þeir séu viðstaddir.
Sama dag láta pílagrímar raka
höfuð sitt og afklæðast Ihram-bún-
ingnum heilaga; þeir eru nú orðnir
syndlausir. Næstu tvo daga heim-
sækja þeir helgistaðinn Masjid-al-
Haram í Mekka og að kvöldi 11.
dags mánaðarins verða þeir að
fleygja steinum í alla þrjá múra
Mina og endurtaka athöfnina dag-
inn eftir.
Mikil virðing fylgir því að hafa
farið í pílagrímsferð til Mekka og
eru slíkir múslímar gjarnan heiðr-
aðir með virðingarheitinu haj-inn í
sinni heimabyggð þótt lög og regl-
ur trúarinnar mæli alls ekki fyrir
um neitt slíkt. Þess ber einnig að
geta að sannir múslímar eiga að
gefa fátækum ölmusu og ein af
reglunum varðandi haj er að eng-
inn á að leggja upp nema hann sé
búinn að tryggja fátækum í næsta
nágrenni sínu brýnustu nauðsynj-
ar.
Þetta segir að minnsta kosti
múslími sem blaðamaður hitti í
flóttamannabúðum Vestur-Sahara-
manna á dögunum. Sagði maður-
inn, sem var mikill trúmaður, að
stundum gætti skinhelgi hjá píla-
grímum. „Þeir sýna auð sinn með
því að fara til Mekka og hirða ekki
um að liðsinna fátækum,“ sagði
maðurinn, hneykslaður á þessum
trúsystkinum sínum.
En fyrir sanntrúaða múslima er
haj afar mikilvægur atburður í líf-
inu, tímamót sem líkja má við and-
leg hvörf. Margir múslímar benda
líka á að hefðin sé einstök í menn-
ingarsögunni í þeim skilningi að
hún sameini fólk um allan heim.
Og rétt er að þátttakendur koma
úr öllum heimshornum. Íslam er
ekki síður hnattræn trúarbrögð en
kristnin og litlu fámennari.
Reuters
Á bæn Tugþúsundir múslíma á bæn við Kaba-steininn, bak við svarta tjaldið, á torgi moskunnuar miklu í Mekka.
Milljónir pílagríma
sameinast í haj
Í HNOTSKURN
»Karlar sem koma tilMekka sem pílagrímar
eiga að klæðast eingöngu
sandölum og hvítum klæðum
í tveimur hlutum, fatnaður-
inn nefnist Ihram.
»Þeir mega ekki raka sig,klippa hár sitt eða bera
skartgripi meðan þeir klæð-
ast Ihram.
» Ihram táknar einfald-leika, sakleysi og fyr-
irgefningu allra synda. Kon-
ur bera oft hvítan eða
svartan klæðnað og hylja
hár sitt.
6. júlí voru tveir Litháar handteknir eftir að um 12 kíló af
amfetamíni fundust í bensíntanki bifreiðar þeirra sem flutt var
með Norrænu. Mennirnir voru dæmdir í fjögurra ára fangelsi.
Þennan sama dag var íslenskt par á tvítugsaldri handtekið á
Keflavíkurflugvelli við komuna frá Frankfurt með um kíló af
kókaíni sem þau höfðu falið í holum skósólum. Jafnframt fannst
kíló af hassi við húsleit hjá fólkinu. Í fyrirsögn Morgunblaðsins
var þetta sagt eitt stærsta kókaínmál síðari ára.
9. ágúst fundust tæplega tvö kíló af kókaíni í farangri ís-
lenskrar konu sem var að koma til landsins frá Spáni.
19. október fundust 14 kíló af hassi í póstsendingu frá Dan-
mörku. Fjórir menn sátu um tíma í gæsluvarðhaldi vegna máls-
ins.
17. nóvember fundust um 800 e-töflur í póstsendingu frá
Hollandi.
21. nóvember fundust um þrjú kíló af kókaíni í farangri ís-
lensks manns sem kom til landsins frá Kaupmannahöfn. Þetta
er mesta magn kókaíns sem náðst hefur í einni sendingu hér á
landi.
m í héraði.
ík 3 kíló af amfeta-
renni Reykjavíkur en
kniefni. Eigandi eða
Keflavíkurflugvelli
efði nægt til að fram-
hlaut fjögurra ára
2 flöskur með fíkni-
nnihéldu flöskurnar
af hassi. Lögreglan
lum við málið en
rir innflutninginn,
Þetta er stærsta
andi í fjölda ára. Sá
í 8½ árs fangelsi,
mdur í fjögurra ára
málið rak annað