Morgunblaðið - 29.12.2006, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 29.12.2006, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2006 49 menning Hugmyndasamkeppni 100 ára vélbátaútgerð frá Sandgerði 4. febrúar 2007 verða 100 ár liðin frá því að mb Gammur RE 107 lagðist við akkeri á Sandgerðisvík og hóf fiskveiðar frá Sandgerði. Áformað er að minnast þessara tímamóta í útgerðarsögu Sandgerðis á árinu 2007 með uppsetningu minnismerkis/listaverks á Hafnarsvæðinu á svæði vestan við ljósavitann. Sandgerðisbær efnir til opinnar samkeppni um hugmyndir að minnis- merki um 100 ára afmæli vélbátaútgerðar í Sandgerði. Þema verksins skal vera tengt vélum, bátum, skipum, störfum sjómanna og hafinu í sínum fjölbreytileika. Verkið verði í þrívídd og hafi möguleika á að snúast eftir vindum, þannig að verkið sé síbreytilegt eins og skip á sjó. Gert er ráð fyrir að verkið verði ca 2 m á hæð, efnisval verði í samráði við hönnuð og dómnefnd. Lögð er áhersla á að um hreyfanlegt þrívíddar- verk verði að ræða. Tillögum skal skilað undir dulnefni, en rétt höfundarnafn fylgi í lokuðu umslagi. Tillögum má skila á pappír í stærðinni A4. Einnig má skila inn þrívíðum hlutum, en þá séu þeir ekki stærri um sig en 25 x 25 x 25 cm að rúm- máli. Tillögum skal skilað fyrir 25. janúar 2007, merktum: Sandgerðisbær 100 ára afmæli vélbátaútgerðar í Sandgerði Vörðunni - Miðnestorgi 245 Sandgerði. Þrenn verðlaun fyrir bestu hugmyndirnar. 1. verðlaun kr. 150.000,- 2. verðlaun kr. 75.000,- 3. verðlaun kr. 37.500,- Dómnefnd áskilur sér rétt á að mæla ekki með verðlaunaveitingu ef inn- sendar tillögur teljast að hennar mati ekki standast gæði eða uppfylla væntingar aðstandenda keppninnar. Allar innsendingar verða meðhöndlaðar samkvæmt íslenskum höfundarétt- arlögum og samið verður sérstaklega um afnotarétt þeirra hugmynda sem veljast til áframhaldandi vinnslu. Hvort fannst þér eft-irminnilegra þegar Boratbarðist allsber við félaga sinn Azamat eða þegar Britney Spears ákvað að skilja við Kevin Fe- derline? Hvort hefði þig langað að fara á tónleika með Paris Hilton eða lesa nýju bókina hans O.J. Simpson? Það er allavega af nógu að taka þegar litið er yfir næstum liðið ár í heimi fólksfrétta.    Eftir að hafa hoppað á hús-gögnum í beinni útsendingu til að tjá ást sína á Katie Holmes gekk Tom Cruise loksins að eiga sína heittelskuðu á árinu, auk þess sem þeim fæddist dóttirin Suri. Fleiri stjörnur fjölguðu sér á árinu og margir stöldruðu eflaust við nafngiftir nýbakaðra foreldra. Þau Gwyneth Paltrow og Chris Martin ákváðu að skýra nýfæddan son sinn Moses, en fyrir áttu þau dótturina Apple. Violet varð fyrir valinu hjá þeim Ben Affleck og Jennifer Garner á dóttur sína og Shiloh Jolie Pitt bættist í sístækk- andi fjölskyldu þeirra Angelinu Jol- ie og Brad Pitt. Nafngiftin Bluebell Madonna telst þó sú sérstakasta á árinu, en það var dóttir fyrrverandi kryddpíunnar Geri Halliwell sem ber þetta nafn.    