Morgunblaðið - 29.12.2006, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 29.12.2006, Blaðsíða 54
54 FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Sími - 564 0000Sími - 462 3500 - Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir Köld slóð kl. 6, 8 og 10 B.i. 12 ára Tenacious D in the Pick of Destiny kl. 8 og 10 B.i. 12 ára Artúr & Mínimóarnir kl. 4 og 6 Eragon kl. 3.50 B.i. 10 ára Köld slóð kl. 3.30 og 5.45, 8 og 10.15 B.i. 12 ára Köld slóð LÚXUS kl. 5.45, 8 og 10.15 Artúr & Mínimóarnir kl. 1.30, 3.40 og 5.50 Eragon kl. 1, 3.20, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 10 ára Eragon LÚXUS kl. 1 og 3.20 Casino Royale kl. 8 og 10.50 B.i. 14 ára Hnotubrjóturinn og Músakóngurinn kl. 1.30 Mýrin kl. 8 B.i. 12 ára Hátíð í bæ / Deck the halls kl. 1.30, 3.40 og 5.50 Borat kl. 10.20 B.i. 12 ára e Frábær fjölskyldu- og gamanmynd sem kemur öllum í gott jólaskap Aðeins 500 kr.Hinn ungi og og bráðefnilegi Freddie Highmore úr Charlie and the Chocolate Factory fer á kostum í hlutverki Artúrs. ÍSLENSKT TAL JÓLAMYNDIN 2006 FRÁBÆR ÆVINTÝRA- MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA Mynd eftir Luc Besson Þegar myrkrið skellur á...hefst ævintýrið! Stórkostleg ævintýramynd byggð á magnaðri metsölubók M e eee SV MBL 20% afsláttur fyrir alla viðskiptavini Kaupþings ef greitt er með korti frá Kaupþingi ÞAÐ ER HÆTTULEGT AÐ LEITA SANNLEIKANS - ÞÚ GÆTIR FUNDIÐ HANN... staðurstund Í dagatali kirkjunnar er 29. desem-ber helgaður minningu hl. Tóm- asar Beckets, erkibiskups af Kant- araborg. Vegna píslarvættisdauða Beckets varð Kantaraborg einn vin- sælustu pílagrímsstaða miðaldanna. Richard Burton og Peter O’Toole leika ólíkt par í þessari dramatísku mynd frá 1964: Hinrik II, normann- skan konung Englands og Tómas Becket, saxneskan sveitamann sem kemst til metorða fyrir tilstilli Hin- riks konungs og verður kanslari Englands. Vináttusamband þeirra tveggja virðist verða takmarkalaust þar sem Becket þjónar kóngi sínum af alúð sem ráðgjafi og félagi í mörgum skemmtunum. En þegar Hinrik út- nefnir vin sinn erkibiskup af Kantaraborg og yfirmann kirkjunnar í Eng- landi í því skyni að láta hana lúta stjórn sinni algjörlega fer allt á annan veg. Becket er sannkölluð meistaramynd og hefur hreppt mörg verðlaun (Academy Award). Sýningin hefst kl. 19.30 í safnaðarheimili Kristskirkju á Hávallagötu 16 og tekur 2 1/2 klukkutíma. Aðgangur er ókeypis og öllum frjáls meðan húsrúm leyfir. Kvikmyndir Kvikmyndasýning: „Becket“ í safnaðarheimili Kristskirkju Skráning viðburðar í Staður og stund er á heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos Skráning viðburða Tónlist Hallgrímskirkja | Kristinn Sigmundsson óperusöngvari og Trompeteria-hópurinn, Hörður Áskelsson orgelleikari ásamt trompetleikurunum Ásgeiri H. Steingríms- syni og Eiríki Erni Pálssyni, koma fram á hátíðartónleikum í Hallgrímskirkju á gaml- ársdag kl. 17. Á efnisskrá eru m.a. bassaarí- ur úr Messíasi og Jólaóratóríunni. Myndlist Art-Iceland.com | Skólavörðustíg 1a er með smámyndasýningu frá 10. des. 2006 til 14. janúar 1007. Listamennirnar 20 og galleríið gefa 10% af sölu til Barnaheilla. Verkin á sýningunni eru mjög fjölbreytt og áhugaverð. Eftir jól er opið frá kl. 12:00- 18.00 Allir velkomnir. Artótek Grófarhúsi | Tryggvagötu 15 1. hæð . Anna Hallin myndlistarmaður hefur opnað sýningu á verkum sínum. Anna lærði myndlist á Íslandi, í Svíþjóð og Bandaríkjunum. Hún hefur haldið sýningar víða um heim og hlotið margvíslegar við- urkenningar. Anna sýnir teikningar og myndband. Sjá http://www.artotek.is Café Mílanó | Ingvar Þorvaldsson er með málverkasýningu. Sýnd