Lesbók Morgunblaðsins - 24.03.2007, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 24.03.2007, Blaðsíða 8
Eftir Örnu Kristínu Einarsdóttur arna@b11.cc Á rið 1996 flutti Hallé- sinfóníuhljómsveitin í Manchester, ein elsta starfandi hljómsveit á Bretlandi, í nýtt og glæsilegt tónlistarhús, The Bridgewater Hall. Tónlistarhúsið, sem teiknað er af arkitektunum Renton Howard og Wood Levin, er glæsileg glerbygging sem stendur í miðbæ Manchester. Húsið hefur hlotið fjölda viðurkenninga, meðal annarra frá The Royal Institute of British Architect og The Civic Trust Special Award, fyrir að vera sú bygging sem hvað mest hefur lyft ásýnd Manchesterborgar. Það þótti ganga kraftaverki næst að byggingin skyldi ekki verða fyrir skemmdum þegar stærsta sprengja Írska lýðveldishersins (IRA) sprakk í miðbæ Manchester í júní 1996, nokkrum mánuðum áður en húsið var tekið í notkun. Tónlistarhúsið sjálft er rekið af Hallogen Ltd, samvinnufyrirtæki Hallé Con- cert Society og SMG fasteignafélags. Að- alsalurinn tekur 2.341 manns en einnig eru tveir minni salir sem hvor um sig taka rétt um 600 manns. Hallé réttir úr kútnum Hallé-hljómsveitin átti í töluverðum rekstr- arvandræðum í kjölfar flutningsins. Tilkostn- aður vegna flutninganna og niðurskurður styrkja frá breska menningarsjóðnum (The Arts Council) og sveitarfélaginu gerði það að verkum að bilið á milli rekstrarkostnaðar og nettó innkomu hljómsveitarinnar breikkaði stöðugt og varð næstum óbrúanlegt. John Summers, núverandi framkvæmdastjóri hljómsveitarinnar, heldur því fram að slæm- ar ákvarðanir fyrrverandi framkvæmda- teymis hafi ekki bætt ástandið í rekstrar- og afkomumálum hljómsveitarinnar. Sem dæmi lá fyrir að áheyrendur væru tilbúnir að greiða hærra miðaverð fyrir betri tónleika- upplifun í nýju húsi en það tækifæri var ekki nýtt sem skyldi. Loks tíu árum eftir flutning hefur hljóm- sveitinni tekist að rétta úr kútnum. Í bresku menningarlífi er talað um sigurgöngu Hallé- hljómsveitarinnar. Þannig hlaut hljómsveitin á dögunum hin virtu tónlistarverðlaun The Royal Philharmonic Society. Svo virðist því sem starfsemin hafi náð sér fullkomlega á strik eftir þá rekstrarerfiðleika sem fylgdu í kjölfar flutninganna og höfðu áhrif á allt starf hljómsveitarinnar. John Summers telur að góður árangur sé fyrst og fremst að þakka frábærri listrænni stjórnun Marks Elders aðalhljómsveitarstjóra, sem tók við af Kent Nagano árið 2000. Einnig hafi orðið miklar áherslubreytingar hjá hljómsveitinni sem sjáist best á því mikla starfi sem hljómsveitin vinnur með ungu fólki. Hljómsveitin ver miklum hluta af starfstíma sínum í það að heimsækja skóla í Manchester og nágranna- bæjum. Það hefur verið stefna hljómsveit- arinnar frá því að John Summers tók við starfi framkvæmdastjóra að vinna markvisst að því að kynna hljómsveitina fyrir ungu fólki. John Summers er ekki í vafa um að vaxtarbroddur greinarinnar sé fólginn í já- kvæðri upplifun ungs fólks af klassískri tón- list, þó svo að uppskera af þessu rækt- unarstarfi skili sér ekki fyrr en eftir nokkur ár eða jafnvel áratugi. Hallé-ungliðahljómsveitin Árið 2002 var stofnuð ungliðahljómsveit und- ir merkjum Hallé-hljómsveitarinnar, Hallé Youth Orchestra. Hér vildi hljómsveitin ná sérstaklega til tónlistarnema í bresku rík- isskólunum frekar en að