Og enn af nafngiftum. Það fyr-irtæki sem sér um að prenta nafnspjöld fyrir Sean Combs hefur nóg að gera, þökk sé hinum óá- kveðna tónlistarmanni sem skipti enn um nafn á árinu. Puff Daddy, Puffy, P Diddy, Diddy eða Sean Combs líkt og hann heitir réttu nafni neyddist til að skipta um nafn enn eina ferðina eftir að breskur út- setjari, sem kallar sig Diddy, fór í mál við Combs.    Ættleiðingargleði greip um sighjá þeim ríku og frægu. An- gelina Jolie og Brad Pitt létu sér ekki nægja að eignast sitt eigið barn heldur eiga þau nú tvö ætt- leidd og eru að sögn alvarlega að íhuga fleiri ættleiðingar. Madonna olli þó talsvert meira fjaðrafoki þegar hún ættleiddi drenginn Dav- id frá Malaví. Þótti mörgum framhjá sér gengið og gerðu at- hugasemdir við einkennilega stutt- an biðtíma stórstjörnunnar eftir barni frá Malaví.    Ósmekklegasta endurkoma árs-ins var eflaust þegar O.J. Simpson hugði á bókaútgáfu. Hann ætlaði að senda frá sér bókina If I Did It þar sem hann reifaði meðal annars hugmyndir sínar um hvern- ig hann hefði farið að, hefði hann myrt fyrrverandi eiginkonu sína Nicole Brown og vin hennar Ron Goldman. Simpson var sem kunn- ugt er sýknaður af morðákærunni á sínum tíma. Flestum þótti uppátækið takt- laust og þá sérstaklega þegar í ljós kom að útgáfa bókarinnar hefði tryggt Simpson 247 milljónir króna. Rupert Murdoch, eigandi útgáfu- fyrirtækisins sem hugðist gefa bók- ina út, ákvað í kjölfarið að hætta við útgáfuna.    K-Fed var ekki sá eini sem skildivið stjörnu á árinu og uppskar andúð almennings. Sé eitthvað að marka bresku slúðurpressuna eiga fáir minna uppá pallborðið þar í landi en Heather Mills, verðandi fyrrverandi eiginkona Paul McCartney.    Pete Doherty var mikið á milligulu tanna slúðurpressunnar á árinu og sjaldnast, ef nokkurntíma, fyrir sigra á tónlistarsviðinu. Pete virðist kominn á sama stall og stöll- urnar Paris og Britney, allt sem þau gera er fréttnæmt en fáir muna fyr- ir hvað þau voru upphaflega þekkt.    Óumflýjanlega kvöddu nokkrarstjörnur þennan heim á árinu. Ed Bradley úr 60 mínútum lést eftir baráttu við hvítblæði, Syd Barrett úr Pink Floyd dó og rapparinn Pro- of var skotinn til bana. Leikstjórans Robert Altmans var minnst víða um heim og einnig krókódílamannsins ástralska Steve Irwin, sem stunginn var af gaddaskötu í einum af æv- intýraferðum sínum. Það voru ekki bara áðurnefnd stórmenni sem kvöddu þennan heim á árinu. Leikarinn Ceorge Clooney þurfti að sjá á eftir félaga sínum Max, svíninu sem hann hefur haft sem gæludýr í áraraðir. Einnig drapst hinn hvíthærði Moose í sum- ar, en hundurinn sá er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Eddie í sjón- varpsþáttunum Frasier. Í þessu samhengi má nefna að lag James Blunt „Goodbye My Lover“ var á árinu valið það lag sem flestir Bretar vildu láta spila í jarðarför- inni sinni. Það fylgir þó ekki sög- unni hvort hinir látnu hér að ofan voru á sama máli.    