eru 10 ný olíu- málverk. Sýningin stendur til áramóta. Gallerí 100° | Sýning á myndlist í eigu Orkuveitu Reykjavíkur. Opið virka daga kl. 8.30-16. Gallerí Úlfur | Sigurdís Harpa Arnarsdóttir sýnir út desember. Opið virka daga frá kl. 14-18. Gerðuberg | Gerðuberg á í safni sínu um 1000 listaverk eftir börn sem unnin voru í listsmiðjunum Gagn og Gaman sem starf- ræktar voru sumrin 1988-2004. Fyrirtæki og stofnanir geta fengið leigð verk úr safn- inu til lengri eða skemmri tíma. Sýningin stendur til 21. janúar. Sjá www.gerduberg.is. Gerðuberg | Sýning á myndskreytingum í íslenskum barnabókum 2006. Sýningin stendur til 21. janúar 2007. Tekið er á móti 8 ára skólabörnum í samstarfi við Borg- arbókasafnið. Sjá www.gerduberg.is. Gerðuberg | Hugarheimar – Guðrún Bergs- dóttir sýnir útsaum og tússteikningar. Ein allsherjar sinfónía fjölskrúðugra lita og for- ma; eins og íslensk brekka þakin berjum að hausti eða brúðarklæði frá Austurlöndum. Verk Guðrúnar vitna um hina óheftu tján- ingu sem sprettur fram úr hugarheimi hennar. Sýningin stendur til 21. janúar. Sjá www.gerduberg.is. Hafnarborg | Ljósmyndarinn Spessi til 30. desember. Verkin eru úr bók sem ber tit- ilinn „Locations“ og kom út nú fyrir jólin. Sýningin í Hafnarborg hefur fengið sömu yfirskrift. Þarna er fyrst og fremst um að ræða myndir af stöðum sem bera ummerki mannfólksins. Hafnarborg | Sigrún Guðjónsdóttir, Rúna, sýnir í Sverrissal og Apóteki. Á sýningunni verða steinleirsmyndir og verk unnin á pappír með akrýl, olíukrít, pastel og bleki. Hrafnista Hafnarfirði | Ellen Bjarnadóttir sýnir í Menningarsal til 8. janúar. Kaffi Sólon | Elena Fitts sýnir málverk á Sólon. Verkin eru unnin með olíu á striga. Elena fæddist 1984 í Úkraínu, byrjaði að teikna mjög ung. Hún flutti til Íslands 1999 og ári síðar hóf hún að nota olíuliti. Til 5. janúar. Kling og Bang gallerí | Sirra Sigrún Sig- urðardóttir, Hekla Dögg Jónsdóttir, Ásdís Sif Gunnarsdóttir og Daníel Björnsson sýna í Kling & Bang gallerí, Laugavegi 23. Sýningin heitir Ljósaskipti – Jólasýning Kling og Bang og stendur til 28. janúar 2007. Listasafn Einars Jónssonar | Lokað í des- ember og janúar. Höggmyndagarðurinn við Freyjugötu er alltaf opinn. Listasafn Íslands | Frelsun litarins/Regard Fauve, sýning á frönskum expressjónisma í upphafi 20. aldar. Sýningin kemur frá Mu- sée des beaux-arts í Bordeaux í Frakklandi, 52 verk eftir 13 listamenn. Sýning á verk- um Jóns Stefánssonar í sal 2. Opið 11-17 alla daga, lokað mánudaga. Ókeypis að- gangur. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Bandarísk list á þriðja árþúsundinu. Margir af fremstu listamönnum Bandaríkjanna, sem fæddir eru eftir 1970, eiga verk á sýn- ingunni. Sýningarstjórarnir eru í fremstu röð innan hins alþjóðlega myndlistarvett- vangs. Sýningin hefur farið víða um heim, m.a. til New York og Lundúna. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Lokað í desember og janúar. Ófeigur listhús | Skólavörðustig 5. Mál- verkasýning Ómars Stefánssonar. Sýningin stendur til áramóta og er opin á versl- unartíma. Þjóðminjasafn Íslands | Á Veggnum í Þjóð- minjasafninu stendur yfir jólasýning með myndum tvíburabræðranna Ingimundar og Kristjáns Magnússona. Myndirnar fanga anda jólanna á sjöunda áratugnum. Margt í þeim ætti að koma börnum í jólaskap og fullorðna fólkið þekkir þar vafalaust hina sönnu jólastemningu bernsku sinnar. Þjóðminjasafn Íslands | Í Myndasal Þjóð- minjasafnsins eru til sýnis þjóðlífsmyndir úr safni hins þjóðþekkta Guðna Þórð- arsonar í Sunnu, blaðamanns, ljósmyndara og ferðamálafrömuðar. Myndirnar tók hann við störf og ferðalög á tímabilinu 1946-60. Þær