horfa til þeirra sem þegar stunda nám í tónlistarskólum, enda standi þeim til boða allt hið besta. Ungliða- hljómsveit Hallé-hljómsveitarinnar hefur nú þegar náð frábærum árangri og vakið at- hygli. Markmiðið með stofnun hljómsveit- arinnar var þó ekki síður að gefa aðstoð- arhljómsveitarstjóra Hallé-hljómsveitarinnar tækifæri til þess að vaxa og dafna. Í hans verkahring er full um- sjón með hljómsveitinni, hvort sem er á stjórnendapallinum eða við listræna stjórn- un. Hljóðfæraleikarar í ungliðahljómsveit Hallé njóta jafnframt reglubundinnar leið- sagnar meðlima Hallé-hljómsveitarinnar og stjórnenda hennar. Árið 2003 var svo stofn- aður ungliðakór Hallé fyrir söngvara á aldr- inum 12–19 ára til að auka enn frekar starf hljómsveitarinnar með ungu fólki. Dæmi um skipulagt samstarf þar sem nemendum gefst tækifæri til þess að vinna með atvinnumönnum má finna víða hjá hljómsveitum erlendis. Hér á Íslandi hefur tíðkast að lengra komnir tónlistarnemendur hafi verið fengnir til að spila með Sinfón- íuhljómsveit Íslands (SÍ). Oft hefur þetta reynst nauðsynlegt til þess að fullmanna hljómsveitina fyrir stærri verk og um leið ómetanlegt tækifæri fyrir nemendur. Eins leikur hljómsveitin árlega undir hjá þeim nemendum sem útskrifast með einleik- arapróf. Að þessu leyti hefur SÍ verið í mjög nánum tengslum við tónlistarskólana og nemendur. Líklegt er að dregið hafi úr þeirri nánd á síðustu árum þar sem fullmenntuðum hljóðfæraleikurum fjölgar stöðugt. Þeir fylla nú þau skörð sem nemendur fylltu áður. Samstarf nauðsynlegt Á árunum 1977 til 1996 var starfandi á Ís- landi Sinfóníuhljómsveit æskunnar. Stjórn- andi hennar og forsprakki var bandaríski stjórnandinn og fiðluleikarinn Paul Zu- kovsky. Metnaður hljómsveitarinnar var afar mikill og oft og tíðum stóð hljómsveitin fyrir frumflutningi á verkum á Íslandi. Tónleikar hljómsveitarinnar áttu sinn sess í tónlistarlífi höfuðborgarinnar og vöktu ávallt mikla at- hygli og því mikill missir fyrir íslenskt tón- listarlíf að starfsemi hljómsveitarinnar skuli hafa verið lögð niður. Við stofnun Listaháskóla Íslands fóru efri deildir Tónlistarskóla Reykjavíkur, sem fram að því hafði verið æðsta stofnun tónlistar- menntunar á Íslandi, undir hatt Listaháskól- ans en undirbúningsdeild fylgdi ekki með. Það veldur því að hvorugur skólinn er nógu burðugur til þess að hafa á sínum snærum öfluga sinfóníuhljómsveit sem hefur mögu- leika á því að glíma við erfið og stór verkefni líkt og Sinfóníuhljómsveit æskunnar var þekkt fyrir á árum áður. Í Tónlistarskóla Reykjavíkur er starfandi skólahljómsveit en í Listaháskóla Íslands starfar einungis kamm- ersveit. Í dag eru jafnframt starfandi Ung- fónía, sinfóníuhljómsveit unga fólksins sem stofnuð var af lengra komnum nemendum sjálfum í nóvember 2004, og Sinfón- íuhljómsveit tónlistarskólanna, sem nem- endur frá tónlistarskólum á höfuðborg- arsvæðinu skipa. Í litlu tónlistarsamfélagi eins og á Íslandi hlýtur öflugt samstarf að vera aðalatriði. Sin- fóníuhljómsveit Íslands og Listaháskólinn hljóta að þurfa að koma inn í starf þessara nemendahljómsveita með markvissum hætti. Í samvinnu við menntamálaráðuneytið og aðra fjársterka aðila þarf að tryggja að þess- um þætti tónlistarmenntunar sé sinnt af glæsibrag. Hafa ber í huga að í nemenda- hljómsveit sitja ekki