Sem oftar var grannt fylgst meðástarlífi fræga fólksins, hver er með hverjum og hverjir eru að skilja. Sumt kom á óvart í síð- arnefnda flokknum en annað ekki. Eminem skildi fyrir fullt og allt við Kim sína, sem hann hefur gifst tvisvar en úthúðað á plötum sínum þess á milli. Leikaraparið Ryan Philippe og Reese Witherspoon skildu að skipt- um eftir að hafa æ ofan í æ vísað brestum í sambandinu á bug. Og skilnaðarorsökin ... jú ósættanlegur ágreiningur! Kid Rock og Pamela Anderson skildu eftir örstutt hjónaband enda ráðlagði Pamela fólki að gifta sig ekki í sumarfríi eftir nokkra vikna kynni. Rock vildi hinsvegar meina að Borat hefði átt sök á skiln- aðarmálinu...    Mikið var skrifað og skrafað umJames Bond á árinu. Valinn var nýr, bláeygur og ljóshærður Bond, Daniel Craig að nafni. Ekki voru allir á eitt sáttir með valið og var Craig úthúðað fyrirfram og kunnátta hans í bílakstri meðal annars lögð honum til lasts. Óhætt er að segja að Craig hafi þó komið, séð og sigrað enda það næstum ein- róma skoðun gagnrýnenda víða um heim að Bond hafi gengið í end- urnýjun lífdaga og það vel.    Ekki er hægt að komast hjá þvíað nefna Paris Hilton sem hélt áfram að baða sig í sviðsljósinu fyr- ir, já fyrir hvað. Hún var þó skráð í Heimsmetabók Guinness á árinu fy- irr að vera ofmetnasta manneskja í heiminum og skákaði þar Britney og Tom Cruise. Einnig rataði hún oft, allt of oft að margra mati, á síð- ur gulu pressunnar fyrir ýmisleg uppátæki úti á lífinu, nú síðast ásamt nærbuxnalausri Britney Spe- ars.    Þá er bara að byrja að hlakka tilnæsta árs, sem vonandi verður stútfullt af skemmtilegum furðu- fréttum af „góðkunningjum“ okkar úr slúðurdálkum blaðanna. Ég er viss um að Paris Hilton ósk- ar okkur öllum gleðilegs nýs árs. Takk fyrir árið Paris, Pamela og O.J. Simpson Skilin Kid Rock og Pamela Anderson skildu á árinu, vegna Borats vill Rock meina. Ættleiðingar Madonna ásamt börnum sínum Lourdes, Rocco og David Banda hinum nýættleidda. AF LISTUM Birta Björnsdóttir birta@mbl.is »Kid Rock og PamelaAnderson skildu eftir örstutt hjónaband enda ráðlagði Pamela fólki að gifta sig ekki í sumarfríi eftir nokkra vikna kynni. Reuters Umdeildur O.J. Simpson hugsaði sér gott til glóðarinnar þegar hann hugðist gefa út vafasama bók á árinu. ÍSLENSKA kvikmyndin Köld slóð var forsýnd í Smárabíó í gær- kvöldi. Aðstandendur mynd- arinnar og aðrir gestir mættu til að berja myndina augum en nokk- urrar eftirvæntingar gætti meðal forsýningargesta sem augljóslega voru spenntir að sjá afraksturinn á hvíta tjaldinu. Köld slóð er sakamálasaga um blaðamanninn Baldur sem heldur upp á hálendið til að rannsaka dularfullt andlát öryggisvarðar í virkjun en sá látni er faðir hans. Höfundar myndarinnar eru Kristinn Þórðarson og Björn Brynjúlfur Björnsson og með helstu hlutverk fara Þröstur Leó Gunnarsson, Anita Briem, Helgi Björnsson og Elva Ósk Ólafsdóttir. Morgunblaðið/ÞÖK Forsýning Aðalleikari Kaldrar slóðar, Þröstur Leó Gunnarsson, tekur hér í höndina á Kristni Þórðarsyni, sem er annar höfundur myndarinnar, við komuna í Smárabíó í gærkvöldi. Köld slóð forsýnd
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.