eru eins og tímasneið frá miklu umbrotaskeiði í sögu þjóðarinnar. Þjóðminjasafn Íslands | Í Bogasal Þjóð- minjasafnsins stendur yfir sýning á út- saumuðum handaverkum listfengra kvenna frá fyrri öldum. Sýningin byggist á rannsóknum Elsu E. Guðjónsson textíl- og búningafræðings. Myndefni útsaumsins er fjölbreytt, m.a. sótt í Biblíuna og kynja- dýraveröld fortíðarinnar. Söfn Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Nú stend- ur yfir á Bókatorg í Grófarhúsi, Tryggva- götu 15, 1. hæð, sýningin „... hér er hlið him- insins“ sem Borgarskjalasafn Reykjavíkur vann í tilefni af 20 ára vígsluafmæli Hall- grímskirkju. Sýningin er opin virka daga kl. 11-19 og um helgar kl. 13-17. Aðgangur ókeypis, allir velkomnir. Til 7. janúar. Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið alla daga nema mánudaga kl. 10-17. Hljóð- leiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og sænsku. Margmiðlunarsýning og göngu- leiðir í nágrenninu. Frekari upplýsingar á www.gljufrasteinn.is Sími 586 8066. Landsbókasafn Íslands, Háskólabókasafn | Í spegli Íslands er lítil sýning í forsal þjóð- deildar safnsins. Þar er sagt frá ferðasög- um til Íslands í gegnum aldirnar. Sjá nánar á heimasíðu: www.landsbokasafn.is Landsbókasafn Íslands, Háskólabókasafn | Sú þrá að þekkja og nema ... Sýning til heiðurs Jónas Jónassyni frá Hrafnagili – 150 ára minning. Jónas var prestur, rithöf- undur, þýðandi og fræðimaður, eins og verk hans Íslenskir þjóðhættir bera vott um. Sýningin spannar æviferil Jónasar. www.landsbokasafn.is Landsbókasafn Íslands, Háskólabókasafn | Upp á Sigurhæðir – Matthías Jochumsson var lykilmaður í þjóðbyggingu 19. aldar. Menn þekkja best sálmana, þjóðsönginn og Skugga-Svein, en skáldpresturinn sá eftir sig 28 bækur, þar af 15 frumsamdar. Sýn- ingin stendur yfir til 31. desember. Sjá heimasíðu safnsins www.landsbokasafn.is Þjóðmenningarhúsið | Að vanda eru fjöl- breyttar sýningar í sölum Þjóðmenning- arhússins. Þær eru: Íslensk tískuhönnun, með fatalínum frá níu merkjum eða hönn- uðum í samhengi við íslenska náttúru. Berlin Excursion, bókagerðarlist frá forlagi rithöfunda og myndlistarmanna frá Berlín. Fyrirheitna landið og Handritin að auki. Þjóðminjasafn Íslands | Skoðunarferð um grunnsýningu Þjóðminjasafnsins er æv- intýralegt ferðalag gegnum 1200 ár sem hefst í skipi landnámsmanna og lýkur í flughöfn nútímans. Fjölbreyttar sýningar, fræðsla og leikir fyrir alla fjölskylduna. Skemmtileg safnbúð og notalegt kaffihúss. Opið alla daga nema mánudaga kl. 11-17. Dans Lækjartorg | Gjörningaklúbburinn Ein- hleypingur mun flytja verk sitt „sí sí“ á Lækjartorgi í dag, 29. desember, kl. 16.30. Ár er síðan Einhleypingur sýndi gjörning sinn hér á landi en meðlimir hópsins hafa starfað á víð og dreif um allan heim síðast- liðið ár. Er því um merkisviðburð að ræða. Skemmtanir Kringlukráin | Hljómsveitin Sixties heldur fjörinu uppi alla helgina. Frístundir og námskeið Lesblindusetrið | Sérsniðið hraðlestr- arnámskeið fyrir 9-13 ára krakka. Hvers virði er aukinn lestrarhraði? Gefðu barninu þínu tækifæri á að skara fram úr með því að tvöfalda, jafnvel margfalda, lestr- arhraða sinn. Leiðbeinandi er Kolbeinn Sig- urjónsson, Davis ráðgjafi hjá Les- blindusetrinu í Mosfellsbæ. Sími 566 6664. Börn Þjóðminjasafn Íslands | Á Torginu í Þjóð- minjasafninu stendur yfir sýningin Sér- kenni sveinanna. Á sýningunni er lítið jóla- hús og sitthvað sem tengist jólasveinunum, svo sem kjöt fyrir Ketkrók og bjúgu fyrir Bjúgnakræki. Sýningin getur hjálpað börnunum til að skilja hin skrýtnu nöfn jólasveinanna. Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.