einungis upprennandi atvinnuhljóðfæraleikarar heldur líka tilvon- andi tónlistarunnendur sem meiri líkur eru á að sækja muni tónleika. Hér skiptir ekki bara máli að mennta tilvonandi fagfólk og sjá því fyrir nauðsynlegri reynslu, kunnáttu og þekkingu heldur ekki síður að viðhalda áhuga á klassískri tónlist í samfélaginu almennt. Los Angeles-fílharmónían og Disney Los Angeles-fílharmónían var stofnuð árið 1919 af margmilljónamæringi og áhuga- tónlistarmanni að nafni William Andrews Clark jr. Hljómsveitin þykir eitt helsta flagg- skip sviðslista í Suður-Kaliforníu og ein af bestu sinfóníuhljómsveitum Bandaríkjanna. Finnski hljómsveitarstjórinn Esa-Pekka Salonen hefur verið stjórnandi hennar frá því 1992. Tónleikagestir hljómsveitarinnar eru yfir ein milljón á ári. Starfsárinu er skipt upp í 30 vikna tónleikaröð í Walt Disney Concert Hall og 12 vikna sumartónlistarhátíð í Holly- wood Bowl, í skemmtanahverfi borgarinnar, þar sem tónleikar undir stjörnubjörtum himni hafa verið vinsæl hefð síðan 1922. Árið 1987 gaf Lillian Disney, sem nú er látin, gjöf upp á 50 milljónir dollara með það í huga að reisa sviðslistabyggingu á heimsmælikvarða til minningar um framlag Walts Disneys til listalífsins. Höllin, sem teiknuð er af hinum virta arkitekt Frank Gehry, er hönnuð með hljómburð í huga og sjónræn upplifunin af húsinu á að endurspegla þann einstaka sköp- unarkraft sem býr í Los Angeles-borg. Disn- ey-fjölskyldan átti eftir að gera betur og þeg- ar upp var staðið styrkti hún byggingu tónlistarhússins samtals um 100 milljónir dollara. Þetta skýrir Disney-nafnið á tónlist- arhúsinu. Árið 1999 var hafist handa við bygginguna en áður hafði Los Angeles-borg byggt sex hæða bílastæðahús undir bygging- unni. Haustið 2003 hélt Los Angeles- fílharmónían sína fyrstu tónleika í nýja hús- inu, sem er í hjarta Los Angeles. Tónleikum fjölgar um 65 Tölur frá Joan Cumming, yfirmanni mark- aðs- og upplýsingadeildar hljómsveitarinnar, sýna að flutningur hljómsveitarinnar í Walt Disney Concert Hall hafði afar góð áhrif á rekstur fílharmóníunnar m.a. vegna hækk- unar á miðaverði og góðrar aðsóknar. Síðasta starfsár hljómsveitarinnar í Dorothy Chand- ler Pavilion, þar sem hljómsveitin hafði átt heima síðan árið 1964, voru haldnir 112 áskriftartónleikar þar sem sætanýting var að meðaltali 69%. Fyrsta starfsárið í Walt Disn- ey Concert Hall voru 157 tónleikar og sæta- nýting náði 94%. Betri sætanýting segir þó ekki alla söguna þótt hún hafi án efa bætt upplifun hljómsveitarmeðlima sem áhorf- enda. Rétt er að taka það fram að hljóm- sveitin minnkaði töluvert við sig í salarstærð. Þrautaganga eða si Sinfónían í takt við tímann – önnur grein Um síðustu helgi birtist grein eftir Örnu Kristínu Einarsdóttur í Lesbókinni sem fjallaði um áheyrendaþróun hjá sinfóníuhljómsveitum á Íslandi, í Bandaríkjunum og Svíþjóð. Eins og boðað var fjallar hún í þessari grein um reynslu tveggja hljómsveita, Hallé-sinfón- íuhljómsveitarinnar í Manchester á Englandi og Los Angeles-fílharmóníunnar í Banda- ríkjunum, af því að flytja í ný tónlistarhús. Einkum er litið til þess hvaða áhrif flutning- arnir og rekstrarformið höfðu á starfsemi hljómsveitanna. 8 LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ lesbók

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.