Lesbók Morgunblaðsins - 17.02.2007, Blaðsíða 5
Airwaves 2006 Hljómsveit Benna Hemm Hemm í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi
líka tónlistin þeirra. Sveitin er þéttari að
þessu leytinu til í dag og fólk er farið að
þekkja inn á hvert annað á tónleikum.“
Benni segist samt eiga það til að gerast
harðstjóri, ef honum líst ekki á framvinduna.
„Hlutirnir eru þá ræddir … en þetta er
svolítið skrítið. Í einhverjum tilfellum ræð ég
alveg en í öðrum ekki. Þetta er furðulegt, því
að ég hef í gegnum tíðina verið í mesta lagi
gítarleikarinn í Rúnk og hef ekki haft það
mikið að segja um hlutina. Þannig að þetta
stjórastarf er alveg nýtt fyrir mér. En þetta
svigrúm sem er gefið á milli nótnanna er
held ég eina ástæðan fyrir því að fólk meikar
þetta. Að það hafi smá pláss.“
Benni hefur aldrei reynt að slá markvisst í
gegn með hljómsveitinni, hvað þá að hann
hafi átt von á einhverjum viðtökum.
„Summer Plate var gefin út í 30 eintökum.
Ég var síðan að vona að samnefnda platan
frá 2005 myndi seljast í um 200 eintökum.
Ég gaf hana út sjálfur, það vildi enginn ann-
ar gefa hana út. Maður bara vonaðist til að
koma út á sléttu.“
Hann segir samt að í dag geti hann eðli-
lega gert ráð fyrir einhverju meiru.
„Ég væri að ljúga að þér ef ég segðist bú-
ast við því að selja 100 eintök af Kajak. Þetta
er komið lengra núna. Maður veit af þeim
veruleika en um leið veit maður að það er
ekkert sjálfgefið í þessu.“
Hratt
Benni samdi efnið á fyrri plötuna erlendis, en
kona hans var þá í skiptinámi.
„Ég sat við í fjóra mánuði að semja og
kom auðvitað heim skuldugur upp fyrir haus.
Ég varð bara að tékka á þessu, þar sem
maður var alltaf vælandi yfir því að hafa
aldrei tíma til að sinna tónlistinni nægilega
vel. Ég gaf mér því góðan tíma og ákvað að
sjá hvort að það kæmi eitthvað af viti úr
þessu. Ef svo yrði ekki, þá ákvað ég að hætta
bara að pæla í þessu, hætta þessu væli.“
Þegar Kajak var unnin, helltist mikið
keppnisskap yfir Benna.
„Ég vildi sjá hvort ég gæti neglt þetta aft-
ur. Platan var unnin fáránlega hratt. Hún
var tilbúin í júlí í fyrra og ég byrjaði að
vinna hana í mars/apríl. Þá fór ég að semja.
Og það var ekki svo að andinn væri að hell-
ast í skyndingu yfir mig heldur ákvað ég ein-
faldleg að trukka þetta í gegn. Ég setti mig í
stellingar og fór bara að vinna. Lögin voru
svo spiluð nokkurn veginn í gegn á fyrstu
æfingu. Það skiptir miklu hversu gott fólk er
í bandinu, lögin eru sum hver alveg helsteikt
hvað form og takt varðar. Allt var mjög hratt
og ég er búinn að uppgötva að ég hef þetta
„trukk“ í mér. Það er erfitt að útskýra þetta,
því að ég er nýbúinn að kynnast þessum
þætti í sjálfum mér. Ég sá hann ekki fyrr en
ég fór að vinna með þessari hljómsveit.“
Benni segist að endingu spenntur fyrir
bráðkomandi túr, hlakkar til að kynna Benna
Hemm Hemm fyrir Evrópubúum.
„Þetta eru fínir staðir sem við erum að
fara að spila á, og við náum að flakka ágæt-
lega um álfuna. Mér finnst mjög mikilvægt
að fólk sjái okkur á tónleikum og sjái að
Benni Hemm Hemm er ekki bara einhver
diskur uppi í hillu. Þetta verður líka mikil
prófraun fyrir mig, hvernig á það eftir að
ganga að fara með allan þennan mannskap í
svona ferðalag? En ég er mjög bjartsýnn á
báða hluti.“
Morgunblaðið/G.Rúnar
Þýskaland 2006 Benni Hemm
Hemm spilaði í Berlín og Rostock.
»Þetta átti bara að vera svona
„Benni og Sinfó“. Eitt verk-
efni og svo búið. En svo spurði
fólkið hvenær næstu tónleikar
yrðu og þá fór ég að endurhugsa
þetta. Og í dag er kominn ein-
hvers konar sjálfsmynd á hóp-
inn, þó að hún sé mjög brengluð.
Það hefur nefnilega aldrei verið
ákveðið hvað þessi hljómsveit er.
Þetta er t.a.m. ekki sólóverkefni
með leiguspilurum og þetta er
ekki heldur vinahljómsveit eins
og svo margar popp/rokksveitir.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2007 5